Morgunblaðið - 26.03.1992, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 26.03.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSIUPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 26. MARZ 1992 B 19 Tölvur Marinó G. Njálsson Hvað ber Islendmgum að gera ímálum upplýsingatækni? iðnaðurinn haldi samkeppnisstöðu sinni. Fyrir íslendinga skiptir höf- uðmáli að halda samkeppnishæfni í veiði, vinnslu og sölu sjávaraf- urða. Bók Petersens getur vakið upp hugmyndir í því efni auk þess sem hún fjallar um það m.a. hvern- ig innleiða skuli þá gæðastjórnun sem nú er ofarlega í hugum okkar allra. Bækur segja oft margt um reynslu höfundar og í þeim getur leynst kveikjan að hugmyndum sem stuðla að breytingum. Teamwork er fljótlesin, einföld og ágætlega rituð bók. Eftir að hafa lesið bókina sannfærðist ég enn einu sinni um að gæðastjórnun er ekki tískufyrirbrigði eða sölu- vara ráðgjafa sem eru að leita að nýjum verkefnum. En varið ykkur á eftirlíkingunum. Of margir gefa sig út fyrir að vita hvað gæða- stjórnun er, en eru í raun eingöngu að tala um tæknilegar lausnir og ISO 9000 staðla, sem eru ekki nema brot af viðfangsefninu, „al- tæk gæðastjórnun“ eða „Total Quality Management". Varið ykk- ur einnig á því að gæðastjórnun leysi allan vanda. Eftir margra ára þrotlaust starf að gæðamálum tap- aði Ford Motor Company 130 millj- örðum íslenskra króna á árinu 1991, sem er mesta tap í sögu fyrirtækisins. Árangur í rekstri fyrirtækja byggist því á mörgum samverkandi þáttum, þar sem gæðastjórnun er eitt af mörgum stjórntækjum sem eru nauðsynleg svo fyrirtækið lifi af í sífellt kröfu- harðari samkeppnisumhverfi. Pet- ersen var mjög sérstakur persónu- leiki. Fyrrverandi stjórnandi hjá Ford, sem ég hef fe’ngið tækifæri til að kynnast nýlega, sagði að bókin endurspegla það sem Peter- sen var alltaf að predika. Ég ætla ekki að dæma um hæfiieika hans og hvað má þakka honum um árangur Ford, en bókin er þess virði að lesa hana með þeim fyrir- vara að fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina meiri. Ilöfundur er framkvæmdastjóri þróunarsviðs Eimskips. OnTime er einfalt dagbókarforrit og óskadraumur þeirra sem vilja skipuleggja tíma sinn áreynslulaust. Það gerir allt sem skipulagshlunkurinn gerir en er fljótara að því og gerir það betur. Fundir, stefnumót og annað sem þarf að raða er fært inn á dagbókarform og til hliðar sést hvar er laus tími. Það er hægt að skoða, skipuleggja og færa langt fram í tímann, raða atburðum í forgangsröð með litum, flokka þá, og einnig er forritið með vekjara sem minnir á áríðandi stefnumót, jafnvel þótt verið sé að vinna í öðrum forritum. OnTime varar við árekstrum í dagskránni og sýnir hana á marga vegu á myndrænan hátt. Hvenær sem er má prenta á einblöðung allt að sjö vikna dagbók ásamt minnislista og öllu tilheyrandi. OnTime er einnig hægt að fá í netútgáfu sem gerir kleift að velja notendahóp, bera saman dagskrár í síðasta tölvupistli fjallaði ég um ráðstefnu, sem haldin var 9. mars sl., um stefnu Evrópubandalagsins í málum upplýsingatækni. Lokahluti ráðstefnunnar fjallaði um þá kosti, sem við íslendingar höfum í málum upplýsingatækni. Gestur ráðstefn- unnar, Tilo Steinbrinck forstjóri Datenzentrale Schleswig- Holstein og formaður Samtaka félaga tölvu- notenda í Evrópu, hafði ákveðnar skoðanir á þessu. Megin atriðin má raunar taka saman í eina setningu: Að sníða sér stakk eftir vexti og notfæra sér að aðrir eru þegar bún- ir að finna upp hjólið. Þetta eru orð að sönnu. Seinna atriðinu til sönnunar benti Tilo Stein- brinck á að lýsingar á ýmsum tölvu- og samskiptastöðlum eru þetta frá 5 til 80 hillusentimetrar fyrir hvern staðal. Að ætla sér fyrir litla þjóð að blaða í gegnum handbækur og prófa búnað, er óðs manns æði. Hann benti líka á að vegna EES hefðu verið samdar um 300 reglu- gerðir um allt mögulegt fyrir tölvur, tölvuvinnslu og tölvusamskipti. Skynsamlegast væri að notfæra sér þá vinnu, sem Evrópubandalagið hefur þegar gert, 'en samt á gagn- rýninn máta. Með þessu er verið að varpa bolt- anum til íslenskra stjórnvalda. Engin stofnun eða samtök eru nógu öflug hér á landi til að standa fyrir stefnu- mörkun í upplýsingatækni. Raunar er þegar að störfum ráðgjafarnefnd um upplýsinga- og tölvumál á vegum íjármálaráðuneytisins, en fyrir þetta verk þarf að virkja þær mennta- stofnanir í landinu, sem sjá um kennslu og rannsóknir á sviði upp- lýsinga- og tölvumála. Einnig þarf þeirra og sjá hvenær allir geta komið á fund. OnTime er frá Campbell Services í Bandaríkunum og kostar þar 130 USD fyrir einstaklingsútgáfuna. Mér er ekki kunnugt um seljanda á Islandi en það er hægðarleikur að panta forritið að utan i gegnum síma og má þá gera ráð fyrir að það kosti hingað komið á rnilli 8.000 og 11.000 krónur. Netútgáfa fyrir 3 notendur kostar 534 USD og fyrir 10 notendur 828 USD. Að lokum ... Sparið ykkur peninga, tíma, erfiði og armæðu — iátið tölvuna og OnTime leysa skipulagshlunkinn af hólmi! Stöðutáknið hverfur en tíminn nýtist betur og þá eru allir ánægðari — vinnuveitandinn og þú. Hver veit nema einblöðungurinn sem prentaður er með OnTime taki við sem stöðutákn tíunda áratugarins? Höfunduv er áhugamaður uni tölvur. að virkja fagfélög (Félag tölvunar- fræðinga, KERFIS o.fl.), samtök tölvunotenda (Skýrslutækniféiag ís- lands) og ýmis-sérfélög og nefndir um afmörkuð efni (EDI-félagið, IC- EPRO-nefndin). Skynsamlegt er að samtök töivunotenda gegni stóru hlutverki í þessu starfi. Æskilegt er fyrir þetta starf að hafa samráð eða samstarf við sérfræðinga erlendis þar sem þekking innanlands brestur. Mestu máli skiptir að mörkuð verði stefna, sem allir geti verið nokkurn veginn sammála um að fylgja. Hvað þarf að gera strax? Tilo Steinbrinck var með nokkrar tillögur um hvað væri rétt að gera strax og getur sá, sem þetta skrif- ar, verið sammála honum um flest atriðin. Tilo Steinbrinck nefndi að ákveða þyrfti hvers konar gagna- samskiptakerfí væri rétt að hafa til staðar, þ.m.t. ISDN, textavarp og leigðar línur. Rétt er að halda áfram vinnu sem hafin er með pappírslaus viðskipti. Að taka upp í sem flestum þáttum þá staðla, sem Evrópubanda- lagið hefur ákveðið að gildi innan þess, svo kallaða EPHOS-handbók. Koma á ákveðnum reglum varðandi verndun höfundarréttar á hugbún- aði, en þar er mikil vinna ógerð. (Verndun höfundarréttar er ein al- varlegasta brotalömin í íslensku rétt- arkerfi og virðist helst, sem löggjaf- inn hafi engan áhuga á að koma í veg fyrir stórfelld brot, sem þar eiga sér stað.) Einnig er verndun eignar- réttar á gagnasöfnum líka mikilvæg, sem og allt, sem snýr að öryggi gagna. Evrópubandalagið hefur þeg- ar látið semja reglugerðir um þessi málefni, sem væri auðvelt að þýða og aðlaga íslenskum aðstæðum. Hvað hefur þegar verið gei-t? Áður hefur komið fram, að starf- andi er ráðgjafarnefnd um upplýs- inga- og tölvumál á vegum fjármála- ráðuneytisins (RUT-nefndin). Nefndin hefur unnið plagg um upp- lýsingastefnu fyrir íslenskar ríkis- stofnanir og var það lagt fyrir ríkis- stjórnina í nóvember á síðasta ári. í plagginu er tekið á fimm atriðum, sem eru mjög almennt orðuð, enda sýnilega ætlað öðrum en ráðherrum að útfæra þau nánar. Atriðin eru eftirfarandi: Framleiðni og hagkvæmni. Bent er á að markmiðið með upplýsinga- stefnu hins opinbera er að auka framleiðni í opinberri stjómsýslu og að gæta þurfi hagkvæmni við öflun búnaðar og við rekstur. Samræming og stöðlun. Hvatt er til þess að samræmdar reglur gildi um eignarhald upplýsinga og sölu þeirra og skyldur þeirra sem annast upplýs- ingasöfn og veita aðgang að þeim. Við öflun og rekstur tölvukerfa sé fylgt viðurkenndum, traustum að- ferðum og stöðlum eins og við verði komið. Að efni í opinberum upplýs- ingasöfnum sé aðgengilegt og auð- velt sé áð miðla því milli upplýsinga- kerfa. Og að samræming sé milli skráningar efnisatriða, sem koma fyrir í mörgum upplýsingasöfnum. Þjónustuhæfni opinberra kerfa. Gerðar verði kröfur um þjónustustig opinberra kerfa og tekið sé tillit til upplýsingaskyldu til almennings. Þar með talið að upplýsingar í opin- berum upplýsingasöfnum séu að- gengilegar öllum þeim, sem heimil eru afnot af þeim og gerðar séu kröfum um áreiðanleika þeirra. Lögð er áhersla á að notendaskil séu sam- ræmd og notkun kerfa auðvelduð. Landskerfi. Gerðar séu sérstakar kröfur til mikiivægra opinberra upp- lýsingakerfa, sem notuð eru um allt land. Svokallaðra landskerfa. Tæknilegar kröfur. Miða skal við að tæknilegar kröfur til opinberra upp- lýsingakerfa taki til gæða, samræm- ingar og afkastagetu. Einnig skal miða við gildandi staðla og reglu- gerðir. Erfitt er að gera sér fulla grein fyrir hvernig þessi atriði verða út- færð nánar, til þess eru þau of al- mennt orðuð. Á þessu stigi skiptir það ekki aðal máli, heldur hitt að verkið er hafið. Samhliða stefnumörkuninni er nauðsynlegt að átta sig á stærð ís- lenska tölvumarkaðarins. Með því að vita umfang hans og veltu er MAJTER O F BUSINE mögulegt að koma með spár usa, vöxt hans á næstu árum. Stjómvöla og kaupendur sjá betur hvar og hvernig peningunum er varið. RUT-nefndin hefur áætlað að heildarkostnaður opinberra aðihr vegna tölvunotkunar hafi verið um 3 milljarðar króna á árinu 1991 eða um 3% af íjárlögum. Nefndin hefur skoðað þessar tölur í tengslum við hlutfallstölur frá þekktu erlendu ráð- gjafarfyrirtæki sem heitir Gartner Group. Það spáir því að 1995 verji fyrirtæki um 7,7% tekna sinna til tölvumála. Gangi þetta eftir verður kostnaður opinberra aðila um 5 millj- arðar króna það ár. Tölvukostnaður hins opinbera er því miður of langt mál til að fjalla um hér og nú, ejj^ mun fá sinn pistil innan skamms. Ég vona að þetta innlegg um stöðu upplýsingamála á íslandi megi verða til þess að einhver skriður komist á stefnumótunina. Ekki dug- ir að sofa lengur Þyrnirósarsvefni, ef við ætlum að vera tilbúin að taka þátt í sameiginlegum markaði. En áður en það getur gerst verður að vera mótuð stefna. Stefna, sem allir geta sætt sig við og er til hagsbóta. Höfundur er töJvunarfræðingur. ★ Pitney Bowes Frímerkjavélar OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33 -105 Reykjavík Sfmar 624631 / 624699 SS ADMINISTRATION ■ 9 Eina alþjóðlega MBA- námið á Norðurlöndum Verið velkomin til kynningarfundar um MBA-nám við viðskiptaháskólann í Osló. Rektor MBA-deildar (Dean of Graduate Program) kynnir námið og veitir allar nánari upplýsingar. Kynningarfundurinn verður haldinn í ráðstefnusal Perlunnar í Öskjuhlíð (kjallara), föstudaginn 27. mars næstkomandi, kl. 16.00. IV OSLO HANDELSH0YSKOLE Oslo Business School Karlsborgvn. 4,0193 OSLO 1, Norway, phone (+472) 67 90 00, fax (+472) 67 91 10 Meira um OnTime.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.