Morgunblaðið - 02.07.1992, Side 7

Morgunblaðið - 02.07.1992, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNÐLÍF FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 1992 B 7 HUGBÚMAÐUR (var Pétur Guðnason GEISLANDI GLEÐI í hugbúnaðardálki sem birtist rétt eftir áramótin fjallaði ég lítils- háttar um margmiðlun og hvað hún bæri í skauti sér fyrir almenn- ing. Margmiðlun felst í því að nota tölvu með geisladrifi (CD-ROM) til þess að blanda myndum og máli og tónum saman í eina heild. Það er til þó nokkuð af hugbúnaði sem opnar notendum nýjar víddir með því að nota óraflæmi geisladisksins undir ýmiss konar fróðleik og kynningu sem ella væri illmögulegt að koma fyrir. Einn geisladiskur rúmar 650 milljónir stafa (650 MB) og auk notkunar þeirra til marg- miðlunar hefur undanfarið færst í aukana að nota þá undir fyrirferð- armikil forrit, myndasöfn og letur- söfn, og allskyns fræðsluefni. í þessari grein og næstu ætla ég því að gera lauslega grein fyrir því helsta sem er á boðstólum af hug- búnaði á geisladiskum. Núna ætla ég einkum að fjalla um almenn forrit og fræðsludiska og næst för- um við yfir í margmiðlunina. Þróunin yfir í geisladiska Við notendur höfum undanfarin ár fylgst með því hvernig forrit sem einu sinni komu á 160K disklingi hafa þróast yfir í að koma núna á 7 disklingum sem hver tekur 1,44MB (1,4 milljónir stafa) — og auk þess eru skrámar þjappaðar! Gömlu forritin gengu vel á tölvu með 128K vinnsluminni en nú eru 4MB að verða .lágmark. Nýlegt stýrikerfi kemur á 21 (já, tuttugu og einum) 1,44MB disklingum! M.a.s. leikimir eru alltaf að breiða úr sér og King’s Quest IV frá Si- erra On-Line kemur þannig á 8 stykkjum af 1,2MB disklingum! Staðreyndin er að tölvur nútímans ráða yfir svo mikilli reiknigetu og góðri grafík að hugbúnaðarfram- leiðendur keppast við að láta forrit- in sín njóta vélbúnaðarins. Geymsl- utæknin, sér í lagi disklingar, hef- ur ekki þróast samsvarandi og því myndast flöskuháls í dreifingu hugbúnaðar. 1,44MB drif fyrir 3 og 1/2 tommu disklinga eru algeng í dag, sem og 1,2MB drif fyrir 5 og 1/4 tommu disklinga. Alllangt er síðan IBM kynnti 2,8MB drif og nú eru komin fram 20MB 3 og 1/2 tommu drif, en þessi búnaður hefur því miður ekki náð neinni útbreiðslu að ráði. Hugbúnaður á geisladiskum Til þess að ijúfa stífluna hafa nokkrir hugbúnaðarframleiðendur boðið vöru sína á geisladiskum og má þar frægast telja hið vinsæla teikniforrit CorelDraw frá Corel Systems Corp. Til þess að lokka kaupendur er CorelDraw lítið dýr- ara á geisladiski en á disklingum og auk þess fylgir með mikið myndasafn og hjálparskrá sem Tölvumolar Marinó G. ■ IBM hefur sýnt áhuga á að nota kjaman úr Windows NT frá Microsoft fyrir fjölgjörva útgáfu af OS/2, þ.e. fyrir RISC- tölvur. Þetta kom fram í máli John Soyring, framkvæmda- stjóra yfir hugbúnaðarþróun hjá IBM, á ráðstefnu Oracle Corp. nýlega. Líta menn á þessa yfir- lýsingu sem merki um þíðu milli IBM og Microsoft. ■ IBM hefur viðurkennt að breyting á vinnsluumhverfi fyr- irtækja er óumflýjanleg og til- kynnt að væntanlegar séu á markað tvær nýjar útgáfur af IBM PS/2 Model ’95. Þessar nýju útgáfur heita XP 486 OMF og OMT. Munu þær búa yfir ýmsum eiginleikum stórtölva, m.a. geta þjónað allt að 200 notendum. Forsvarsmenn IBM viðurkenna að fýrirtækið hafi ekki viljað tala um breytt vinnsluumhverfi fyrr af ótta við að það mundi hægja á sölu stórt- ölva. ■ Borland International til- kynnti nýlega að fyrirtækið hefði tapað 110 milljónum Bandaríkjadala á síðasta fjár- hagsári, sem lauk 31. mars sl. Tapið má rekja til yfirtöku Bor- land á aðalkeppinaut sínum, Ashton-Tate. Gamli Borland- hluti fyrirtækisins skilaði 36 milljóna Bandaríkjadala hagn- aði, kostnaðurinn við sameining- una varð 146 milljónir Banda- ríkjadala og skýrir það tapið. ■ Hewlett Packart er að koma með á markað nýjan blekspraut- Njálsson prentara HP PaintJet XL300 litaprentara. Prentarinn er Las- erJet samhæfður og kemur með samsíða tengi, raðtengi og Loc- alTalk tengi. Maxtor Corp. sendi nýlega frá sér nýjan 540 MB harðan disk, sem er 1 tomma á hæð og 3,5 tommur á breidd. Þetta þýðir að diskurinn kemst fyrir í fyrirferðaminni borðtölv- um ... Brother Intemational, sem er líklegast þekktast hér á landi fýrir ritvélar, hefur sent frá sér geislaprentara HL-10V. Hann prentar 10 bls. á mínútu í 300 punkta upplausn. Prentar- inn hermir eftir HP PCL5 (Las- erJet), IBM ProPrinter XL og Epson FX. ■ Apple og IBM eru búin að stofna fýrirtæki, Kaleida, um fjölmiðlun (multimedia) og eru að leita eftir fleiri samstarfsaðil- um. Fyrirtækin eru að vonast til þess að Lotus, Adobe, Bor- land, Eastman Kodak, Thoshiba, Sharp og Phillips gangi til liðs við þau og standi saman að staðli fýrir fjölmiðlun. Vandamálið er að aðgöngumiðinn kostar 1 milljón Bandaríkjadala. ■ Everex Systems Inc. keypti Northgate Computer Corp. fyrir stuttu á aðeins 4,5 milljónir Bandaríkjadala, sem er sagt vera algjört útsöluverð. Talið er að tölvuiðnaðurinn í Bandaríkj- unum eigi eftir að ganga í gegn um miklar breytingar á næstu sex til níu mánuðum og búast megi við yfirtökum, sameining- um og gjaldþrotum. ekki er með disklingaútgáfunni. Corel Systems stendur árlega fyrir verðlaunasamkeppni á meðal at- vinnumanna sem nota CorelDraw og nú er hægt að fá 850 myndir sem voru með í síðustu samkeppni á geisladiski. Microsoft hefur lengi boðið á geisladiski MS Program- mers Library, en það er uppfletti- rit fyrir þá sem nota eitthvert af forritunarmálum eða þýðendum fyrirtækisins. í bígerð er að bjóða Microsoft Office á geisladiski, en Office er það kallað þegar Word fyrir Windows, Excel, og kynning- arforritið PowerPoint eru seld saman í pakka. Multimedia Works 2,0 frá Microsoft, er síðan næsta skrefið í hugbúnaði á geisladisk- um. Þá er á geisladisknum sam- ofni hugbúnaðurinn Works og hjálparkennsla sem fer fram með hreyfimyndum og hljóði, að hætti margmiðlunar. Fyrir vikið fylgir engin handbók með Multimedia Works. Hið sama gildir um CD- ROM-útgáfuna af Lotus 1-2-3 töflureikninum fyrir Windows. Á geisladisk num er forritið sjálft, handbækur, kennsla og hjálparfor- rit með hreyfingum og hljóði. Ég hlakka til að sjá þessi forrit ... Á geisladiskum er til nokkuð af hjálparforritum og greinasöfnum fyrir tölvuáhugamenn. Útgefandi hins góðkunna tímarits, PC Magazine, gefur út geisladisk sem hefur á hraðbergi lausn á hveijum vanda og svar við hverri spurningu hins almenna tölvunotanda. Annan disk býður útgefandinn sem geym- ir yfir 600 sýningarforrit frá hug- búnaðarframleiðendum. Nú geta allir haft hugbúnaðarkynningu í stofunni heima. Auk hjálpardiska er líklegt að ef stýrikerfi halda áfram að bólgna sem hingað til verður þess skammt að bíða að þau komi eingöngu á geisladiskum. Við sem erum smekklausir get- um nú fengið að sjá vin okkar Leisure Suit Larry á geisladiski frá Sierra On-Line og einnig Mixed-Up Mother Goose sem er saklaus leik- ur fyrir yngri kynslóðina. SimCity hermiforritið frá Maxis er einnig Strengur er áfram sölu- aöili fíúsljóra í frétt sem birtist í viðskipta- blaði Morgunblaðsins sl. fimmtu- dag segir eftirfarandi: „Tölvu- og ráðgjafafyrirtækið Þróun hf. hefur fengið umboð fyrir viðskiptahug- búnaðinn Bústjóra. Innflutnings- og dreifingaraðili Bústjórans hér á landi er Nýheiji, en aðalsöluumboð til þessa hefur verið Strengur hf.“ Áf orðanna hljóðan mætti skilja að Strengur sé ekki lengur með söluumboð fyrir Bústjóra. Þetta er rangt. Strengur hefur verið söluað- ili Bústjóra hér á landi í fjögur ár og mun halda því áfram ásamt Þróun. Til að undirstrika hlutverk Strengs við markaðsfærslu á Bú- stjóra hefur eigandi hugbúnaðar- ins, PC&C í Danmörku, gerst eign- araðili að Streng hf. Strengur mun í samvinnu við PC&C taka þátt í áframhaldandi þróun hugbúnaðar- ins bæði fyrir innlendan og alþjóð- legan markað. fáanlegt á geisladiski og búið er að bæta hinn myndræna þátt for- ritsins og auka möguleikana. Þeir sem fylgjast með fréttunum geta fengið heilan árgang af vikuritinu Time með forsíðumyndum og til- heyrandi. The Bible Library er geisladiskur sem geymir 9 mis- munandi útgáfur Biblíunnar og 20 heimildarrit að auki. Þeir sem hafa áhuga á hinu veraldlega geta feng- ið öll verk Williams Shakespeares á geisladiski, eða þá allar sögumar um Sherlock Holmes. Auk þess geta sannir Sherlock Holmes aðdá- endur fengið á geisladiski þijár ráðgátur sem reyna á þolrifin og nota margmiðlun til hins ítrasta, enda eru á diskinum um 90 mínút- ur af hreyfimyndum og mikið tal. Adobe-letursafnið er fáanlegt á geisladiski. Það er læst en kaup- andinn getur virt allar stafagerð- irnar fyrir sér og notað þær með því að kaupa númer sem opnar lásinn. Auk myndasafna á borð við það sem fyrr var nefnt fyrir Cor- elDraw er hægt að fá á geisladisk- um sérhæfð myndasöfn til allra mögulegra nota. Núna er fyrir framan mig auglýsing frá amer- ískri póstverslun sem vill selja geisladisk með myndum fyrir full- orðna. Á disknum eru 70 hreyfí- myndasöfn og meira en 600 mynd- ir og dýrðin á bara að kosta 60 dollara. Onnur póstverslun vill selja geisladisk með 5.268 VGA mynd- um (fyrir fullorðna auðvitað!) fyrir litlá 99 dollara. Þá fylgja m.a.s. „leikir“ með ... Það eru sannmæli að tæknin gerir jafnt réttlátum sem ranglátum líf ið léttara! Að lokum Ég hef rétt tæpt á öllu því úr- vali hugbúnaðar sem fáanlegt er á geisladiskum. Næst verður þráður- inn tekinn upp og fjallað meira um sama efni. Höfundur er áhuganmður um tölv- ur. SKJALASKÁPAR H0VIK* SKUFFUSKAPAR 2JA, 3JA OG 4RA SKÚFFU TEIKNINGASKÁPAR SKÁPAR MEÐ RENNIHURÐUM, VÆNGJAHURÐUM, TVÖFALDIR SKÚFFUSKÁPAR O.FL. HF.OFNASMIBJAN HÁTEIGSVEGI 7, S: 21220 Z' B] ElectroluxN, CONSTRUCTOR Hillurekkar úr stóli sem settir eru saman á öruggan og einfaldan hátt. Við þá má bæta endalaust m.a. með ýmsum aukahlutum, s.s. skúff- um, boxum o.fl. Henta vel til geymslu á alls konar smávöru. Hetugir og litríkir fataskópar fyrir skóla, vinnustaði, sundlaugar o.fl. Fjórir eða fimm saman, með eða ón setbekks. Einfaldir í uppsetningu, Dýpt: 840 mm. Hæð: 2235 mm. Breidd: 300 eða 400 mm. LUX 83 brettarekkar Kerfi fyrir geymslu á vörum á brett- um (pallettum). Sett saman úr sam- tengdum rekkum. Logerinn nýtist betur, t.d. lofthæðin. Auðvelt að breyta og auka við eftir þörfum. Færanleg herbergi. Stök herbergi sem auðvelt er að flytja að vild (með gaffallyftara). Má stafla svo tvær hæðir myndist. Fást í fjórum litum og tveimursfærðum. Breidd: 3650 mm og 2750 mm. Hæð: 2660 mm. ínaust Borgartúni 26 Sími: (91) 622262 Mynds.: (91)622203 fyrlr steinsteypu. Léttir « meöfœrilegir viðhaldslitlir. Þ.ÞORGRÍMSSÖN&CO Armúla 29, Reykjavík, sími 38640

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.