Morgunblaðið - 19.03.1992, Page 15

Morgunblaðið - 19.03.1992, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992 B 15 IÐNAÐUR — Búist er samdrætti í bílaframleiðslu í Evrópu á þessu ári og reiknað er með að allt að 800.000 færri bílar frá Vestur- Evrópu seljist. Bílar Evrópskir framleið- endur búa sig undir aukna samkeppni Búist er við, að á þessu ári seljist 800.000 færri bílar í Vestur-Evr- ópu en í fyrra og aðallega vegna minni sölu í Þýskalandi. Útlitið fyrir næsta ár er hins vegar talið gott en vegna aukinnar sam- keppni við Japani er talið óhjákvæmilegt, að evrópsku bílasmiðjurn- ar skeri niður kostnaðinn og fækki starfsmönnum. Sameining Þýskalands olli því, að bílasalan jókst þar í fyrra um nærri 30% og átti meginþátt í metbifreiðasölu í Evrópu eða 13,5 milljónir bíla. Nú er gert ráð fyrir, að bílasalan í Þýskalandi minnki um 20% og verði þá í Evrópu á bilinu 12,7-13 milljónir. í Frakk- landi og á Spáni var salan frekar slök á síðasta ári en því er spáð, að hún taki vel við sér nú og jafn- vel í Bretland síðar á árinu þrátt fyrir efnahagssamdráttinn þar. Horfumar eru sem sagt nokkuð góðar en evrópski bílaiðnaðurinn verður samt að taka sig taki hvað varðar tilkostnaðinn. Um næstu áramót falla burt fyrstu hömlurnar á sölu japanskra bíla og þá eykst samkeppnin um allan helming. Brennur þetta ekki síst á Þjóðveij- um vegna þess, að í Þýskalandi eru laun hærri en annars staðar í Evrópu og vegna samninga við verkalýðsfélögin og landslaga er ekki hlaupið að því að segja upp fólki. Af þessum sökum er áætlað, að kostnaðurinn við hvern bíl eða hveija einingu sé 20-30% hærri en almennt annars staðar í Evrópu. í Þýskalandi er þetta starf þó hafið og BMW, Bayerische Motor- en Werke AG, boðaði í febrúar, að 3.000 manns yrði sagt upp. Daimler-Benz AG er með það sama á pijónunum og Ford of Europe í Bretlandi hefur fækkað um 2.100 starfsmenn. í Vauxhall-verksmiðj- Fjármagn til framkvæmda SUDURLANDSBR. 22 108 REYKJAVÍK SÍMI 689050 - FAX 812929 um General Motors hefur einnig komið til uppsagna og þær byijuðu þegar á síðasta ári hjá Fiat á Ítalíu. SKJALASKÁPAR H0VIK* SKÚFFUSKÁPAR 2JA, 3JA OG 4RA SKÚFFU TEIKNINGASKÁPAR SKÁPAR MEÐ RENNIHURÐUM, VÆNGJAHURÐUM, TVÖFALDIR SKÚFFUSKÁPAR O.FL. HF.0FNASMI6JAN HÁTEIGSVEGl 7, S: 21220 ÁRMÚLA 13A Samgöngur Alþjóðleg skráning á sænskum skipum Reuter. Sænska stjórnin hefur lagt til, að tekin verði upp alþjóðleg kaup- skipaskráning í landinu en ineð henni verður leyfilegt að ráða lágt launaða útlendinga til starfa á skipunum. Eru talsmenn útgerðarfé- Iaganna mjög ánægðir með þessa fyrirætlan en sjómannafélögin hafa gagnrýnt hana harðlega. Sænska samgönguráðuneytið kynnti tillöguna síðastliðinn mánu- dag en í henni felst, að aðeins verða gerðar kröfur til, að skip- stjóri og yfirvélstjóri verði sænskir borgarar. Reglur um aðra skip- veija verða þær sömu og gilda á skipum, sem sigla undir hentifána. „Þetta er rýtingsstunga í bakið á fimm eða sex þúsund sænskum sjómönnum,“ sagði Böije Persson, varaformaður Sjöfolksförbundet, helstu farmannasamtakanna í Sví- þjóð. Sagði hann, að tilgangurinn með þessari skipan væri augljós, að reka sænsku sjómennina í land til að unnt væri að ráða ódýrt vinnuafl í þeirra stað. Samtök sænsku kaupskipaút- gerðanna, Sveriges Redarefören- ing, hafa aftur á móti fagnað til- lögunni og segja, að hún muni stór- bæta samkeppnisaðstöðuna. Talið er, að alþjóðlega skráningin muni ná til um 250 sænskra kaupskipa en hún gildir ekki gagnvart far- þegaskipum og feijum. I tillögu samgönguráðuneytisins er einnig reynt að koma til móts við sjómenn með sama hætti og gert var í Danmörku, það er að segja, að útgerðinni er heitið veru- legum skattafslætti gegn því að hafa sænska sjómenn áfram á skipunum. Talsmenn sjómanna- samtakanna segjast þó ekki hafa neina trú á, að útgerðin muni taka þann kostinn, heldur muni hún setja þá í land og ráða til sín áhafn- ir frá þriðjaheimslöndum fyrir smánarlaun. „Hér er í raun verið að lögleyfa kynþáttamisrétti og við munum beijast gegn því með öllum tiltæk- um ráðum,“ sagði Persson. TELEFAXPAPPÍR Gæðapappír frá Technorand ÁRVÍK ARMÚU 1 • REYKJAVlK • SlMI 687222 • TELEFAX 687295 T-Jöfóar til XJLfólks í öllum starfsgreinum! AWWWVVVWVWWWWWWWVVM Símkerfi með langlinulæsingu fyrir allt að 12 símtæki og fjórar línur inn. Símtækin eru handfrjáls með 18 númera beinvalsminni, endurvali og möguleika á veggfestingu. /V) r oi L SÉRVERSLUN MEÐ SlMBÚNAÐ ÁRMÚLA 32, SlMI 686020 SÖLUADILAR: REYKJAVlK: Radióbúöin. Húsasmiójan. Heimasmiðjan. Tölvuhúsið. Kringlan/Laugavegi. Hljómco Faxafeni. VESTMANNAEYJAR: Eyjaradió. AKUREYRI: Tölvutæki. Bókval BORGARNES: Kaupfélag Borgfirðinga. BLÖNDUÓS: Kaupfélag Austur-Húnvetninga BOLUNGARVik: Rafsjé. KEFLAVlK: Túlvur, Skrifstofuvúnrr. SELFOSS: Vörubisinn. vwwwwwwwwwwwwwww IÐNLÁNASJÓÐUR fyrir íslenskt atvinnulíf 155 REYKJAVÍK SÍMI 680400 TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950 ____i__k______________

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.