Morgunblaðið - 11.06.1992, Síða 1

Morgunblaðið - 11.06.1992, Síða 1
ULLARIÐNAÐUR: Aödragandi, staöa og framtíöarhorfur Foldu hf./4 ÚTFLUTNINGUR: Fyrirhugaö aö flytja út Gulu línuna /6 VE>SKIFn AIVINNUUF PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 11. JUNI 1992 BLAÐ B Bílar Mikill samdráttur í bílainn- flutningi landsmanna SAMDRÁTTUR í heildarbílainn- flutningi landsmanna er 28% það sem af er þessu ári. Fyrstu fimm mánuðina voru alls fluttir til landsins 3.625 bílar samanborið við 5.060 bíla í fyrra. í síðasta mánuði voru innfluttir bílar 949 miðað við 1.415 í sama mánuði í fyrra skv. upplýsmgum frá Bíl- greinasambandi Islands. Sam- drátturinn milli þessara mánaða er 33%. Miðað við söluna það sem af er þessu ári er raunhæft að áætla að heildarinnflutningur ársins verði á bilinu átta til níu þúsund eða svipað því sem gerðist árin 1989 og 1990. Innflutningurinn í fyrra var hins veg- ar mun meiri eins ojg kunnugt er eða alls 11.900 bílar. Utlitið í ár rennir stoðum undir þá skoðun að sú tala hafi ekki gefið rétta mynd af þróun- inni og þar hafi verið um óraunhæfa þenslu að ræða. Bílaumboð hafí ýtt undir söluna með því að taka notaða bíla upp í sölu á nýjum á of háu verði. Þegar spáð var í spilin fyrr á þessu ári töldu talsmenn bílaumboða ekki raunhæft að tala um samdrátt fyrr en komið væri undir mitt ár þar sem innflutningurinn væri alltaf mestur á vormánuðum og fram eftir sumri. Sé miðað við árið í fyrra hefur sam- drátturinn hins vegar vaxið jafnt og þétt frá upphafi árs. Eins og sjá má Hlutabréf í korti á næstu síðu voru alls fluttir inn 540 bílar í janúar sl. og var þar um að ræða rúmlega 10% samdrátt frá janúar 1991. í febrúar var sam- drátturinn tæplega 16%, 27% í mars og tæp 38% í aprfl. í síðasta mánuði dró aðeins úr samdrættinum en ekki meira en svo að ljóst má vera að það stefnir í verulegan samdrátt á árinu í heild. Lækkun kauptilboða hefur áhrif á gengið LÆKKUN hefur orðið á gengi nokkurra hlutabréfasjóða að und- anförnu í framhaldi af lækkunum á kauptilboðum í hlutabréf sem skráð eru á Opna tilboðsmarkaðnum og Verðbréfaþingi. T.d. hefur komið fram lækkun á kauptilboðum í hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækja en einnig hefur hagstæðasta kauptilboð í hlutabréf í Eimskip lækkað úr 4,30 í 4,0. Þá hefur hagstæðasta kauptiiboð i Flugleiðabréf lækkað úr 1,60 í 1,38. Að sögn Elfars Guðjónssonar, söl- ustjóra hjá Kaupþingi, var gengi hlutabréfa í eigu hlutabréfasjóðsins Auðlindar endurskoðað og tekin ákvörðun um að lækka gengið um 2% eða úr 1,05 í 1,03. Hann sagði að lækkun á kauptilboðum gæfí ákveðna vísbendingu um að gengið væri að lækka. Þessi þróun kæmi fram .í því að viðskipti hefðu verið mjög lítil. Kaupendur virtust hafa trú á því að gengið væri að lækka og hefðu lækkað sín kauptilboð en selj- endur héldu að sér höndum með sölu á bréfum. „Á meðan kaupendur og seljendur greinir á um þróunina verða engin viðskipti." Þá hefur gengi Islenska hluta- bréfasjóðsins lækkað úr 1,15 í 1,03. Að sögn Þorsteins Guðbrandssonar hjá Landsbréfum var ákveðið að lækka gengi bréfanna í ljósi þeirrar lækkunar sem hefur komið fram í tilboðum á Opna tilboðsmarkaðnum. Hann sagði ennfremur að mjög lítil eftispurn væri nú eftir hlutabréfum og með hliðsjón af fréttum um horf- ur í efnahagslífinu mætti jafnvel gera ráð fyrir frekari lækkunum. Gengi hlutabréfa í Hlutabréfasjóðn- um hafa lækkað jafnt og þétt að síð- ustu mánuði í takt við lækkandi hlutabréfaverð og nemur lækkun kaupgengis um 11% frá áramótum," að sögn Þorsteins Haraldssonar, framkvæmdastjóra Hlutabréfasjóðs- ins. Rekstraryfirlit i / kaupfélaganna 1991 og 1992 \y L\- Upphæðir í milljónum króna 1991 L\- 1992 I t Sreyting Heildarvelta 33.375 34.787 4% Brúttóhagnaður 8.520 8.724 2% -Launakostnaður 3.803 4.219 11% - Annar rekstrarkostn. 2.926 3.073 5% - Fyrningar 725 789 9% Rekstrarhagnaður 1.066 643 -40% ■fFjármunatekjur 640 669 5% - Fjármagnsgjöld 1.684 1.913 14% . + Verðbreytingarfærsla 719 339 -53% - Óreglulegir liðir -18 -102 Hagnaður/(tap) 723 -365 Úr efnahagsyfirlíti Eignir samtals 22.564 23.895 6% Skuldir samtals 15.767 17.130 9% Eigiðfé 6.660 6.556 -1% Eiginfjárhlutfall 29,5 27,4 MIKILL umsnúningur varð í rekstri kaupfélaganna á sl. ári frá árinu áður til hins verra. Nemur sveiflan í afkomu hátt í 1,1 milljarði. Eins og sjá má á meðfylgjandi töfiu varð um 40% minnkun á rekstrarhagnaði sem stafar af því að rekstrar- kostnaður hækkar um 8% en heildarvelta einungis um 4%. Vekur sérstaka athygli að launakostnaður hækkar um 11 % á milli ára. Þá hefur fjármagns- kostnaður lagst með auknum þunga á rekstur kaupfélaganna á sl. ári því fjármagnsgjöld aukast um 14% á milli ára. Mikil aukning óreglulegra liða má að einhverju leyti rekja til tapaðra útlána. Þessi slaka afkoma þýddi versnandi eiginfjárstöðu og dróst eigið fé saman um 104 milljónir þannig að eiginfjár- hlutfall lækkaði úr 29,5% í 27,4%. FYRIR ÞÁ SEM GETA ÁKVEÐIÐ FERÐIR SÍNAR MEÐ MEIRA EN FJÖGURRA DAGA FYRIRVARA 1 SAGA Nýja Saga Class sérgjaldið,* sem er 20% lægra en fullt Saga Business Class er BUSINESS fargjald , gildir frá öllum áfangastöðum innanlands. Saga Class sérgjald i Því skilyrði að bókað sé og greitt samtímis a.m.k. fjórum dögum fyrir brottför. Saga Class sérgjald gildir einungis báðar leiðir í beint flug og er miðað við að flogið sé fram og til baka á sömu flugleið. Heimferð þarf að bóka með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara. Œioa Saga Closs sérgjald gildir til eftirtalinna áfangostoða: Kaupmannahöfn, Ósló, Gautaborg, Stokkhólmur, Hclsinki (1.6. - 7.9.), Glasgow, London, Amsterdam, Lúxemborg. *háð samþykki yfirvalda. Gildistími til 31.10.1992 FLUGLEIDIR Traustur íslenskur ferðafélagi 20% ttr

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.