Morgunblaðið - 25.06.1992, Side 9

Morgunblaðið - 25.06.1992, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1992 B 9 Einkaleyfi Mikilvægt að fylgjast með skrán- ingu vörumerkja og einkaleyfa Rætt við Gunnar Guttormsson forstjóra Einkaleyfastofunnar og Ellý K. Guðmundsdóttur lögfræðing EINKALEYFASTOFAN var sett á laggirnar á síðasta ári og tók þá við hlutverki einkaleyfa- og vörumerkjadeildar iðnaðarráðuneytisins. í samtali við Gunnar Guttormsson forstjóra stofnunarinnar og Ellý K. Guðmundsdóttur lögfræðing kemur fram að mikilvægt er fyrir stjórnendur fyrirtækja að fylgjast með skráningu vörumerkja og einka- leyfa til að koma í veg fyrir tap á rétti og jafnvel málaferli. Með til- komu væntanlegs Evrópsks efnahagssvæðis má búast við ýmsum breyt- ingum á löggjöf um þessi efni hér á landi og því eykst mikilvægi þess að stjórnendur fylgjast vel með. Einkaleyfastofan fer með málefni er varða einkaleyfi, vörumerki, hönn- unarvernd og önnur hliðstæð réttindi sem kveðið er á um í lögum um vernd eignaréttinda á sviði iðnaðar. Jafn- framt er stofnuninni ætlað að veita einstaklingum, stofnunum og at- vinnufyrirtækjum upplýsingar og ráðgjöf varðandi hugverkaréttindi og stuðla að því að upplýsingar um þessi málefni verði aðgengilegar almenn- ingi. Þjónustugjöld af skráningum eiga að standa undir starfseminni en gjöldin eru ákvörðuð með reglu- gerð. Þess má geta að á síðasta ári var velta stofnunarinnar yfir 20 millj- ónir. Til að almenningi gefíst kostur á að fylgjast með skráningu vöru- merkja og einkaleyfa gefur Einka- leyfastofan mánaðarlega út Vöru- merkja- og einkaleyfatíðindi og ár- legt sérrit þar sem birt eru öll vöru- merki og einkaleyfi sem skráð hafa verið á árinu. Mörg fyrirtæki sem vita ekki af starfseminni Einkaleyfastofan hefur hafíð átak í að kynna starfsemi sína og er út- gáfa þriggja bæklinga einn liðurinn í því. Fyrsti bæklingurinn hefur þeg- ar verið gefín út og íjallar um starfs- svið Einkaleyfastofunnar, öðrum bæklingnum er ætlað að kynna vöru- merki og þeim þriðja einkaleyfí. Gunnar segir að fjölmörg fyrir- tæki, einkum þau stærri, hafí mikil samskipti við stofnunina en því mið- ur séu mörg fyrirtæki sem vita ekki af þessari starfsemi og fylgjast því ekki með þeim réttindum sem verið er að skrá hveiju sinni. „Menn geta hrokkið við þegar þeir heyra í fjöl- miðlum að verið er að selja vöru undir sama nafni eða líku nafni og viðkomandi notar. Þá er kannski búið að skrá vörumerkið og því orðið of seint að andmæla. Ef ekki er fylgst nægilega vel með skráningu vöru- merkja og einkaleyfa getur það leytt til verulegs réttartaps og óhagræðis, jafnvel málaferla." Hjá stofnunni er verið að undirbúa frumvarp að nýju verndarsviði, svo- nefndri hönnunarvernd. Gunnar seg- ir að hönnunarverndin sé í raun vernd á útliti hluta. Einkaleyfið veiti vernd á tæknilegri nýjung og vörumerkja- leyfíð vernd á orði eða mynd sem aðgreinir vöru eins aðila frá vöru annars. Vörumerkið rannsakað áður en það er skráð En hvernig eiga fyrirtæki sem vilja fá skráð slík réttindi að bera sig að? „Ef sótt er um skráningu vöru- merkis þá fá aðilar umsóknareyðu- blöð sem eru tiltölulega einföld ásamt leiðbeiningum og lögum. Merkið er síðan rannsakað miðað við það sem þegar er skráð. Einnig er athugað hvort merkið er hæft til að vera vöru- merki með tillit til vörumerkjalag- anna eða hvort merkið brýtur gegn siðgæði. Ef merkið sleppur í gegn sem er oftar en ekki þá er það birt í Vörumerkja- og einkaleyfatiðind- um. Gefnir eru 2 mánuðir til and- mæla og ef engin andmæli berast þá er gefíð út skráningarskírtéini til 10 ára. Ef hins vegar merkinu er hafnað þá er hægt að áfrýja til sér- stakrar áfrýjunarnefndar," segir Ellý. „Einkaleyfaferlið er hins vegar mun flóknara og lengra. Ein umsókn getur verið allt upp í 50 blaðsíður og getur ferlið tekið allt frá 2 árum til 8 ára.“ Þau Gunnar og Ellý segja það hafa aukist að fyrirtæki leiti til aug- lýsingastofa með hönnun á vöru- merki. „Það er alltaf gaman að fá íslensk vörumerki sem vinna hefur verið lögð í. Það kemur þó fyrir að menn hringja hingað ofan af fjöllum til að kanna hvort þeir geti tryggt sér vörumerki sem þeir hafa fengið hugljómun um að muni slá í gegn. En það er auðvitað fyrst og síðast viðskiptavinurinn sem er mælikvarð- inn á það hvort vörumerki er gott eða ekki og svo auðvitað varan á bak við vörumerkið." TUDOR og S0NNAK rafgeymar í öll farartæki Allar stærðir - Langbestu verðin Umboðsmenn um land allt Bíldshöfða 12 - sími 680010 Morgunblaðið/SVE EINKALEYFASTOFAN — Ellý K. Guðmundsdóttir lög- fræðingur og Gunnar Guttormsson forstjóri Einkaleyfastofunnar segja að gaman sé að fá íslensk vörumerki sem vinna hefur verið lögð í þó komi það fyrir að hringt er til þeirra ofan af fjöllum þar sem menn hafa fengið hugljómun um vörumerki sem þeir eru sannfærðir um að muni slá í gegn. Fleiri leyfi til erlendra aðila en íslenskra Ávallt hafa verið skráð mun fleiri erlend vörumerki en íslensk. Frá ár- inu 1980 hafa verið skráð um 8.000 vörumerki og eru íslensk vörumerki aðeins 17% af því. Á síðasta ári voru skráð 1.282 vörumerki þar af voru 255 íslensk. Flestar umsóknirnar um einka- leyfín eru fyrir tæknibúnað í fískiðn- aði, áliðnaði og lyfjaiðnaði. Frá árinu 1980 hafa verið veitt 452 einkaleyfí og af þeim eru aðeins 13 íslensk. Eitt íslenskt einkaleyfí var veitt á síðasta ári en erlendu leyfín voru 29. Þau Ellý og Gunnar segja það ekki vera vafamál að stjómendur fyrirtækja hér á landi verði að fylgj- ast vel með því sem gerist á sviði vörumerkja- og einkaleyfa þegar væntanlegt Evrópskt efnahagssvæði gengur í garð og þar muni upplýs- ingar Einkaleyfastofunnar koma að góðu gagni. Gunnar segir að það sé markmið stofnunarinnar að veita atvinnulífínu eins góða þjónustu og mögulegt er. „Við erum í mjög tölvuvæddu umhverfi og því auðvelt að veita svqr við spurningum með skjótum hætti,“ segja þau að lokum. MSig. Tflktu enofl á ferðolögum _ oð hnfðu farsímann með Tilefni verðlækkunarinnar er að Póstur og sími hefur selt meira en 2000 Storno farsíma og þess vegna bjóða framleiðendur storno, MOTOROLA, 100 farsíma á þessu sérstaka sumarverði Storno farsíminn tryggir þér gott samband við umheiminn þegar þú ert á ferðalagi, hvort sem þú ert í óbyggðum, sumarbústaðnum eða bara í umferðinni. $torno Verd fraTzfr stgr. nu vsk. (tilþdínn rbftiqn) Verö frá kr. kr. 69.900 stgr. nu vsk. (tilbúinn í bílinn) PÓSTUR OG SÍMI Viö spörutn þér sporiti Söludeildir í Ármúla 27, Kirkjustræti, Kringlunni og á póst- og símstöðvum um land allt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.