Morgunblaðið - 20.02.1992, Síða 4

Morgunblaðið - 20.02.1992, Síða 4
eer jiAúíiaar-i 02 qnaA£miMi/J3 lijllllliw«\iwiffignf qiöa ihvi’iohom MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNVLIF FIMMTUDAGÚR 20. FEBRÚAR 1992- !1b FJÁRMÁL Á FIMMTUDEGI Arðsemi 500 stærstu fyrirtækja Evrópu var 20% árið 1990 Tekjuskiptingarhlutföll milli launþega og fyrirtækja á íslandi eru með öðrum hætti en annars staðar í OECD. Svo virðist sem hver vinnandi hönd á íslandi framleiði of lítil verðmæti. Verg landsframleiðsla 150 140 130 120 110 100 Hagnaður fyrirtækja sem hlutfall af landsframlelðslu 45% 40 1980 '82 ’84 JlT '88 '90 35 30 25 Eigið fé (hlutfallsleg skipting eftir löndum) Þýskaland Frakk- land Sviss Spánn Önnur lönd J 2% 2% Italía - Belgía ■ Holland rLJ 1990 1989 25 % 20 15 10 60- % 50 40 30 20 10 77,8% 124% 20 n 20 Arðsemi eigin fjár 500 stærstu fyrirtækja í Evrópu 1989 og 1990 (skipting eftir löndum) |41,7 Arðsemi eigin fjár 500 stærstu fyrirtækja í Evrópu 1989 og 1990 (skipting eftir atvinnugreinum) MYNDIRNAR hértil hliðarsýna arðsemi 500 stærstu fyrirtækja í Evrópu eftir löndum og atvinnu- greinum samkvæmt upplýsingum Financial Times um rekstur þeirra árin 1989 og 1990. Á súluritunum vekur athygli hve arðsemi stór- fyrirtækjanna er stöðug milli áranna 1989 og 1990 ekki síður en hve há hún er. Að jafnaði er þó arðsemi lítið eitt minni 1990 en árið áður og á það við hvort sem fyrirtækin eru flokkuð eftir löndum eða atvinnugreinum. (Bretlandi, Hollandi, Noregi og Sviss er arð- semi fyrirtækjanna að jafnaði þó nánast óbreytt milli ára en í þessum löndum er meðalarðsemi ábilinu 13% (Sviss)til 24%(Bret- land). Þessi gögn eru sett fram hér ekki síst til að minna á að til að standa undir þeim lífskjörum sem íslendingar hafa tileinkað sér nú þarf verulega arðsemi í rekstri fyrirtækja. Arðsemi eiginfjár í ís- lenskum fyrirtækjum er aðeins á bilinu 2-7% jafnaðarlega. Línuritið að ofan til vinstri sýnir hvernig landsframleiðsla á íslandi hefur dregist aftur úrframleiðslu f ríkjum OECD á síðustu árum. Engin aukning á framlelðni hefur orðið í íslensku atvinnulífi að jafnaði síðan árið 1987. Línuritið til hægri sýnirað skipting þáttatekna (þjóðartekna) er með allt öðru sniði hér en í öðrum rikjum OECD. Mun lægra hlutfall af þáttatekjum rennur til fyrirtækja á I slandi en í ríkjum OECD en að sama skapi hærra hlutfall sem tekjur til launþega. eftir Sigurð B. Stefánsson í Pjármálum á fimmtudegi er að þessu sinni fjallað um arðsemi 500 stærstu fyrirtækja í Evrópu. Þær upplýsingar er hér birtast eru unnar úr yfirliti Financial Times um rekstur 500 stærstu fyrirtækja Evrópu á árinu 1990 eins og þau eru flokkuð eftir markaðsverð- mæti. Aðeins er því um að ræða fyrirtæki sem skráð eru á hluta- bréfamarkaði í viðkomandi Iönd- um. Myndirnar sýna að arðsemi þessara fyrirtækja er að jafnaði mun hærri en almennt gerist í rekstri fyrirtækja á íslandi. Arð- semi eigin fjár 25 stærstu fyrir- tækja í Evrópu er t.d. 22% árið 1990 og 25 minnstu fyrirtækjanna í þessum hópi (þ.e. fyrirtækja nr. 476 til 500 í röðinni yfir 500 stærstu) er yfir 18%. Að meðal- tali reyndist arðsemi eigin fjár þessara stærstu fyrirtækja Evrópu vera um 20%. I apríl sl. var á þessum síðum fjallað um arðsemi 500 stærstu fyrirtækja í Evrópu samkvæmt upplýsingum Financial Times um rekstur þeirra á árinu 1989. Við samanburð á arðsemi fyrirtækjanna 1989 og 1990 eins og þau eru flokkuð á meðfylgjandi mynd eftir atvinnugreinum og löndum vekur ekki aðeins athygli hve arðsemi eigin fjár er há heldur einnig hve stöðug hún er. Arðsemi 182 stærstu fyrirtækja Breta var 24% að jafnaði í þessu 500 fyrirtækja úrvali úr evrópsku atvinnulífi er arðsemi breskra fyrirtækja hæst eða hvorki meira né minna en 24% að meðaltali rekstarárið 1990 og raunar var hún 25% árið 1989. Bretar eiga nú auk þess flest fyrir- tækja í hópi þeirra 10 stærstu, alls sex ef bresk-hollensku fyrir- tækin Royal Dutch/Shell og Unile- ver eru talin með (arðsemi eigin fjár 20% og 29%). Hin eru British Telecom, Glaxo, BP og British Gas. Samtals eru 182 fyrirtækj- anna 500 bresk og meðalarðsemi þeirra árið 1990 um 24% eins og fyrr segir. Markaðsverðmæti þess- ara bresku fyrirtækja var 51% af markaðsverðmæti fyrirtækjanna 500. Því mætti raunar skjóta inn hér að hlutdeild bresku fyrirtækj- anna í 500 stærstu í Evrópu er óvenjulega há árið 1990 (hún var 37% árið 1989) vegna þess að hlutabréfaverð í Bretlandi var hlutfallslega hátt í samanburði við önnur lönd í lok tímabilsins sem ofangreindar upplýsingar ná til. Líklega kemur ekki síður á óvart að meðalstærð bresku fyrir- tækjanna - þ.e. eigið fé hvers og eins þessara 182 fyrirtækja að jafnaði - var jafnvirði um 300 milljarða íslenskra króna. Til sam- anburðar má geta þess að allar eignir allra íslenskra fyrirtækja eru taldar nema nálægt 300 mrð.kr. - en þá er eftir að draga skuldir þeirra frá. Nú lætur nærri að Bretar séu 200 sinnum fleiri en Islendingar. Samt er fjarri því að Islendingar eigi fyrir einu „meðalfyrirtæki“ af 182 fyrirtækj- um Breta - sem hvert um sig bar 24 og 25% arðsemi árin 1989 og 1990. Ef allt eigið fé í íslenskum atvinnurekstri væri lagt í einn pott nægði það ef til vill fyrir um þremur fjórðu hlutum úr slíku fyr- irtæki. En þetta íslenska eigin fé ber ekki 24 eða 25% arðsemi held- ur oftast aðeins um 0-5% sam- kvæmt áætlunum Þjóðhagsstofn- unar um arðsemi íslenskra fyrir- tækja (t.d. 1,8% árið 1989 og minna árið 1988, sjá Ársreikninga fyrirtækja 1988-1989, Þjóðhags- stofnun, desember 1990.) Hagnaður íslenskra fyrirtækja stenst ekki samanburð við evrópsk fyrirtæki Ef til vill er samanburður af þessu ósanngjarn og jafnvel óeðli- legur. Jafnan þarf að fara með varúð við samanburð á hagtölum milli landa vegna þess að tölur eru ekki alltaf samanburðarhæfar. Sem dæmi má nefna í þessu sam- bandi að á íslandi er leiðrétt fyrir áhrifum af verðbólgu við reikningsskil fyrirtækja en það er hvergi gert í þeim ríkjum sem hér eru til samanburðar. Verðbólga í Bretlandi var 9,5% árið 1990 og 7,8% árið 1989. Þá ber að geta þess að verið er að bera saman 182 af stærstu almenningshlutafé- lögum Breta - þau sem skarað hafa fram úr á alþjóðavettvangi til að ná svo langt sem um getur - við öll fyrirtæki í eigu smáþjóð- ar, jafnt þau sem fá að nýta auð- lindir endurgjaldslaust eða þau sem njóta svonefndrar séraðstöðu af ýmsu tagi sem önnur. Engu að síður verður ekki kom- ist hjá því að horfast í augu við þá staðreynd að afrakstur í at- vinnurekstri íslendinga er fjarri því að standast samanburð við það sem gengur og gerist annars stað- ar og hagnaður á íslandi er víðs fjarri því sem best gerist meðal annarra þjóða. Líklega ber árang- ur Eimskipafélagsins hæst ís- lenskra fyrirtækja á þessu sviði, a.m.k. meðal almenningshluta- félaga, en arðsemi eigin fjár þess félags hefur verið um 13% að jafn- aði síðustu sex árin og frávikin frá því meðaltali hafa verið lítil. Þótt það fyrirtæki sé aðeins hluti af samgöngum sem atvinnu- grein má áreiðanlega rekja þátt Eimskips í þeim árangri sem náðst hefur í framleiðniaukningu í þeirri grein - nálægt 3% árlega að jafn- aði síðasta áratuginn. Slíkur árangur virðist ekki hafður í mikl- um metum á íslandi, a.m.k. ekki ef marka má af fjölmiðlum. Lítinn skilningur virðist ríkjandi á því að framleiðniaukning getur ekki orð- ið varanleg í atvinnurekstri nema arðsemi eigin frjár í fyrirtækjum sé viðunandi. Og án framleiðn- iaukningar stöndum við í stað sem þjóð (sjá annað af meðfylgjandi Iínuritum), getum ekki haldið sömu lífskjörum og aðrar þjóðir, verðum að draga úr þjónustu vel- ferðarkerfisins o.s.frv. • Þjóðarbúið þarf mörg stórfyrirtæki með 10-20% arðsemi Annað línuritið efst á meðfylgj- andi mynd sýnir að engin aukning hefur orðið á framleiðslu þjóðar- innar í sex ár eða síðan árið 1987.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.