Morgunblaðið - 25.06.1992, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1992
B 5
Bílar
VÆS um-
boðsaðili
DAFá
Islandi
HOLLENSKA verksmiðjan DAF
og VÆS hf. í Reykjavík undirrit-
uðu um síðustu helgi samninga
um að VÆS taki formlega við
einkaumboði fyrir DAF vörubif-
reiðar hér á landi. Undanfarna
14 mánuði hefur VÆS flutt inn
DAF vörubíla og haft umboðið
til bráðabirgða. Við þetta tæki-
færi voru afhentir tveir bílar af
gerðinni DAF 45 en þeir verða
notaðir til að flytja póst á milli
Reykjavíkur og Akureyrar en
þessir póstflutningar voru ný-
lega boðnir út.
I tilefni undirritunar þessara
samninga eru staddir hér á landi
þrír fulltrúar DAF verksmiðjanna,
þeir G. van Gestel framkvæmda-
stjóri umboðsskrifstofanna í Evr-
ópu, W.P.J.A. Hoefman sölustjóri í
Evrópu og J.P. Vieira framkvæmd-
astjóri sölumála í Evrópu. Á síðasta
ári seldi VÆS 23 vörubíla af ýms-
um stærðum frá því það tók við
söluumboði í apríl og til áramóta.
Það sem af er þessu ári hafa um
10 bílar selst.
Á vörubílasýningu í húsnæði
VÆS voru sýndar nokkrar helstu
gerðir DAF vörubíla sem boðið er
upp á hér á landi en jafnframt voru
tvær nýjar gerðir kynntar sem
reyndar koma ekki á markað í Evr-
ópu fyrr en í janúar næstkomandi.
Hér er um að ræða miðlungsstóra
vörubíla af gerðunum 75 og 85 og
eru þessir bílar ný hönnun DAF.
Gert er ráð fyrir að fyrstu bílarnir
af þessum nýju gerðum verði flutt-
ir inn snemma á næsta ári. Auk
þess sem VÆS er með einkaumboð
fyrir DAF flutningabíla er fyrirtæk-
ið þjónustuaðili fyrir DAF hér á
landi og rekur verkstæði að Foss-
hálsi 1. Þar má fá aukahluti fyrir
vörubíla svo sem vörulyftur af Chi-
ef gerð, flutningakassa frá Reynoc-
ar ásamt krönum og lyftum fyrir
ýmis konar sérhæfða flutningaþjón-
ustu.
H0V1K*
SKÚFFUSKÁPAR
2JA, 3JA OG 4RA SKÚFFU
TEIKNINGASKÁPAR
SKÁPAR MEÐ RENNIHURÐUM,
VÆNGJAHURÐUM, TVÖFALDIR
SKÚFFUSKÁPAR O.FL.
IF.QFNASMIflJAN
HÁTEIGSVEGI 7, S: 21220
SLOPPAR — Sævar Kristinsson frá MAX (t.h.) og Axel Eiríks-
son formaður Úrsmiðafélags íslands. Á milli þeirra stendur Sigurður
Gilbertsson úrsmiðanemi.
Iðnaður
*
Ursmiðir í slopp-
umfráMAX
ÚRSMIÐAFÉLAG íslands og
MAX gengu nýlega frá samningi
um kaup á sérstökum hlífðar-
sloppum fyrir alla félagsmenn
úrsmiðafélagsins. Úrsmiðir
verða því klæddir sloppum frá
MAX með ísaumuðu merki úr-
smiðafélagsins.
í fréttatilkynningu segir að
ástæður þess að fatnaður frá MAX
varð fyrir valinu sé meðal annars
að úrsmiðafélagið vill stuðla að
aukinni atvinnu hérlendis með því
að velja íslenska vöru og einnig að
verð og gæði hjá MAX hafi verið
mjög samkeppnisfært. Fatnaðurinn
var sérhannaður fyrir úrsmiðafé-
lagið.
Við fognum 10 ára afmæli Isuzu á íslandi
og bjóðiun Isuzu Trooper jeppa
í sérstökum afmælisbúningi. i
Farsími á 25 þúsund krónur
Allan júnímánuð fylgir bílnum Dancall
farsími að andvirði 120 þúsund krónur
sem kaupendum Trooper býðst á
25 þúsund krónur.
Verðmætir fylgihlutir með hverjum bíl
Sparibúnum Trooper fylgir ýmis annar verðmætur
aukabúnaður, svo sem grind fyrir spil, þoku-
ljós og álfelgur, auk þess sem hann er á
B.F. Goodrich dekkjum. 1 hverjum
bíl er að auki „Bjargvættur", hjálpar-
búnaður sem sjálfsagður er í alla jeppa. \B
Og auðvitað fylgir afmælisveisla með í
kaupunum, gjafakarfa í farangursrýminu!
Árleg ókeypis skoðun
Þjónusta við Isuzu eigendur er einstök, því ár hvert
koma sérfræðingar frá Japan og yfirfara alla
Isuzubíla, eigendum að kostnaðarlausu.
ilfmælisverð Trooper '92
er kr. 2.681.000 stgr*.
Má ekki bjóða þér
reynsluakstur ? J
*Auk ofangreindra
fylgihluta eru ryðvöm
og skráning innifalin í verði.
HÖFÐABAKKA 9, 112 REYKJAVÍK, SÍMI 674300
lsliintli
Isuzu-10
A