Morgunblaðið - 20.02.1992, Side 8

Morgunblaðið - 20.02.1992, Side 8
8 B 0—f9r MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/flTVINNlILÍF FIMMTUDAGUR 20. FEBRÚAR 1992 , rrrynFTfryTn\7^TrtT?rTHT'-'.i i / i.r/in/in ,— Vatnsútflutningur Milljón lítrar fluttír út af vatni á einu ári Rætt við forsvarsmenn Þórsbrunnar hf., þá Ragnar Atla Guðmundsson, forstjóra fyrirtækis- ins, Pál Kr. Pálsson, framkvæmdastjóra Vífilfells, og Þórodd Sigurðsson vatnsveitustjóra FYRIRTÆKIÐ Þórsbrunnur hf., sem einnig hefur verið kallað fs- lenska vatnsfélagið, flutti út tæplega 1 milljón lítra af vatni á sl. ári. Þetta samsvarar um 70% af því vatni sem sent var á erlenda markaði á sl. ári samkvæmt útreikningum Þórsbrunnar en þeir eru byggðir á útflutningstölum Hagstofu Islands. Aðrir útflytjendur eru íslenskt bergvatn hf. með 32% af því magni sem flutt er út og Akva hf. með 0,2%. Þrátt fyrir þennan útflutning Þórsbrunns hefur lítið sem ekkert verið fjallað um fyrirtækið í fjölmiðlum þar til nýverið að Reykjavíkurborg ákvað að auka hlut sinn í fyrirtækinu um 4 milljónir í samræmi við 20% eignarhlut sinn. Aðrir hluthafar eru Hagkaup og Vífilfell. Morgunblaðið hitti forsvarsmenn Þórs- brunnar að máli og forvitnaðist um hvert væri svar þeirra við ásök- unum um óeðlilega hlutdeild borgarinnar í Þórsbrunni, starfsemi fyrirtækisins almennt og viðhorf þeirra til vatnsútflutnings frá ís- landi. STJÓRNENDUR — Fólkið á bak við Þórsbrunn — f.v. Krist- ín Norland, markaðsstjóri, Ragnar Atli Guðmundsson, forstjóri, og Dröfn Þórisdóttir rekstrarstjóri. „Hugmyndin að þessu fyrirtæki og útflutningi á vatni er 30 ára gömul frá Pálma Jónssyni í Hag- kaupum. Það var síðan ekki fyrr en um haustið 1988 að Hagkaup og Vífilfell fóru að ræða um sam- starf á útflutningi á vatni,“ segir Ragnar Atli Guðmundsson, forstjóri Þórsbrunnar. „Við töldum þá hent- ugt að í stjóm fyrirtækisins væri fólk úr verslun, átöppun og Vatns- veitu Reykjavíkurborgar þar sem mikil þekking á vatni er til staðar. Vorið 1989 stofnuðum við formlegt undirbúningsfélag og fórum að vinna bæði innanlands og á erlend- um mörkuðum. Innanlands fórum R A B B í DAG...KL.17:15... „ Verdur bylting^ íjjibskiptum með hlutabréf á Islancti“ EIRÍKUR GUÐNASON formaður stjórnar Verðbréfaþings Islands Adgangur er öllum heimill. Ármúla 13a, 1. hæO. við að kanna lindina og hversu hæft vatnið væri til útflutnings, hvaða kröfur þyrfti að uppfylla til að fá að vatn inn í ýmis ríki og hvernig umbúðir og miða við vildum nota. Einnig könnuðum við markaði og markaðssetningu í Evrópu, Bandaríkjunum og lítillega í Austurlöndum. Við komust og því að verðið í Bandaríkjunum er hag- kvæmast fyrir okkur og því höfum við einbeitt okkur að þeim mark- aði. I desember 1990 stofnuðum við formlega hlutafélag sem heitir Þórsbrunnur hf. Hlutafé er nú 46 milljónir og eiga Hagkaup og Vífil- fell jafn stóra hluta, eða 40%, en Vatnsveita Reykjavíkur á 20% hlutafjár." Samkeppni á milli íslenskra vatnsútflytjenda misskilningnr - Nú hefur verið gagnrýnt að Reykjavíkurborg eigi hlut í fyrir- tæki sem er í samkeppni við önnur íslensk fyrirtæki í vatnsútflutningi. Hvernig svarið þið slíkri gagnrýni? „Reykjavíkurborg, sem nú á 9,2 milljóna króna hlut í Þórsbrunni, jók sitt hlutafé m.a. til gera sinn hlut verðmeiri en ella. Ef fyrirtækið nær verulegri fótfestu í útflutningi þá mun borgin hagnast þegar hún sel- ur sín 20%,“ segir Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri Vífilfells. „Það er hins vegar rétt að þá má efast um réttmæti þess að borgin taki þátt í stofnun svona fyrirtækis þeg- ar fleiri aðilar eru að fást við svip- aða hluti á sama tíma. Það sem skiptir þó meginmáli er að þessi íslensku vatnsútflytjendur eru ekki í samkeppni. Ekkert hinna íslensku merkja er komið með markaðs- ímynd á erlendum mörkuðum. Það er einnig mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir því að við erum ekki verðleiðandi á markaðnum, þó að við reynum að sjálfsögðu að selja vatnið á sem hæstu verði og því eru fuliyrðingar Davíðs Scheving Thorsteinssonar um að við séum að selja á lægra verði og hafa nei- kvæð áhrif á hans sölu algjörlega út í hött. Spyija má hvaða for- réttinda Þórsbrunnur hf. hefur not- ið fram yfír íslenskt bergvatn. Þá verður fátt um svör fyrir utan það hlutafé sem borgin á í fyrirtækinu, þó vissulega hafí verið mjög gott fyrir okkur að hafa Þórodd Sigurðs- son vatnsveitustjóra í stjórn fyrir- tækisins þar sem fáir vita jafnmikið um vatn og hann. Vatnsveitan ætl- ar sér ekki að vera hluthafi að ei- lífu heldur mun hún væntanlega einnig selja öðrum fyrirtækjum vatn og því öðlast hún mikla þekkingu á þessum iðnaði. Fullyrða má að Vífílfell og Hagkaup séu alveg eins að fjármagna þekkingaruppbygg- ingu Vatnsveitunnar sem hún getur nýtt í viðskiptum við önnur fyrir- tæki og veitt þeim betri þjónustu en annars." Einungis samstarf við Þórsbrunn kom til greina Aðspurður um hvers vegna Vatnsveitan hafí valið Þórsbrunn til samstarfs segir Þóroddur Sigurðsson vatnsveitustjóri að Vatnsveitan hafí haft áhuga á sam- starfí við fleiri aðila en Þórsbrunn en úr því hafi ekki ræst. „Um 1984 eða 1985 komu til mín Pálmi Jóns- son og Davíð Scheving Thorsteins- son og við ræddum um vatnsút- flutning í fullri alvöru. Það slitnaði hins vegar upp úr samvinnu Vatns- veitunnar við Sól hf. vegna þess að þeir höfðu ekki aðstöðu til að hefja þetta á þessum tíma en áhugi Pálma héjst stöðugur,“ segir Þór- oddur. „íslenskt bergvatn hefur aldrei pakkað öðru en vatni með kolsýru í til útflutnings vegna þess að fyrirtækið hefur ekki haft nægi- legt rými til þess í verksmiðjunni, en aðalmarkaðurinn í Bandaríkjun- um liggur í sölu á hreinu vatni. Þegar Hagkaup og Vífílfell komu sameiginlega til mín ákvað ég að ræða við Davíð Oddsson, þáverandi borgarstjóra, og spyija hann um hvort Vatnsveitan ætti að taka þátt í stofnun þessa fyrirtækis. Þá sagði hann Vatnsveituna það sterkt fyrir- tæki að hún væri ekkert of góð til að koma iðnaði af stað og skapa atvinnu í borginni. En þegar fyrir- tækið væri komið af stað þá myndi Aóalfundarboó Aðalfundur Sæplasts hf. verður haldinn í Sæluhúsinu á Dalvík miðvikudaginn 26. febrúar 1992 og hefst kl. 17.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 16. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillaga stjórnar um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Reikningar félagsins ásamt dagskrá fundarins og endanlegum tillögum munu liggja frammi á skrifstofu félagsins frá miðviku- deginum 19. febrúar og verða sendir þeim hluthöfum, sem þess óska. Stjórn Sæplasts hf. MORGUNVERÐARFUNDUR föstudaginn 21. febrúar nk. kl. 8.00 á Hótel Holiday Inn, Hvammi Árangur í íslenskum útfíufningi Hvernig veróa tækifærí til? Framsögumenn verða: Geir A. Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Marels hf. Svavar Jónatansson, framkvæmdastjóri Virkis-Orkint Tryggvi Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri Össurs hf. Félagsmenn FVH og aðrir áhugamenn um umræðuefnið eru hvattir til að mæta. FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA OG HAGFRÆÐINGA borgarfyrirtækið selja sinn hlut. Á þessum tíma voru engir aðrir sem til greina komu fyrir Vatnsveituna að eiga samstarf við vegna þess að hún var að leita eftir samstarfs- aðilum í útflutningi á vatni án kol- sýru.“ 85 milljónir króna í reksturinn Ragnar Atli tekur undir orð Þór- odds og segir jafnframt að vatnsút- flutningur Þórsbrunns sé mikið þró- unarstarf sem margir íslenskir aðil- ar geti hagnast á. „í dag eru þau þijú fyrirtæki sem eru í vatnsút- flutningi nokkuð frábrugðin hvert öðru. Islenskt bergvatn flytur t.d. út vatn með og án bragðefna en 90% af okkar sölu er vatn án kol- sýru,“ segir Ragnar. í mars 1991 stofaði Þórsbrunnur hf. annað fyrirtæki, Thorspring Ice- land America, sem er ætlað að sjá um sölu- og dreifísamninga í Bandaríkjunum. Þórsbrunnur er í samstarfi við tvö fyrirtæki í Banda- ríkjunum, sem m.a. sjá um dreif- ingu vatnsins. „í okkar augum hefur vatnsút- flutningur allan tímann verið áhættuverkefni en við reynum auð- vitað að hafa þá áhættu sem tekin er í lágmarki. Við getum ekki sagt að okkur hafí tekist að sanna að um arðbæra atvinnugrein sé að ræða,“ segir Ragnar. „Líklega get- um við' ekki séð fram á hagnað fyrr en eftir tvö ár en þangað til er þetta bara kostnaður. Hingað til hefur rekstur fyrirtækisins kostað um 85 milljónir króna og þar af hafa farið um 50 milljónir í mark- aðsrannsóknir. Ljóst er að ekki er hægt að fá hugmynd að vatnsút- flutningi, fara strax að flytja út og græða skömmu seinna, Iíkt og sum- ir virðast halda." Vatnsmarkaðurinn minni en í fyrstu virðist Ragnar segir að heildarmark- aðurinn í Bandaríkjunum sé um 6.900 milljónir lítra af vatni en mikill -hluti af því er ódýrt vatn sem íslenskir útflytjendur geti ekki keppt við. Innflutt vatn er um 206 milljónir lítra. „Því er markaðurinn í raun mun minni en hann sýnist vera. Vatnsneysla mun þó væntan- lega aukast um 10% á ári vegna síaukinnar áherslu á holla lifnaðar- hætti í Bandaríkjunum. Við ætlum að einbeita okkur að þröngu svæði í Bandaríkjunum og kynna vöruna þar mjög vel til að festa hana í sessi þar. Jafnframt kynnumst við sjálf markaðnum best með þessu móti. Útflutningur vatns er í raun meiri áhætta fyrir okkur en t.d. Kanadabúa þar sem við höf- um engan heimamarkað sem við getum prufað okkur á. Öll okkar markaðssetning og vinna þarf að fara fram á erlendum mörkuðum. Við stefnum að sölu 3-5 milljóna lítra á árinu 1992 og eftir næsta sumar verður ljóst hvort við ætlum að stækka okkar markaðssvæði, þá kemur í ljós hvert áframhaldið verð- ur. En fyrirtækið þarf að selja um 12 milljónir lítra af vatni til að starf- rækja eigin verksmiðju. Þeir aðilar sem nú flytja út vatn hérlendis, Þórsbrunnur,' íslenskt bergvatn og Akva, ætla í auknum mæli að tala saman og miðla hvert öðru reynslu sinni. Það er nauðsyn- legt fyrir okkur að samræma gæðaímynd sem byggir á hreinleika íslensks vatns,“ segir Ragnar Atli Guðmundsson. Vatnsútflutningur og fiskeldi Páll segir stjórnvöld hafa ákveðnu hlutverki að gegna gagn- vart vatnsútflytjendum. „Stjórnvöld eiga t.d. að gæta þess að vatn sé ekki flutt út í tankskipum en slíkur útflutningur mun leiða til þess að ekki verður hægt að byggja upp þá gæðaímynd sem æskilegt er að gera,“ segir Páll. „Einnig eiga stjórnvöld að koma á gæðaeftirliti með framleiðslunni þannig að ljóst

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.