Morgunblaðið - 25.06.1992, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 25.06.1992, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNCLÍF FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1992 B 7 125 milljónum. Eigið fé og sjóðir er um 1,6 milljarðar þannig að eig- infjárhlutfall er um 25% sem getur talist eðlileg eiginfjárstaða í ís- lensku fyrirtæki. Á bak við þetta eigið fé eru hins vegar að verulegu leyti hlutabréf í dóttur- og sam- starfsfyrirtækjum og fasteignir sem óvissa ríkir um hvernig tekst að koma í verð á markaði. Ein verðmætasta eign Sam- bandsins eru hlutabréfin í Olíufé- laginu sem eru að nafnverði 189 milljónir eða um þriðjungur hluta- fjárins. Bókfært verð þeirra er alls 1.169 milljónir og er þar miðað við innra virði. Hins vegar virðist mark- aðsverðið mun lægra ef marka má nýleg viðskipti á Opna tilboðsmark- aðnum þar sem seld voru bréf fyrir um 9,8 milljónir í Olíufélaginu á genginu 4,0. Þessi bréf virðast því talsvert ofmetin í reikningunum en á hinn bóginn hljóta að felast meiri verðmæti í þeim ef þau yrðu seld einum aðila fremur en dreift á marga kaupendur. Eignahluti af þessari stærðargráðu þýddi vænt- anlega mikil völd í fyrirtækinu eins og dæmin sanna. Um aðra hluta- bréfaeign er erfiðara að dæma en að frátöldum Olíufélagsbréfunum má helst nefna hlutabréfin í Sam- skipum sem bókfærð eru 956 millj- ónir eða nálægt söluverði þeirra á markaðnum. Þá er hlutabréfin í Regin bókfærð á 716 milljónir en erfitt er að meta raunverulegt verð- mæti fyrirtækisins. Heildareignir Sambandsins og dótturfélaga námu alls rúmum 17,7 milljörðum í árslok og eigið fé tæp- um 2,5 milljörðum þannig að eig- infjárhlutfall er alls um 13,9%. Hættumerki í sj óðsstrey misyfirliti! í sjóðsstreymisyfirliti er að finna mjög mikilsverðar vísbendingar um fjárhagslega stöðu og greiðsluhæfi fyrirtækja. T.d. horfa lánastofnanir mjög á stærðina handbært fé frá rekstri sem gefur til kynna hversu miklu reksturinn skilar upp í af- borganir og vexti af langtímalán- um. í sjóðsstreymisyfirliti í sam- stæðureikningi Sambandsins kemur fram sú.niðurstaða að handbært fé til rekstrar nam alls tæplega 190 milljónum. M.ö.o. þurfti að leggja til rekstursins þessa fjárhæð. Hins vegar vantar í sjóðsstreymið sér- staka tölu yfir veltufé til rekstrar sem sýnir hversu mikið reksturinn hefur skilað eða leggja hefur þurft til hans áður en tekið er tillit til breytinga á viðskiptakröfum, skammtímaskuldum, vörubirgðum o.fl. Nam veltufé til rekstrar alls um 674 milljónum og sýnir svo ekki verður um villst þá alvarlegu stöðu sem uppi er hjá Sambandinu. Til samanburðar má nefna að veltufé frá rekstri nam um 886 milljónum hjá Eimskip á sl. ári og handbært fé frá rekstri alls 857 milljónum. Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins lýsti því yfír á aðal- fundi þess að selja yrði eignir fyrir 3-4 milljarða til að eigna- og skulda- staða yrði í þeim jöfnuði sem nauð- synlegur væri. Hann sagði í sam- tali í Morgunblaðið að unnið væri að því að selja Sambandshúsið, Samskipabréfin væru í sölu og áfram væri unnið að sölu Olíufé- lagsbréfanna. „Sambandið þarf að greiða fullan fjármagnskostnað af 3,5 milljarða skuldum en eignirnar skila sáralitlum arði og ef ekki er hægt að fá nægilega arðsemi af þeim þarf að selja þær. Það er verk- efni sem við þyrftum að sjá fyrir endann á innan tveggja ára,“ sagði Guðjón. Þ.Þ0RGRÍMSSÚN&C0 Ármúla 29, Reykjavík, sími 38640 Tölvur Þróun fær söluumboð fyrir Bústjóra TÖLVU- og ráðgjafarfyrirtækið Þróun hf. hefur fengið umboð fyrir viðskiptahugbúnaðinum Bústjóra. Innflutnings- og dreifingaraðili Bústjórans hér á landi er Nýherji en aðalsöluumboð til þessa hefur verið Strengur hf. í fréttatilkynningu frá Nýheija landi en hann sé alhliða stjórntæki segir að Bústjóri hafi upphaflega í rekstri og megi nota jafnt fyrir verið hannaður hjá danska fyrirtæk- einmenningstölvur sem og stærstu inu PC & C en verið þýddur á ís- netkerfi. lensku fyrir nokkrum árum. Frá Bústjóri er hannaður í samræmi þeim tíma hafi stöðugt verið unnið við evrópska staðla. Meðal kerfis- að því að aðlaga hann að margþætt- hluta Bústjóra má nefna t.d. fjár- um innlendum þörfum. hags- og viðskiptamannabókhald, Ennfremur segir að viðskiptahug- birgðabókhald, forðabókhald, verk- búnaðurinn Bústjóri hafi hlotið góð- bókhald, framleiðslustýringu og ar viðtökur meðal fyrirtækja hér á áætlanagerð. HUGBÚNAÐUR — Á meðfýlgjandi mynd má sjá Halldór Friðgeirsson, framkvæmdastjóra Þróunar hf., taka við fyrsta Bústjóra- kerfinu frá Jóni Vigni Karlssyni, framkvæmdastjóra markaðssviðs Nýherja og Karsten Buttrup, markaðsstjóra PC & C í Danmörku. Hafðu sparnaðinit svartan á hvítu = ÖRTÖLVUTÆKNI = - Lekkaðu prentkostnaðinn! Tölvukaup hf. • Skeifunni 17 • Sími 687220 Fax 687260 • Þjónustusími 687221 Rekstrarvörur, sími 687229 Nú er tækifærið til að birgja sig upp að dufthylkjum sem tryggja mikil prentgæði. Þeir sem nota geislaprent- ara vita nefnilega að það er nauðsyn- legt að eiga alltaf annað dufthylki að grípa til þegar hitt þrýtur. Við bjóðum tíu daga magnafslátt á dufthylkjum: 2 hylki = 10% afsláttur 4 hylki = 15% afsláttur 5-10 hylki = 20% afsláttur Hringdu strax! Pantanir eru afgreiddar í síma 687229

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.