Morgunblaðið - 26.03.1992, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.03.1992, Blaðsíða 16
16 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992 Innkaup Fleiri íslendingar geta nýtt sér endurgreiðslu söluskatts ÍSLENDINGAR voru í þriðja sæti yfir þá sem feng-u endurgreiddan söluskatt eftir innkaup sín í Danmörku á síðasta ári en í fyrsta sæti voru Bandaríkjamenn og Japanir í öðru. Alls versluðu Islending- ar fyrir nærri 12 milljónir danskra króna með þessu móti, Banda- ríkjamenn fyrir rúmar 33 milljónir og Japanir fyrir 25 milljónir. Endurgreiðslan nemur á bilinu 15 til 18%. Fyrirtækið Europe Tax- free Shopping í Danmörku annast þessa endurgreiðslu og segist Jesper Lindhardt sölustjóri þess sannfærður um að fleiri íslendingar geti notað sér þennan möguleika og var hann nýverið staddur hér- lendis til að kynna þetta mál, m.a. fyrir starfsmönnum ferðaskrif- stofa. „Alls voru íslendingar með 6.400 endurgreiðslur og sennilega hafa flestir verslað á fleiri en einum stað. Ef við því gerum ráð fyrir að um 4 þúsund manns hafi feng- ið þessa 6.400 endurgreiðslutékka má strax sjá að mun fleiri íslend- ingar muni geta notað sér þennan möguleika því mun fleiri íslending- ar en það ferðast til Danmerkur," segir Jesper Lindhardt í samtali við Morgunblaðið. „Sennilega vita menn ekki af þessum möguleika eða gleyma honum og ég hef reyndar líka orðið var við að af- greiðslufólk er ekki nógu duglegt að benda á þessa leið.“ Söluskattur er endurgreiddur af innkaupum yfir 600 krónur í hverri einstakri verslun en ekki þarf að kaupa einn hlut fyrir þá upphæð. Er því t.d. auðveít að nota þessi kjör í stórverslunum. Jesper Lind- hardt segir að yfir tvö þúsund verslanir í Danmörku bjóði þessa þjónustu, langflestar í Kaup- mannahöfn og nágrenni. Frá þeim koma um 95% allra endurgreiðslu- beiðna. Um er að ræða verslanir á öllum sviðum, séi’verslanir jafnt sem stórmarkaði. En er það ekki skiljanlegt að afgreiðslufólk sé Flugvélasmíði Flugvélaverksmiðjurnar Douglas smíða Jumbo-þotur Ætla að auka samkeppnina við Boeing og Airbus Bandarísku flugvélaverksmiðj- urnar McDonnell Douglas eru tilbúnar með 4-5 milljarða doll- ara áætlun um smíði Jumbo- þotna, sem ætlað er að keppa við Jumbo-þotur Boeing-verksmiðj- anna. Framkvæmdin veltur hins vegar á því hvernig gengur að selja allt að 49% í dótturfyrirtæk- inu á Tævan. Robert Hood, forseti dótturfyrir- tækisins á Tævan, sagði fyrir nokkrum dögum, að miklu skipti að geta hafist handa við Jumbo- smíðina eða MD-þotur fyrir 400-600 farþega á þessu ári til að Svíþjóð Sala á fyrsta ríkis- fyrirtækinu ákveðin ,^-Sænska stjórnin hefur tilkynnt, að stálfyrirtækið SSAB verði fyrsta ríkisfyrirtækið af alls 35, sem seld verða á almennum markaði. A ríkið 60% hlutafjárins og er vonast til, að fyrir það fá- ist allt að 20 milljarðar ÍSK. Salan verður í formi skuldabréfa, sem skipta má fyrir hlutabréf í SSAB í ársbyijun 1994 og er gert ráð fyrir, að helmingur bréfanna verði ætlaður sænskum og erlend- um fjárfestingarstofnunum. Er það gert til að tryggja stöðugleika í eignarhaldinu. Hinn helmingurinn verður boðinn starfsmönnum SSAB og almenningi. Tilgangurinn með þessu fyrirkomulagi, að gefa út ^skiptanleg skuldabréf, er að full- vissa fjárfestendur um, að þeir séu ekki að kaupa köttinn í sekknum. í fyrra minnkaði nefnilega hagnað- ur SSAB um 77% og því var ótt- ast, að lítill áhugi yrði á beinum hlutafjárkaupum í fyrirtækinu. Per Westerberg, iðnaðarráðherra Svíþjóðar, segir, að SSAB sé of lít- ið til að vera boðið öllum almenn- ingi en hann sagði, að stjórnin stefndi hins vegar að dreifðri eignaraðild að stóru ríkisfyrirtækj- þær geti verið tilbúnar til afhend- ingar 1997. Upphaflega var hug- myndin sú að smíða þriggja hreyfla útgáfu af MD-ll-þotunum en Hood sagði, að nú væri verið að huga að fjögurra eða tveggja hreyfla Jumbo-þotu. Kæmi þá fyrst á mark- aðinn 400-sæta vél til að keppa við 747-400 frá Boeing en síðar stærri, þar á meðal 600-sæta vél. MD-12-áætlunin er liður í þeirri stefnu að Douglas að gera flugvéla- smíðina fjölbreyttari og bæta stöð- una í keppninni við Boeing og Air- bus-samsteypuna evrópsku. Dougl- as er nú aðeins á tveimur sviðum flugvélamarkaðarins en Boeing og Airbus á fimm ólíkum sviðum. Hvað varðar sölu dótturfyrirtækisins á Tævan þá hefur Tævanstjórn skrif- að undir bráðabirgðasamkomulag um kaup á 25-40% hlutafjárins en auk þess er verið að ræða við aðra líklega kaupendur. ekki að ota þessum endurgreiðslu- möguleika að fólki? „I rauninni ekki því endur- greiðslan skiptir búðirnar engu máli, hún er skattur til ríkisins. Við getum ímyndað okkur mann sem kaupir t.d. skyrtur fyrir kring- um 500 danskar krónur og fær því ekki endurgreitt. Þá er hægt að benda honum á að kaupi hann kannski bindi eða sokka fyrir 100 krónur til viðbótar hafi hann náð tilskilinni upphæð og fái endur- greiddar um 100 krónur við brott- för úr landinu. Hann hefur því í raun fengið bindið eða sokkana ókeypis og búðin aukið sölu sína“. Við innkaup verður að óska eft- ir sérstakri kvittun sem framvísa þarf hjá tollyfirvöldum og fá stimp- il þegar farið er úr landi. Algeng- ast er að skatturinn sé endur- greiddur á Kaupmannahafnarflug- velli, á skrifstofu Europe Tax-free Shopping sem er í biðsalnum. Ferðamenn þurfa að vera viðbúnir að sýna tollinum viðkomandi varn- ing en aðsetur hans er nú í komu- sal flugvallarins en var áður í brottfararsal. Geta menn því ekki skráð sig í flug fyrr en eftir að búið er að vitja tollsins. Fari menn úr landi á annan hátt verður að framvísa kvittun hjá tollyfirvöldum og senda hana stimplaða til skrif- stofu Europe Tax-free Shopping sem þá sendir endurgreiðslu um hæl. Sem fyrr segir eru viðskipti ís- lendinga á þennan hátt í þriðja sæti og námu á síðasta ári 11,9 Morgunblaðið/Ámi Sæberg EIMDURGREIÐSLA — Jesper Lindhardt sölustjóri hjá Europe Tax-free Shopping, fyrirtækinu sem sér um endur- greiðslu á söluskatti til ferða- manna sem versla í Danmörku. milljónum danskra króna. Næst koma Svisslendingar með 6 milljónir, Grænlendingar með 5,7, Sovétmenn eða Rússar með 5,3 milljónir og Færeyingar með tæpar 5 milljónir. Sé litið á einstaka vöruflokka hafa Islendingar mest keypt af fötum á þessum kjörum eða fyrir rúmar 4,3 milljónir sem skiptast á um 2.500 endurgreiðslur. Keyptar voru postulíns- og glervörur fyrir rúmar 800 þúsund krónur, út- varps- og sjónvarpstæki fyrir um 250 þúsund krónur og ljósmynda- vörur fyrir um 200 þúsund. í nokkrum flokkum er aðeins um eina endurgreiðslu að_ ræða. Til dæmis hefur einn Islendingur keypt pípu á 830 krónur, einn saumavél á 4.195, einn mynt eða frímerki fyrir 950 krónur og einn „bróderí“ fyrir 1.430 krónur og allar eru þessar upphæðir í dönsk- um krónum. jt- * Ottast nýja holskeflu af áli frá Rússlandi Álframleiðendur víða um heim eru að búa sig undir nýtt álflóð frá Rússlandi en fyrir nokkrum dögum varð ljóst, að rússneska stjórnin hafði gefist upp fyrir Bankamál Hongkong Bank áformar að kaupa Midland banka Við samruna myndaðist einn af 15 stærstu bönkum heims Financial Times. Móðurfyrirtæki Hongkong Bank hefur samið um að yfirtaka breska bankann Midland. Eftir yfirtökuna yrði markaðsvirði banka- samsteypunnar um átta milljarðar sterlingspunda (820 milljarðar ÍSK). Áður þurfa bankayfirvöld í Bretlandi, Hong Kong og Kína að leggja blessun sína yfir samninginn. *vhC-'* * • .jú O'r ■ ■■ <■/ 1- ’ :'■ . GÆÐAPLðTUR FRÁ SWISS pavarac LOFTA PLÖTUR OG LÍM Nýkomin sending ,, EINKAUMBOÐ ?§ Þ.Þ0RGRIMSS0N Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640 Midland var eitt sinn stærsti banki heims en nú er hann aðeins fjórði stærsti greiðsluskiptabanki (clearing bank) í Englandi. Bankinn er metinn á tæplega þijá milljarða sterlingspunda (308 milljarða ISK). Bankarnir sendu frá sér stutt- orða yfírlýsingu þar sem segir að samruni yrði í þágu fyrirtækjanna beggja og eigenda þeirra. Samning- urinn hefur ekki enn verið gerður opinber en kunnugir segja að í raun sé um að ræða hreina yfirtöku. Midland kæmist í eigu HSBC Hold- ings, móðurfyrirtækis Hongkong Bank. Reiknað er með að hluthöfum Midland verði boðið að skipta á bréfum sínum og sambærilegum hlut í HSBC. Daginn sem áformin voru kynnt hækkaði markaðsverð á hlutabréfum í Midland um nærri þriðjung. Aðalframkvæmdastjóri Midland, Brian Pearse, lagði áherslu á að bankinn myndi áfram starfa undir sama nafni og með eigin stjórn. Pearse lýsti nýju samsteypunni sem breskri bankastofnun með yfirburð- astöðu á alþjóðavettvangi og mikinn svæðisbundinn styrk í Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku. Árið 1997 munu Kínveijar taka við stjórn Hong Kong. Kínversk stjórnvöld óttast stórfellda fjár- magnsflutninga frá nýlendunni og eru þess vegna ákaflega viðkvæm fyrir öllum breytingum á fjármála- kerfinu. Fyrir utan að vera stærsti viðskiptabanki nýlendunnar gegnir Hongkong Bank einnig sumum af hlutverkum seðlabanka. Stjórnar- formaður bankans á auk þess sæti í Framkvæmdaráði breska land- stjórans sem jafngildir nokkurs konar ríkisráði Hong Kong. Menn höfðu áhyggjur af því að kínversk stjórnvöld reyndu að koma í veg fyrir samrunann. Stjórnendur Hongkong Bank hafa reynt að full- vissa kínverska ráðamenn um að hlutverk bankans í fjármálakerfi Hong Kong verði óbreytt. En af orðum Brians Pearse má þó marka að yfírstjórn bankans flytjist til Bretlands. Mikilvæg skref voru reyndar stigin fyrir tveimur árum þegar lögheimili hans var fært til Lundúna. Auk þess hefur HSBC Holdings aðsetur í Lundúnum. Fyrstu viðbrögð Kínvetja benda ekki til þess að þeir muni gera mikl- ar athugasemdir við samninginn. Talsmenn kínverska sendiráðsins í Lundúnum sögðust líta svo á að þarna væri um að ræða samruna tveggja breskra banka. kröfum áliðnaðarins í landinu. Höfðu talsmenn hans hótað að Ioka verksmiðjum ef ekki yrði fallið frá ákvæðum um útflutn- ingstoll og reglum, sem skylduðu þá til að selja hluta af gjaldeyris- tekjunum í rússneska seðlabank- anum. Rússneska fréttastofan Interfax skýrði frá því á dögunum, að rúss- neska stjórnin hefði ákveðið að „leggja til hliðar 615.000 tonn af hrááli vegna útflutnings á árinu 1992“ og var þeim tlðindum lítt fagnað á Vesturlöndum. Á það sér- staklega við um Evrópu en fram- kvæmdastjórn Evrópubandalagsins hefur reynt að semja við Rússa um útflutning, sem þeir gætu hagnast vel á en án þess að yfirfylla markað- inn. Komu þessar tilraunir í kjölfar stóraukins útflutnings Sovétríkj- anna fyrrverandi til Vesturlanda á síðasta ári en þá var hann á bilinu 800.000 til ein milljón tonn. Jókst framboðið við það um 10%. „Þetta bendir til, að flóðgáttirnar séu að opnast aftur,“ sagði Angus MacMillan, markaðssérfræðingur hjá Billiton-Enthoven Metals en fyrirtækið er hluti af Royal Dutc- h/Shell-samsteypunni. Billiton hafði raunar spáð, að álútflutningur Rússa á þessu ári yrði um 600.000 tonn en MacMillan sagði, að nú væri Ijóst. að framundan væri lang- ur tími með lágu verði og erfiðleik- um fyrir marga framleiðendur. Um síðustu áramót ákvað Rúss- landsstjórn, að þarlendir álframleið- endur skyldú greiða rúmlega 36.000 ÍSK. toll af hveiju tonni, sem flutt væri út, en tollurinn var lækkaður fjórum sinnum áður en hann var afnuminn alveg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.