Morgunblaðið - 26.03.1992, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992
B 7
Slök afkoma Sjóvár-
Almennra vegna ijóna-
þungans í umferðinni
Um 74 milljóna tap sl. árs einkum rakið til umferðartjóna fyrri ára
AFKOMA Sjóvár-Almennra trygginga breyttist mjög til hins verra á
sl. ári og sýndi rekstrarreikningur 74 milljóna tap samanborið við 27
milljón hagnað árið áður. Meginskýring slakrar afkomu á þessum tveim-
ur árum er mikill tjónaþungi í umferðinni en þar vegur þyngst stór-
fellt tap félagsins í slysatryggingu ökumanns og eiganda. Félagið styrkti
tryggingasjóði enn frekar á sl. ári með auknu framlagi til að mæta
áætluðum óuppgerðum tjónum og sýnist staða félagsins nú sterk að
því leyti. A aðalfundi félagsins sl. föstudag lýsti stjórnarformaður þess
yfir vonbrigðum með afkomu félagsins í Ijósi þess að hlutfall rekstrar-
kostnaðar að viðbættum greiddum umboðslaunum hefði enn lækkað á
árinu. Kvað hann ekki útlit fyrir að reksturinn yrði i betra horfi á
þessu ári og ekki unnt að spá hagnaði við núverandi aðstæður.
Iðgjöld ársins námu alls tæpum
3,8 milljörðum króna og jukust um
25% frá árinu áður. Að frádregnum
hlut endurtryggjenda námu eigin ið-
gjöld 2,7 milljörðum sem er um 26%
hækkun á milli ára. Tjón ársins námu
3,8 milljörðum sem er 25% hækkun
og að frádreginni hlutdeild endur-
tryggjenda námu eigin tjón ríflega 3
milljörðum sem er 31% hækkun.
„Almennt má segja að tjón á árinu
1991 hafi verið heldur minni en oft
áður, en það sem einkum veldur tap-
inu er að greiðslur vegna tjóna á
fyrri árum hafa reynst þyngri en við
var búist,“ sagði Benedikt Sveinsson,
- stjórnarformaður Sjóvár-Almennra,
í ræðu sinni á aðalfundi félagsins.
„Það eru fyrst og fremst umferðar-
slys sem valda þessari slæmu út-
komu. Svonefnd slysatrygging öku-
manns og eiganda sem tekin var upp
með nýjum umferðarlögum árið 1988
hefur reynst vátryggingarfélögunum
mjög erfið. Þegar á móti blæs með
þessum hætti er það oft álitamál
hvort viðhalda eigi sterkum trygg-
ingasjóðum eða draga úr tapi með
því að lækka þá. Hjá Sjóvá-Almenn-
um hefur fyrri leiðin verið valin eins
og sést á því að hlutfall eigin trygg-
ingaSjóða á móti eigin iðgjöldum
hefur hækkað."
Benedikt benti á í ræðu sinni að
þrátt fyrir hækkanir á iðgjöldum í
slysatryggingu ökumanns væri ljóst
að hún hefði engan veginn dugað til
að jafnvægi næðist í greininni.
„Áætlað er að hækkunarþörf á bíla-
tryggingum í heild kunni að vera
nærri 10%. Á það var bent af forráða-
mönnum nokkurra tryggingafélaga
að nauðsynlegt væri að hækka slysa-
tryggingu ökumanns strax síðasta
haust um tugi prósenta. Á þetta var
þó ekki fallist af Tryggingaeftirlit-
inu.“
Um 200 milljóna sparnaður
Verulegur árangur hefur náðst
með hagræðingu hjá Sjóvá-Almenn-
um sem sést best af hlutfalli rekstr-
arkostnaðar af iðgjöldum ársins. Það
nam 15,6% á sl. ári á móti 19,2%
árið á undan. í þessu sambandi má
nefna að skrifstofu- og stjórnunar-
kostnaður hækkaði einungis um 3%
á milli ára. í ræðu sinni á aðalfundi
félagsins benti Einar Sveinsson,
framkvæmdastjóri á að hvert pró-
sentustig í þessu sambandi samsvar-
aði 37 milljónum til spamaðar. Á
þeim þremur árum sem liðin væru
frá sameiningu félaganna mætti ætla
að heildarsparnaður í skrifstofu- og
stjórnunarkostnaði næmi um 200
milljónum.
Á sl. ári þurfti félagið að afskrifa
iðgjöld og kröfur að fjárhæð 26 millj-
ónir. Jafnframt eru þessir liðir færð-
ir niður um 136 milljónir í efnahags-
reikningi í varúðarskyni og er mynd-
aður mótreikningur sem mæta á
þeim kröfum sem kunna að tapast.
í ársreikningi Sjóvár-Aimennra er
afkoma einstakra greina sundurliðuð
með ítarlegum hætti. Eins og und-
anfarin ár varð hagnaður af eigna-
tryggingum enda nam hlutfallið milli
tjóna og iðgjalda ársins 55%. Sömu
sögu er að segja af sjó-, farm- og
flugtryggingum hjá félaginu á sl. ári
þar sem tjónahlutfallið var 60%. Af
öðrum greinum var mikið tap, eink-
um af ökutækjatryggingum, þar sem
tapið er rúm 34% af iðgjöldum.
Tjónahlutfallið í greininni nam 131%.
SJOVA-ALMENNAR — Tjón árið 1991 voru minni en oft
áður, en það sem einkum veldur um 74 miilj. kr. tapi er að greiðslur
vegna tjóna fyrri ára voru þyngri en við var búist. I þessu sambandi
benda forráðamenn félagsins á neikvæða afkomu ökutækjatrygginga.
Þetta er langveigamesta greinin hjá
félaginu en iðgjöld ársins námu um
1,9 milljörðum eða 56% af frum:
tryggingariðgjöldum félagsins. í
fijálsum ábyrgðartiyggingum var
tjónahlutfallið 123%. Þá var það
153% í slysa- og sjúkratiyggingum
og má að mestu rekja það til fjölgun-
ar örorkutjóna.
Dulið eigið fé í hlutabréfum
Veltufjármunir félagsins námu í
árslok alls rúmum 3,1 milljarði sem
er um 47% hækkun á milli ára.
Fastafjármunir námu aftur á móti
rúmum 3 milljörðum og hækka um
8% á milli ára. Sérstaka athygli vek-
ur hlutabréfaeignin sem er bókfærð
á 727 milljónir. Félagið ert.d. stærsti
hluthafi Eimskips og meðal stærstu
hluthafa Flugleiða og fleiri félaga.
Hlutabréfin í félögum sem skráð eru
á hlutabréfamarkaði eru bókfærð á
tæpar 560 milljónir en samkvæmt
skýringum í ársreikningi er markaðs-
verð þeirra liðlega 1 milljarður. Þann-
ig má segja að a.m.k. 450 milljóna
dulið eigið fé sé í eignum félagsins.
Skuldamegin í efnahagsreikningi
sést að skammtímaskuldir námu alls
532 milljónum og hafa þær hækkað
um 12%. Veigamesti skuldaliðurinn
er hins vegar tryggingasjóður sem
nam rúmum 5,9 milljörðum í árslok
eða um 82% af skuldum og eigin fé
félagsins. Þar af var hluti endur-
tryggjenda rúmlega 1 milljarður.
Eigin tryggingasjóður nam því rúm-
lega 4,9 milljörðum og hækkaði um
32%. í þessu sambandi ber að nefna
að tryggingasjóður samanstendur
annarsvegar af bótasjóði og hins
vegar iðgjaldasjóði. Iðgjaldasjóður
svarar til þess hluta bókfærðra ið-
gjalda þar sem tryggingatímabil nær
yfir á næsta ár. Bótasjóður er tilkom-
inn vegna tjónsatburða sem orðið
hafa en eru óuppgerðir í lok reikn-
ingsársins. Til að meta fjárhagslegan
styrk tryggingafélaga er jafnan litið
á hlutfall eigin tryggingasjóða á
móti eigin iðgjöldum. Þetta hlutfall
var 152% árið 1988, 168% árið 1989,
172% árið 1990 og á sl. árið var það
komið í 180%. Eigið fé í árslok nam
alls 623 milljónum og hækkaði um
6% á milli ára. KB
♦Tilboð þetta gildir til 31. maí og á hótelum sem Flugleiðir haíá samning við.
EITT
ARGJALD
FYRIR BÆÐI
SAGA Ánægjunnar, sem þú nýtur á Saga Business Class, nýturðu
BUSINESS ^6St me^ 'lenn‘ með þeim sem þér þykir vænst
Ai i r<Á um. Þess vegna bjóða Flugleiðir farþegum, sem greiða
fullt Saga Business Class fargjald, sérstök vildarkjör:
frímiða fýrir maka til New York og Baltimore og til allra áfangastaða í
Evrópu utan Norðurlanda og 90% afslátt af fargjaldi til áfangastaða á
Norðurlöndum. Auk þess bjóðum við á Norðurlöndum 8000 kr. upp í
hótelkostnað í sömu ferð.* - Gefðu maka þínum tækifæri til að kynnast
kostum þess að fljúga með Saga Business Class.
Breyttu venjulegri viðskiptaferð FLUGLEIÐIR
1 einstaka uppllfún fyrir ykkur bæði. Traustur íslenskur ferðafélagi