Morgunblaðið - 25.06.1992, Side 1

Morgunblaðið - 25.06.1992, Side 1
FLUTNINGAR: íslensk og dönsk skipafélög keppa um Grænlandssiglingar /4 SAMBANDID: Reksturinn skilar engu upp í afborganir og vexti/6-7 VIÐSKIPn AIVINNULlF 'MIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ1992 BLAÐ ]3 n PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1992 BLAÐ XJ Einkavæding Kaupþing mun annast sölu Lyfjaverslunar ríkisins Verðbréfamarkaður íslandsbanka mun líklega sjá um sölu á hlut ríkis- ins í Islenskri endurtryggingu EINKAVÆÐINGARNEFND ríkisstjórnarinnar hefur ákveðið hvaða verðbréfafyrirtæki munu taka að sér verðmat og undirbúning á sölu á eignarhlutum ríkisins í fjórum fyrirtækjum. Akveðið hefur verið að Kaupþing sjái um undirbúning og sölu á Lyfjaverslun ríkisins. Líklega mun salan á Lyfjaversluninni fara fram í almennu útboði sem stefnt er að því að hefjist á þessu ári. Auk þess mun fyrirkomulagið líklega verða þannig að Verðbréfamarkaður Islandsbanka sjái um íslenska endurtryggingu, Fjárfestingarfélagið um Steinullarverksmiðjuna og Landsbréf um Þróunarfélag íslands, samkvæmt áreiðanlegum heimild- um Morgunblaðsins. íjárfestingarfélagið mun líklega undirbúa og koma með tillögur um verðmat og hvemig framkvæma eigi sölu á hlut ríkisins í Steinullarverk- smiðjunni og Landsbréf mun líklega sjá um sölu á hlut ríkisins í Þróunar- félaginu. Verkefni Kaupþings mun verður nokkuð viðameira þar sem sala á Lyfjaverslun ríksins þarfnast frekari undirbúnings, t.d. þarf að breyta lög- um um fyrirtækið. Einnig mun undir- búningur Verðbréfamarkaðs íslands- banka á sölu á Islenskri endurtrygg- ingu vera nokkuð umfangsmikill þar sem ekki er um að ræða hlutafélag. Hugsanlega þarf einnig að breyta lögum um íslenska endurtryggingu. Að sögn Helga Sigurðssonar lög- fræðings Kaupþings mun salan á Lyfjaverslun ríkisins líklega verða í formi almenns útboðs þannig að síð- ur myndist fákeppni eða einokun á lyfjamarkaði. „Lyfjaverslun ríkisins er ennþá ríkisfyrirtæki, því er salan flókin og það þarf að undirbúa hana vel. Það þarf að byija á því að breyta fyrirtækinu í hlutafélag og svo verð- ur unnt að selja bréfin. Vegna þessa verður sala Lyfjaverslunarinnar ef til vill nokkuð seinna á ferðinni en hinna þriggja ríkisfyrirtækja. Hins vegar stefnum við að því að salan hefjist á þessu ári. Allt fer þetta þó eftir þróun markaðarins." Kaupþing hefur séð um sölu á hlut ríkisins í Jarðborunum og segir Helgi að fyrirtækið byggi þar á lær- dómsríkri reynslu í undirbúningi á sölu ríkisfyrirtækis. „Við hjá Kaup- þingi erum mjög ánægð með að hafa verið treyst fyrir þessu stóra verk- efni. Jafnframt er mjög spennandi að sjá um þetta verkefni þar sem það er dálítið sérstakt á markaðnum og ekki í hópi hinna hefðbundu at- vinnugreina.“ Fyrirtæki Fyrsta áfanga ísölu Samskipabréfa lokið FYRSTA áfanga í sölu á hluta- bréfum Sambandsins í Samskipum lauk nýlega og hafa þá verið seld- ar 100 milljónir af 400 milljónum sem áformað er að selja. Bréfin voru seld á genginu 1,12 þannig að heildarsöluverð þeirra nam 112 milljónum. Að sögn Sigurbjörns Gunnarsson- ar, deildarstjóra hjá Landsbréfum sem annast söluna ríkir ánægja með viðbrögð markaðarins við bréfunum, sérstaklega í Ijósi þess að mjög lítil viðskipti hafa verið á hlutabréfa- markaði að undanförnu. Helstu kaupendur voru lífeyris- sjóðir, fjárfestingarsjóðir, fyrirtæki og einstaklingar. Sigurbjörn sagði að ákveðið hefði verið að bíða með annan áfanga fram í ágústmánuð vegna óvissu í efnahagsmálum og lítilla viðskipta með hlutabréf í sum- ar. Áfram yrði þó unnið að sölu bréfa til stærri aðila innanlands og erlend- is. Avöxtun sex verðbréfasjóða undanfarna 25 mánuði EININGABREF 1 1.923 millj.kr. 12. mán,- 2%- J’90 0 J’91 A J 0 J'92 A 1(1 MARKBREF 567 millj.kr. 3 mán. |fa=^8.1% 6 \\ /Í ^—•3,3% 2% -11.2/-10.2/-10.0 12. mán. J’90 0 J’91 A J 0 J’92 A ÁKVEÐIN þáttaskil virðast hafa orðið hjá verðbréfasjóðum í maímánuði þegar sjóðirnir tóku að vaxa eftir samfellt samdráttarskeið frá miðju ári 1990. Námu heildareignir þeirra um 10.840 milljónum í byrjun maí saman- borið við 10.110 milljónir í aprilmánuði. Þessi aukning kemur í kjölfar batn- andi ávöxtunar hjá sjóðnum að undanfömu sem á sér rætur í vaxtalækk- unum á verðbréfamarkaði. Aimenn vaxtalækkun hefur í för með sér að gengi á verðbréfaeign sjóðanna hækkar og þar með eykst markaðsverð- mæti hennar. Á meðfylgjandi línuritum sem byggð er á upplýsingum frá Veröbrýfamarkaði íslandsbanka sést hvernig ávöxtun sex stasrstu sjóðanna hefur verið frá miðju ári 1990. Af einstökum verðbréfasjóðum hafa sjóðir Landsbréfa verið með bestu ávöxtunina sl. 12 mánuði en t.d. gáfu íslands- bréf 8,2% raunávöxtun á þvi tímabili. Raunar hafa aðrir sjóðir Landsbréfa gefið um eða yfir 8% raunávöxtun ef undan er skilinn skammtímasjóður í vörslu fyrirtækisins. Þegar litið er til þriggja siðustu mánuða eru dæmi um ágæta ávöxtun annarra sjóða og t.d. var ávöxtun Einingabréfa 2 hjá Kaupþingi 10,1 % sl. 3 mánuði. Nánari upplýsingar um ávöxtun einstakra verðbréfasjóða er jafnan að finna í Peningamarkaði Morgunblaðsins. Heimsbréf, 26,3% raunávöxtun á ársgrundvelli síðustu 3 mánuði Þar sem lítið samband er á milli hagsveiflna hér innanlands og erlendis og íslenska hagkerfið er einhæft eru fjárfestingar í erlendum verðbréfum skynsamleg leið til að dreifa áhættu. Heimsbréf eru ávöxtuð með kaupum í hlutabréfum erlendra fyrirtækja og traustum skuldabréfum og henta því vel fyrir þá sem vilja dreifa áhættu og njóta góðrar ávöxtunar til lengri tíma. Víðast í heiminum er spáð góðri ávöxtun hlutabréfa næsta árið og því eru horfur góðar fyrir þá sem fjárfesta í Heimsbréfum. Allar nánari upplýsingar veita ráðgjafar Landsbréfa hf. og umboðsmenn í Landsbanka ísiands um allt land. s LANDSBREF H.F. Landsbankinn stendur með okkur Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavlk, sími 91-679200, fax 91-678598 Löggilt verdbréfafyrirtæki. AÖUi að Verdbréfoþingi íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.