Morgunblaðið - 16.07.1992, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 16.07.1992, Qupperneq 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ VHM0UPH/ATVINN1ILÍF FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1992 Gisting Hótelnýtíngin er á bilinu 80-85% ísumar Ferðamönnum hefur fækkað frá sama tíma í fyrra FERÐAMÖNNUM hingað til FERÐAMENN — Erlendum ferðamönnum til íslands hefur fækkað nokkuð í sumar frá því sem var í fyrra. í hótelnýtingu virðist sá samdráttur hafa komið fram sem menn gerðu almennt ráð fyrir í upphafí tímabilsins. Störfum í íslenskum iðnaði fækkaði um tæp- lega 1.200 á einu ári STÖRFUM í íslenskum iðnaði fækkaði um 1.000-1.200 á tólf mánaða tímabili skv. niðurstöðum könnunar á vegum Félags íslenskra iðnrekenda og Landssambands iðnaðarmanna. í þeim greinum iðnaðar sem könnunin nær til benda fyrstu niðurstöður til að störfum hafi fækkað um 500-600 og eftir því sem segir í nýjasta fréttablaði íslensks iðnaðar, A döf- inni, þar sem greint er frá niðurstöðunum, má álíta að störf- um í iðnaði í heild hafi fækkað helmingi meira. Slíkt sam- svari 6,5% af vinnuaflsnotkun viðkomandi iðngreina. lands hefur fækkað nokkuð fra því sem var í fyrra. í júnímánuði komu 21.653 útlendingar til landsins, en á sama tíma í fyrra voru þeir 22.251. í samtölum við nokkra hótelstjóra í Reykjavík og í Hveragerði kom fram að hótelnýtingin væri viðunandi miðað við almennt efnahags- ástand og fækkun ferðamanna hingað til lands. Nýtingin í sumar lítur út fyrir að vera á bilinu 80-85% sem er heldur lakari en í fyrra, en svo virðist sem flestir hafi gert ráð fyrir samdrætti. Stærstur hluti þeirra sem gista hótelin eru Þjóðveijar og Skand- inavar. Þórunn Reynisdóttir hótelstjóri Hótel Loftleiða sagði að nýtingin væri viðunandi en gæti verið betri. Nýtingin var 73% í maí, 84% í júní og áætlanir fyrir júlí og ágúst eru um 80%. Þórunn sagði að nýtingin væri heldur lakari en í fyrra en í samræmi við það sem búist hafði verið við og áætlanir fyrir haustið væru þokkalegar. „Helstu ástæð- umar fyrir að ekki er meiri nýting er að almennt er ekki ferðast eins mikið og það er dýrt fyrir ferða- menn að vera hér.“ Þórunn sagði að breiður hópur fólks gisti á Loft- ieiðum bæði frá Bandaríkjunum og Evrópu. Hótel Holt er með lakari nýtingu en í fyrra í júní og júlí. Skúli Þor- valdsson hótelstjóri sagði að þeir fínndu fyrir því að samdráttur væri í viðskiptum bæði hér og erlendis en hótelið er fyrst og fremst með gistingu fyrir einstaklinga í við- skiptaerindum en ekki hópa. Þá sagði hann að samdráttur væri einnig í gistingu hjá erlendum lax- veiðimönnum en aukning hefði aft- ur á móti verið í gistingu ferða- manna. „Við gerðum ráð fyrir sam- drætti á þessu ári og því næsta þannig að nýtingin er svipuð og búist var við. Þetta kemur okkur ekki á óvart." Af einstökum þjóð- emum er mest af Bretum, Dönum, Svíum og Þjóðvetjum sem gista á Holtinu. Jónas Hvannberg hótelstjóri Hót- el Sögu sagðist vera ánægður með nýtinguna í sumar en hún væri heldur slakari en í fyrra. í maí var hún 74% og júní 83%. í júlí og ágúst er áætlað 85% en minna í september. „Ferðamönnum hefur fækkað auk þess hefur orðið gífur- leg aukning í gistirými í Reykja- vík.“ í maí og júní eru það helst Skandinavar sem gista Hótel Sögu en í júlí Þjóðveijar og Svisslending- ar. Ferðafólki frá Italíu fer fjölg- andi og þá hefur verið töluvert af Japönum. Wilhelm Wessman hótelstjóri Holiday Inn sagði að nýtingin það sem af væri sumri væri góð eða í kringum 87%. Hann sagði að búist væri við sömu nýtingu í ágúst en september væri enn óskrifað blað. Nýtingin er svipuð og var í fyrra en Vilhelm sagði að það væri stað- reynd að offramboð væri á gistirými í Reykjavík og ef litið væri á allt árið yrði útkoman ekki góð. „Það þarf miklu meira en þessa 90 daga sem ferðamennirnir eru hér til að byggja á.“ Á Holiday Inn gistir mikið af fólki frá Þýskalandi, Aust- urríki og Skandinavíu. Nýting á Hótel Örk í Hveragerði hefur verið þokkaleg og samkvæmt áætlun að sögn Jóns Ragnarssonar hótelstjóra. Jón sagði að í júní hefði nýtingin verið aðeins betri en í fyrra eða 60% þó hefðu orðið óvænt aföll í byrjun mánaðarins. í júlí og ágúst er nýtingin áætluð 85%. „Ég á von á að þetta verði gott sumar og við höldum því striki sem við ætluðum okkur.“ Jón sagði að ferðafólk frá Þýskalandi væri í meirihiuta en einnig væri mikið af Bretum og Frökkum. Ofangreindar niðurstöður fást með því að bera saman svör iðnfyrirtækja um vinnuafl- snotkun fyrstu sex mánuði þessa árs samanborið við sama tíma í fyrra. Þegar velta þess- ara fyrirtækja fyrir sömu tíma- bil er skoðuð sést að hún hefur dregist saman um 2,0-2,5% að raungildi. í fréttablaðinu segir að fækkun starfa umfram sam- drátt veltu beri vott um að tölu- verð hagræðing fari nú fram meðal iðnfyrirtækja, en mikil árstíðasveifla er bæði í vinnu- aflsnotkun og veltu. Umræddri könnun á umsvif- um og horfum í iðnaði var hleypt af stokkunum í byijun maí sl. undir heitinu Iðnaðar- horfur. Fyrirspumir verða sendar til aðildarfyrirtækja Félags íslenskra iðnrekenda og Landssambands iðnaðarmanna á tveggja mánaða fresti og munu niðurstöður verða birtar með reglubundnum hætti. Þau aðildarfyrirtæki FÍI sem fyrstu niðurstöður könnunar- innar byggja á veltu á síðasta ári 34 milljörðum króna og höfðu 3.700 starfsmenn í fullu starfi, en gert er ráð fyrir að þessar fyrstu niðurstöður eigi við um 63 milljarða veltu og um 8.300 ársverk. Verslun Nýr eigandi Kosta Boda EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Hof sf. sem á Hagkaup og Ikea keyptí í síðustu viku verslunina Kosta Boda í Kringlunni. Ingi- björg Pálmadóttír mun reka verslunina og sagði hún i sam- tali við Mbl. að ætlunin væri að vera með sömu vörumerki og seld hafa verið í versluninni en vöruúrval yrði aukið til muna. Kosta Boda verður rekið sem sjálfstætt fyrirtæki og ekki í neinum tengslum við Hagkaup né Ikea. Ingibjörg sem er innan- hússarkitekt og hefur starfað lengi í Hagkaup sagði að ekki verði gerðar neinar breytingar til að byija með en í haust væri von á nýjum vörum. Vörumerkin sem fyrir eru verða seld áfram og bætt inn í þær línur. Verslunin var í eigu Guðrúnar Steingrímsdóttur og Más Egils- sonar og mun Guðrún starfa áfram í versluninni. íslenski lífeyrissjóðurinn - Séreignasjóður í umsjá Landsbréfa hf. Öllum íslendingum ber skylda til að greiða í lífeyrissjóð. Þeir sem ekki verða lögum samkvæmt að vera í ákveðnum lífeyrissjóði, geta greitt allt framlag sitt í íslenska lífeyrissjóðinn. Allir einstaklingar, sem samkvæmt lögum greiða í aðra lífeyrissjóði, geta greitt viðbótariðgjald í sjóðinn. Framlag hvers sjóðfélaga og mótframlag atvinnurekenda, auk vaxta og verðbóta, er séreign hans og nýtist honum einum eða erfingjum hans. Árið 1991 skilaði sjóðurinn 8,11% ávöxtun umfram lánskjaravísitölu. Sótt er um aðild að íslenska lífeyrissjóðnum á sérstökum eyðublöðum sem liggja frammi hjá Landsbréfum og umboðsmönnum Landsbréfa í útibúum Landsbanka íslands um allt land. LANDSBRÉF H.F. Lcmdsbankinn stendur meö okkur Suðurlandsbraut 24, 108 Heykjavik, sími 91-679200, fax 91-678598 í Löggilt verðbréfafyrlrtœki. Aðlli að Vcrðbréfaþlngi tslnnds. <

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.