Morgunblaðið - 11.06.1992, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.06.1992, Qupperneq 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 11 JÚNÍ 1992 Verslun 3.052 Bifreiða- innflutningur jan.- maí 1991 og 1992 — FÓLKSBÍLAR, nýir og notaðir HÓP- VÖRU- og SENDIBÍLAR, nýir og notaðir 977 1991 STÆRSTU kaupfélögin hafa að undanförnu minnkað sín við- skipti við Miklagarð en þess í stað aukið beinan innflutning og endursamið við heildsala í þeim tilgangi að lækka vöruverð. Þetta kom fram í máli Þóris Páls Guðjónssonar, kaupfélagsstjóra í Borg- arnesi og nýkjörins stjórnarmanns í Sambandinu á aðalfundi þess sl. föstudag. Á fundi kaupfélagsstjóra um verslunarmál í Borgarnesi sem haldinn var í vetur var sérstaklega fjallað um verslunarmálin. „Á þeim fundi var gerð ályktun þess efnis að við óskuðum eftir því við Mikla- garð að hann breytti verulega sinni stefnu í sambandi við innkaupamál Einkavæðing Óskað eftir tilboðum í Gutenberg- bréfin ÁKVEÐIÐ hefur verið að gefa þeim aðilum sem rætt hefur verið við um kaup á hlutabréf- um í Gutenberg prentsmiðjunni frest til 19. júní til að skila inn tilboðum. Rætt hefur verið við átta aðila en að sögn Davíðs Björnssonar, deildarstjóra hjá Landsbréfum, er búist við til- boðum frá fimm stórum aðilum. Starfsmenn geta hver um sig keypt hlutabréf fyrir 450 þúsund krónur á sérstökum greiðslukjör- um. Davíð sagði að ekki hefðu verið sett fram bein skilyrði þess efnis að fyrirtækið yrði rekið áfram sem sjálfstætt hlutafélag þó að slíkt væri talið æskilegt. Þú svalar lestraiþörf dagsins ásíóum Moggans!_____________< og afgreiðslu til kaupfélaganna,“ sagði Þórir Páll. „Þið vitið eflaust öll að Mikligarður flytur inn vörur bæði fyrir sínar búðir, Miklagarð og Kaupstað, og fyrir kaupfélögin líka. Þama er á ferðinni að vissu leyti hagsmunaárekstrar þar sem um er að ræða bæði heildsölu til kaupfélaganna og heildsölu og smásölu hér á Reykjavíkurmark- aði.“ Hann sagði fullkomlega nauð- synlegt fyrir kaupfélögin að ná niður vöruverðinu. „Það er ljóst að stærstu kaupfélögin hafa farið þá leið að minnka viðskiptin við Miklagarð en aukið beinan inn- flutning og endursamið við heild- sala til að ná niður vöruverðinu. Þetta þýðir auðvitað að vöru- streymið gegnum Miklagarð hlýtur að minnka. Það var einróma niður- staða fundarins í Borgarnesi að óska eftir því við Miklagarð að sveigja sig að þörfum kaupfélag- anna á þann hátt að þau geti haft aðgang að innfluttum vörum af lager hjá Miklagarði á kostnaðar- verði eða sama verði og afgreitt er til búðanna í Reykjavík. Sömu- leiðis var ósk um það að þau kaup- félög sem treystu sér til að flytja inn í heilum gámum beint með Miklagarði fengju leyfi og aðstöðu til þess. Þetta hefur ekki að öllu leyti gengið upp ennþá. Mér er kunnugt um það að verið vinna að því í Miklagarði að breyta þessu á þann veg að kaupfélögin eigi aðgang að vörum á lager á kostn- aðarverði í Reykjavík." Þórir Páll lagði áherslu á að kaupfélögunum ekki síður en öðr- um aðilum í samvinnuhreyfingunni væri nauðsynlegt að Mikligarður starfaði áfram bæði sem innkaupa- aðili og ekki síður sem söluaðili á landbúnaðarvörum frá Goða. Bjöm Ingimarsson, fram- kvæmdastjóri Miklagarðs, tók til mál á fundinum og sagði rétt að Tollafgreiðsla Stærrí kaupfélögin auka eigin innflutning Nýskráning bifreiða 1990 - maí 1992 1600------------------------------------- 1400- 1200- 1000- 800- 600- 400r* 200 0- TÖLVUSAMSKIPTI — Karl Garðarsson forstöðumaður rekstrardeildar hjá Ríkistollstjóraembættinu og Sigfús Sigfússon for- stjóri Heklu hf., eftir undirritun samning um pappírslausa tollaaf- greiðslu. í framtíðinni verður hægt að senda tollskýrslur í gegnum tölvur allan sólarhringinn. 3.993 1991 ýmis stærri kaupfélög væru farin að beina viðskiptum sínum meira til heildsala annarra en Miklagarðs og út fyrir landssteinana. Hann kvaðst ekki vilja greina frá þeirri vinnu og breytingum sem unnið væri að hjá Miklagarði varðandi innflutningsverslunina. „Eg veit að hún mun skipta feikna miklu máli fyrir litlu félögin og ég er sjálfur sannfærður um að hún mun líka verða til verulegra hagsbóta fyrir stærri kaupfélögin." Björn sagði Mikiagarð eiga við verulega örðugleika að etja. „Það hlýtur að verða okkar fyrsta verk áður en við rekum endanhnútinn á þær breytingar sem við höfum fyrirhugað að gera, að leggja fram okkar tillögur og hrinda í fram- kvæmd þeim breytingum sem auð- sjáanlega þurfa að verða á efnahag Miklagarðs ef að áframhaldandi rekstur á að geta gengið fyrir sig.“ Pappírslaus viðskipti Heklu hf. og Ríkistollsijóraembættisins Hekla hf. fyrst íslenskra innflutningsfyrirtækja í pappírslausum við- skiptum við Ríkistollstjóraembættið PAPPÍRSLAUSAR tollaafgreiðslur hófust í gær á milli Heklu hf. og Ríkistollstjóraembættisins. Þar með geta öll helstu samskipti Heklu og embættisins farið í gegn um tölvur. Undirbúningur þessara pappírs- lausu viðskipta hefur tekið u.þ.b. eitt ár í samstarfi Heklu, Ríkistoll- stjóraembættisins, Netverks hf. og Kerfis hf. Sigfús Sigfússon forstjóri Heklu segist vera mjög ánægður með sam- starfið við Ríkistollstjóraembættið og þakkar það traust sem fyrirtækinu hefur verið sýnt með því að fá að vera fyrsta íslenska innflutningsfyr- irtækið sem getur átt pappírslaus viðskipti við embættið. „Pappírslaus viðskipti koma til með að vera til hagsbóta fyrir alla,“ segir Sigfús. „Fyrir tæpu ári síðan var sett í gang samstarfsverkefni á milli Ríkis- tollstjóraembættisins og nokkurra íslenskra fyrirtækja um hvernig best væri að standa að pappírslausum samskiptum okkar á milli. Þar á meðal var Hekla og er það nú fyrst fyrirtækjanna til að koma á þessum samskiptum. Hin fyrirtækin munu fylgja í kjölfarið eitt af öðru á næst- unni,“ segir Karl Garðarsson for- stöðumaður rekstrardeildar hjá Ríki- stollstjóra. „Þá er að fara í gang tölvukerfi hjá farmflytjendum þar sem þeir m.a. senda reikninga í gegn- um tölvur og á næstunni hefst greiðslumiðlunarkefi hjá einhverjum bönkunum." Karl segir þetta skref í pappírs- lausum tollaviðskiptum einnig vera undirbúning fyrir reglugerð sem nú sé verið að vinna að og mun opna almennt fyrir pappírslausa tollaaf- greiðslu. „Þróunin er sú að einn dag- inn verði flest fyrirtæki í pappírslaus- um viðskiptum við okkur.“ Tengingin á milli Heklu og Ríkis- tollstjóraembættisins samanstendur af hugbúnaði frá Kerfi hf. og sendi- búnaði við X.400 gagnahólfaþjón- ustu Pósts og síma ásamt EDI-þýð- ara frá Netverki hf. Notaðir eru nýj- ustu staðlar, EDIFACT, frá Samein- uðu þjóðunum um skjalasendingar á milli tölva sem hafa verið í þróun undanfarin ár. í nýja fyrirkomulaginu gengur Hekla frá skýrslugerð í eigin hug- búnaðarumhverfi og sendir síðan í gagnahólf tilbúna tollskýrslu. Ríkis- tollstjóraembættið sækir skýrsluna í gagnahólfið, vinnur úr henni og sendir Heklu upplýsingar um hvort allt sé í lagi. Ef svo'er eru aðflutn- ingsgjöldin skuldfærð og hinni eigin- legu tollaafgreiðslu er lokið. í kjölfar- ið má afgreiða vöruna til innflytj- enda. Fjármálastjóri Heklu, Hrafnkell Gunnarsson, segir mikinn tíma- og vinnusparnað felast í pappírslausum tollaviðskiptum. „Næsta skref hjá okkur er að ganga frá samskonar pappírslausum skuldfærslum við banka og því munu reglulegar ferðir í tollinn og banka verða úr sögunni fljótlega." Hjá Tollstjóraembættinu er nú verið að vinna að kynningarefni um pappírslaus viðskipti og ætlunin er að vera með sérstakt kynningarátak um það efni næsta haust. 3 MITSUBISHI 358 12,3 4. NISSAN 291 10,0 5. AE-LADA 194 6,7 MAZDA 124 4,3 7. VOLKSWAGEN 121 4,1 8. SUBARU 116 4,0 9. SUZUKI 111 3,8 10. RENAULT 89 3,1 Aðrir 458 15,7 mest seldu fólks- bílategundirnar í jan.- maí 1992 Fjöldi % 1. TOYOTA 590 20,2 2 DAIHATSU 464 15,9 BLIK AF FRAMTIÐINNI Veró frá kr. 1,729,000,- ÉÁf-'úÉyF/uyv' ‘S-f'M Hvað er það sem gerir BMW bfla áhugaverðari en aðra? Þaðgeturveriðhagstættverð, lægri rekstarkostnaður, minnaviðhald, háþróuð tækni, fyrsta flokks þjónusta eða hámarks öryggi. Nýja BMW 3 línan sameinar alla þessa kosti, en býður jafnframt upp á hinn "klassíska" stíl _ . _ Bflaumboðið hf sem ávallt er að finna í BMW. BMW - bíil sem vekur athygli Krókháisi 1-110 Reykjavfk-simi 686633 Engum líkur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.