Morgunblaðið - 11.06.1992, Page 12

Morgunblaðið - 11.06.1992, Page 12
JWtrjpwMtórifo VIÐSKIPn AIVINNULÍF FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 1992 Ferðamál _ > Ráðstefnuskrifstofa Islands eykur fjölbreytni í ferðaþjónustu Morgunblaðið/KGA STOFNSAMNINGURINN “ Myndin er tekin á stofnfundi Ráðstefnuskrifstofu íslands. Frá vinstri sitja Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður, Kristín Halldórsdóttir, formaður Ferðamálaráðs, Markús Öm Antonsson, borgarstjóri, Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða, Wilhelm Wessmann, formað- ur Sambands veitinga- og gistihúsa og Helgi Jóhannsson, formaður Félags íslenskra ferðaskrifstofa. STOFNFUNDUR Ráðstefnu- skrifstofu Islands var haldinn þann 15. maí síðastliðinn. Markmiðið með stofnuninni er að markaðssetja ísland sem ákjósanlegan stað fyrir fundi, ráðstefnur og hvataferðir og nýta þar með betur þær fjárfest- ingar sem eru fyrir í ferðaþjón- ustu t.d. hótel, veitingahús, sam- göngutæki o.fl. sérstakiega utan háannatíma. Tilgangurinn er að skapa auknar gjaldeyristekjur og fleiri atvinnutækifæri. Und- irbúningsviðræður hafa staðið yfir í alllangan tíma enda er mikið hagsmunamál fyrir hótel, veitingahús og ferðaskrifstofur að vel takist til. Umræddu markmiði hyggst Ráðstefnuskrifstofa íslands, RSÍ, ná m.a. með útgáfu og dreifíngu upplýsingaefnis, þátttöku í sýning- um, kynningarfundum og heim- sóknum erlendra blaðamanna og skipuleggjendum funda, ráðstefna og hvataferða. Þá mun skrifstofan einnig vinna að því að íslendingar í alþóðlegu samstarfí kynni mögu- leika landsins á þessum markaði. Gert er ráð fyrir að rekstrar- kostnaður verði u.þ.b. 30 milljónir á ári. í fréttatilkynningu frá Ráð- stefnuskrifstofu íslands segir að Ferðamálaráð Islands, Flugleiðir, Reykjavíkurborg, Félag íslenskra ferðaskrifstofa og Samband veit- inga- og gistihúsa hafí ákveðið að leggja samtals 75 milljónir króna til skrifstofunnar á næstu þremur árum. Þar af komi 27 milljónir frá Ferðamálaráði, 22,5 milljónir frá Flugleiðum og sama upphæð frá Reykjavíkurborg. Starfshópur þeirra aðila sem þátt eiga í stofnuninni kannaði samsetningu funda sem hafa verið haldnir hér síðustu árin og í ljós kom að tæplega 70% voru norræn- ir. Fram kom að strax næstu árin væri hætta á því að hefðbundið norrænt samstarf minnkaði og flyttist jafnvel að einhveiju leyti til Brussel. Því væri sérstaklega brýnt að hefja faglega markaðs- setningu á þessu sviði. í erindi Magnúsar Oddssonar, markaðsstjóra hjá Ferðamálaráði, á stofnfundi RSÍ kom fram að nauðsynlegt væri að lengja ferða- mannatímabilið. Engin atvinnu- grein þyldi að fjárfestingar skiluðu arði í 10-12 vikur, en væru svo vannýttar utan þess tíma auk þess sem sífellt væri ráðist í nýjar og dýrar fjárfestingar. Því væri nauð- synlegt að auka markaðsstarfíð meðal þeirra markhópa sem ferð- uðust án þess að vera sérstaklega bundnir við sumarið. Magnús sagði ennfremur í ræðu sinni að á árinu 1990 hefðu verið haldnar um 9.000 alþjóðlegar ráð- stefnur í heiminum auk gífurlegs fjölda funda og hvataferða, sem skipti tugum þúsunda á ári. Sam- keppnisaðilar í Evrópu teldu að hver ráðstefnugestur eyddi að með- altali mun meiru en aðrir ferða- menn og kannanir hér á landi gæfu hið sama til kynna. Að sögn Magnúsar voru 5.500 af þessum 9.000 alþjóðlegu ráðstefnum haldnar í Evrópu. Það væri e.t.v. enn athyglisverðara að aðeins 30% þeirra hefði verið haldnar í júní, júlí og ágúst, en 70% utan þess tíma. Einnig kom fram hjá Magnúsi að íslendingar eru síðastir Norður- landaþjóða til að stofna ráðstefnu- skrifstofu og alþjóðasamtök ráð- stefnuskrifstofa, sem stofnuð voru árið 1914 hafí um 700-800 með- limi. Til að geta tekið þátt í þess- ari samkeppni, sem fer stöðugt vaxandi og er mjög hörð fyrir, þurfí fýrirtæki sem eigi traust þeirra sem það vinnur fyrir og sé einnig nógu sterkt fjárhagslega og ekki síður faglega, að vinna traust markaðarins og skila ferðaþjón- ustunni árangri. Á stofnfundinum var ítrekað mikilvægi þess að helstu ferðaþjón- ustufyrirtæki, t.d. hótel, ferðaskrif- stofur og samgöngufyrirtæki gengju til liðs við Ráðstefnuskrif- stofu íslands og kom fram að skrif- stofan myndi aðeins beina viðskipt- um til meðlima sinna. Fólk Skrifstofu- stjóri MBJARKIM. Karlsson hefur verið ráðinn skrifstofustjóri ICEPRO- nefndarinnar, EDI-félagsins og EAN. ICEPRO er nefnd stofnana og samtaka um skjalalaus við- skipti, EDI er félag fyrirtækja og ein- staklinga um skjalalaus viðskipti og EAN eru alþjóð- leg strikamerkja- samtök. Þessi þtjú félög eru með sam- starfssamning um sameiginlegan rekstur skrifstofu sem hefur aðsetur í Verslunarráði íslands í Kringlunni. Bjarki sem er 27 ára lauk stúdentsprófí frá Hag- fræðideild Verslunarskóla íslands 1984 og útskrifaðist sem kerfísfræð- ingur frá EDB-skoIen í Kaup- mannahöfn árið 1987. Hann starf- aði sem verslunarstjóri hljómtækja- deildar Kaupfélags Hafnfirðinga í 2 ár, og nú síðustu 5 ár við kerfis- hönnun og forritun hjá Kerfisþróun hf. Þess má geta að Bjarki er 1. varamaður meirihlutans í bæjar- stjórn Garðabæjar. Markaðsfulltrúi hjá Glitni MHJALTI Þór Kristjánsson hefur hafíð störf hjá Glitni hf. Hann mun hafa umsjón með afgreiðslu á lá- naumsóknum hjá Glitni hf. Hjalti Þór útskrifaðist sem viðskiptafræðing- ur frá Háskóla ís- lands árið 1988. Harin starfaði sem framkvæmdastjóri hjá Eyfirsku kart- öflusölunni á ár- unum 1988-1989. Þór Undanfarin ár hefur Hjalti Þór verið rekstrarstjóri hjá Gamla kompaníi Kristjáns Siggeirssonar, GKS. hf. Hann er 29 ára og er í sambúð með Maríu Hannesdóttur. T o r g i ð Lífróður hjá Sambandinu Það mátti greina áhyggjusvip á fulltrúum á aðalfundi Sambandsins sl. föstudag þegar forráðamenn þess fluttu skýrslur sínar um rekst- ur og fjárhag Sambandsfyrirtækj- anna. Raunar varð það svo að þegar kom að þeim lið á dag- skránni þar sem gert var ráð fyrir umræðum reyndist enginn reiðu- búinn að taka til máls. Var það ekki fyrr en eftir langa mæðu að fáeinir aðalfundarfulltrúar lýstu viðhorfum sínum. Meirihluti dótturfélaga Sam- bandsins á sl. ári var rekinn með tapi og sérstaka athygli vekur að verslunarreksturinn er áfram þungur í skauti enda þótt rekstur- inn hafi færst nokkuð í átt til betri vegar. Aðeins tvö af nýju félögun- um skiluðu hagnaði, Samskip 21 milljón króna og íslenskar sjávaraf- urðir 52 milljónum. Þá skilaði Efna- verksmiðjan Sjöfn 28 milljóna hagnaði. Mikligarður var gerður upp með 396 milljóna tapi og Jöt- unn með 28 milljóna tapi. Þá var Goði með 47 milljóna tap og (s- lenskur skinnaiðnaður með 48 milljóna tap. Loks má nefna að tap Regins varð 242 milljónir vegna þess kostnaðar sem fyrirtækið bar af kaupum og breytingum á Holta- görðum. Samtals var hlutdeild Sambandsins í afkomu 11 dóttur- félaga og 6 samstarfsfélaga um 620 milljónir. Við þetta bætist afkoma Sam- bandsins sjálfs sem var tap að fjár- hæð um 700 milljónir að frátöldum söluhagnaði. Þetta endurspeglast í heildarafkomu Sambandsins þar sem tapið varð alls um 1.320 millj- ónir. Til frádráttar kemur hagnaður vegna sölu Holtagarða að fjárhæð 952 milljónir. Endanleg niðurstaða er því 368 milljóna tap. Fram kem- ur í sjóðsstreymisyfirliti að hand- bært fé til rekstrar nemur alls um 189 milljónum, m.ö.o. þurfti að greiða þessa fjárhæð með rekstr- inum. Þessi afkoma er þeim mun alvarlegri fyrir það að svipaðar töl- ur mátti sjá í reikningum Sam- bandsins fyrir árið 1990. Þá nam tapið rúmum 900 milljónum en vegna mikils söluhagnaðar var endanleg afkoma 330 milljóna hagnaður. Á meðan þessum taprekstri fer fram hvíla skuldir á Sambandinu og dótturfyrirtækjum af miklum þunga og má líklega grípa til þess að lýsa ástandinu sem „fortíðar- vanda“ eins og Guðjón B. Ólafsson forstjóri gerði raunar í ræðu sinni á aðalfundinum. Hann sagði m.a.: „Sambandið sótti í vaxandi mæli á erlenda lánamarkaði upp úr 1980 og hafði um miðjan áratuginn safn- að miklum skuldum hjá 10 bönkum í fjórum Evrópulöndum auk Banda- ríkjanna. Þessum lánum var að nokkru varið til fjárfestinga, m.a. í íslandslaxi og öðrum fyrirtækjum og framkvæmdum sem því miður reyndust ekki arðbærar en að verulegu leyti til að mæta vaxandi erfiðleikum í greiðslustöðu Sam- bandsins, bæði vegna ófullnægj- andi rekstrarafkomu og vegna ýmissa áfalla sem fyrirtækið varð fyrir og hafa að nokkru verið rakin á fyrri aðalfundum. Það er þvi víð- ar en hjá nýkjörinni ríkisstjórn ís- lands sem glímt er við svokallaðan „fortíðarvanda“.“ Guðjón vék einnig að erlendum bankaviðskiptum Sambandsins og sagði m.a.: „Margir bankar hafa sett útlánakvóta á ísland og auk þess hafa þeir í vaxandi mæli minnkað eða jafnvel hætt viðskipt- um við einstök erlend fyrirtæki, en einskorðað viðskipti við seðla- banka, viðskiptabanka eða ríkis- sjóði viðkomandi landa. Þegar við þetta bætist viðvar- andi hallarekstur, má Ijóst vera að það er ekki auðsótt mál að við- halda þeim erlendu bankaviðskipt- um sem þó eru Sambandinu og tengdum fyrirtækjum svo nauð- synleg. Á seinasta ári tókst að minnka erlendar skuldir Sambandsins verulega m.a. með því að nýju hlut- afélögin yfirtóku hluta skuldanna en líka með nokkurri niðurgreiðslu. Við þessa samningagerð nutum við mikilvægs stuðnings Lands- banka íslands. Síðar á þessu ári verður síðan nauðsynlegt að leita eftir endurnýj- un þessara samninga. Mun þá ráða úrslitum að hægt verði að sannfæra bankana um að hallá- rekstri sé lokið og að eignir beri arð í samræmi við kostnað, en verði annars seldar." Það er einmitt sala eigna sem gengið hefur hægt hjá Samband- inu en í því efni er sérstaklega horft til hlutabréfaeignarinnar í Olíufélaginu og Sambandshússins við Kirkjusand. Húsið við Kirkju- sand hefur verið til sölu í meira en hálft ár án þess að kaupendur hafi fundist á verði sem talið er viðunandi. Olíufélag Kúvæt hefur sýnt hlutabréfunum í Q8 áhuga en við lagalegar hindranir og mótbár- ur stjórnenda og annarra hluthafa er að etja. Hlutabréfamarkaðurinn hér innanlands hefur á hinn bóginn verið í mikilli lægð um langt skeið og sala á þeim vettvangi gæti orð- ið mjög erfið. Stjórnendur Sam- bandsins eiga því örðugt um vik að ráðast í nauðsynlegar aðgerðir til að lagfæra fjárhagsstöðuna. Á hinn bóginn virðist tími þeirra naumur, a.m.k. meðan eignirnar skila jafn litlum arði sem raun ber vitni. KB

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.