Morgunblaðið - 25.06.1992, Page 11

Morgunblaðið - 25.06.1992, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1992 B 11 Sjónarhorn Hjúskaparmiðlun evrópskra fyrirtækja Eureka <j\ IOGO DESIGN eftir Emil B. Karlsson Evreka! „Ég hef fundið það“, hróp- aði Arkimedisar þegar hann lagðist til laugar í baðkari og uppgötvaði lögmálið sem síðan hefur verið við hann kennt. Lögmálið stendur fyrir sínu og verður ekki hrakið með góðu móti því enn í dag mun það vera svo að þyngd hlutar sem sökkt er í vökva minnkar sem nemur þyngd vökvans sem hann ryður frá sér. Hins vegar eru áhöld um baðkarsferðina. Fróðir menn þykjast fullvissir um að baðk- aramenningin hafi ekki verið fundin upp árið 200 í Grikklandi. Engu að síður minnast nútíma vísindamenn læriföðurins Arkimed- isar með því að nota upphrópunina Evreka! sem samheiti yfir hundruðir samstarfsverkefna fyrirtækja og rannsóknastofnana um alla Evrópu. Evreka er eins konar hjúskapamiðlun rannsóknarverkefna. Fyrirtæki í einu aðildarlandanna sem hyggst þróa nýja vörutegund eða vill leita nýrra tæknilegra úrlausna getur fundið sér hentugan samstarfsaðila, maka, gegnum miðstöðvar Evreka í 20 Evrópulöndum. Hið einfalda stjórn^ skipulag samstarfsins er mjög skil- virkt enda er stjórnun verkefna í höndum fyrirtækjanna sjálfra sem að þeim standa. Þau fjármagna einn- ig sjálf í flestum tilvikum verkefnin en ekkert hindrar þó að styrktar- framlag sé veitt úr opinberum rann- sóknasjóðum þjóðanna. Lítil hætta er á að árangur Evrekaverkefnanna rykfalli í skýrsluformi uppi í hillu því verkefnin eru öll þess eðlis að fyrir- tækin geta hagnýtt þau sér til fram- dráttar. Niðurstöðurnar eru eign þeirra aðila sem eiga frumkvæðið og vinna verkefnin, þ.e. fyrirtækj- anna. Staðreyndin er sú að flest rannsókna- og þróunarverkefnin enda í arðbærri fjárfestingu í formi vöru eða tækninýjungar. íslendingar hlut- fallslega stærstir! íslendingar hafa átt aðild að Ev- reka síðan 1986 og eru þátttakendur í 9 af 539 Evrekaverkefnum. Viða- mest þeirra er „Halios" — fiskiskip 10. áratugarins, sem nánar verður vikið að síðar. Öll verkefnin eru stunduð í samstarfi við evrópsk fyrir- tæki sem einnig eiga aðild að Evreka enda er samstarf við fyrirtæki í öðru Evreka-landi skilyrði til að geta flokkast undir samstarfsformið. ís- lendingar eiga þátt í hlutfallslega flestum Evreka-verkefnunum, sé miðað hina „hagstæðu" höfðatölu landsmanna. Éngan skyldi undra því innan Evreka-samstarfsins hefur hingað til verið lögð sérstök áhersla á þátttöku lítilla og miðlungsstórra fyrirtækja. Með þeim hætti er talið að komið verði á mótvægi við öfluga rannsókna- og þróunarstarfsemi stóru fjölþjóðafyrirtækjanna. Þekk- ing og reynsla sem til er í litlum og miðlungsstórum fyrirtækjum í Evr- ópðu er ofin saman og unnið að verk- efnum til nýsköpunar. Kosturinn við samstarf lítilla og miðlungsstórra fyrirtækja er einnig minna áhættufé sem hvert og eitt fyrirtæki þarf til að leggja fram til rannsókna- og þróunarverkefnanna auk þess sem markaðssetning nýrra vara verður mun auðveldari þegar margir smáir leggjast á eitt. Éinkennandi er fyrir Evreka-verkefnin að þau hafa öll nána markaðslega tilhöfðun. Með Evreka hafa opnast nýjar dyr fyrir lítil íslensk fyrirtæki. Fyrir stuttu var haldinn 10. reglu- legi ráðherrafundur Evrekalandanna í Finnlandi. Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra sat fundinn fyrir Islands hönd. Ráðherrafundirnir eru m.a. ætlaðir til að veita nýjum verkefnum svokallaðan Evreka- „status“ og staðfesta þar með inn- göngu í „klúbbinn". Ráðherrastað- festingin hefur einungis táknræna þýðingu en gefur samstarfsaðilum visst stöðutákn og virðingu í heimi hagnýtra rannsókna. Að þessu sinni voru staðfest 102 ný verkefni og eiga íslendingar þátt í 3 þeirra. Stærsta frétt ráðherrafundarins var þó innganga 20. Evrópu landsins í Evreka, Ungverjalands, sem jafn- framt er fyrst fyrrum Austur-Evróp- ulanda til inngöngu. ísland var næst á undan Ungveijalandi þó liðin séu 6 ár síðan það var. Á næstu árum munu fleiri lönd frá austurhluta Evr- ópu fá aðgang að Evreka. Litlir og stórir hjálpast að Á ráðherrafundinum í Finnlandi kom fram vilji til að gera áherslu- breytingu á Evreka-samstarfinu á komandi árum sem væntanlega gæti falið í sér enn ákjósanlegri möguleika fyrir íslensk fyrirtæki til þátttöku. Breytingin felst í því að í stað sam- starfs lítil og stórra fyrirtækja. Um þetta fjallaði m.a. Ólafur G. Einars- son menntamálaráðherra í ræðu sinni á fundinum. Stórfyrirtæki Evrópu hafa löngum haft mjög svo takmarkaðan áhuga á rannsóknasamstarfi við önnur fyrir- tæki, en viðhorf þeirra er nú óðum að breytast. Dæmi um þetta eru stóru fyrirtækin sem hafa ekki getað hugs- að sér samstarf við önnur fyrirtæki. Samkeppni risanna í lyfjaiðnaðinum er mjög hörð og allt rannsókna- og þróunarstarf er stundað af rannsókn- afólki sem eru starfsmenn fyrirtæk- anna sjálfra og fer fram með mikilli leynd innan eigin veggja. Nú eru stjórnendur stórfyrirtækjanna farnir að gera sér grein fyrir að lítil sér- hæfð fyrirtæki eru áhugaverðir sam- starfsaðilar m.t.t. nýrra hugmynda og nýrra lausna. Starfsemi lítilla fyr- irtækja er oft fólgin í sérhæfðri lausn sem getur skipt sköpum fyrir sam- keppnisstöðu stórfyrirtækisins, fái það aðgang að leyndardómnum. Þetta þýðir ekki að sá stóri gleypi þann litla. Samstarfið hefur gagn- kvæman kost í för með sér. Lítil fyrirtæki, eins og þau íslensku eru, hafa oft ekki fjárhagslegt bolmagn til að stunda ein og sér þróunarstarf- semi sem gæti leitt til nýjunga í framleiðslu þeirra. Niðurstaða rann- sókna- og þróunarverkefna sem stunduð eru í samstarfi lítilla og stórra fyrirtælq'a hafa oft hlutfalls- lega meiri þýðingu fyrir iitlu fyrir- tækin. Dr. Vilhjálmur Lúðvíksson, fram- kvæmdastjóri Rannsóknaráðs ríkis- ins, er fulltrúi íslands í samstarfs- nefnd Evreka-landanna, National Project Coordinators. Hann segir að íslendingar séu eftirsóttir samstarfs- aðilar á vissum sviðum innan Evreka vegna nálægðar framleiðslunnar við endanlega notendur. Mörg erlend stórfyrirtæki og rannsóknastofnanir hafa ekki eins náin tengsl við notend- ur og hér er. Okkar mikilvægasta svið til tækniþróunar telur hann vera tengdan sjávarútvegi. Þar byggjum við á aldargamalli reynslu og þróun tækninnar frá hendi sjómannanna sjálfra. Eitt dæmi er þegar íslenskir skipstjórnendur hófu að nota dýptar- mæla til fiskileitar á 6. áratugnum. Vilhjálmur segir ennfremur að stærsti kosturinn fyrir íslensk fyrir- tæki við þátttöku í Evreka-samstarf- inu sé aðgangurinn að stærsta mark- aðssvæði heimsins sem nú sé að verða til í Evrópu. Það sem stendur íslenskum fyrirtækjum fyrir þrifum hvað varðar rannsókna- og þróun- arstarf, segir Vilhjálmur, er lítill heimamarkaður og þar með fjárhags- lega slæm staða fyrirtækjanna. Fullt stím inn í framtíðina Nokkur íslensk fyrirtæki og rann- sóknaaðilar sigla hraðbyr inn í fram- tíðina á Halios — fískiskipi framtíðar- innar. Halios er stærsta verkefni inn- an Evreka-samstarfsins sem íslend- ingar taka þátt í. Það byijaði smátt í sniðum en óx upp í að verða stórt samstarfsverkefni með þátttöku Frakka og Spánveija. Halios er fyrir margar sakir einkennandi fyrir önnur Evreka-verkefni. Þar er unnið að þróun fjölmargra samverkandi þátta sem ætlað er úm borð í fiskiskip framtíðarinnar. Meðal þeirra er raf- eindabúnaður, öryggisbúnaður, og hönnun. Þróun á björgunametinu EUREKA Markúsi var einn þáttur verkefnis- ins. Þar kom til hugvit og áræðni úr litlu fyrirtæki sem leiddi til fram- leiðslu á björgunarneti sem nú þegar hefur verið gert að skyldubúnaði um borð í íslenskum fískiskipum. Fyrirtækin Marel hf. og Efli hf. vinna ásamt Rannsóknastofnun fisk- iðnaðarins og Háskóla íslands að þróun á viðamiklum búnaði til vinnslu á fiski um borð í togurum, allt frá því að fiskurinn er dreginn um borð og þar til honum er komið í frystingu. Markmið þessa hluta Halios er hámarksnýting á fisknum, hagkvæmni og betri gæði. Arkimedisar gaf tóninn, með upp- hrópuninni „Evreka!“, — tónn sem enn hefur ekki þagnað og verður endurtekinn oft á komandi árum ef að líkum lætur. Höfundur er blaðafulltrúi Iðn- tæknistofnunar. ISLAND NORÐUR - AMERÍKA Forysta í Ameríkuflutningum Reynsla og forysta EIMSKIPS í vöruflutningum milli íslands og Ameríku ó sér óratuga langa sögu. Félagiö siglir nú ó tveggja vikna fresti til 5 hafna í Noröur - Ameríku. Tíöni feröa og fjöldi viðkomuhafna samfara sérþekkingu og reynslu starfsmanna á skrifstofu félagsins í Norfolk gerir þaö aö verkum aö EIMSKIP er vel í stakk búiö til aö sinna öllum flutningaþörfum viðskiptavina sinna - þarfir þeirra eru þarfir okkar! EIMSKIP VIÐ GREIÐUM ÞER LEIÐ HVlTA HÚSlÐ / SlA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.