Morgunblaðið - 11.06.1992, Page 5

Morgunblaðið - 11.06.1992, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 11. JUNI 1992 B 5 ItUJIIN.H.UIIJ- Sfningarbás Islendinga kjörinn besturíBella Center SÝNINGBARBÁS Útflutningsráðs íslands og 16 íslenskra fyrirtælga var valinn besti þjóðarbásinn á alþjóðlegu sjávarútvegssýningunni World Fishing ’92, sem fram fór í Bella Center sýningarhöllinni í Kaup- mannahöfn 26.-30. maí sl. Að mati sérfróðrar dómnefndar var ís- lenski þjóðarbásinn mjög aðlaðandi og upplýsingar á veggjum þóttu skýrar og áhugavekjandi. Hönnun bássins var í höndum Utflutnings- ráðs, fyrirtæjanna 16 og Sýningarkerfa hf. „Meitluð skilaboð mikilvæg" Að sögn Jóns Þorvaldssonar, kynningarstjóra Útflutningsráðs, höfðu íslensku sýnendurnir lagt sér- staka áherslu á útlit og framsetningu í undirbúningi sínum fyrir sýning- una, og sú vinna skilaði greinilega árangri. „í samkeppni um athygli sýningargesta getum við alls ekki lagt fjármagn í dýran arkitektúr,“ segir Jón. „Við verðum að beita fyr- ir okkur vel skilgreindum meginhug- myndum — leggja upp úr meitluðum skilaboðum í stað efnislegs íburðar. Til að sýningarbás verði aðlaðandi og meginskilaboð fái notið sín verður stundum að fórna upplýsingum sem menn hefðu annars kosið að hafa uppi á vegg. Ég tek t.d. ofan fyrir þeim sýnendum sem stilltu sig um að hengja upp veggspjöld, sem útaf fyrir sig eru ágæt, en hefðu spillt heildarmyndinni," segir Jón Þor- valdsson. Stærsti íslenski þjóðarbásinn til þessa íslenski þjóðarbásinn á World Fis- hing ’92 mun vera hinn stærsti sem Útflutningsráð íslands hefur skipu- lagt hingað til, um 270 fm að flatar- máli. Alls var sýningarsvæðið um 6.000 fm, nokkru minna en á fyrri sýningum. Á sýningunni voru fyrst og fremst sýndar vélar og tæki fyrir sjávarút- veg og fiskvinnslu, og voru sýninga- raðilar á fimmta hundrað talsins, frá yfir 20 þjóðlöndum. Sýningargestir voru á níunda þúsund, víðs vegar að úr heiminum, og Danir innan við helmingur sýningargesta. Mikið bar á gestum frá Austur-Evrópu, og var þar einkum um að ræða yfirmenn stofnana og fyrirtækja frá Póllandi, Eystrasaltsríkjunum og Rússlandi. Einnig má nefna gesti frá Evrópu- bandalagsríkjunum, N- og S-Amer- íku, Japan, Kóreu, Ástralíu, Afríku og Mið-Austurlöndum, auk þess sem Norðurlandabúar fjölmenntu á sýn- inguna. Mikið starf fyrir höndum Íslensku sýnendumir voru yfirleitt ánægðir með þátttöku sína, vörur þeirra og þjónusta vöktu verðskuld- aða athygli og mikilvægum tengslum var náð. Vert að geta fulltingis sjáv- arútvegsráðherra, Þorsteins Pálsson- ar, en sjávarútvegsráðherrahjónin sóttu sýninguna ásamt íslensku sendiherrahjónunum í Kaupmanna- höfn og heilsuðu þau upp á gesti í vel heppnaðri móttöku íslensku fyrir- tækjanna. Jón Þorvaldsson tekur skýrt fram að endanleg uppskera af sýningar- þátttökunni komi yfirleitt ekki í ljós nærri strax. „Árangurinn ræðst að miklu leyti af því hvernig unnið er úr þeim gögnum og samböndum sem aflað hefur verið, og sú markaðs- vinna getur tekið langan tíma og reynt í senn á kunnáttu og þolgæði." íslensku aðilamir sem sýndu undir merki Útflutningsráðs voru: Asiaco, Formax, Icecon, J. Hinriksson, Kas- sagerð Reykjavíkur, Kvikk, Marel, Póls, Samey, Fróði hf., Sjóklæða- gerðin, Slippstöðin á Akureyri/Iðn- þróunarfélag Eyjaffarðar, Sæplast, Traust verksmiðja, Vaki og Þorgeir og Ellert. ISLENDINGAR ’92 í Kaupmannahöfn. íslensku þátttakendurnir á World Fishing BELLA CENTER — Séð yfír básinn sem Marel hf. var með á íslenska sýningarsvæðinu. Tilkynning um útgáfu markaðsverðbréfa Lýsing hf. Útboð skuldabréfa í júní 1992 2. flokkur 1992, A og B Kr. 200.000.000,- Kr. tvö hundruð milljónir 00/100 Utgáfudagur: Gjalddagar: Sölutímabil: Grunnvísitala: Einingar bréfa: Verötrygging og ávöxtun: Sötuaöilar: Skráning: Umsjón með útgáfu: I. júní 1992. 15. desember 1995 og 15. september 1996. II. júní 1992-11. september 1992. 3210. Kr. 200.000.- Ofangreind bréf eru verötryggö miöaö viö hækkun lánskjaravísitölu. Ársávöxtun, umfram verðtryggingu, er 8,60% á fyrsta söludegi. Landsbréf hf., Suðurlandsbraut 24, Reykjavík, Landsbanki íslands, Búnaöarbanki íslands, Kaupþing hf. og sparisjóöir. Skráningarlýsing liggur frammi hjá söluaöilum. Sótt hefur veriö um skráningu skuldabréfanna á Verðbréfaþingi íslands. Landsbréf hf. eru viðskiptavaki skuldabréfa Lýsingar hf. á Verðbréfaþingi íslands Landsbréf hf. 0 LANDSBRÉF H.F. Landsbankinn stendurmeð okkur Sudurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, simí 91-679200, fax 91-678598. Löggilt verðbréfafyrírtæki. Aðili að Verðbréfaþingi tslands. Notaður Volvo - sömu gæðin HSI 1. flokkur þýóir: I. 6 mánaða ábyrgð II. Sérstaklega yfirfarinn III. Skoðaóur '93 IV. Góð dekk V. í toppstandi utan sem innan > *

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.