Morgunblaðið - 25.06.1992, Síða 2

Morgunblaðið - 25.06.1992, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/flTVINNULÍF FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1992 Þróun hlutabréfaverðs nokkurra félaga 28 ág.’91 t{l 18. júní ’92 6 5 4- 3 2 1 0 Útgerðarfélag Akureyringa hf. Aða 10‘ fun< b/10 ur % < ■ £ Ka jptii )Oð- / Á’91 S O N D J'92 F ' M A M J 6 5- 4 3 2- 1 o- Olíufélagið hf. Aðalfundur ** 15%/10% 4 > L Á’91 S 0 N D J’92 F M A M J ' 6“ Grandi hf. 0 Aða 8% func /108 ur í> l O "4 - • T I 0 Ka jptil >0 5- < Á'91 S 0 N D J’92 F M A M j VERÐ á hlutabréfum hefur sem kunnugt er farið lækkandi frá því í haust sl. Nokkrum erfiðleikum er þó bundið að fá heildaryfir- sýn yfir þróunina þar sem skráning við- skipta og tilboða hefur tekið nokkrum breytingum. Eftir að Opni tilboðsmarkað- urinn (OTM) tók til starfa í maí komst loks festa á skráninguna en þar áður var helst horft til tilboðsmarkaðar Kaupþings sem tók til starfa í nóvember. Á meðfylgjandi yfirlitum sést þróun verðsins á hlutabréf- um í fimm stórum fyrirtækjum miðað við viðskipti á OTM og tilboðsmarkaði Kaup- þings en til hliðsjónar er sýnt skráð kaup- gengi hjá Hlutabréfamarkaðnum HÁMARK í lok ágúst í fyrra áður en hlutabréf tóku að lækka í verði. Loks eru til samanburðar sýnd hagstæðustu kauptilboð í bréf þess- ara fyrirtækja að undanförnu. Á línuritun- um má glöggt sjá þær lækkanir sem orðið um má glöggt sjá þær lækkanir sem orðið hafa markaðnum að undanförnu en taka ber þó skýrt fram að viðskiptin hafa verið mjög lítil og tiltölulega lágar fjárhæðir skipt um hendur. Þá vekur athygli að hag- stæðustu kauptilboð hafa í sumum tilvik- um verið mjög lág að undanförnu. Ekki er tekið tillit til áhrífa af lækkun gengis vegna útgáfu jöfnunarhlutabréfa og arðgreiðslna. Iðnaður Málmur - nýstofnuð samtök fyrir- tækja í málm- og skipaiðnaði 120 fyrirtæki um allt land í samtökunum FÉLAG dráttarbrauta og skipasmiðja og Félag málmiðnaðarfyrirtækja sameinast 1. júlí nk. í eitt félag sem nefnt verður Málmur - samtök fyrirtækja í málm- og skipaiðnaði. Með sameiningunni verða í samtökun- um 120 fyrirtæki sem staðsett eru um allt landið. Þessi ákvörðun var tekin á aðalfundum félaganna nú í vor og er markmiðið að auka hag- ræðingu í samtökum þessarar atvinnugreinar, samhliða því að gera samtökin virkari og öflugri í hagsmunabaráttu. Hið sameinaða félag verður áfram aðili að heildarsamtökum málmiðn- aðarfyrirtækja, Sambandi málm- og skipasmiðja - SMS, en í því eru einn- ig Félag blikksmiðjueigenda og Bíl- greinasambandið. Formaður Málms verður Óskar Einarsson framkvæmdastjóri Lands- smiðjunnar hf. og aðrir í stjórn verða Haraldur L. Haraldsson, Þorgeiri og Ellert hf., Ólafur Friðriksson, Skipa- lyftunni hf., Sigurður Ringsted, Slippstöðinni hf., Skúli Jónsson, Stál- smiðjunni hf., Torfi Guðmundsson, Vélsm. Odda hf. og Þorvaldur Hall- grímsson, Málmsteypunni Hellu hf. Framkvæmdastjóri Málms verður Ingólfur Sverrisson. Disklingar allar geröir Nú 11 fyrir sama verð og 10 ARVÍK ÁRMÚL11, REYKJAVÍK, SÍMI687222, TELEFAX 687295 Forystumenn Málms segja að með þessari sameiningu sé verið að fara sömu leið og samtök málm- og skipa- iðnaðar í nágrannalöndunum hafa farið og miðar að því að búa þessa atvinnugrein betur undir harðnandi samkeppni á öllum sviðum. Að mati talsmanna Málms verður að efla baráttu- og sóknarhug þeirra fyrir- tækja sem vilja nýta þau tækifæri sem fyrir hendi eru, bæði hér innan- lands og erlendis, en slíkt verði ekki gert nema greinin hafi öflug samtök serri geta beitt sér annars vegar fyr- ir framförum í greininni og hins veg- ar að því að auka arðvænleg verk- efni. Starfsemi nýju samtakanna beinist fyrst og fremst að þessum tveimur þáttum auk þess að gæta hagsmuna aðildarfyrirtækjanna gagnvart þeim sem greinin skiptir við. Verdbréf Ríkisbréf boðin út í annað sinn ANNAÐ útboð ríkisbréfa fer fram á mánudag og verða þá gefin út sex mánaða bréf með gjalddaga 30. desember nk. Skuldabréfin úr fyrra útboðinu hafa nú verið skráð á Verðbréfaþingi Islands og hafa þegar átt sér stað viðskipti gegnum þingið fyrir 20 milljónir króna. í kjölfarið hefur kaupkrafan lækkað á þinginu úr 11,8% í 11,3%. I fyrsta útboðinu á ríkisbréfum bárust alls 67 tilboð að fjárhæð 982 milljónir króna. Heildarfjárhæð tek- inna tilboða nam 506 miHjónum og var meðalávöxtun samþykktra til- boða 11,49%. Hins vegar var lægsta ávöxtun 10,86% og hæsta 12%. Pétur Kristinsson, framkvæmda- stjóri Þjónustumiðstöðvar ríkisverð- bréfa, sagði að búast mætti við að þessi lækkun ávöxtunarkröfunnar á Verðbréfaþingi kæmi hugsanlega til með að endurspeglast í væntanlegum tilboðum í annan flokk ríkisbréfa næstkomandi mánudag. EININGABREF2 Raunávöxtun sL 3 mánuði KAUPPING HF Löggi/t verðbréfafyrirtœki Kringlunni 5, sími 689080 í eigu Búnaðarbanka íslands ogsparisjóðanna Sjávarútvegur Landsbankinn áformar sér- staka út- tektásjávar- útvegsfyrir- tækjum LANDSBANKI íslands er með 60-70% af heildarútlánum til rekstrar sjávarútvegsfyrir- tækja. Brynjólfur Helgason, aðstoðarbankasljóri Lands- bankans, sagði í samtali við Morgunblaðið að vegna fyrir- sjáanlegrar skerðingar á þor- skafla á næstunni yrði farið nákvæmlega ofan í kjölinn á stöðu þessara fyrirtækja og þá sérstaklega þeirra sem þegar stæðu höllum fæti. Hins Vegar lægju að svo stöddu engar ákvarðanir fyrir um það hvort gripið yrði til sér- stakra aðgerða né hverjar þær yrðu ef til kæmi. „Um 20% af heildarútlánum Landsbankans eru hjá sjávarút- vegsfyrirtækjum. Staða þessara fyrirtækja er mjög misjöfn og það er ekki nema hluti þeirra sem á í virkilegum erfiðleikum. Málið snýst af okkar hálfu fyrst og fremst um að kanna stöðu þessara fyrirtækja eins og kostur er með upplýsingaöflun og byggja síðan viðbrögðin á raunsæu mati á að- stæðum," sagði Brynjólfur. Brynjólfur sagði ennfrcmur að sjávarútvegsfyrirtæki sem stæðu höllum fæti bættu ekki stöðuna á einfaldan hátt með viðbótarlánum ef rekstrargrundvellinum væri kippt undan þeim. Þarna þyrfti að athuga viðhorf allra aðila sem hlut ættu að máli, t.d. Byggðastofnunar og Fiskveiðasjóðs sem lánuðu til fjárfestinga í sjávarútvegi. „Við gerum okkur grein fyrir því að sjávarútvegur er undirstöðuatvinn- ugrein þjóðarinnar og verður svo í nánustu framtíð. Það þarf því samstöðu um að leita allra leiða til þess að hagræðing og hag- kvæmni verði sem mest,“ sagði Brynjólfur. Stefán Pálsson, bankastjóri Búnaðarbankann, sagði fyrirsjáan- lega skerðingu á þorskafla áhyggjuefni fyrir bankann. „Það er þó fleira sem kemur til umhugs- unar t.d. hvort hægt sé að gera meiri verðmæti úr aflanum sem 'berst á land og hvaða verðþróun verður á erlendum mörkuðum. Einnig er það spurning hvað hægt er að veiða úr stofnum sem eru utan kvóta. En auðvitað er þetta óskaplegt áhyggjuefni fyrir alla þá sem eiga lán hjá útgerðinni." Stefán sagði að ekki hefði verið rætt um að grípa til sérstakra ráð- stafana innan bankans til að bregðast við kvótaskerðingunni. Bankinn væri með um 10-12% af heildarútlánum sínum hjá sjávarút- vegsfyrirtækjum. Dictaphone A Pitney Bowes Company Gæðatæki til hljóðupptöku, afspilunar og afritunar. Falleg hönnun. Vandaðar upptökur. & Umboð á islandi: OTTO B. ARNAR HF. Skipholti 33 • 105 Reykjavík Simar 624631 / 624699

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.