Morgunblaðið - 26.03.1992, Síða 2

Morgunblaðið - 26.03.1992, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSIUPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAG'UR 26. MARZ 1992 Fyrirtæki Fiskveiðasjóður eykur framlög í afskriftarreikning Hagnaður 122 millj'ónir á sl. ári HAGNAÐUR af rekstri Fiskveiðasjóðs íslands á síðasta ári var um 122 milljónir króna skv. rekstrarreikningi. Heildareignir skv. efnahagsreikningi voru 23.612 milljónir í árslok 1991. Eigið fé sjóðsins var þá 4.076 milljónir króna samanborið við 3.683 milljón- ir í lok árs 1990 og eiginfjárhlutfallið hækkaði úr 15,7% í 17,3% milli ára. Raunávöxtun eigin fjár var rúmlega 3% á síðasta ári. Á árinu lagði Fiskveiðasjóður 262 milljónir í afskriftareikning útlána, en þar af námu beinar afskriftir aðeins um 7 milljónum króna. Heildartekjur Fiskveiðasjóðs skv. rekstrarreikningi voru 2.702 milljónir á síðasta ári. Fjármuna- tekjur námu samtals 2.675 millj- ónum og fjármagnsgjöld 2.049 milljónum. Reiknuð gjöld vegna verðlagsbreytinga voru um 105 milljónir og 262 milljónir voru lagðar í afskriftareikning útlána. Hreinar fjármunatekjur voru því um 259 milljónir króna. Reksturs- kostnaður Fiskveiðasjóðs á síðasta ári nam 122 milljónum. Á síðasta ári hækkaði Fiskveið- asjóður hlutfall afskrifta af heild- arútlánum úr 1,5% í 2,75% eða úr um 322 milljónum í 577 milljón- ir. Svavar Ármannsson, aðstoðar- forstjóri Fiskveiðasjóðs,. sagði í samtali við Morgunblaðið að ein helsta ástæðan fyrir auknu af- skriftahlutfalli sjóðsins væri óútkljáð fiskeldismál þar sem lík- legt væri að töluverðar upphæðir ætti eftir að afskrifa. Afgreidd lán Fiskveiðasjóðs á síðasta ári námu 1.475 milljónum en samþykkt lánsloforð hljóðuðu upp á 2.825 milljónir. Eðli málsins vegna fer ekki saman upphæð lánsloforða og það sem sjóðurinn afgreiðir á hveijum tíma. Áfgreidd lán voru nánast öll fjármögnuð með erlendum lántökum. Stærstu hluthafar íslenska útvarpsfélagsins millj. kr. % 1. Fjölmiðlun sf. 150,0 27,1 2. Ehf. Verslunarbankans 100,0 18,1 3. Fjórmenningar sf. 37,0 6,7 4. íslenska útvarpsfélagið hf. 29,5 5,3 5. Jón Ólafsson & Co. sf. 26,5 4,8 6. Húsvirki hf. 26,0 4,7 7. Jóhann Óli Guðmundsson 21,7 3,9 8. Sólning hf. 18,0 3,2 9. Ellingsen hf. 15,0 2,7 10. Jóhann J. Ólafsson 15,0 2,7 11. Hávöxtunarfélagið 14,7 2,7 12. Teppabúðin hf. 14,0 2,5 13. Tryggingamiðstöðin hf. 10,0 1,8 14. Þorrihf. 10,0 1,8 170 aðrir hluthafar 66,6 12,0 Heildarhlutafé: 554 milljónir Gæðastjórnun Fimmti ISO-staðallinn gefinn útáíslensku STAÐLARÁÐ íslands á Iðntæknistofnun mun gefa út á næstunni fimmta gæðastjórnunarstaðalinn, ISO 9004-2. Þessi staðall er hlið- stæður hinum fyrri en er sérstaklega saminn fyrir þjónustufyrir- tæki. Þeir staðlar sem þegar þafa verið þýddir og staðfestir bera heitin ÍST ISO 9001, -9003 og -9004. íslensk fyrirtæki sem bjóða vöru sína eða þjónustu á erlendum mörk- uðum verða í æ ríkari mæli að geta sýnt kaupendum sínum fram á að innan fyrirtækisins sé virk gæða- stjórnun samkvæmt ISO 9000 stöðlunum, segir í frétt frá Staðla- ráðinu. Fyrirtækin; þurfa að hafa komið sér upp gæðahandbók og starfa samkvæmt þeim. Auk þess þarf viðurkenndur vottunaraðili að hafa gert úttekt á fyrirtækinu og vottað gæðakerfi þess. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Lýsi hf. hafa unnið sig í gegnum þennan feril með hjálp gæðastaðlanna og fleiri fyrirtæki fylgja í kjölfarið á næst- unni. Staðlaráð íslands ráðleggur þeim sem vilja kynna sér hvað felst í stöðlunum _að kynna sér fyrst ÍST ISO 9004. í honum er að finna leið- beiningar og lýsingu á hinum ýmsu hlutum gæðakerfa og er nokkurs konar kennslubók í uppbyggingu gæðakerfis fyrirtækja og stofnana. Guðrún Rögnvaldardóttir, raf- magnsverkfræðingur, hefur unnið að þýðingu á stöðlunum og haft umsjón með útgáfu þeirra. STJORNARFUNDUR — Á stjórnarfundi íslenska útvarpsfélagsins sl. þriðjudag þegar reikning ar félagsins voru kynntir. Á myndinni eru Bjarni Kristjánsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Jón Ólafs- son, Jóhann J. Ólafsson, Páll Magnússon, Haraldur Haraldsson, Stefán Gunnarsson, Páll Kr. Pálsson, Jó- hann Óli Guðmundsson og Sigurður G. Guðjónsson, varamaður Gunnsteins Skúlasonar í stjórninni. Fyrirtæki * Rekstur Islenska útvarps félagsins á batavegi HAGNAÐUR Islenska útvarpsfélagsins hf. nam rúmlega 104 milljón- um króna á sl. ári samkvæmt ársreikningi félagsins en í rekstraráætl- un hafði verið gert ráð fyrir um 98 milljóna liagnaði. Þetta er mun betri afkoma en árið áður þegar hagnaður var rúmlega 20 milljónir á verðlagi ársins 1991 en það var fyrsta árið sem félagið skilaði hagnaði. Eiginfjárstaða Islenska útvarpsfélagsins um síðastliðin ára- mót var enn neikvæð upp á rúmlega 165 miHjónir samanborið við 232 milljónir árið áður. Páll Magnússon útvarpssljóri íslenska út- varpsfélagsins segist gera ráð fyrir því að í lok þessa árs verði unnt að hefja uppbyggingu jákvæðrar eiginfjárstöðu fyrirtækisins. í sjóðstreymi íslenska útvarpsfé- lagsins kemur fram að handbært fé frá rekstri var rúmlega 152 millj- ónir á sl. ári sem er mikil upp- sveifla frá árinu áður þegar greiða þurfti 170 milljónirmeð rekstrinum. Handbært fé í árslok 1991 var 31 milljón en var neikvætt um 17 millj- ónir árið áður. Rekstrartekjur Islenska útvarps- félagsins jukust um rúmiega 130 milljónir frá 1990 og voru á síðast- liðnu ári 1.337 milljónir króna, en félagið rekur nú Stöð 2 og Bylgj- una. Athygli vekur að 77% tekn- anna eru áskriftargjöld en einungis 21% þeirra koma frá auglýsingum Stöðvar 2 og Bylgjunnar. Páll Magnússon segir hlutfall áskriftar- tekna af heildartekjum líklega vera hæn-a hjá Stöð 2 en Ríkisútvarp- inu. Rekstrargjöld sl. árs voru 1.107 milljónir. Páll segist þakka lægri útgjöld- um, auknum tekjum og hagræðingu hinn aukna hagnað fyrirtækins. Á árinu 1991 störfuðu að meðaltali 159 starfsmenn hjá félaginu. „Við fækkuðum starfsfólki um 20 manns á milli áranna 1990 og 1991 án þess að það kæmi niður á tekjuöfl- uninni. Þá jókst fjöldi áskrifenda um nokkur þúsund á sl. ári og í desember slógum við fyrra met þegar áskrifendur sem greiddu af- notagjöld voru um 43 þúsund.“ Heildarskuldir félagsins námu í árslok 1.291 milljón samanborið við tæplega 1.311 milljónir árið áður. Þar af námu skammtímaskuldir 839 milljónum. Þessi skuldabyrði vegur þungt í rekstrinum og námu nettó- fjármagnsgjöld sl. árs um 121 millj- ón samanborið við 105 milljónir árið áður. „Eiginfjárstaða fyrirtæk- isins batnaði um rúmlega 66 millj- ónir en batinn hefði verið betri ef Islenska útvarpsfélagið hefði ekki keypt hlutafé í sjálfu sér fyrir rúm- lega 20 milljónir. Nú gengur mjög hratt að byggja upp eiginfjárstöð- una og tel ég það markmið raun- hæft að í lok þessa árs verði hún orðin jákvæð,“ segir Páll. Stjórn Islenska útvarpsfélagsins samþykkti á fundi sínum á þriðju- dag sérstakar reglur fyrir stjórnar- menn sem hafa það að markmiði að tryggja að öll viðskipti félagsins verði gerð á grundvelli heiðarleika og hagkvæmni og hagsmunir fé- lagsins skuli hafðir að leiðarljósi í öllum viðskiptum þess. Áhersla skal lögð á að forðast hagsmuna- árekstrar og aðstöðu sem til þess er fallin að skapa tortryggni í garð félagsins eða stjórnar þess. Til að tryggja þessi markmið samþykkti stjórnin m.a. þá reglu að við innkaup til félagsins skuli viðhaft útboð þar sem því verður við komið. Þá skuli stefnt að því að eiga stærri viðskipti beint við framleiðendur. Félagið skal þó ekki fara fram hjá umboðsmönnum sem þegar eru starfandi hér á landi, með því að hafa beint samband við umbjóðendur þeirra. Viðskipti fé- lagsins við stjórnarmann eru ein- ungis heimil ef útvarpsstjóri gerir stjórn félagsins grein fyrir þeim fyrir eða eftir að viðskipti áttu sér stað. Stjórnarmanni ber að upplýsa ef hann á sjálfur hagsmuni tengda afgreiðslu einstaks máls. Þá segir í reglunum að stjórnarmönnum sé óheimilt að ræða við starfsmenn félagsins,'aðra en útvarpsstjóra, í því skyni að koma á viðskiptum við félagið. Útvarpsstjóra ber að til- kynna stjórn um slík tilvik verði honum um þau kunnugt. Stjórnar- mönnum er óheimilt að gerast um- boðsaðilar fyrir aðiia sem félagið hyggst eiga viðskipti við, hafi stjórnarmaðurinn fengið vitneskju um fyrirhuguð viðskipti vegna stjórnarstarfa sinna hjá félaginu. Jóhann J. Ólafsson, stjórnar- formaður, sagði í samtali við Morg- unblaðið að í stjórn félagsins væru margir eigendur stórra fyrirtækja sem hefðu hagsmuni afviðskiptum við félagið. Því gæti skapast hætta á hagsmunaárekstrum. „Ég tel það grundvallaratriði í stjórnun að sami maðurinn sé aldrei að vinna bæði fyrir ofan og neðan stjórnanda. Þess vegna eru settar regiur til að öll boðskipti fari í gegnum fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins, aldrei fram hjá honurn." Jóhann sagði að ýmis viðskipti hefðu átt sér stað milli félagsins og stjórnarmanna og gilt um það nokkrar reglur. Núna hefðu þær verið samræmdar, end- urbættar og gerðar ítarlegri. Aðalfundur íslenska útvarpsfé- lagsins verður haldinn 1, apríl næst- komandi en áður hafði verið gert ráð fyrr að fundurinn yrði haldinn í byijun maí. Samkvæmt upplýsing- um Morgunblaðsins hefur ríkt ágreiningur meðal stjórnarmanna um þá ákvörðun að breyta tíma- setningu aðalfundarins og boða hann með svo stuttum fyrirvara sem raun ber vitni. I aðalstjórn fé- lagsins sitja nú Jóhann J. Ólafsson sem er stjórnarformaður, Jón Ólafs- son, Haraldur Haraldsson, Jóhann Óli Guðmundsson, Páll Kr. Pálsson, Stefán Gunnarsson og Gunnsteinn Skúlason. Innflutningur Tollbúðin í Tollvöru- geymsluna TOLLVÖRUGEYMSLAN hf. hefur tekið við rekstri Toll- búðarinnar. Allur tollskyldur varningur sem kemur með ferðamönnum í flugi til landsins þarf að fara í gegn um Tollbúðina og nú mun Tollvörugeymslan hf. sjá um vörsluna þar til varningurinn hefur verið leystur út. Jafnframt mun Tollvöru- geymslan hf. á Héðinsgötu sjá um alla skýrslugerð varðandi þennan varning. 1 frétt frá Toll- vörugeymslunni segir að breyt- ingarnar muni þýða minna umstang fyrir þá sem notfæra sér þjónustu Tollbúðarinnar þar sem þeir þurfi ekki lengur að sjá sjálfir um flóka skýrslugerð sem jafnan hafi fylgt því að leysa út þessar vörur. Jafnframt sé hægt að greiða aðflutnings- gjöld af vörunum í Tollvöru- geymslunni. Tollbúðin var áður staðsett á Tryggvagötu undir umsjón Toll- stjóra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.