Morgunblaðið - 26.03.1992, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.03.1992, Blaðsíða 18
18 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTl/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992 Bókakynning Velgengni Ford Motor Co. á síðasta áratug eftir Þorkell Sigurlaugsson -Tílókarheiti í Bretlandi: Team- work; New Management Ideas for the 90s. Útgefandi í Bret- landi: Victor Gollancz, London, 1991. Bókarheiti í USA: A better Idea. Útgefandi í USA: Houg- hton Mifflin Co., 1991. Höfund- ur: Donald Petersen, fyrrver- andi forstjóri Ford Motor Co. Teamwork — bók Donalds Pet- ersens fyrrverandi forstjóra Ford Motor fyrirtækisins, sem í bandar- ískri útgáfu er nefnd A Better Idea, — varð til þess að ég rauf nokk- urra mánaða ritbindindi um bækur. Petersen tók sér fyrir hendur að rita bókina eftir að hann lét af btarfi forstjóra Ford Motor fyrir- ækisins í Bandaríkjunum árið 1990. Átti hann þá að baki 42ja ára starfsferil hjá fyrirtækinu og hafði verið forstjóri þess frá árinu 1980 og einnig stjórnarformaður frá árinu 1985. Hann hefur enn- fremur setið í stjórnum annarra _sta tæ DIESELLYFTARAR VÉLKNÚINN HANDLYFTARI ARVIK ÁRMÚLI 1 • REYKJAVfK • SlMI 687 222 • TELEFAX 687 295 stórfyrirtækja og má þar m.a. nefna Boeing flugvélaverksmiðj- urnar, Dow Jones & Co. Inc., Hew- lett-Packard Company. Einnig var hann í ráðgjafastjórn í Unilever Plc. Það er ekki ofsögum sagt að . Petersen hafi á síðasta áratugi snúið við hinu tæplega 400.000 starfsmanna fyrirtæki. Fyrirtækið hafði átt í miklum erfiðleikum og var á niðurleið þegar hann tók við rekstrinum. Árið 1980 nam rekstr- artap fyrirtækisins 1,5 milljörðum bandaríkjadala og það var komið neðst í röð þriggja stærstu bíla- framleiðenda í Bandaríkjunum. Staðan hefur hins vegar batnað verulega á síðustu tímum og hagur þess hafði ekki verið betri um langa hríð þegar bókin var rituð. Þetta mun þó hafa breyst til hins verra á árinu 1991, hveiju sem um er að kenna. Bílaframleiðendur í Bandaríkjunum búa allir við um- talsverða erfiðleika, einkum végna harðrar samkeppni Japana. Bók Petersens ijallar ekki um hann sjálfan. Hún er ekki heldur saga Ford. Bókin er ekki uppgjör við fortíðina, né lýsing á valdabar- áttu. í bókinni gagnrýnir Petersen hvorki samstarfsmenn sína eða aðra, og slær sig ekki til riddara né kvartar yfir miskunnarleysi annarra. Þetta er ólíkt því sem lesa má í bókum og blaðagreinum, sem sumir athafnamenn hér á landi skrifa af þörf fyrir að gera upp við menn og málefni. Bókin er fyrst og fremst skrifuð í Ijósi þess að höfundur er að miðla öðrum af reynslu sinni og láta eitthvað gott af sér leiða. Meginefni hennar fjall- ★ GBC-lnnbinding Fjórar mismunandi geröir af efni og tækjum til innbindingar OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33 105 Reykjavík Símar 6.24631 / 624699 Silkiprentaðir límmiiar AUGLYSINGAR - SKILTAGERÐ SILKIPRENTUN SKEIFUNNI 3c - 108 REYKJAVÍK SlMI: 68 00 20 - FAX: 68 00 21 ar um það hvernig innleiða megi nýja stjórnunarhætti í fyrirtæki, þar sem nútímalegum stjórntækj- um er beitt, meðal annars gæða- stjórnun (Total Quality Manage- ment), samstarfi og valddreifingu. Gæðastjórnunaraðferðir Peter- sens eru byggðar á ráðgjöf Dr. Deming, sem hefur áratuga reynslu af að innleiða gæðastjórn- un í rekstri fyrirtækja meðai ann- ars í Japan. Þrír helstu ráðgjafar á sviði gæðastjórnunar í heiminum, Deming, Juran og Crosby, hafa haft gífurleg áhrif á undanförnum árum og fara þau vaxandi m.a. hér á iandi. Dr. Deming sýndi Pet- ersen fram á að gæðastjómun var nýtt hugtak, þar sem innleiða þurfti ný viðhorf, nýjan stjórnun- arstíl og ný vinnubrögð. Petersen byijaði á því að skilgreina hlut- verk, giidismat og vinnureglur fyr- irtækis síns upp á nýtt. Án þess að hafa þessi atriði skilgreind á skilmerkilegan hátt er erfitt að innleiða gæðastjórnun. Petersen var eindregið þeirrar skoðunar að treysta beri fólki. Besta leiðin til að sýna traustið er að áliti Petersens að leyfa starfs- mönnum sjálfum að taka ákvarð- anir um ráðstöfun íjármuna í þágu fyrirtækisins. Ekki er víst að allir séu sammála. Staðreyndin er þó aftur á nióti sú að menn tengja yfírleitt völd við það hvern rétt menn hafa til að stofna til út- gjalda. Þegar millistjórnendur eða lægra settir starfsmenn eru spurð- ir um það, hvað dragi mest úr ákvarðanatöku þeirra, þá er svarið yfirleitt, að það séu þau atriði sem varða peninga og ráðstöfunarrétt þeirra. Önnur leið til að þrýsta ákvarðanatöku neðar í stjórnskipu- lagi fyrirtækja, er að fækka stjórn- stigum eða „layers of manage- ment“ eins og það er kallað. Oft búa menn til mörg stjórnþrep, 4 eða 5 og jafnvel fleiri, en æski- legra er að þau séu færri. Það hvetur stjórnandann til að velja hæfari undirmenn og þrýsta ákvarðanatökunni niður, svo hann veiji ekki tíma sínum til að taka ákvarðánir sem undirmenn hans geta tekið. Sjálfstæði undirmanna, frumkvæði og ábyrgð eykst einnig við þetta. Hættan á misskilningi vegna takmarkaðs eða ómarkviss upplýsingastreymis verður einnig talsvert minni ef stjórnskipulag fyrirtækis er einfalt. Þróunin á Taurus bílnum byggði á nýjum vmnubrögðum og gæða- stjómun. Árangurinn skilaði sér hjá fyrirtækinu sem best kemur i ljós á því að Ford Explorer hefur um sinn slegið Cherokee út á slyddujeppamarkaðinum. Núver- andi samstarf Ford og Mazda má þakka Petersen og Sotoo Tatsumi, forstjóra Sumitoma Bank í Japan. Ford er eigandi 25% í Mazda og Sumitoma Bank 11%. í nýlegri útgáfu af Business Week er fjallað um samstarf Ford og Mazda, og því líkt við eitt árangursríkasta „Strategic Alliance" sem komið hefur verið á. Bæði fyrirtækin hafa haft verulegan hag af. Eitt sem er athyglisvert og virð- ist lýsa Petersen vel er viðhorf hans til Lee Iaeocca. Án þess að gagnrýna Iacocca sérstaklega vildi Petersen ekki persónugera auglýs- ingar Ford með því að forstjóri DONALÐ PETERSEN FpRMbt CEO, FORO MOTOR CG. mil JOHN HtLLKIRK fyrirtækisins kæmi fram í þeim eins og oft var háttur Iacocca. Fyrirtæki á ekki að byggja á ein- staklingi. Það er mun mikilvægara að leggja áherslu á hópstarfið, samstöðuna og þekkingu allra starfsmanna fyrirtækisins. Petersen taldi að daglegar upp- lýsingar um bílasölu og ársijórð- ungsuppgjör hefði takmarkað notagildi fyrir sig. Það væri ágætt til að fylgjast með og einkum þó fyrir undirmenn sína, en ekki skipta höfuðmáli fyrir forstjórann, sem væri ábyrgur fyrir rekstrinum til lengi-i tíma. Forstjóranum er nauðsynleg langtíma stefnumörk- un og viðskiptaáætlanir til að koma þeim í framkvæmd. Samtöl við við- skiptamenn, vinna að gerð skoðanakannana um viðhorf þeirra og að fylgjast með kvörtunum; þetta eru grundvallaratriði, sem skipta höfuðmáli. En hvers vegna skiptir bók Pet- ersens máli? Hvers vegna er hún áhugaverð fyrir okkur hér á landi, þar sem íbúar eru umtalsvert færri en starfsmenn Ford? Hvað er sam- eiginlegt með bílum og fiskum? Bíllinn skiptir miklu máli fyrir Bandaríkjamenn. Þótt þeir séu ekki jafn háðir bílaiðnaði og við Islendingar fiskiðnaði er bílafram- leiðslan stolt Bandaríkjamanna. Það skiptir þá miklu máli að bíla- HUGBIilMAÐUR Ivar Pétur Guðnason Tíminn og við 0g tíminn hvarf eins og tár, sem feilur . á hvíta hönd. Svo orti Steinn Steinarr í „Tíminn og vatnið“. Víst er að í áranna rás hefur fólki gengið mísjafnlega vel að skipuleggja tímann og ráðstafa honum skynsamlega. Tíminn hefur áhrif á líf og örlög okkar allra og mannsins spor eru mörkuð af því að vera á ákveðnum stað á ákveðnum tíma. Þörf nútímafólks fyrir að skipu- leggja tíma sinn og að nýta hann sem best hefur skapað mikinn iðnað í kringum allskyns skipulagshlunka. Þeir eru gjarnan í leðurmöppu með eyðublöðum fyrir allt mögulegt, s.s. kaffitíma ársins 1995, og eru álíka þungir og brennivínsflaska. Hlunkur- inn er vitaskuld ekki til neinna hluta nytsamlegur fyir en búið er að kaupa helling af aukaeyðublöðum og fara á námskeið til þess að kunna að fletta honum. Þá er kostnaðurinn farinn að nálgast hundrað þúsund krónur en kunnugir segja mér að það sé allt í lagi. Þetta vinnst allt saman upp í auknu áliti og virðingu fólks fyr‘i' þeim sem kunna leyndardóma skip- uiagshlunksins. Trúin á hlunkinn er nefnilega mikil og því miður oft mest á meðal þeirra sem ekki nota hann. Þessi Biblfa ungs fólks á upp- leið er líka ómissandi stöðutákn og oft hlær mér hugur í bijósti þegar ég sé lærisveinana leggja sig fram við að hafa skipulagshlunkinn á áber- andi stað þar sem gestir og gang- andi geta séð að skipulagið er sko í góðu lagi á þessum bæ! Sumir ganga meira að segja svo langt að hafa hlunkinn með sér á fundi til þess að geta haft hann fyrir framan sig og flett fram og til baka með spekings- svip ef einhver spyr hvaða mánaðar- dagur sé. Engan veit ég um sem hefur hlunkinn með sér á hið allra helgasta en ég er viss um að þess er ekki langt að bíða ... Önnur leið og betri Af hveiju þessi langi inngangur? Jú, ég tel að þótt sumir geti í raun notað skipulagshlunkinn, og jafnvel haft gagn af, séu þeir fleiri sem dragnast með hann sér til verstu óþurftar, innbyrgðra leiðinda og ama. Miklum tíma er eytt í að færa inn í hlunkinn og síðan í að fylgjast með að rétt sé fært, blaða fram og til baka, færa eyðublöðin, setja ný inn og taka gömul úr o.s.frv. Það er til einfaldari, þægilegri og ódýrari leið, sem er að losa sig við hlunkinn og gera allt saman í tölvunní! Ókostimir við það eru vitaskuld nokkrir, t.d. að nú sést hlunkurinn ekki lengur til þess að blinda þá sem á horfa. Skipulagsforritum má skipta gróflega í tvo flokka. Annars vegar eru til víðtæk forrit eins og Lotus Agenda og InfoSelect (áður hét það Tornado) sem taka við öllu sem í þau er hent, flokka það, skrá og skipuleggja, og leyfa næstum því takmarkalausa úrvinnslu, röðun og samhæfingu gagnanna. Hins vegar eru hin einfaldari dagbókarforrit, hverra metnaður liggur einkum í því að halda vel utan um hvernig notandinn ver tímanum. Þau eru ódýr og raunar fylgir eitt slíkt, Calendar, með Windows, en það er því miður of takmarkað til þess að koma að gagni. Um tíma fylgdi ókeypis eintak af forriti sem heitir Daybook með sumum eintökum af Windows en það er víst liðin tíð. Daybook er frá framleiðendum Tool- book, sem er forritunarumhverfi fyrir Windows, og var ætlað að sýna kosti þess. Daybook er skemmtilegt forrit með marga möguleika en auk þess að sýna fram á kosti Toolbook dró það líka fram í dagsljósið helsta gallann, sem er að það er afar kröfuhart til vélbúnaðar og virkar þ.a.l. einkar svifaseint og þungt. Slík forrit fæla notendur frá, burtséð frá hvaða kostum þau eru gædd, og eru þannig sjálfum sér verst. Nú er komin á markaðinn ný og endurbætt útgáfa af Daybook sem et' vel þess virði að skoða, ef búið er að bæta úr þessum ágalla. Current frá IBM er Windows-forrit sem er með sama galla en er mun öflugra en Daybook og hin dagbókarforritin og flokkast einhversstaðar mitt á milli þeirra og þungaviktarhópsins. Current er með góða dagbók og auk þess verkefnastjórn, tengiliðaskrá o.þ.h., er nokkuð skemmtilegt í notkun en of svifaseint og þungt í vöfum til að vera hagnýtt. Oðru máli gegnir um OnTime, forrit dagsins, sem er Windows-forrit og gengur út á það eitt að skipuleggja tíma, gerir allt sem þarf og gerir það fljótt og vel!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.