Morgunblaðið - 26.03.1992, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992
B 5
Fyrirtæki
Útfhitninguryegur æ
þyngra hjá Össuri hf
Hefur tífaldast undanfarin þrjú ár .og er von á töluverðri aukningu í ár.
ÖSSUR hf. er fyrirtæki sem sérhæfir sig í smíði á stoðtækjum, en
það er samheiti yfir gervifætur, gervihendur, spelkur o.fl. Fyrirtæk-
ið hefur verið að hasla sér völl í útflutningi undanfarið og það sem
af er þessu ári hafa útflutningstekjurnar aukist verulega miðað við
árið í fyrra. Hér er verið að tala um útflutning á svokölluðum Iee-
ross silikonhulsum sem hafa verið hannaðar og framleiddar í fyrir-
tækinu. Á næstunni mun Össur kynna sérstakan gerviframleista og
ökklalið, Masterstep, sem ætlunin er að hefja markaðssetningu á
erlendis á næstu vikum. Nýjasta afurðin er síðan PCI mótatæki sem
áætlað er að komi á markað í sumar. Morgunblaðið ræddi við Tryggva
Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóra Össurar um vöxtinn í fyrirtækinu
og framtíðarhorfur.
Össur hf. var stofnað árið 1971,
en reksturinn hefur vaxið mjög síð-
ustu ár. Veltan tvöfaldaðist þannig
milli áranna 1989 og 1991, jókst
úr 65,5 milljónum í 126 milljónir.
Á þessum árum hefur hlutur út-
flutnings tífaldast. Útflutningstekj-
urnar voru 52 milljónir á síðasta
ári og allar líkur á mikilli aukningu
á þessu ári. Þróunarvinna hefur
verið stór þáttur í starfsemi Össur-
ar gegnum árin. „Að meðaltali má
segja að um 10% af veltunni hafi
farið í þróunarvinnu og það gerir
að verkum að fyrirtækið hefur ver-
ið nokkuð skuldsett. Þessi þróunar-
vinna er nú að skila sér í auknum
útflutningi þannig að við sjáum nú
fram á betri tíð,“ sagði Tryggvi.
Iceross silikonhulsan kom á
markað fyrir sex árum og er sú
vara fyrirtækisins sem komin er
lengst í markaðssetningu. Nú eru
hulsurnar seldar til um 16 landa,
þar af mest til Bandaríkjanna. En
hvað er Iceross silikonhulsa? „Þetta
er einn hluti af heilum gervifæti
sem notaður er til að festa fótinn
við líkamann," sagði Tryggvi.
„Hulsurnar eru framleiddar í stöðl-
uðum stærðum, en annars staðar
eru menn að framleiða sérútbúnar
hulsur á hvern einstakling. Iceross
hulsurnar eru úr sérstöku siliko-
nefni sem er mjög teygjanlegt, lag-
ar sig alveg eftir stúfnum og kemur
í veg fyrir núningssár. Við erum
með einkaleyfi á þessari fram-
leiðslu, en auðvitað má eiga von á
samkeppni fyrr en síðar. Menn eru
jú alitaf að koma fram með nýjung-
ar á þessu sviði eins og öðrum.“
Framleiðsluaðferðin á silikon-
hulsunum er' flókin og að sögn
Tryggva þurftu starfsmenn Össurar
alfarið að þróa framleiðslulínuna
sjálfir. „Um tíma áttum við í erfið-
leikum með að anna eftirspurn, en
nú höfum við margfaldað fram-
leiðslugetuna með nýjum búnaði.
Það voru komnir langir biðlistar
eftir hulsunum, en við höfum leyst
málið með að vinnu á þrískiptum
vöktum allan sólarhringinn frá því
í janúar. Þegar frá líður munu tvö-
faldar vaktir væntanlega nægja til
að anna eftirspurn," sagði Tryggvi.
Masterstep fer á markað á
næstu vikum
— Hvert er síðan næsta skref
hjá ykkur?
„Við erum að vinna að lokaþróun
á gei’viframleista og ökklalið sem
við köllum Masterstep, en hann
hefur verið í biðstöðu í rúmt ár
vegna fjármagnsskorts. Fram-
leiðslustigið er að nálgast og það
er áætlað að setja Masterstep á
markað á Norðurlöndum á næstu
vikum.“ Framleiðsla gerviökklans
byggir á notkun efniseiginleika
koltrefjasamfellu. Ávinningurinn er
sá að orkan sem fer í að sveigja
íjöðrina þegar tábergið ber allan
líkamsþungann undir hröðunará-
tak, vinnst aftur þegar álaginu linn-
ir og notandinn fær þannig eðli-
legra gangmynstur en áður þekkt-
ist, bæði við hlaup og gang.
„Við frumkynningu á Masterstep
hafa menn sýnt verúlegan áhuga.
Við höfum verið með ákveðna próf-
un í gangi hér á landi, í Danmörku
og Svíþjóð ásamt Bandaríkjunum
þar sem ökklinn er áætlaður á
markað í sumar.“
Nýjasta afurðin sem er í þróun
hjá Óssuri er tæki til að taka gips-
mót af stúf undir loftþrýstingi, svo-
kallað PCI mótatæki. Þar er líkt
eftir því þegar stúfur er í hulsu sem
notuð er daglega. „Með þessari
aðferð er hægt að stytta vinnslutím-
ann verulega því harða hulsan sem
kemur utan um silikonhulsuna
passar nær undantekningalaust í
fyrstu, þegar tækið er notað,“ sagði
Tryggvi. „Þetta er einfalt og ódýrt
tæki sem sparar mikla vinnu fyrir
stoðtækjafræðinginn."
„I þróunarvinnunni höfum við
verið í samstarfi við Iðntæknistofn-
un og Verkfræðistofnun Háskóla
Islands. Það hefur verið gott svo
langt sem það hefur náð, en þó
höfum við þurft að leita talsvert til
erlendra aðila, bæði varðandi efna-
tækni og gerð framleiðslutækja."
„Höfum áhuga á að prófa
beina markaðssetningu og
sölu frá íslandi"
— Hvernig standið þið að mark-
aðsmálum erlendis?
„Við hófum útflutning árið 1986
og sömdum við fyrirtæki í Svíþjóð
um að sjá um heimsmarkaðssetn-
ingu fyrir okkur. Silikonhulsan var
þarna alveg ný á markaðnum og
óvíst um viðtökurnar. Fyrir tveimur
árum voru markaðsmálin síðan tek-
in til endurskoðunar í kjölfar vax-
andi umsvifa í útflutningi. Þá var
mörkuð sú stefna að koma okkur
upp sérstökum umboðsaðila í hveiju
landi til að komast sem næst mark-
aðnum á hveijum stað. Við höfum
þegar samið við aðila í Svíþjóð,
Hollandi og Bandaríkjunum og er-
um með forkönnum í gangi í Japan
og víðar.“
„Við höfum líka áhuga á að prófa
beina markaðssetningu og söiu héð-
an. Slíkt myndi reyndar kosta yfir-
byggingu á fyrirtækið hér, en við
fengjum meira fyrir vöruna þar sem
milliliðurinn væri ekki lengur til
staðar. Þá myndi það starf sem nú
er unnið erlendis færast inn í land-
ið. Ég tel að þetta verði sífellt væn-
legri kostur eftir því sem samgöng-
ur verða betri og við munum kanna
þennan möguleika vandlega á þessu
ári. Þessu fylgja náttúrulega ókost-
ir eins og aukinn auglýsingakostn-
aður, bundin hraðsendingaþjónusta
o.fl., en við höfum samt áhuga á
að gera tilraun með þetta."
„Við erum að gera hluti sem
vekja mikla athygli erlendis og
hingað kemur fólk víðsvegar að til
að kynna sér tækni okkar og fram-
leiðsluvöru. Össur Kristinsson hefur
séð um alla þróun og er eftirsóttur
fyrirlesari erlendis á þessu sviði.
Gjaldeyristekjurnar af útflutningi
okkar fara sífellt vaxandi og í
tengslum við markaðssetninguna
erlendis erum við að byggja upp
námskeiðahald til að kynna tækn-
ina sem þarf að hafa í huga við
notkun á vörum frá okkur. Þannig
vonumst við til að auka útbreiðslu
vörunnar.
„Þess má geta að við hófum í
fyrra að vinna að ákveðnu gæða-
máli með virkri þátttöku starfsfólks
hér. Þeirri vinnu er haldið áfram
nú og síðan erum við að huga að
því að vinna okkur inn vottun fyrir
ISO staðlana svo við verðum klár
í aukna samkeppni þegar og ef
evrópska efnahagssvæðið verður að
veruleika. Þar eigum við mikla
vinnu fyrir höndum."
Aðalvandinn liggur í
fjármögnun
þróunarvinnunnar
— Hvernig hefur gengið að fjár-
magna starfsemina þar sem svo
mikil áhersla hefur verið lögð á
þróunarvinnu?
„Við fengum í fyrra styrk frá
Rannsóknarráði. Lánafýrirgreiðsla
hefur verið þung í vöfum þar sem
við höfum ekki haft neinar stórar
fasteignir á bak við okkur. Þetta
hefur gengið upp hingað til, en fjár-
mögnun þróunarvinnunnar er þó
tvímælalaust erfíðasta vandamálið
sem við eigum við að etja.“
— Hvernig hefur samstarfið
verið við ráðamenn í heilbrigðis-
þjónustunni?
„Ég neita því ekki að okkur hef-
ur. þótt þeir sýna okkur mikið
áhugaleysi. Þaðan hefur lítil hvatn-
ing komið varðandi þá þróunar-
vinnu sem við höfum verið að inna
af hendi og stjórnvöld hér hafa
ekki sýnt mikinn áhuga á að að-
stoða okkur í þeim efnum,“ sagði
Tryggvi. „Það má í raun segja að
ég hafi orðið fyrir nokkrum von-
brigðum með samstarf okkar við
hið opinbera hér í heilbrigðisgeiran-
um.“
— Hvað með framtíðina. Munið
þið í vaxandi mæli leggja áherslu
á útflutning og þá jafnvel á kostnað
innanlandsþjónustunnar?
„Innanlandsþjónustan er orðin
mjög þung í vöfum. Það er mikil
kergja í öllum samskiptum við emb-
ættismenn. Þeir tala um sparnað
og niðurskurð sem því miður virðist
felast í því að tefja afgreiðslu, koma
í veg fyrir viðskipti og draga stór-
lega úr þeirri þjónustu sem fötluð-
um viðskiptavinum er veitt. Miðað
við stöðuna í dag er líklegt að
áhersla okkar eigi eftir að færast
enn meira á erlenda markaði. í kjöl-
farið gæti farið svo að við skoðuðum
kosti þess að flytja einhvern hluta
starfseminnar til útlanda. Rekstur-
inn í ár mun skera úr um það hvort
við grípum til þess ráðs,“ sagði
Tryggvi Sveinbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Össur hf. að lok-
um.
HKF
Word er fjölhæfasta ritvinnsluforritið fyrir Macintosh og PC.
Námskeið fyrir þá sem gera kröfur um góða ritvinnslu.
Höfum kennt á Word frá árinu 1987.
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
Verkfræðistofa Halldórs Kristjánssonar
Grensásvegi 16 • stofnuð 1. mars 1986
s>
&
©
Morgunblaðið/KGA
STOÐTÆKI — Tryggvi Sveinbjörnsson, framkvæmdastjóri
Össurar, Kristján Guðmundsson og Jan Kristensen, stoðtækjafræðing-
ur við vinnu á Masterstep gerviframleista og ökklalið. Áætlað er að
setja Masterstep á markað á næstu vikum.
Vaskur
vinnuhestur
frá Renault
Nýr CIÍO sendibíll!
Renault Clio hefur fengið fleiri alþjóðlegar viðurkenningar
en nokkur annar bíll í sama stærðarflokki: "Bíll ársins í
Evrópu", "Gullna stýrið 1991", "Auto Trophy 1991 ” svo
nokkrar séu nefndar. Meðal umsagna í þekktum tímaritum
er eftirfarandi: "Renault Clio hefur alla helstu kosti keppinauta
sinna af sömu stærð, en er með betri aksturseiginleika, er
þýðari, með efnismeiri og vandaðri innréttingu og meiri
hljóðeinangrun". Nú er þessi vandaöi og glæsilegi bfll
kominn í sendibílaútgáfu. Þar munu allir hans kostir sem
fólksbíls nýtast, ásamt því að hann er búinn stóru
flutningsrými sem auðvelt er að ferma og afferma. Sérstök
grind fyrir aftan bílstjórann tryggir öryggi hans í akstri.
Viðhalds- og rekstrarkostnaður er mjög lágur og eyðsla
innanbæjar er aðeins 7.3 1/100 km
Margfaldur verölaunabíll, nú kominn í sendibílaútgáfu.
Einstaklega glæsilegur bíll meö frábæra aksturseiginleika og
búinn stóru og rúmgóöu flutningsrými.
Glœsileg og vönduð innrétting gerir
aksturinn þœgilegan og skemmtilegan. Sœti
eru einstaklega þœgileg og Clioinn er
kattlipur í borgarumferðinni. Kraftmikil vél
skilar mikilli snerpu og góðu viðbragði.
Stórt farangursrými og þœgileg
hleðsluaðstaða gera þennan bíl
að góðum farkosti til flutninga.
Hurðin opnast upp á við og
hleðsluhieð er mjög lág.
Renault
Fer á kostum
Verð
kr. 623.000,- (án vsk)
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1 - 110Reykjavík - Sími 91-686633