Morgunblaðið - 11.06.1992, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1992
B 3
Fyrirtæki
Reginn tapaði 242
milljónum ífyrra
vegna Holtagarða
TAP Regins hf., dótturfélags Sambandsins, nam alls um 242 milljón-
um króna á sl. ári. Fyrirtækið keypti á árinu fasteignina Holta-
garða þar sem Samskip og Mikligarður eru til húsa og skýrist
tapið fyrst og fremst af kostnaði við breytingar á húsinu og slakri
nýtingu þess á árinu, að sögn Sigurðar Markússonar, sljórnarform-
anns Sambandsins, Kaupin á húsinu miðuðust við 1. janúar 1991
en Samskip fluttu starfsemi sína þangað úr Sambandshúsinu við
Kirkjusand í október. Því varð slök nýting á húsinu lengst af á sl. ári.
Morgunblaðið/Kristján
HLUTHAFAR — Hluthafar í Verkfræðiþjónustunni Streng eru frá hægri, Magnús Sigurðsson,
Karsten Butterup frá PC&C, Jesper Balser, aðaleigandi PC&C, Haukur Garðarsson, Snorri Bergmann, Skúli
Jóhannsson, Guðmundur Kolka og Guðbjartur Guðbjartsson.
Hugbúnaður
í ársskýrslu Sambandsins fyrir
sl. ár kemur fram að hagnaður
vegna sölu fasteignarinnar Holta-
garða til Regins hf. hinn 1. janúar
1991 nam alls 952 milljónum
króna. Þessi sala fór fram í tengsl-
um við skipulagsbreytingarnar
sem þá áttu sér stað hjá Samband-
inu. Söluverð fasteignarinnar var
1.500 milljónir og segir í ársskýrsl-
unni að það verð hafí verið í sam-
ræmi við álit óháðra kunnáttu-
manna sem metið höfðu eignina
til markaðsverðs. Reginn hf.
greiddi húsið með því að yfírtaka
skuldir Sambandsins að sömu íjár-
hæð. Þetta er talin ein þýðingar-
mesta aðgerðin í íjárhagslegri end-
urskipulagningu Sambandsins en
samið var við lánardrottna um
verulega lengingu og einföldun á
lánunum.
Reginn á 16% hlut í íslenskum
aðalverktökum og um 7% hlutafé
í Sameinuðum verktökum hf. Af-
gangur eignanna er fasteign og lóð
í Garðabæ, hlutabréf í ýmsum
Streng breytt íhlutafélag
Hlutafé er 24 milljónir króna
HLUTAFÉLAG var stofnað í gær um rekstur Verkfræðistofunnar
Strengs sem hefur verið einkafyrirtæki fram til þessa. Hluthafarnir
eru allir starfsmenn þjá Streng auk þess sem danska fyrirtækið PC&C
kaupir hlut í fyrirtækinu en hlutafé er 24 milljónir. Að sögn eins af
hluthöfunum, Hauks Garðarssonar framkvæmdastjóra, var helsta
ástæða breytingarinnar sú að mönnum þótti eðlilegt að fyrirtæki af
þessari stærðargráðu væri rekið á hlutafélagaformi. Velta Strengs á
síðasta ári var 140 milljónir króna.
fyrirtækjum og aðrar eignir. Voru
hlutabréf Sambandsins í Regin í
árslok 1991 bókfærð á 716 milljón-
ir.
Hlutafélagið Reginn var stofnað
1944 og hét þá Hlutafélagið Olíu-
höfn. Upphaflegur tilgangur þess
var m.a. að reisa olíubirgðastöð
og var um tíma rætt um Kollafjörð
í því efni. Ekkert varð úr þeim
framkvæmdum heldur hafði fyrir-
tækið með höndum ýmsar
byggingarframkvæmdir á árunum
1953 til 1957, þar á meðal vam-
arliðsframkvæmdir sem undirverk-
taki Sameinaðra verktaka. Þá rak
Reginn hf. Trésmiðjuna Silfurtún
í Garðabæ í mörg ár.
Reginn átti í upphafí 25% hlut
í Aðalverktökum á móti jafnstórum
hlut ríkissjóðs og 50% hlut Samein-
aðra verktaka hf. Síðla árs 1990
var gerður nýr eigendasamningur
að Aðalverktökum, ríkið eignaðist
meirihluta en hlutur Regins lækk-
aði í 16% og Sameinaðra í 32%.
Strengur hf. hefur sérhæft sig í
hugbúnaðargerð, bæði sérskrifuðum
hugbúnaði og viðskiptakerfum. Á
síðari árum hefur áhersla verið lögð
á viðskiptahugbúnað fyrir fyrirtæki
og stofnanir en Strengur hefur selt
viðskiptahugbúnaðinn Bústjóra frá
árinu 1989. Kerfíð var þróað af
PC&C og hefur selst í yfir 20.000
eintökum aðallega í löndum innan
Evrópubandalagsins. Þess má geta
að um 350 íslensk fyrirtæki nota
Bústjóra.
Hjá Streng starfa 29 manns og
velta fyrirtækisins á síðasta ári var
140 milljónir. Hlutafé sem er 24
milljónir skiptist þannig: Skúli Jó-
hannsson 30%, Haukur Garðarsson
15%, PC&C 15%, Guðbjartur Guð-
bjartsson 10%, Guðmundur Kolka
10%, Magnús Sigurðsson 10% og
Snorri Bergman 10%.
Að sögn Hauks er ætlunin að
leggja áherslu á sölu á erlenda mark-
aði í samvinnu við PC&C jafnhliða
því að halda áfram uppbyggingar-
starfi hér á landi. Strengur hefur
hannað viðbótarkerfi sem tengjast
grunnkerfum Bústjóra og á næstunni
er stefnt að því að heíja sölu á þeim
í Evrópu. Um er að ræða tölvukerfí
fyrir fiskvinnslu og útgerð, inn-
heimtukerfí fyrir lögfræðinga, launa-
kerfí, inn- og útflutningskerfi ásamt
ýmsum minni kerfum. Strengur hef-
ur rekið upplýsingakerfið Hafsjó frá
árinu 1987 en það er kerfi sem geym-
ir upplýsingar fyrir aðila í sjávarút-
vegi og eru um 70 aðilar víðs vegar
um landið tengdir því. Eitt af stærri
kerfum sem hannað hefur verið hjá
Streng er forrit sem unnið var fyrir
Landsvirkjun og framkvæmir eftir-
líkingar á rekstri raforkukerfis
landsins. Einnig hefur Strengur sett
upp öll tölvukerfí hjá Húsnæðisstofn-
un ríkisins. Þá má nefna að Strengur
er umboðs- og söluaðili fyrir gagna-
safnskerfið Informix sem keyrir á
tölvum með Unix stýrikerfínu.
SÍWacf-llamiiJ
bókhaldskerfi fyrir Macintosh-tölvur
MacHansa er öflugt bókhaldskerfi sem er notað af
meira en 4.000 notendum víða um heim, svo sem í
Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Eistlandi, Englandi,
Simbabwe, Ungverjalandi, Rússlandi og Póllandi.
Mac Hansa, sem er einstaklega þœgilegt í notkun,
samanstendur a ~
Kerfið er hannað sérstaklega fyrir Macintosh og nýt-
ir allaeiginleika hins vingjamlega umhverfis, svo
sem: Útgáfu og áskrift, prentun á leysiprentara og
möguleika á tengingu víð töflureikm og ritvinnslu.
é Skré Sfttl Spjald SpJaHUIcré ÝniUtoflt
[ I »09» ) (íitPUn ulðj fstöfná] [Tuif ld»| Jjflj
Fulgitklal: Skofta
Númer 7 | Fœrtludagt. 11.1.1992 | Undlrkerfi H
Tlluitun Ljósrltunarvél
Lina Lyklll Efnl Tentl Debet Kredlt
1 4240 Sm66h01d 60273,00 V
2 2173 Sm66höld 16727,00
3 1 1 10 Uv. 002 05000.00
4 Leiftréttlng 6 fylqiskjollf 3
Mismunur
O
fjárhagsbókhalli (3
útgáfur), sölu- og
viðskiptamannabók
haldi.
□
__________ Hr-
Númer |3 | Fnrsludagt. |l.l.lw2 | Undirkerfl [
Tlluitun |Lj6tmunarvól
Llna Lyklll Efni
Tewtl
|Sm66hðid
|áv. 002
lelftrétt l ínlaltlcjalll
IJZ
602/3.00
£
SkráftT29 4 1992
05000,00
J1
Spjaldtkré Vmltlegt
HÓLrt.'.. xz |r)wy
KH |lgltkjal: Stofna
MacHansa þarfnast ekki mikils diskrýmis og vinnur
á öllum Macintosh-
tölvum sem em með
harðdisk, þ.e. allt frá
Macintosh Plus upp
í hina geysiöflugu
Macintosh Quadra.
Ktlppa
Rfrltn
Lime
Hretnsa
Uelja ollt
Undirkerfl
1 3100 ir 46506,00
2 2171 Bókhaldtluklll 11414,00
3 1110 Tól ► Dagtetning 0.00
4 Gluggar ► Urelflng óstlunar
5
6 Efnisflokkur **
7 Útrelknaftar fsrtlur
8
9
10
Mltmunur 0,00 Samtalt 50000,00 58000,00 £
Apple-umboðið
Skipholti 21, sími (91) 624 800
o