Morgunblaðið - 11.06.1992, Síða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 11 JÚNÍ 1992
Ullariðnaður
Erfiður róður en
okkur miðar í áttina
Rætt við Baldvin Valdimarsson, framkvæmdastjóra Foldu hf., sem í síðustu viku samdi við
Rússa um sölu á ullarvörum fyrir 240 milljónir króna eða um 60% af áður áætlaðri veltu ársins
ERFIÐLEIKAR ullariðnaðar á íslandi undanfarin ár hafa tæpast
farið fram hjá nokkrum manni. Gjaldþrot Álafoss sl. haust var af
sumum talið leiða til endanlegs hruns í atvinnugreininni þar sem
fyrirtækið hafði til skamms tíma verið kjölfesta ullariðnaðar í land-
inu. Síðan voru aðrir sem sögðu einu vonina felast í því að Ála-
foss yrði lagt niður í núverandi mynd. Þessir aðilar töldu enga
ástæðu til þess að óttast að einkaaðilar myndu ekki sjá sér hag í
að yfirtaka þann hluta af starfsemi fyrirtækisins sem líklegur
þætti til þess að bera arð og vinna betur ur honum en tókst hjá
Alafossi. Hinn 1. október sl. tók fyrirtækið Folda hf. við rekstri
Álafoss á Akureyri og í viðtali við Morgunblaðið lýsir framkvæmda-
sljórinn, Baldvin Valdimarsson, aðdragandanum, núverandi stöðu
og framtíðarhorfum Foldu.
„Stofnun Foldu hf. má rekja til
þess að bæjarstjórn Akureyrar fól
Iðnþróunarfélagi Eyjafjarðar síðla
sumars í fyrra að kanna möguleik-
ana á stofnun ullarvinnslufyrir-
tækis á Akureyri sem taka ætti
við rekstri Álafoss í bænum,“ sagði
Baldvin. „í útreikningum Iðn-
þróunarfélagsins var gengið var
út frá ákveðnum forsendum sem
miðuðu að því að skera niður allan
kostnað og sýna aðhald í rekstrin-
um og að útreikningum loknum
sáu menn fram á ákveðinn rekstr-
argrundvöll."
Samningar við Landsbanka ís-
lands, sem tók við rekstri Álafoss
eftir gjaldþrotið, leiddu af sér kaup
á vef- og fatadeild Álafoss á Akur-
eyri og fatadeildinni í Mosfellsbæ
ásamt framleiðslurétti og við-
skiptavild og var fyrirtækið Folda
hf. síðan formlega stofnað 30.
september. „Það sem mestu skipt-
ir er að skuldsetningin í rekstrin-
um og þar af leiðandi vaxtakostn-
aður er orðinn mun minni. Helsta
forsenda þess að ná niður kostn-
aði í rekstri var að hafa alla fata-
framleiðsluna á sama stað ásamt
skrifstofuhaldi og því markmiði
höfum við náð,“ sagði Baldvin, en
Folda notar ekki nema lítið brot
af því húsnæði á Akureyri sem
Álafoss notaði á sínum tíma. Við
kaupin voru allir gildandi starfs-
samningar í framleiðslustörfum
yfírteknir, en fækkun varð á
starfsfólki í skrifstofu- og
stjórnunarstörfum. í heild er
starfsfólk Foldu tæplega 140 tals-
ins.
POST - IT
rei'r- /r
,£/*iW/£)A
,*&/t£7U/k
Þegar koma
á skilaboðum
ÁRVÍK
ÁRMÚLI 1 -REYKJAVÍK- S(MI 687222 -TELEFAX 687295
Dreifðir viðskiptaaðilar með
ólíkar kröfur
Helstu erfíðleika Foldu nú sagði
Baldvin felast í því hversu marg-
þættur reksturinn væri. „Þar á ég
bæði við tæknileg atriði og eins
að viðskiptahópur okkar er mjög
dreifður og setur ólíkar kröfur.
Það á bæði við um kaupendur
okkar og þá sem selja okkur hrá-
efni til framleiðslu. Þá gera árstíð-
asveiflur okkur erfitt fyrir þar sem
við þurfum að framleiða tiltölulega
jafnt og þétt yfír árið og það kost-
ar birgðahald sem er dýrt.“
Baldvin sagði þessa erfíðleika
algenga í þeim rekstri sem hér
væri um að ræða, en hins vegar
væri verið að vinna í því að reyna
að breyta samsetningu viðskipta-
hópsins með breyttri markaðssetn-
ingu. „Sú vinna er þó enn á al:
geru frumstigi,“ sagði Baldvin. „í
upphafí hefur stefnan verið sú að
reyna að halda í sem flest af við-
skiptasamböndum Álafoss enda
gerðum við okkur grein fyrir því
að þau héldu í okkur lífinu þar til
eitthvað nýtt kæmi í staðinn. Þetta
hefur tekist ágætlega og okkur
höfum náð að halda í mikilvæg-
ustu samböndin. Hins vegar er því
ekki að neita að það eru ákveðnir
markaðir á hnignunarstigi. Stór
hluti af sölu Álafoss til Þýskalands
fór t.d. í gegnum svokallaðar neyt-
endasýningar sem eru sérþýskt
fyrirbæri. Þessar neytendasýning-
ar eru nú á undanhaldi og við
þurfum því að byggja upp ný sam-
bönd þar.“
Í fatadeild Foldu er framleiddur
hefðbundinn ullarfatnaður en að
sögn Baldvins er verið að gera til-
raunir með hönnun á pijónuðum
Morgunblaðið/Rúnar Þór
ULLARIÐIMAÐUR — Baldvin Valdimarsson, framkvæmda-
stjóri Foldu hf., segir að menn hafi gert sér grein fyrir því í upphafi
að róðurinn yrði erfiður en það miðaði allt í rétta átt. Aðalatriðið hafi
verið að ná niður skuldsetningu fyrirtækisins og lækka vaxtakostnað
og það hafi tekist vel.
fatnaði úr öðrum bandtegundum.
„Þar sem viðskiptavinirnir eru
margir og dreifðir með ólíkar þarf-
ir erum við með mjög fjölbreytta
framleiðslu, sérstaklega í fatnaði,“
sagði Baldvin. „Gæði framleiðsl-
unnar skipta líka höfuðmáli enda
eigum við ekki í verðsamkeppni á
erlendum mörkuðum. Markaðs-
setningin felst í að selja framleiðsl-
una út á gæðin.“
85% framleiðslunnar fara á
erlendan markað
Um 5 milljóna króna hagnaður
IVECO AIFO
diesel vélar
Sölu-/dreifingaraðili
óskast á íslandi
Fyrirtæki, með reynslu bæði í sölu og viðgerð-
um á dieselvélum ætlaðar sjávarútvegi og
iðnaði, sem hafa áhuga á að gerast sölu- og
dreifingaraðilar á íslandi á vélum frá okkur,
vinsamlega sendi umsókn ásamt stuttu ágripi
um fyrirtækið. Fullum trúnaði heitið.
1
INDUSTRIAL & MARINE DIESELS LIMITED
MOSSLAND ROAD
HILLINGTON INDUSTRIAL ESTATE
GLASGOW G52 4XW - SCOTLAND
varð af rekstri Foldu hf. þá þijá
mánuði sem fyrirtækið starfaði á
sl. ári. Rekstrargjöld námu 115
milljónum og þar af voru hráefnis-
kaup upp á 48 milljónir. Á síðasta
ári nam sala Foldu um 122 milljón-
um þar sem 15% framleiðslunnar
voru seld á innanlandsmarkaði og
85% erlendis. Helstu viðskiptavinir
Foldu hf. erlendis eru á Norður-
löndum, í Mið-Evrópu og Japan.
„Sala á íslenskum ullariðnaði til
Bandaríkjanna var alveg dottin
upp fyrir í tíð Álafoss, en við þykj-
umst sjá ákveðin merki þess að
hún sé aðeins á uppleið þar nú,“
sagði Baldvin.
Að sögn Baldvins verður að telja
afkomutölur síðasta árs að mestu
Ieyti ómarktækar. Á stuttum
rekstrartíma hafí komið stórir
gjaldaliðir vegna stofnunar fyrir-
tækisins, en hins vegar hafi það
tekið við rekstri á aðalsölutíman-
um undir lok ársins. Salan dytti
venjulega niður eftir áramót og
þannig væri ástandið fram undir
mitt ár. „Fyrri hluta ársins seljum
við um fjórðung af heildarsölu
ársins sem er eðlilegt í þessari
atvinnugrein. Við erum fyrst og
fremst að framleiða vetrarvörur
þar sem pantanir koma inn fyrri
hluta árs en salan fer ekki fram
fyrr en seinni hlutann.“
Áætlanir ársins gera ráð fyrir
400 milljóna króna veltu
Áætlanir Foldu fyrir árið 1992
gerðu ráð fyrir um 400 milljóna
króna veltu. Að sögn Baldvins var
veltan fyrstu fjóra mánuði ársins
um 10% undir áætlun sem er inn-
an eðlilegra vikmarka. Um síðustu
áramót var eigið fé Foldu um 70
milljónir króna. Skuldir námu alls
168 milljónum og þar af voru
skammtímaskuldir tæplega 112
milljónir. Veltufjármunir námu
166,4 milljónum og veltufjárhlut-
fallið var því um 1,5.
Hluthafar í Foldu hf. eru 40
talsins. Hlutafé er um 65 milljónir
króna og fyrir liggur heimild
stjórnar til að auka það í 70 millj-
ónir á árinu. Stærstu hluthafarnir
eru Framkvæmdasjóður Akur-
eyrar með 30 milljóna hlutafé,
Byggðasjóður með 12 milljónir,
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar,
Stéttarsamband bænda og Búnað-
arsamband Eyjafjarðar. Að sögn
Baldvins er gert ráð fyrir því að
í fyllingu tímans fari hlutur Akur-
eyrarbæjar á sölu á almennum
markaði.
Nýr sölusamningur við Rússa
upp á 240 milljónir króna
í síðustu viku var undirritaður
samningur milli Foldu hf. og
innanríkisviðskiptaráðuneytis
Rússlands og innkaupastofnunar
rússneska lýðveldisins um sölu á
ullarvörum til Rússlands fyrir
rúmlega fjórar milljónir dollara
eða um 240 milljónir króna. Samn-
ingurinn er þó háður þeim fyrir-
vara af hálfu Rússa að hann öðlist
gildi þegar þeir hafa aflað leyfa
fyrir útflutning olíu sem á að koma
sem greiðsla fyrir ullina skv. milli-
ríkjasamningi þjóðanna tveggja.
„Eins og er ganga menn út frá
því að framleiðslan komi til af-
greiðslu á þessu ári, en ef það
dregst eitthvað að samningurinn
öðlist gildi dreifist salan væntan-
lega líka á næsta ár,“ sagði Bald-
vin, en salan mun koma til viðbót-
ar við veltuáætlanir fyrirtækisins.
Að sögn Baldvins standa vonir til
þess að samningurinn leiði af sér
áframhaldandi viðskipti við þessa
aðila.
Kaup Foldu á tækjum og véla-
kosti Álafoss voru miðuð við ár-
lega veltu á bilinu 3-400 milljónir
króna. Að sögn Baldvins þótti það
raunhæft mat en fyrirtækið ætti
kost á mun meiri framleiðslu mið-
að við þann vélakost sem fylgdi í
kaupunum. Afkastagetan væri því
Iangt frá því að vera fullnýtt og
þrátt fyrir að Rússasamningurinn
fæli í sér sölu sem væri mjög stórt
hlutfall af áður áætlaðri veltu réði
Folda auðveldlega við viðbótina
án þess að þörf væri á skipulags-
breytingum.
Aukin áhersla á náttúruvernd
kemur Foldu til góða
Þegar talið barst að framtíðar-
stefnu Foldu sagði Baldvin að sá
hópur viðskiptavina færi sífellt
stækkandi sem væri umhugað um
umhverfið og miðaði innkaup sín
við það. Þetta fólk keypti þannig
í ríkari mæli fatnað sem framleidd-
ur væri úr náttúruefnum og þar
lægju möguleikar Foldu. Þarna
væri markhópur sem Folda ætti
að einbeita sér að í framtíðinni,
líkt og reyndar mörg önnur íslensk
útflutningsfyrirtæki.
„Folda tók eðlilega við mörgum
málum sem voru í gangi hjá Ala-
foss á sínum tíma. Verðmætin í
kaupunum lágu fyrst og fremst í
vörumerki með ákveðinni við-
skiptavild og þar með aðgangi að
vissum viðskiptasamböndum. Hins
vegar höfum við líka fengið að
súpa seyðið af því að þarna átti
sér stað gjaldþrot sem vissulega
kom mörgum á óvart vegna íhlut-
unar ríkisins í fyrirtækinu. Það er
ekki beinlínis hægt að segja að
ullariðnaður hafí jákvæða ímynd
hér heima en sem betur fer er því
þveröfugt farið erlendis. Við gerð-
um okkur grein fyrir því í upphafi
að róðurinn yrði erfiður, en okkur
miðar í áttina og ég er sannfærð-
ur um að Folda sé komin til að
vera,“ sagði Baldvin Valdimarsson
að lokum.
HKF