Morgunblaðið - 07.05.1992, Síða 15

Morgunblaðið - 07.05.1992, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MAI 1992 C 15 ÞA OG Ungt fólk og tölvur Það var öðruvísi umhorfs í tölvu- heiminum hér á landi fyrir rúm- um áratug og hætt er við að fólki hefði brugðið illilega við að heyra tölvur auglýstar til fermingar- gjafa. Á þessum tíma þóttu tölvur fremur ógnvekjandi tæki og þeir sem eitthvað fengust við þær þóttu afar merkilegir menn. Sum- ir urðu hins vegar ásfangnir um Ieið og þeir komust í návígi við tölvur í fyrsta sinn. Það á svo sannarlega við þá Friðrik J. Skúl- ason og Vilhjálm Þorsteinsson, en tölvan kom inn í líf þeirra beggja í kringum 1980 og ástríðan hefur síst dvínað. Báðir eru þeir með VILHJALMUR Byrjaði í eldhúsinu Morgunblaðið/KGA Vilhjálmur: Fékk vinnu 14 ára við að þýða forrit. sitt eigið fyrirtæki í dag og hafa getið sér gott orð fyrir samningu á tölvuforritum. Þeir eru sam- mála um að ekki sé hægt að líkja saman aðstöðunni sem krakkar hafa í dag hvað varðar aðgang að tölvjum við það þegar þeir voru ungir en um leið væri kannski erfiðara fyrir ungt fólk í dag að skapa sérstöðu á tölvumarkaðn- um. Aðalatriðið fyrir ungt tölvuá- hugafólk væri þó að vera með opinn huga og vera iðið að til- einka sér nýja hluti, skapa sér sérstöðu með skemmtilegum og óvenjulegum verkefnum. gþg FRIDRIK „Klassískt tölvufnk“ Yilhjálmur Þorsteinsson fékk snemma mikinn áhuga á rafeindatækni og • þegar fyrstu erlendu tölvu- blöðin komu á markaðinn fór hann fyrir alvöru að fikta við tölvur. Þegar hann var um 14 ára var hann að leita sér að sumarvinnu og slædd- ist þá inn á námskeið hjá Tölvuskólanum sem Reynir Hugason var með á sínum tíma. Vilhjálmur var um- svifalaust settur í það að þýða leikjaforrit fyrir Comad- or-tölvur. „Ég var þarna öllum stundum og þetta smávatt svo upp á sig.“ Þegar menn fóru svo að nota þessar tölvur í fyrirtækjunum vantaði bókhaldshugbún- að og það kom í hlut Friðriks að þýða bandarískan hugbúnað yfir á íslensku. „En það kom fljótt í ljós að hann hentaði ekki að öllu leyti og ég hófst handa við að breyta honum og þar með festist ég í þessum viðskiptahugbúnaði og hef verið þar síðan.“ Árið 1983 stofnaði Vilhjálmur fyrirtækið íslenska forritaþróun ásamt félaga sínum Erni Karlssyni. Starf- semi fyrirtækisins hófst við eldhúsborðið hjá Erni, þar sem þeir félagar skrifuðu bókhaldsforrit fyrir PC-tölv- ur. Fyrirtækið hefur heldur betur undið upp á sig og er nú í 500 fermetra húsnæði og starfsmenn eru 22. Þeir félagar í íslenskri forritaþróun hafa búið til Opus- alt forritið sem er alhliða viðskiptahugbúnaður notaður í fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum, víðsvegar um landið. Vilhjálmur hefur ekki lokið neinu prófi í tölvunar- fræðum og telur það ágætt því þá sé hann í raun allt- af að læra og bæta við sig. Morgunblaðið/KGA Friðrik; „Tölvur heilla vissar týpur af fólki.“ Friðrik J. Skúlason fékk sína fyrstu tölvu árið 1980 þegar hann var 16 ára. „Það var Atari 800. Hún var ágæt á sínum tíma en þætti víst lítið merkileg leikj- atölva í dag.“ Friðrik segir tölvur hafa þá eiginleika að vissar týpur af fólki heillist af þeim og verði gjörsamlega forfallnir tölvusjúklingar. „Ég er svona klassískt tölvu- frík og hef verið með putt- ana á lyklaborðinu í samfellt 11-12 ár.“ Þetta byrjaði allt saman með heimsókn á heimilissýningu þar sem tölva var til sýnis hjá fyrirtækinu Sameind. Friðrik dvaldi allan þann dag í básnum og lék sér í tölvunni. Ekki var boðið upp á almenna tölvukennslu í mennta- skólum á þessum tíma og segir Friðrik að það hafi bara verið ákveðin klíka sem hafi hangið allan daginn í þeim fáu tölvum sem til voru í skólanum. „í dag eru þessir menn flestir deildarstjórar tölvudeilda virtra fyrirtækja eða reka sín eigin hugbúnaðarhús." Friðrik fór í töRunarfræði í Háskólanum en segist lítið hafa lært nýtt um tölvur, hann hafi helst tekið kúrsa eins og stærðfræði og eðlisfræði. Friðrik hefur alltaf fengist við að skrifa forrit og árið 1987 skrifaði hann kosningaútreikningaforritið Þjóðráð, það fyrsta sem hann seldi á almennum markaði og upp úr því fór hann að starfa sjálfstætt. Síðan hafa forritin streymt frá honum og má þar nefna Púkann (villu- leitarforrit), Espólín (ættfræðiforrit), Lykla-Pétur (vír- usaleitarforrit). Að sögn Friðriks er þó ekki mikið um að tölvufræðingar geri mikið af því að selja forrit á almennum markaði. MORE TÖLVUR ■W' ,tTT I 1 IL.fc.tXil t 11 lUflBSEI' Innifalið í verði allra MORE véla: Litaskjár: 14“ Super VGA, upplausn 1024x768 Skjákort: Super VGA, upplausn 1024x768 Lyklaborð: 102 lykla 3,5“ eða 5,25“ diskettudrif 2 rað-, 1 hlið- og 1 leikjatengi MS-DOS 5,0 Turn eða borðkassi 386sx-20MHz, 2MB 92.030 kr. 386-25MHZ, 2MB, 64K flýtiminni 116.607 kr. 386-40MHz, 4MB, 64K flýtminni 145.889 kr. 486-33MHZ, 4MB, 256K flýtiminni 187.721 kr. 486-50MHz, 4MB, 256K flýtiminni 240.011 kr. Viðbótarverð: 43MB harður diskur, IDE, (23ms) 18.302 kr. 105MB harður diskur, IDE, (17ms) 30.328 kr. 210MB harður diskur, IDE, (15ms) 65.467 kr. NI6510, 16-bita „thin ethernet" netkort 14.118 kr. 1MB minnisstækkun 4.183 kr. 3,5“ eða 5,25“ diskettudrif 5.752 kr. Windows 3.0a og serial mús 6.798 kr. Músarmotta 598 kr. ViewSonic 5E, 14“ ultra litaskjár 1024x768 14.641 kr. Trident skjákort, Super VGA, 1024x768, 1MB skjáminni, 256 litir 3.137 kr. Speed Star, Super VGA, 1024x768, 1MB skjáminni, 32768 litir 9.412 kr. PREMIER S3 Windows „accelerator" skjákort, 1MB skjáminni, 32768 litir 25.099 kr. Reikniörgjörvi 387-16 og 20MHz 12.654 kr. Reikniörgjörvi 387-25, 33 og 40MHz 21.334 kr. SONY CD drif, stýrispjáld og hugb. 36.603 kr. EISA gagnabraut fyrir 486 MORE tölvur 57.519 kr. Innbyggt mótald, myndsendir og hugb. 13.446 kr. Aðrar uppsetningar fáanlegar. Leitið upplýsinga hjá sölumönnum. Verð á tölvum 5% hærra ef ekki er tekinn harður diskur eða netkort. Verð miðast við staðgreiðslu og getur breyst án fyrirvara. Verð innifelur vsk. -BQÐEIND SF: AUSTURSTRÖND 12 170 SELTJARNARNES SÍMI 612061 FAX 612081 Fjárhagsbókhald Hringdu og fáðu sendan ÓK€YPIS 15 síðna kynningarbaekling. 3. Hötum einnig: Vióskiptamannakerfi Birgdakerfi Sölukerfi Markaöskerfi og hid vinsæla tjölskylduforrit GullKORN heimilanna ásamt fleiru. sem vir^ -á^KORh^- Ármúla 38. Síml 91-689826 íslenskgæðahúsgögn með 5 ára ábyrgð. Skrifborðsstólar ímiklu úrvali. Verð frá kr. 7.125,-stgr. Margargerðiraf tölvuborðum. Verðfrákr. 12.500,- BIR0 SKRIFBORÐSSTÓLL VERÐKR.12.350,-STGR. MEÐÖRMUMKR. 16.500,- b j r Ó TB-10TÖLVUBORÐ . . VER0 KR. 11.875,- STGR. steinar meðhliðarplötu SMIÐJUVEGI2 - 200 KÓPAV0GI - SÍMI46600 KR. 14.700,-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.