Morgunblaðið - 16.07.1992, Síða 1

Morgunblaðið - 16.07.1992, Síða 1
LANDBÚNAÐUR: Stefnubreyting hjá Goöa hf. vegna breyttra rekstraraðstæöna /4 KAUPSÝSLA: Adidas og raunir Bernards Tapie /7 3Htf9tntUnbift vœsnpn/javiNNOiJF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 16. JUU 1992 BLAÐ B Bílar Horfurá 30% sam- drætti í bílainnflutningi Toyota með mestu markaðshlutdeildina eftir fyrstu sex mánuði ársins INNFLUTNINGUR á nýjum og notuðum bílum fyrstu 6 mánuði árs- ins er 28% minni en á sömu mánuðum í fyrra. Alls var fluttur inn 4.751 bíll þetta árið en fyrstu 6 mánuðina í fyrra voru fluttir inn 6.577 bílar. í júní voru fluttir inn 1.126 bílar sem er 30% minna en var í sama mánuði á síðasta ári. Talsmenn nokkurra bifreiðaumboða sögðu að búast mætti við 30% samdrætti þetta árið miðað við síð- asta ár. Samdrátturinn er helst rakinn til efnahagsástandsins auk þess hafi það áhrif hversu mikið af notuðum bílum er í umferð. Á fyrstu 6 mánuðunum í fyrra var búið að flytja inn 55% af öllum bílum ársins. Ef tekið er mið af því má búast við að heildarinnflutning- ur ársins verði rúmlega 8.600 bílar miðað við 11.900 bíla á árinu 1991. Þeir sem rætt var við töldu þó að fólksbílainnflutningur yrði ekki meira en 7.000-7.400 fólksbílar. Fluttir hafa verið inn 3.895 nýir fólksbílar frá janúar til júní á þessu ári en á sama tíma í fyrra voru flutt- ir inn 5.138 sem er um 24% sam- dráttur. Innflutningur nýrra og not- aðra sendibifreiða hefur dregist saman um 43% og vörubifreiða um 31%. Eins og sést á meðfylgjandi korti er Toyota með mestu markaðshlut- deildina eða 21%, næst kemur Dai- hatsu með 13%, þá Mitsubishi með 12,5%, Nissan með 11,7% og AE- Lada með 6,2%. Japanskir bílar hafa yfírburðastöðu á markaðnum en rúmlega 70% fólksbílanna koma þaðan. Toyota hefur náð forystunni í innflutningnum og sagði Emil Grímsson markaðsstjóri hjá P. Samúelsson hf. að fyrirtækið stefni að því að halda þeirri forystu. „Ákveðin markaðsstefna var mótuð fyrir nokkrum árum og við höfum haldið okkur við hana. Hlutirnir virðast ætla að ganga eftir því sem við settum okkur til lengri tíma.“ Emil sagði að þeir hefðu reiknað með 30% samdrætti en búast mætti við að samdrátturinn yrði enn meiri. Mitsubishi sem var á sama tíma í fyrra leiðandi á markaðnum með tæplega 19% er nú komin í þriðja sætið með 12,5%. Finnbogi Eyjólfs- son blaðafulltrúi Heklu hf. sagði að það væri eðlilegt því mest seldi bíllinn, Mitsubishi Lancer, kæmi ekki fyrr en í byijun ágúst. Hann sagði að það væri ekki markmið í sjálfu sér að vera með mestu mark- aðshlutdeildina því stefndi fyrirtæk- ið ekki sérstaklega að því. Finnbogi sagði að almennt efnahagsástand í landinu væri orsökin fyrir sam- drættinum og búast mætti við 30% samdrætti á árinu. Brimborg hf. hefur aukið mark- aðshlutdeild sína mest, úr 5% í 13,2%. Þessi aukna markaðshlut- deild er skýrð að hluta vegna inn- flutnings á 200 Daihatsu Charade bílum sem áttu að fara til Júgóslav- íu en voru seldir hér á landi. Egill Jóhannsson markaðsstjóri hjá Brimborg hf. sagði að búast mætti við að samdrátturinn yrði um 30% á árinu. Ástæðuna sagði Egill vera minni kaupmátt og lægra verð á notuðum bílum. „Þegar nýjar ár- gerðir koma í september ýtir það sölunni eitthvað upp en líklegt er að innflutningurinn verði töluvert minni en í fyrra.“ Nissan bílarnir hafa aukið mark- aðshlutdeild sína úr 8,3% í tæp 12%. Jakob Möller hjá Ingvari Helgasyni hf. sagði að allir vildu halda sínum hlut og helst auka hann þótt baráttan væri ekki hörð. Hann sagði að búast mætti við áframhaldandi samdrætti því fólk léti fjárfestingar í bílum bíða vegna efnahagsástandsins. „Ég á von á að miðað við stöðuna í dag verði allt jákvætt sem er minna en 30% samdráttur." 5346 Bílsrinnflutnmgup dpegst saman! Innflutingur nýrra og notaðra bíla jan.- júní 1991 og 1992 Fólksbílar '91C '92 'iOYOTA Sendibílar 118,5% 621,0% 5,0% 13,2% 318’8% 12,5% Vörubílar Mest seldu fólksbíla- tegundirnar 3 8,3% 11,7% 16,5% 6,2% 42,9% Aðrar tfcrjvintii! 35,4% NýskPánlng bilreiöa 1990 - maí 1992 1600 JFMAMJJÁSONDJFMAMJJÁSONDJFMAM FYRIH ÞÁ SEM GETA ÁKVEÐK) FERÐIR SÍNAR MEÐ MEIRA EN FJÖGURRA DAGA FYRIRVARA 1 SAGA Nýja Saga Class sérgjaldið,* sem er 20% lægra en fullt Saga Business Class v ■» BUSINESS fargjald, gildir frá öllum áfangastöðum innanlands. Saga Class sérgjald er CLASS bundið þvf skilyrði að bókað sé og greitt samtímis a.m.k. fjórum dögum fyrir brottför. Saga Class sérgjald gildir einungis báðar leiðir í beint flug og er miðað við að flogið sé fram og til baka á sömu flugleið. Heimferð þarf að bóka með a.m.k. fjögurra daga fyrirvara. (DCB Saga Class sérgfald gildir tií eftirtalinna áfangostoða: Kaupmannahöfn, Ósló, Gautaborg, Stokkhólmur, Helsinki (1.6. - 7.9.), Glasgow, London, Amsterdam, Lúxemborg. *háó samþykki yfirmMa. Giidistimi tit 31.10.1992_________ FLUGLEIDIR Traustur tslenskur ferðafélagi af2P% fsl»ttur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.