Morgunblaðið - 14.05.1992, Page 14

Morgunblaðið - 14.05.1992, Page 14
14 B f--------- MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 1992 --- —---------------------------------------- . : ....------ 4 Tölvúr Marinó G. Njálsson Nýr aðiti á meðal hinna stóru Binnig hefur einn-tækmrrraðurfyr- - irtækisins- féngið 'CNE (Gértified Novell Engineer) viðurkenningu frá Novell, einn manna á íslandi. Samkvæmt upplýsingum frá Rún- Tæknival hf. komið í hóp stærstu tölvufyrirtækja landsins Nýr tölvurisi varð til á íslenska tölvumarkaðnum með sameiningu Tæknivals hf. og Sameindar hf. á dögunum. Með þessu komst Tæknival hf. í hóp með EJS hf. og Nýheija hf., sem eitt þriggja stærstu tölvusölufyrirtækja lands- ins. Undanfarin ár hefur Tæknival hf. vaxið mjög ört, frá því að vera eitt margra meðalstóru fyrirtækj- anna árið 1989 með veltu upp á 137 milljónir króna í það að kom- ast í hóp hinna stóru með veltu upp á 646 milljónir króna árið 1991. Ef veltu Sameindar hf. er bætt við (176 milljónir króna árið 1991) er Tæknival hf. komið upp að hlið EJS hf. og IBM á ísland fyrir árið 1991. Fjórða stærsta fyrirtækið árið 1991 var Örtölvu- tækni með rúmlega 400 milljónir króna eða um 500 milljónir króna, ef veltu Tölvutækni (sem Örtölvu- tækni keypti af Hans Petersen hf.) er bætt við. Að sögn Rúnars Sigurðssonar framkvæmdastjóra Tæknivals hf. hljómar söluáætlun fyrir þetta ár upp á 890 milljónir króna, sem er 10% aukning á milli ára. Ríkissamningurinn fer á milli dyra í Skeifunni Annað árið í röð efndi Inn- kaupastofnun ríkisins til útboðs á kaupum á einmenningstölvum handa opinberum stofnunum og fyrirtækjum í eigu ríkisins, bæjar- og sveitafélaga og starfsmanna þeirra. Á síðasta ári hreppti Ört- ölvutækni hnossið, en í ár fór samningurinn yfir ganginn í Skeif- unni 17 til Tæknivals. Sagt er að gleðin sé jafnmikil hjá Tæknivali og sorgin er hjá Örtölvutækni, enda skiptir samningurinn miklu máli. Áætlað verðmæti samnings- ins er 100-150 milljónir króna og munar um minna á samdráttartím- um. Hvort að samningur er jafn- mikils virði á efti'r að koma í ljós. Samningurinn ætti að auðvelda fyrirtækinu að ná settum sölu- markmiðum fyrir þetta ár. Hann er þó.fyrst og fremst viðurkenning á fyrirtækinu. Ekki eru nema fjög- ur ár síðan Tæknival hóf innflutn- ing og sölu á tölvum. Á þessum tima hafa selst 6.000 Hyundai- tölvur, þar af 3.400 á síðasta ári. Áður en ljóst varð að fyrirtækið fengj ríkissamninginn var búið að ákveða að 1992 yrði ár endur- skipulagningar og aukinnar fram- Ieiðni. Ör vöxtur fyrirtækisins undanfarin ár hefur kallað á mikl- ar breytingar innan þess. Á síð- asta ári einu fjölgaði t.d. starfs- mönnum úr 30 í 60. Sameining við Sameind Það kom fáum í tölvuheiminum á óvart að Sameind hf. vildi sam- einast einhverju tölvufyrirtæki til að mynda stærri heild. Eftir að það fékk söluumboð fyrir IBM- tölvubúnað í kjölfar gjaldþrots Skrifstofuvéla - GJJ hf. fyrir tveimur árum leitaði fyrirtækið að samstarfsaðilum. Að selja IBM- tölvubúnað er stór biti, sem staðið hefur í mörgum hingað til. Þegar ljóst varð að Sameind hf. yrði ekki hluti Nýheija hf. og fyrirtækið mundi missa IBM tölvusöluna lá beinast við að finna samstarfsað- ila. Eftir nokkrar viðræður náðist samkomulag milli Sameindar hf. og Tæknivals hf. Með sameiningunni tryggir Sameind hf. að starfí fyrirtækisins er haldið áfram. Hvað Tæknival hf. fær út úr sameiningunni er annað mál. Ég spurði Rúnar Sig- urðsson um það. Hann lagði áherslu á fimm atriði. í fyrsta lagi nokkur umboð, þ.m.t. NEC-prent- ara og skjái, búðarkassa frá IBM og Bargate-tölvur. í öðru lagi íhlutaverslun, en íhlutaverslun Sameindar hf. hefur verið ein sú öflugasta á markaðnum. Með þessu gefst Tæknival hf. kjörið tækifæri til að koma iðntölvudeild sinni betur á framfæri og er hug- myndin að sameina þessa tvo þætti. í þriðja lagi bætast við 9 reyndir starfsmenn. í fjórða lagi flyst hluti viðskiptamanna Sam- eindar hf. yfír til Tæknivals hf. Og í fimmta lagi fækkar um einn keppinaut. Þar með hefur fækkað um þijá stóra keppinauta á mark- aðnum á síðustu mánuðum. Fyrst keypti Örtölvutækni Tölvutækni, þá sameinuðust IBM á íslandi og Skrifstofuvélar - Sund hf. og nú síðast Tæknival og Sameind. Aðrar nýjungar Tæknival hf. náði nýlega samn- ingum við Dell-tölvufyrirtækið um sölu og dreifingu tölva frá fyrir- tækinu. Dell-tölvur hafa átt vax- andi vinsældum að fagna í Banda- ríkjunum og verður fróðlegt að sjá hvaða viðtökur þær fá hér á landi. Rúsínan í pylsuendanum er vafalaust Novell-söluumboðið. Tæknival hf. hefur boðið upp á Novell-netkerfi í nokkur ár. Fyrir- tækið hefur átt náið samstarf við Novell og hefur eitt fyrirtækja hér á landi boðið upp á Novell-nám- Tilkynning um útgáfu markaðsverðbréfa / • Lýsing hf. Útboð skuldabréfa í maí 1992 1. fiokkur 1992, A og B Kr. 150.000.000,- Krónur eitt hundrað og fimmtíu milljónir 00/100 Útgáfudagur: 28. apríl 1992. Gjalddagar: 15. september 1995 og 15. mars 1996. Sölutímabil: 14. maí 1992 -14. ágúst 1992. Grunnvísitala: 3200. Einingar bréfa: Kr. 250.000.- Verðtrygging og ávöxtun: Ofangreind bréf eru verðtryggð miðað við hækkun lánskjaravísitölu. Ársávöxtun, umfram verðtryggingu, er 9% á fyrsta söludegi. Söluaðilar: Landsbréf hf., Suðurlandsbraut 24, Reykjavík, Landsbanki íslands um allt land, Kaupþing hf., sparisjóðir og Búnaðarbanki íslands. Skráningarlýsing liggur frammi hjá söluaðilum. Skráning: Umsjón með útgáfu: Sótt hefur verið um skráningu skuldabréfanna á Verðbréfaþingi íslands. Landsbréf hf. fl LANDSBRÉF H.F. Landshcinkirm stendur með okkur Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 91-679200, fax 91-678598. Löggilt vcrðbrófafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi fslands. skeið fyrir umsjónarmenn tölvu- neta. Nú þegar er búið að halda nokkur slík námskeið og hafa rúm- lega 30 manns sótt þau. Tæknival er í samstarfi við breskt kennslu- fyrirtæki og kemur leiðbeinandi frá því til að sjá um kennsluna. ari Sigurðssyni eru um 600 No- vell-netkerfi uppsett hér á landi og áleit hann það um 80-90% af staðarnetamarkaðnum (PC-tölv- ur). Mistök leiðrétt í grein minni um staðarnet frá því 16. febrúar sl. urðu mér á smá mistök. Mér finnst rétt og skylt að leiðrétta mistök, enda skal það hafa sem sannara reynist. í umfjöllun minni talaði ég um millitölvur eins og þær væru allar á borð við System/36 frá IBM. Fyrir þetta fékk ég orð í eyra, enda í hæsta máta ósanngjarnt að líkja AS/400 tölvum við S/36. Ég vil taka fram að þekking mín á nýjustu AS/400 tölvunum var ekki nægjanleg á þeim tíma, sem ég skrifaði greinina, en ég notaði upplýsingar um eldri AS/400 tölv- ur til viðmiðunar. Það er alltaf erfitt að gera upp á milli kosta góðra millitölvukerfa og staðarneta. Þegar það er gert verður að skoða mjög marga þætti. í grein minni var ég að skoða þá kosti, sem þeir stæðu frammi fyr- ir, sem hvorki væru með staðarnet né millitölvukerfi. Því miður kom það ekki nógu vel fram og leiðrétt- ist því hér með. Höfundur er tölvunarfræðingur. VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF DAGBOK RÁÐSTEFNUR: ■ DECUS ráðstefnan 1992 verður haldin Hótel Örk, Hveragerði 15.-16. maí nk. Á ráðstefnunni verður m.a. fjallað um Alpha sem nýja framtíðar- sýn, upplýsingastefnu íslenskra ríkisstofnana, nýjungar frá Dig- ital í vél- og hugbúnaði, þróun stýrikerfa, gæðastjórnun í hug- búnaðargerð, VAX-ET, DAL, gervigreind, pappírslaus við- skipti, SKÝRR gátt, háhraðanet Pósts og síma o.m.fl. Einungis félagar í DECUS fá aðgang að ráðstefnunni. Óski einhver annar eftir því að taka þátt í ráðstefn- unni er viðkomandi bent á að hafa samband við framkvæmda- stjóra samtakanna, Þórunni Þórisdóttur hjá Skagfjörð - tölvudeild, s. 91-24120. er í kaup á ákveðnum kerfum. Farið verður með rútu frá húsi Nýheija í Skaftahlíð 24 að morgni 26. maí og til baka 27. maí. Gist verður á Hótel Sel- fossi. Allar nánari upplýsingar veitir Jónas Ingi Ragnarsson hjá Nýheija í síma 697748 og þurfa tilkynningar um þátttöku að berast sem fyrst. ■ AÐALFUNDUR Samtaka auglýsenda verður haldinn í Skálanum á Hótel Sögu mánu- daginn 25. maí nk. kl. 16.00. Á fundinum mun Jón Sigurðs- son, viðskiptaráðherra, flytja erindi um ný samkeppnislög sem lögð hafa verið fyrir alþingi. Við- skiptaráðherra mun síðan svara fyrirspumum fundarmanna. ■ NYHERJI hf. stendur fyrir ráðstefnu á Hótel Sélfossi fyrir tölvuráðgjafa og starfsmenn tölvudeilda og fyrirtækja sem selja ráðgjöf á sviði tölvumála dagana 26. og 27. maí nk. Á ráðstefnunni munu sérfræðingar frá Nýheija, IBM i Danmörku, Tölvusamskiptum og Miðverki fara ofan í saumana á þeim möguleikum sem hin ýmsu tölvu- kerfi bjóða upp á, lýsa kostum þeirra og göllum og að hveiju þurfi að hyggja áður en ráðist ■ TIME MANAGER nám- skeið verður haldið dagana 25. og 26. maí nk. á Hótel Loftleið- um á vegum Sljórnunarfélags íslands. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt námskeið fer fram á íslensku en leiðbeinandi er Haukur Haraldsson sem hefur hlotið þjálfun hjá TMI Internati- onal. Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja ná betri tökum á tíma sínum og bæta afköstin í starfi og leik, segir í frétt frá Stjórnun- arfélaginu. EININGABREF 1 $0 _____ m ^• Raurtóvöxtun sl, 3 mónuói «o% KAUPÞING HF iJiggilt verðbréfafyrirtœki Krittgfunni 5, sítni 689080 í figu Búnaðarbanka íslands ogsparisjóðanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.