Morgunblaðið - 09.07.1992, Page 1
PRENTIÐNAÐUR: Steindórsprent og Gutenberg sameinuö /4
TRYGGINGAR: Skandia blæs til sóknar á íslandi/6
JlbnypitstUb^tt^
VJÐSKIPTIAIVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 9. JÚLÍ 1992 BLAÐ J-Þ
Chile gæti orðið stökkpall-
ur fyrir íslenskar vörur
* *
segir Sverrir Guðmundsson viðskiptafulltrúi Utflutningsráðs Islands
sem nýkominn er frá Chile eftir 3 mánaða dvöl
„CHILE er áhugavert svæði fyrir íslendinga að skoða og þá
fyrst og fremst í tengslum við sölu á vörum og þjónustu fyrir
sjávarútveg,“ sagði Sverrir Guðmundsson viðskiptafulltrúi Út-
flutningsráðs íslands í samtali en hann er nýkominn til landsins
eftir 3 mánaða dvöl í Chile þar sem hann var að kanna mögu-
leika á sölu íslenskra vara. Hann sagðist sjá Chile sem stökk-
pall fyrir íslenskar vörur yfir í önnur lönd i Suður-Ameríku.
Tilgangur ferðar Sverris var að
koma á samstarfi íslenskra og
chileskra fyrirtækja á þessu mark-
aðssvæði og styrkja viðskiptasam-
bönd. Einnig að kanna möguleika
á sölu notaðra fískiskipa til Suður-
Ameríku og að styðja við það und-
irbúningsstarf sem þegar hefur
verið unnið. Sverrir hélt utan um
miðjan marsmánuð en ráðning
hans til Útflutningsráðs er nýjung
þar sem viðskiptafulltrúar verða
ráðnir tímabundið í verkefni er-
lendis á vegum ráðsins.
Sverrir sagðist hafa heimsótt
fjölda fyrirtækja og reynt að kynn-
ast skoðunum aðila á þessu svæði.
„Möguleikarnir fyrir íslenskar vör-
ur í Chile eru töluverðir og þá
aðallega það sem snýr að vörum
fyrir fiskveiðar, fískvinnslu og
fískeldi. Sala á fiskiskipum er frek-
ar langtímamarkmið sem áhuga-
vert er að skoða nánar. Fiskiðnað-
ur í Chile er öðruvísi samansettur
en okkar, uppsjávarfískur er aðal-
lega veiddur og mjölvinnsla er um
40%. Það væri þá spuming um
sölu á nótaveiðiskipum en það
þyrfti að styðja við það undirbún-
ingsstarf sem fyrirtækið Icecon
hefur verið brautryðjandi í.“
Sverrir sagði að einnig væru
möguleikar varðandi pökkun og
vinnslu á grænmeti, það væri
miklu stærra skref en engu að
síður áhugavert.
Að sögn Sverris er efnahagslíf
í Chile tiltölulega stöðugt. Vöru-
skiptajöfnuður hefur verið hag-
stæður undanfarin ár, verðbólga
er í kringum 15-20% á ári og at-
vinnuleysi um 6%. Námaiðnaður
er mikilvægastur í útflutningi
Chile-búa en sjávarútvegur var
14% af útflutningstekjum landsins
á síðasta ári. Sjávarútvegur er
þriðja mikilvægasta tekjulind
landsins.
Sverrir sagði að íslensk fýrir-
tæki hefðu ekki gert mikið af því
að flytja út vörur á þetta markaðs-
svæði en menn væru að þreifa
fyrir sér. „Það þarf að fylgja þess-
ari ferð vel eftir og leggja enn
meiri vinnu í þetta. Ég sé Chile
sem stökkpall fyrir hin Suður-
Ameríkulöndin og á ég þá aðallega
við Argentínu, Urúgvæ, Perú og
Brasilíu. Chile höfðar vel til okkar
með tilliti til þess hvernig fólkið
er og væri góður staður fyrir bæki-
stöð því ekki er nema um 1-2
klukkustunda flug til hinna land-
anna.“
Sverrir skilaði skýrslu um ferð
sína til Útflutningsráðs og geta
íslensk fýrirtæki sem áhuga hafa
á markaðnum í Chile og Suður-
Ameríku fengið eintak af henni.
Þá verður Sverrir til viðtals á skrif-
stofu Útflutningsráðs næstkom-
andi föstudag.
Vextir á Islandi og
í OECD-löndum
Raunávöxtun
skammtímalána
13,7%
Raunávöxtun ríkisskuldabréfa
8,3%
Spariskírteini rikissjóðs,
meðaltal raunvaxta m.v.
verðbólgu skv. lánskjara-
visitölu, 6,5%
Sjá nánarí umfjöllun í Torginu á bls. 8 B
íslandsbréf 7,9%*
- án bindingar
Þú þarft ekki að festa fé þitt í langan tíma til að njóta
góðrar ávöxtunar.
íslandsbréf, góður kostur fyrir þig.
Ráðgjafar Landsbréfa og umboðsmenn í Landsbanka íslands
um allt land.
LANDSBRÉF H.F.
*
Raurtávöxtun sl. 3 mánuði á ársgrundvelli.
Landsbankinn stendur með okkur
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 91-679200, fax 91-678598
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.