Morgunblaðið - 17.03.1992, Page 8

Morgunblaðið - 17.03.1992, Page 8
 HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Mmt FOLK ■ RÖGNVALDUR Ólafsson var endurkjörinn formaður Glímusam- bands Islands á ársþingi sam- bandsins um síðustu helgi, en Ás- geir Víglundsson var einnig í framboði ti! formanns. Endurkjörn- ir í stjórn voru: Hjálmur Sigurðs- son og Jón M. ívarsson. Nýir menn í stjórn voru kjörnir Árni S. Unnsteinsson og Jóhannes Jónas- son. Velta sambandsins á síðasta starfsári var um 6 milljónir króna. Rekstrarhalli var um 200 þúsund krónur og eru heildarskuldir nú 2 milljónir króna. ■ DANÍEL Jakobsson, skíða- göngumaðurinn ungi frá ísafirði, tekur þátt í heimsmeistaramóti unglinga sem fram fer í Voukatti i Finnlandi og hefst á morgun, miðvikudag. Daníel keppir í 10 og 30 km göngu. Þetta er í fyrsta sinn sem Islendingur tekur þátt í HM unglinga í skíðagöngu. ■ ■ LIU Jun frá Kina sigraði í ein- liðaleik karla á All England mótinu í badminton, sem lauk um helgina. Hann bar sigurorð af landa sinum, heimsmeistaranum Zhao Jianhua, 15:13, 15:13. Kínveijar voru einnig í úrslitum einliðaleiks kvenna; þar hafði Tang Jiuhong betur í viður- eign við Bang Soohyun, 9:12, 12:10, 11:1. B LIU Jun færðist upp um 13 sæti, í annað sætið, á stigalista Grand-Prix móta vetrarins. Hann er hins vegar 11. á heimslistanum. ■ FORSETI alþjóða Ólympíu- nefndarinnar, Spánveijinn Juan Antonio Samaranch, lýsti því yfir í gær að hann hefði áhuga á að hlaupa spöl með Ólympíueldinn, á leiðinni til Barcelona, þar sem Ólympíuleikamir verða haldnir í sumar. Yfir 9.000 manns munu bera kyndilinn, eftir að hann kemur til Spánar. ■ RUUD Gullit, hollenski lands- liðsmaðurinn í knattspymu hjá ít- alska félaginu AC Milan, gæti þurft í enn einn uppskurðinn. Hann kvart- aði um eymsli í „góða“ hnénu — því vinstra — eftir leik helgarinnar, en Gullit var frá keppni nær allt keppnistímabilið 1989-90 vegna uppskurða á því hægra. ■ ALAIN Prost, franski ökuþór- inn kunni og fyrmm heimsmeistari í Formula-1 kappakstri, sagðist í viðtali við franska íþróttadagblaðið L’Equipe í gær reikna með að taka þátt í heimsmeistarakeppninni aftur á næsta ári. Hann var rekinn frá Ferrari í fyrra, en hefur átt í viðræð- um við Guy Ligier, eigenda Ligier- keppnisliðsins. Ekki hefur samist, þar sem Ligier hefur ekki tekist að afla nægilegs fjármagns. Prost reiknaði með að taka sér frí þetta árð, og koma svo endurnærður til leiks 1993. ÍSLENSKA landsliðið í hand- knattleik heldur í dag til Aust- urríkis, þar sem B-keppnin hefst á f immtudaginn. Þá mæta íslendingar liði Hollend- inga. Á laugardag verður leikið gegn Belgum og síðan gegn Norðmönnum á sunnudag. orbergur Aðalsteinsson, lands- liðsþjálfari, sagði í samtali við Morgunblaðið að keppnin legðist vel í sig. „Ég tel að við eigum raun- hæfa möguleika á að komast í A- keppnina. Strákarnir hafa hvílt sig í þijá daga og eru vel stefndir fyrir átökin. Við vanmetum ekki mót- heija okkar en eigum að vinna Holland og Belgíu nokkuð örugg- lega. Annars tökum við einn leik fyrir í einu og nú eru það Ho lend- ingar. Ég sá tvo leiki með hollenska landsliðinu í vetur og veit á heiju við eigum von,“ sagði Þorbergur. Þjálfarinn sagði að Júlíus Jónas- son hafi farið til Spánar í gær til að spila bikarleikinn með Bidasoa gegn Teka á morgun. Ef Bidasoa tapar kemur Júlíus til Austurríkis á fimmtudag og spilar gegn Belgum á laugardaginn. Ef Bidasoa tæki upp á því að vinna Teka yrði Júlíus að vera áfram á Spáni og þá tæki Alfreð Gíslason stöðu hans í lands- liðinu og myndi leika gegn Norð- mönnum á sunnudag. íslenska liðið flýgur til Vínar- borgar í dag með millilendingu í Amsterdam. Frá Vín verður ekið í rútu til Linz, þar sem íslenska liðið spilar í riðlakeppninni ásamt Hol- lendingum, Belgum og Norðmönn- um. Þijár efstu þjóðirnar fara síðan í milliriðil sem spilaður verður í Innsbruck. Myndin hér fyrir ofan var tekin Morgunblaðið/Sverrir í gær, á síðustu landsliðsæfingunni hérlendis fyrir keppnina. Fremsta röð frá vinstri: Sigurður Sveinsson, Geir Sveinsson og Valdimar Gríms- son. Miðröð frá vinstri: Konráð Olavson, Gunnar Andrésson, Bjarki Sigurðsson, Guðmundur Hrafnkels- son, Kristján Arason. Aftasta röð frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Gunnar Gunnarsson, Einar Gunnar Sigurðsson, Sigmar Þröstur Ósk- arsson, Bergsveinn Bergsveinsson, Héðinn Gilsson, Birgir Sigurðsson og Þorbergur Aðalsteinsson þjálf- ari. Landsliðið utan í dag KNATTSPYRNA / ÞYSKALAND EyjóKúr hetja Stuttgart „SIGURINN var mjög ánægju- legur og það var ekki verra að skora sigurmarkið," sagði Ey- jólfur Sverrisson, sem tryggði Stuttgart 1:0 sigur gegn Köln í þýsku úrvalsdeildinni á laug- ardaginn. Þetta var fjórða mark Eyjólfs á þessu keppnistímabili og það fyrsta ífjóra mánuði. tuttgart er áfram með í barátt- unni um þýska meistaratitil- inn. Eyjólfur skoraði sigurmarkið þegar 5 mín. voru eftir. Hann fékk sendingu inní vítateiginn frá Buch- wald og skoraði með lúmsku skoti úr þröngu færi í vinstra markhom- ið. Stuttgart er tveimur stigum á eftir Dortmund, sem vann meistara Kaiserslautern 3:1, og með jafn- mörg stig og Frankfurt, sem vann Niimberg með sömu markatölu. „Með sigrinum á Köln erum við svo til öruggir með Evrópusæti. Nú heimta forráðamenn félagsins og þjálfarinn meistaratitilinn. Það hefur verið góður stigandi í leik liðs- ins í síðustu leikjum og þetta var fímmti sigurleikurinn í röð. Við eig- um allgóða möguleika á titlinum eins og er, en það er mikið eftir enn,“ sagði Eyjólfur. _ Þó talið sé að Dortmund og Frankfurt séu með betri lið, er Stuttgart sýnd veiði en ekki gefin. Christoph Daum þjálfari vildi fara með liðið í æfingabúðir út tímabilið, en það mæltist illa fyrir og sagðist hann þá stefna að því að hafa liðið alla vega saman í tvo daga fyrir hvem leik í staðinn fyrir einn dag eins og hingað til. Erich Ribbeck stjómaði Bayem Miinchen í fyrsta sinn og liðið vann HSV 2:0, þrátt fyrir að vera síst betra enda léku leikmennimir jafn- illa og að undanfömu. Tvö mörk voru dæmd af HSV vegna rang- stöðu og voru gestirnir ekki sam- mála, en heimamenn skomðu síðan á síðustu mínútunum. Dortmund hefur nú leikið 17 leiki í röð án taps og hafa leikmennirnir sennilega aldrei leikið betur. Þar hefur mikið að segja að lykilmenn eru jafnframt að keppa um lands- liðsstöður vegna EM og kemur það liðinu til góða. Mynd: Bild Zeitung Eyjólfur, í ljósum búningi á móts við stöngina, gerir sigurmarkið gegn Köln á laugardaginn. Hann fékk sendingu inn í teig, snéri sér snöggt við og sendi knöttinn í fjærhornið, framhjá Bodo Ilgner, landsliðsmarkverði Þjóðveija. GETRAUNIR: 2 2 1 X t 1 1 2 2 2 2 X 2 LOTTO: 16 25 29 30 32 (7)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.