Morgunblaðið - 26.03.1992, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.03.1992, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992 Tryggingar Svipaðar áherslur í starfsemi stóru AF ársskýrslum stóru trygg'ingaíelaganna, Vátryggingafélags ís- lands hf. og Sjóvár-Almennra trygginga hf. má ráða að þau hafa haft svipaðar áherslur í starfsemi sinni á sl. ári. Megináherslan er sem fyrr á það að ná niður kostnaði. Einnig reyná félögin að bæta innheimtu, hækka iðgjöld í völdum greinum, styrkja eigin trygginga- sjóð og ráðast af tjónunum með ýmsum hætti. Hins vegar skilur á milli félaganna þegar litið er til afkomu sl. árs. Sjóvá-Almennar voru skv. rekstrarreikningi fyrir sl. ár með 74 milljóna tap meðan VÍS sýnir 41 milljón í hagnað. í meðfylgjandi yfirlitsgreinum er fjárhagsleg staða félaganna rakin og leitast við að skýra hana út ásamt afkomu sl. árs. Ljóst er að mikil áhersla hefur verið lögð á lækkun kostnaðar hjá félögunum. Rekstrarkostnaður í hlutfalli við iðgjöld ársins lækkar úr 23,4% í 19,4% hjá VÍS. Hjá Sjóvá-Almenn- um lækkar hlutfallið úr 19,2% í 15,6%. Munur á milli félaganna skýrist að einhverju leyti af meiri umsvifum VÍS í þjónustu á lands- byggðinni og meiri viðskiptum við einstaklinga. Bæði félögin sýna mikið tap í slysatryggingu öku- manns og eigenda svo og í öðrum greinum almennra slysatrygginga. Hvað afkomuna snertir er ljóst að niðurstaða VÍS er að miklu leyti borin uppi af endurtryggjendum. Félagið hefur aftur á móti náð árangri í lækkun kostnaðar, inn- heimtu og heldur hefur dregið úr tjónum. Sjóvá-Almennar hafa einn- ig notið endurtryggjenda við að mæta stærri tjónum. Hins vegar hefur félagið aukið við trygginga- sjóði sína vegna aukins tjónaþunga í umferðinni og niðurstaðan er tap- rekstur. Tryggingasjóðir hafa raunar aukist hjá hjá báðum félögunum. Aftur á móti er hlutfallið milli eigin tryggingasjóðs og eigin iðgjalda 126% hjá VÍS í árslok en 180% hjá Sjóvá-Almennum. Þannig er trygg- ingasjóður Sjóvá-Almennra 40% stærri en sjóður VÍS sem skýrist væntanlega af mismunandi gjald- dögum iðgjalda og misjöfnu mati félaganna á skuldbindingum gagn- vart tryggingatökum. Þegarditið er á bókfærð iðgjöld í ýmsum greinum sést að VIS er stætra í eignatryggingum, öku- tækjatryggingum og slysa- og sjúkratryggingum. Sjóvá-Almennar eru hins vegar stærri í sjó- og farm- tryggingum og ftjálsum ábyrgðar- tryggingum. Hvað starfsmenn snertir voru þeir 123 talsins á aðalskrifstofu VÍS en 107 hjá Sjóvá-Almejmum. Heildarstarfsmannafjöldi VÍS er hins vegar 180 að meðtöldum um- boðsmönnum sem eru fastráðnir hjá félaginu. Skiptirig bókfærðraJðgjalda eftir greinum irorajot 'Wr vAtryggingaféi AC ÍSLANDS SjOVÁ-ALMENNAR millj. kr. % millj. kr. % Eignatryggingar 828,4 20 709,7 19 Sjó- og farmtryggingar 306,3 7 384,4 10 Ökutækjatryggingar 2394,7 58 2106,3 57 Frjálsar ábyrgðatryggingar 172,6 4 228,3 6 Slysa- og sjúkratryggingar 435,9 11 251,4 7 Frumtryggingar 4137,8 100 2680,0 100 ALLS 4527,3 4012,2 Kostnaðarhlutfall af iðgjöldum ársins laun, annar kostn. og graidd umboðslaun t ?7,7% 24,7% 23,4% VATOrœjNCJPÍUG SJOVÁ-ALMENNAR w* ,„% 15,6% 1988 1989 1990 1991 1988 1989 1990 1991 Mikil umskipti í afkomu VIS á sl. ári Þrátt fyrir 41 milljón í hagnað er þó ekki um viðunandi afkomu að ræða í ljósi umsvifa og eigna félagsins VIS Hagnaður yíS er aðeins um 1% af iðgjöldum ársins. Að mati forráðamanna VÍS er engan veginn um viðunandi afkomu að ræða enda þótt þeir séu ánægðir með það að hún þróaðist í rétta átt á árinu. MIKIL umskipti urðu í afkomu Vátryggingafélags íslands á sl. ári þegar um 41 milljónar króna hagnaður varð af félaginu sam- anborið við um 160 milljóna tap árið áður. Þessi bati skýrist m.a. af mikilli þátttöku endurtryggj- enda í tjónum á sl. ári svo og lækkun kostnaðar. Þrátt fyrir þennan afkomubata er hér hins vegar ekki um viðunandi árang- ur að ræða með hliðsjón af um- svifum félagsins en iðgjöld ársins námu alls rúmum 4,2 milljörðum og tjón ársins 3,9 milljörðum. Mikill þungi slysatjóna í umferð- inni rýrði afkoinuna verulega á árinu eins og undanfarin ár og varð áframhaldandi taprekstur á slysatryggingum þrátt fyrir hækkun iðgjalda í slysatrygg- ingu ökunianns og eiganda. Þá bitnuðu aukin vanskil á afkom- unni og voru því gjaldfærðar alls 127,9 milljónir í ársreikningi vegna tapaðra viðskiptakrafna. Axel Gíslason, forstjóri VIS, var spurður hvað ylli umskiptum í af- komu félagsins. „Langstærsti þátt- urinn í því á sl. ári er áframhald- andi lækkun kostnaðar í rekstri. Kostnaðurinn lækkaði á síðasta ári sem samsvarar um 3,6% af iðgjöld- um ársins og af 4,2% milljarða veltu þá eru það um 150 milljónir. Þetta vegur mjög þungt en einnig hafa margir aðrir minni þættir áhrif. Afkoma nokkurra greina hefur batnað en í slysatryggingagreinum hefur afkoman aftur á móti undan- tekningarlaust versnað þrátt fyrir hækkanir á iðgjöldum. Hækkun tjóna hefur orðið miklu meiri. Það hjálpar hins vegar til að fjármagns- tekjur eru hærri en árið 1990.“ Ingi R. Helgason, stjórnarfor- maður VÍS, bendir á að við samein- ingu þeirra tveggja féiaga sem stóðu að -stofnun VÍS hafi orðið til félag méð miklu meiri fjárhagslega burði en fyrirrennarar þess. VÍS hafi því gefað minnkað þátttöku endurtryggjenda í tjónum og ið- gjöldum sefn'kkili sér í afkomunni. Hér er þó að mati forráðamanna VIS engan veginn um viðunandi afkomu að ræða enda þótt þeir séu ánægðir með það að hún þróaðist í rétta átt á árinu. „Hagnaðurinn er aðeiiíS. um 1% af iðgjölduin árs- ins,“ ségir Ingi, „Ég tel að heilbrigð- ur vátrýggingarekstur þurfi 2,5-3% arðsemi af iðgjaldatekjum til að unnt sé að byggja upp sjóði á rétt- an hátt og mæta minni háttar áföll- um.“ Varðandi afkomuna á yfirstand- andi ári segir Axel Gíslason að verði ekki breytingar á ytri forsendum varðandi slysatrygginguna séu eng-. ar horfur á bata. „Það hefur verið biðstaða varðandi slysatryggingu ökumanns og eiganda frá því sl. sumar þrátt fyrir það að tap af greininni skipti hundruðum millj- óna. Til lengri tíma litið þarf að r ákveða iðgjöld þannig í hverri grein að þau standi undir tjónum og kostnaði við hana.“ Hlutfall kostnaðar fer lækkandi Hlutfall rekstrarkostnaðar og greiddra umboðslauna af bókfærð- um iðgjöldum hefur farið lækkandi hjá VIS á undanförnum árum og lækkaði það úr 23,4% í 19,8% á milli ára. Þetta hiutfall var 27,7% árið 1988 í tíð félaganna sem stóðu að stofnun VÍS en miðað við þetta hlutfall hefði kostnaðurinn hefði orðið um 332 milljónum hærri á sl. ári hærri en raun bar vitni. „Ég held að við getum alltaf gert betur. Við verðum að horfa á hvetjum tíma á það að vera samkeppnishæfir við innlenda eða erlenda samkeppnis- aðila,“ segir Axel Gíslason aðspurð- ur um hvort horfur séu á að þetta hlutfall muni enn fara lækkandi. Ökutækjatryggingar eru lang- veigamesti þátturinn í starfsemi VÍS og nema iðgjöldin í þeirri grein liðlegg. helmingi af heildariðgjöldum félagsins. Að frádreginni hlutdeild endurtryggjenda nema eigin tjón tæplega 1.950 milljónum og er það um 93,3% af eigin iðgjöldum. Enda þótt hlutfallið hafi lækkað úr 99,5% frá árinu áður er verulegt tap af greininni að teknu tilliti til rekstrar- kostnaðar og fjármunatekna. Allt önnur niðurstaða sést í eign- atryggingum þar sem hlutfall eigin tjóna er 73,5% af eigin iðgjöldum og hefur afkoman í greininni batnað verulega frá árinu 1990 þegar þetta hlutfall var 95,9%. Þetta skýrist m.a. af því að nokkur stór tjón á borð við óveðurstjónin í febrúar voru að verulegu leyti borin uppi af endurtryggjendum. í sjó- og farmtryggingum hafa sömuleiðis orðið hagstæð umskipti á milli ára og nam fyrrnefnt tjónahlutfall 39,1% samanborið við 65,5% árið áður. í fijálsum ábyrgðartr-ygging- um er tjónahlutfallið 61,6%. í slysa- og sjúkratryggingum fóru tjón árs- ins langt fram úr iðgjöldum. Þannig nam hlutfall eigin tjóna 129,9% af eigin iðgjöldum og hækkaði úr 105,4% frá árinu áður. Þáttur endurtryggjenda er sér- staklega eftirtektarverður í árs- skýrslu VIS þar sem félagið naut mjög góðs af endurtryggingum á sl. ári. Eitt af markmiðum með þeim er að draga úr áhrifum á stærstu tjónanna á rekstrarniður- stöðuna en allmörg stór tjón ein- kenndu einmitt starfsemi VÍS á árinu. Þátttaka endurtryggjenda nam alls 865 milljónum í tjónum eða 21,9% af tjónum ársins og greiddu þeir félaginu 168,2 milljón- ir í umboðslaun. Hlutur þeirra í ið- gjöldum nam aftur á móti aðeins 797 milljónum þannig að tap endur- tryggjenda er um 236 milljónir. Árið 1990 var hins vegar hagstætt fyrir endurtryggjendur VIS sem veldur því að viðskiptin á þessum tveimur árum eru í jafnvægi. Trygging'arsjóðir mælikvarði á styrkleika Tryggingasjóðir í reikningsskil- um tryggingafélaga eru mikilvægur mælikvarði á fjárhagslegan styrk þeirra en þeim er skipt í iðgjalda- sjóði og bótasjóði. í iðgjaldasjóði eru þeir fjármunir sem félagið legg- ur til hliðar í lok reikningsársins vegna skuldbindinga sinna fyrir ti-yggingatímabil sem ekki er liðið. Bótasjóðir eru aftur á móti þeir fjár- munir sem félagið hefur lagt til hliðar vegna tjóna sem þegar hafa orðið en eftir á að greiða. Við sam- anburð milli tryggingafélaga að þessu leyti þarf því að taka tillit til þess hvenær gjalddagar iðgjalda eru. Tryggingasjóðir félagsins námu í árslok rúmum 4,9 milljörð- um og hækkuðu um 28,4% frá árinu áður. Eigin tryggingasjóðir þ.e. þegar hlutur endurtryggjenda hefur verið dreginn frá námu alls tæplega 4,3 milljörðum við lok ársins og hafði aukist um 30,7% á árinu. Gjarnan er litið á hlutfall eigin tryggingasjóða og eigin iðgjalda sem vísbendingu um styrkleika sjóðanna og nam það 125,6% í árs- lok samanborið við 120,6% árið áður. Þannig hefur VÍS styrkt sína tryggingarsjóði á milli ára. Þessi aukning ætti að endurspegla áæti- anir féíagsins um tjón á árinu og skuldbindingar sem á því hvíla. Reynist tjón hins vegar minni en áætlanir gera ráð fyrir er afkoman betri en rekstrarreikningur gefur til kynna og lakari ef tjónin fara fram úr áætlun. Veltufjármunir námu tæpum 3,9 milljörðum við árslok og höfðu hækkað um 51% á árinu. Skamm- tímaskuldir námu 808 milljónum við árslok og höfðu aukist um 53,8% frá fyrra ári. Fastafjármunir námu rúmum 2 milljörðum og jukust um tæp 20% frá árinu áður. Af öðrum liðum má nefna hlutafjáreign VÍS í ýmsum fyrirtækjum sem er bók- færð á tæpar 307 milljónir. Loks nemur bókfært eigið fé alls tæpum 710 milljónum í árslok en það var aukið um 300 milljónir milli ára með sölu nýs hlutafjár í lok ársins. í því sambandi má benda á með- fylgjandi töfiu yfir hluthafa VÍS og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.