Morgunblaðið - 25.06.1992, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.06.1992, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ YIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1992 Fyrirtæki Fortíðarvandinn leggst þungt á Sambandið Meðan fjármagnskostnaður af um 4,8 milljarða skuld hleðst upp skila eignir Sambandsins sáralitlum sem engum arði KIRKJUSANDUR —— Sambandið hefur um skeið leitað að kaupendum á stórhýsi sínu við Kirkjusand sem bókfært var á 503 milljónir um sl. áramót. Í náninni framtíð þarf Sambandið mjög á því að halda að selja þessa eign ásamt hlutabréfum í dótturfélögum til að létta á gríðarlegum skuldabagga fyrirtækisins. eftir Kristin Briem EKKERT lát hefur orðið á rekstrarerfiðleikum Sambands- ins og á aðalfundi þess nýverið • komu fram þungar áhyggjur for- ráðamanna samvinnuhreyfingar- innar vegna fjárhagsstöðunnar. Stórfelldur taprekstur og mjög erfið greiðslustaða kemur fram í ársreikningi Sambandsins fyrir sl. ár eins og verið hefur undan- farin ár. Við lestur reikningsins blasir við að grípa þarf til mjög róttækra aðgerða í náinni fram- tíð ef takast á að snúa þróuninni við. Vandi Sambandsins hefur í hnotskurn verið sá að arðsemi eigna hefur verið lítil sem engin en miklar skuldir á bak við þær bera hins vegar fjármagnskostn- að af fullum þunga. Við þessu hefur verið reynt að bregðast með sölu eigna en þar hefur Sambandinu verið þröngar skorður settar vegna markaðsað- stæðna. Þá hefur verið gripið til ýmissa aðgerða til að reyna að rétta af tapið. Hjá einstökum Sambandsfyrirtækjum eins og Jötni, Miklagarði og Goða er þannig nú unnið að endurskipu- lagningu á rekstri og fjárhag með það fyrir augum að bæta arðsemina. Árið 1991 er fyrsta árið sem Sambandið starfar sem eignar- haldsfyrirtæki en allur rekstur sem áður var í sex aðaldeildum Sam- bandsins var yfirtekinn af jafn mörgum nýjum hlutafélögum í byij- un árs 1991. Mjög slæm afkoma varð hjá eignarhaldsfélaginu þ.e. Sambandinu sjálfu á árinu og víðs- fjarri að tekist hafí að lækka rekstr- argjöld til samræmis við tekjur. Þannig námu rekstrartekjur tæp- lega 221 milljón en rekstrargjöld 418 milljónum og er því beint tap af rekstrinum 197 milljónir. Við bætast síðan fjármagnsgjöld sem eru nettó 281 milljón þannig að tap af reglulegri starfsemi er alls um 478 milljónir. Hlutdeild Sambands- ins í neikvæðri afkomu dótturfélaga er alls tæplega 641 milljón en jafn- framt námu aukaafskriftir, niður- færslur o.fl. 222 milljónum þannig að tapið er nálægt 1,3 milljarði. Það bætir hins vegar stöðuna verulega að Sambandið seldi dótturfélagi sínu Regin hf. Holtagarðahúsið við Sund fyrir 1.500 milljónir og þann- ig myndaðist 952 milljóna sölu- hagnaður. Auk þess var hagnaður frá samstarfsfélögum um 21 milljón þannig að endanleg niðurstaða rekstrarreiknings er alls 367 millj- óna tap. Ástæða er til að staldra við sölu- hagnaðinn sem myndast við sölu fasteignar í eigu móðurfélags til dótturfélags en Reginn er að fullu í eigu Sambandsins. Með þessari tilfærslu er verið að innleysa dulda eign að fjárhæð um 950 milljónir en tilgangurinn var ekki síður sá að breyta óhagstæðum skamm- tímalánum í langtímalán með betri kjörum en áður. Var húsið selt á sama verði og fasteignasalar töldu vera markaðsverð eða 1.500 millj- ónir en brunabótamat er aftur á móti yfír 3 milljarðar. Meðfylgjandi í ársskýrslu Sam- bandsins er samstæðureikningur fyrir Sambandið og 11 dótturfélög. Þar kemur fram að rekstrartekjur námu alls tæplega 28,5 milljörðum en rekstrarhagnaður er einungis um 55 milljónir. Að teknu tilliti til nettóíjármagnsgjalda að fjárhæð rúmlega 1 milljarður nemur tap af reglulegri starfsemi um 964 milljón- um. Vegna söluhagnaðar og ann- arra óreglulegra gjalda nemur tap að frátalinni hlutdeild minnihluta í dótturfélögum um 358 milljónum en endanlegt tap eins og í reikningi Sambandins sjálfs er 368 milljónir. Sáralítill arður af eignum í ávarpi Guðjóns B. Ólafssonar, forstjóra Sambandsins er ástæðum þessarar slöku afkomu lýst á eftir- farandi hátt: „Afkoma Sambands- ins á árinu endurspeglar þá stað- reynd að skuldirnar báru fjár- magnskostnað af fullum þunga, en arður af eignum varð sáralítill. Flest nýju fyrirtækin voru þess ekki umkomin að greiða arð á sínu fyrsta starfsári.... Þá varð verulegur kostnaður umfram tekjur af rekstri fasteigna og ekki reyndist unnt að selja fasteignir á árinu vegna lélegs markaðsástands. Ef grannt er skoð- uð rekstrarafkoma Sambandsins og dótturfélaga, kemur í ljós að lítil breyting hefur orðið á sl. 3 árum. Reksturinn hefur ekki getað staðið undir þunga fjármagnskostnaðar af skuldum sem myndast höfðu á löngu árabili af ýmsum orsökum s.s. offjárfestingum, skulda- og ábyrgðatöpum, gengistöpum vegna erlendrar skuldasöfnunar o.s.frv. Þá hefur viðvarandi rekstrarvanda- mál í verslun reynst erfitt viður- eignar og er enn. Því miður tók alltof langan tíma að mynda núver- andi Miklagarð hf. úr Verslunar- deild Sambandsins, KRON, Kf. Hafnfirðinga og Miklagarði sf. Fyr- irtækið var myndað úr ósamstæðum einingum og dýrmætur tími og kraftar starfsfólks fóru í að sam- ræma kerfí og útfæra heildar- stefnu. Þótt umtalsverður árangur hafi náðst er ljóst að fjárhagsstaða Miklagarðs er erfíð og krefst skjótra úrbóta." Enn á ný þarf að auka hlutafé . Miklagarðs Um næstu mánaðamót verður haldinn aðalfundur Miklagarðs þar sem gera má ráð fyrir að lagðar verði fram tillögur um endurskipu- lagningu á fjárhag fyrirtækisins. Eiginfjárstaðan var um sl. áramót neikvæð um 125 milljónir og því ljóst að veruleg hlutafjáraukning þarf að koma til svo reksturinn geti gengið. Þetta yrði í annað sinn á skömmum tíma sem hlutafé er aukið en fyrir rúmu ári samþykkti stjórn Sambandsins að auka hluta- féð um 400 milljónir. Var leitað til Landsbankans um að fjármagna þessa hlutafjáraukningu með 320 milljóna láni. í ljósi erfíðrar fjár- hagsstöðu Sambandsins má ætla að frekari aukning hlutafjár muni reynast þung í skauti. í þessu sambandi má nefna að áætlanir um bættan rekstur Mikla- garðs brugðust gjörsamlega á sl. ári þegar tapið varð tæpar 400 milljónir. Skv. áætlunum sem kynntar voru á aðalfundinum fyrir rúmu ári var gert ráð fyrir 39 millj- óna tapi. Á þessu ári er ekki enn séð fyrir endann á taprekstrinum því áætlanir gera ráð fyrir 160 milljóna tapi. Raunar varð 95 millj- óna tap á fyrsta ársþriðjungi þann- ig að ljóst er að forráðamenn Mikla- garðs hyggjast reyna að reka fyrir- tækið með hagnaði síðari hluta árs- ins. Hefur því raunar verið lýst yfir að þær breytingar sem gerðar hafa verið á stórversluninni við Sund hafi þegar skilað góðum árangri. Skera á kostnað Jötuns niður um 40 m.kr. Afkoma Jötuns hf. á sl. ári varð nokkuð lakari en gert hafði verið ráð fyrir. Tap ársins nam alls um 28 milljónum. Á sama hátt og hjá Miklagarði er nú unnið að því að draga úr kostnaði og endurskipu- leggja reksturinn. Um 14% sam- dráttur hefur verið í sölu hjá fyrir- tækinu fyrstu fimm mánuði ársins að sögn Sigurðar Á. Sigurðssonar, framkvæmdastjóra. Hann sagði samdrátt í landbúnaði koma niður á viðskiptum fyrirtækisins en hins vegar hefði Jötunn haldið sínum hlut á markaðnum og jafnvel aukið hann. Einnig hefði orðið almennur samdráttur í vélakaupum verktaka í kjölfar þess að tilkynnt var um frestun álversframkvæmda sl. haust. Loks hefði nú verið tilkynnt um samdrátt í þorskveiðum sem hefði bein áhrif á fiskvinnslufyrir- tæki í viðskiptum við fyrirtækið. „Til þess að mæta þessum fyrirsjá- anlega og yfírstandandi samdrætti höfum við gripið til sparnaðarað- gerða og ætlum okkur að draga saman kostnað í ár sem nemur um 40 milljónum króna. Áætlun fyrir- tækisins gerir ráð fyrir að rekstur- inn verði í nokkru jafnvægi þegar upp er staðið. Við gerum ekki ráð fyrir neinum almennum uppsögnum Aðalfundur íslenska hlutabréfasjóðsins hf. Aðalfundur íslenska hlutabréfasjóðsins hf. verður haldinn þriðjudaginn 14. júlí 1992 kl. 16.00 að Suðurlandsbraut 24, 5. hæð, Reykjavík. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. gr. samþykkta félagsins. 2. Önnur mál löglega upp borin. Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á aðalfundi skulu vera komnar í hendur stjómar sjóðsins eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund. Dagskrá, endanlegar tillögur svo og reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofu Landsbréfa hf., hluthöfum til sýnis, 7 dögum fyrir aðalfund. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Reykjavík, 25. júní 1992. Stjórn íslenska hlutabréfasjóðsins hf. & LANDSBRÉF H.F. Landsbankinn stendur með okkur Suðurlandsbraut 24, 10b Reykjovík, sími 91-679200, fax 91-678596. Löggilt verdbréfafyrirtæki. AðHi að Verðbréfaþingi íslands. starfsfólks en munum fækka starfs- fólki eftir því sem kostur gefst.“ Samskip var með um 23 milljón- ir í hagnað á si. ári og er það all- fjarri þeim áætlunum sem lagðar voru fyrir aðalfund Sambandsins árið 1991. Þar var gert ráð fyrir 107 milljóna króna hagnaði. Hins vegar hyggjast þeir Samskipsmenn bæta um betur á þessu ári og var á aðalfundi Sambandsins kynnt áætlun um rúmlega 120 milljóna hagnað á árinu. Tap varð þó á fyrsta ársþriðjungi að því er fram kom á aðalfundi Sambandsins en þeir mánuðir eru sagðir vera að jafnaði lakastir. Skv. sölulýsingu fyrir hlutabréf fyrirtækisins er gert ráð fyri fyrir óbreyttu innflutnings- magni á þessu ári, 10% aukningu á útflutningsmagni og að umsvif í strandflutningum tvöfaldist. í flutn- ingum milli erlendra hafna er áætl- aður helmings samdráttur og 4% aukning í olíudreifíngu innanlands. Gert ráð fyrir hagnaði hjá Islenskum skinnaiðnaði Hjá Islenskum skinnaiðnaði voru áætlanir um 11 milljóna króna hagnað talsvert langt frá því að standast því um 48 milljóna króna tap varð hjá fyrirtækinu. Á þessu ári er gert ráð fyrir um 32 milljóna króna hagnaði og gefur milliupp- gjör fyrsta ársíjórðungs vonir til þess að áætlunin standist. Hjá íslenskum sjávarafurðum varð um 80 milljóna króna hagnað- ur af reglulegri starfsemi en frá því dregst tap af dótturfyrirtækinu í Bandaríkjunum, tæpar 29 milljón- ir þannig að endanleg niðurstaða varð um 52 milljóna hagnaður. Gert er ráð fyrir 56 milljóna hagn- aði á þessu ári en að áframhald- andi ,tap verði á dótturfyrirtækinu í Bandaríkjunum. Goði var með um 47 milljóna tap á sl. ári en ráðgert er að hagnaður þessa árs verði um 28 milljónir. Fyrsta ársþriðjunginn varð 27 millj- óna hagnaður en áætlanir gerðu ráð fyrir að hagnaðurinn yrði um 36 milljónir. Vegna breyttra aðstæðna í landbúnaði hefur verið gripið til endurskipulagningar á rekstri og uppsagna starfsmanna. Á heildina litið varð um 445 millj- óna tap af nýju hlutafélögum Sam- bandsins á sl. ári en áætlanir gerðu ráð fyrir 188 milljóna hagnaði. Þessi munur skýrist að verulegu leyti af tapi Miklagarðs. Á þessu ári er gert ráð fyrir um 66 milljón hagnaði. Mjög veik greiðslustaða Sambandsins Heildareignir Sambandsins sjálfs voru um sl. áramót bókfærðár á 6.380 milljónir. Helstu eignir eru eignarhlutar I dótturfélögum og öðrum samstarfsfyrirtækjum að fjárhæð tæplega 4,3 milljarðar. Þá námu veltufjármunir 1.353 milljón- um en þar er fyrst og fremst um að ræða útlán skrifstofu Sambands- ins til dótturfyrirtækjanna. Aðrar eignir eru fasteignir sem námu um 700 milljónum og lækkuðu þær úr 1.438 milljónum frá árinu áður. Skuldamegin í efnahagsreikningi Sambandsins vekur sérstaka at- hygli að skammtímaskuldir námu alls tæplega 3,4 milljörðum en þar undir flokkast skuldir sem greiða þarf innan árs. Greiðslustaðan er því augljóslega mjög veik þar sem svokallað veltufjárhlutfall, þ.e. hlut- fall skammtímaskulda og veltufjár- muna, er einungis 0,4. Hefur það lækkað úr 0,47 frá árinu áður. Að öllu jöfnu er greiðslustaða fyrir- tækja talin í jafnvægi þegar veltu- fjárhlutfallið er 1,0 eða hærra. Á það ber einnig að líta að veltufjár- munir Sambandsins eru að mestu útistandandi skuldir hjá dótturfé- lögum og þvf vaknar sú spurning hveru vel muni ganga að innheimta þessa fjármuni. Á hinn bóginn eru um 500 milljónir af skammtíma- skuldum hjá dótturfélagi sem raun- verulega má líta á sem langtímalán. Langtímskuldir námu tæpum 1,3 milljarði og skuldbinding vegna neikvæðs höfuðstóls Miklagarðs r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.