Morgunblaðið - 26.03.1992, Síða 3

Morgunblaðið - 26.03.1992, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992 B 3 Fyrirtæki 40% veltuaukning varð hjá Marel hf. á síðastliðnu ári Góður árangur á öllum helstu markaðssvæðum REKSTRARAFKOMA Marels hf. var góð á síðasta ári. Hagnaður af rekstri fyrirtækisins var 34,3 milljónir króna eða um 10% af veltunni. Heildartekjur námu 335,9 milljónum og var um að ræða 40% aukningu frá árinu 1990. Skv. upplýsinguin frá Marel má rekja þessa miklu veltuaukningu til þess að góður árangur náðist á öllum helstu markaðssvæðum fyrirtækisins á síðasta ári. Vöruúrval Marels jókst verulega á síðasta ári. Ný kynslóð voga leit dagsins ljós, framleiðsla var hafin á nýjum flokkurum og seld voru fyrstu tækin sem byggjst á svo- kallaðri tölvusjón. Töluverð aukn- ing varð á sölu í Bandaríkjunum og námu sölutekjur dótturfyrir- tækisins Marel Equipment í Kanada 86,8 milljónum króna. Þá var á árinu stofnað sölufyrirtækið Marel Seattle í Seattle í samvinnu við Gunnar Jóhannesson sem hef- ur þjónustað tæki frá Marel á því svæði undanfarin ár. í árslok 1991 var efnt til al- menns hlutafjárútboðs hjá Marel þar sem hlutafé að nafnvirði 15 milljónir króna seldist upp á skömmum tíma á genginu 1,85. Nafnvirði heildarhlutafjár er nú 100 milljónir. Iðnlánasjóður seldi á árinu Sigurði Egilssyni hlut sinn 'í féiaginu og í upphafi þessa árs seldi Hagvirki hf. sinn hlut til Burðaráss hf. Starfsmenn Marel hf. á íslandi era 44 auk þess sem 8-10 manns Þjónusta Gula línan er sjálfstæður gagnabanki Vegna viðtals við Holberg Más- son í viðskiptablaði þann 5. mars sl. liefur Miðlun hf. óskað eftir koma á framfæri eftirfar- andi athugasemd: „Gula línan er ekki í neinu sam- starfi við Póst og síma. Gula línan er upplýsingasími um vörur og þjónustu. Fólk hringir í almennt símanúmer 626262 og fær svör frá starfsfólki sem leitar upplýs- inga í gagnabanka Gulu línunnar. Miðlun hefur hins vegar átt ágætt samstarf við Póst og síma.“ starfa að jafnaði hjá undirverktök- um við störf fyrir fyrirtækið. Hjá dótturfélögum erlendis starfa 5 manns. Aðalfundur Marel hf. verður haldinn fimmtudaginn 2. apríl nk. Stærstui hlut- hafar Nafnv. fcús.kr.) % Burðarás hf. 26.566 26,6 Þróunarfélag ísl. hf. 26.096 26,1 Samvinnusj. Isl. hf. 14.049 14,0 Sigurður Egilsson 10.000 10,0 Auðlind hf. 3.591 3,6 Sjóvá Almennar hf. 2.000 2,0 Lífeyrissj. málm- og skipasmiða 1.500 1,5 Hlutafé samtals: 100 milljónir kr. Drykkjarvörur Skipulagsbreytingar hjá Gosan hf. og Viking Brugg hf. SAMEINING gosdrykkjaframleiðslunnar Gosan hf. og dótturfyrir- tækisins Viking Brugg hf. er áformuð. Að sögn Björgúlfs Guðmunds- sonar, forstjóra Gosan hf., er stjórn Pharmaco, sem er eigandi beggja fyrirtækjanna, þessa dagana að ganga frá breytingum á rékstri þeirra m.a. með sameiningu í huga. Þessa dagana er verið að setja upp nýja áfyllivél fyrir flöskur í verksmiðju Viking Brugg á Akur- eyri. Um er að ræða fjárfestingu upp á rúmar 20 milljónir króna. Nýbirtar sölutölur ÁTVR um sölu á áfengum drykkjum á síðasta ári, sýna að staða Viking Brugg hf. á bjórmarkaðnum hefur styrkst nokk- uð. Fram kemur að heildarhlutdeild Viking Brugg í bjórsölu var 31% á fyrsta ársfjórðungi 1991, en jókst í 37% á síðasta ársfjórðungi. Af einstökum tegundum sem Viking Brugg framleiðir er Löwen- brau mest seldi bjórinn með um 25% markaðshlutdeild. Sala á Viking bjór jókst á árinu og fór markaðs- hlutdeildin úr 3% í 6%. í frétt frá Viking Brugg segir að sala á sér- brugguðum bjór hafi einnig aukist. Morgunblaðið/Rúnar AFYLLING — Viking Brugg hf. hefur fjárfest 20 milljónir í nýrri áfyllivél í verksmiðju fyrirtækisins á Akureyri. Verðbréf Hagnaður Verðbréfa- viðskipta Samvinnu- bankans 17,2 m.kr. HAGNAÐUR af rekstri Verðbréfaviðskipta Samvinnubankans nam alls um 17,2 milljónum króna á sl. ári samanborið við um 10,5 rnillj- óna liagnað árið áður. Verðbréfaviðskipti á árinu námu alls rúmum 12 inilljörðum en þar af var sala verðbréfa um 6,1 milljarður. Hér er um rúmlega 160% aukningu að ræða á milli ára. R A B B í DAG...KL.17:15... „Eru vextir örlagavaldur á fasteignamarkaöi ? “ Verðbréfaviðskiptin eru deild í Landsbankanum með sjálfstæðan ijárhag. Að sögn Þorsteins Ólafs, forstöðumanns er ástæðan fyrir mikilli aukningu á umsvifum sú að fyrirtækið náði til breiðari hóps við- skiptavina en áður. Hann sagði að áframhaldandi aukning væri á veltu í verðbréfaviðskiptum á þessu ári þrátt fyrir vaxandi samkeppni á verðbréfamarkaði. Á sl. ári seldust bankabréf og bankavíxlar fyrir tæpa 3,8 milljarða og húsbréf fyrir um 1 milljarð. Þá nam sala hlutabréfa alls um 262 milljónum. vlterkurog L/ hagkvæmur auglýsingamióill! ÞÓRÓLFUR HALLDÓRSSON formaður Félags fasteignasala Fundurinn eröllum opinn. Ármúla 13a, 1. hæö. Hlutafjáraukning Samþykkt að auka hlutafé Skeljungs um 50 milljónir króna Á aðalfundi Skeljungs á föstudag var samþykkt að heimila sljórn félagsins að hækka hlutafé uin allt að 50 milljónir króna með áskrift nýrra liluta. Hér er um framlengingu á heimild aðalfund- ar frá síðasta ári sem ekki var notuð. Samkvæmt samþykktinni munu hluthafar eiga rétt til að skrá sig fyrir nýjum hlutum í réttu hlutfalli við hlut sinn. Stjórn félagsin ákveður útboðsgengi, fresti til áskriftar og greiðslu þeirra. Á aðalfundinum var ennfremur samþykkt að greiða 15% arð af hlutafé og að hlutafé verði hækkað um 10% með útgáfu jöfnunar- hlutabréfa. I stjórn félagsins voru kjörnir þeir Indriði Pálsson, formaður, Thor Ó. Thors, varaformaður, Jón- atan Einarsson, ritari, Björn Hail- grímsson og Sigurður Einarsson. I varastjórn voru kjörnir þeir Gunnar Ölafsson, Gunnar J. Frið- riksson og Haraldur Sturlaugsson. Vaskur vinnuhestur frá Renault Nýr Express sendibíll! Nú er kominn á markaðinn nýr Renault Express. Hann byggir á öllum þeim kostum sem gert hafa þennan mikla vinnuþjark aö mest selda sendibll f Evrópu. Hinn nýi Express er kominn meö glæsilegra útlit, þægilegri og fallegri innróttingu, breiöari hlífðarlista á hliöum og kraftmeiri vél. Lítið viðhald, löng ending og lágur rekstrarkostnaður gerir Renault Express aö mjög hagkvæmum valkosti fyrir öll íslenskfyrirtæki. Eldsneytiseyösla í innanbæjarakstri er aðeins 8,7 1/100 km. Renault Express - hagkvæmari rekstur. - Kraftmeiri.vél - Nýtt og glæsilegt útlit - Ný og þægiiegri innrétting - Lægri rekstrarkostnaöur Lúgan ofanávörurýminu ereittdœmið um hina margbreytilegu notkunarmöguleika Renault Express. Það er hœgt aðflytja stiga eða lengri hluti án þess að þeir standi út l umferðina. Glœsileg innrétting gerir aksturinn þœgilegan og skemmtilegan. Sœti eru bólstruð og öllum stjórntœkjum er haganlega fyrirkomið. Nýr og kraftmeiri mótor gefur góða snerpu. Flutningsrýmið erstórt(2,6m3). Hurðir opnast 180 gráður og hleðsluhteðin er mjög lág. Burðargeta er 575 kg. Renault Fer á kostum Verð kr. 697.980,- (án vsk) Bílaumboðið hf Krókhálsi 1 - 110 Reykjavík - Sími 91-686633

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.