Morgunblaðið - 16.07.1992, Page 3

Morgunblaðið - 16.07.1992, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNPLÍF kimmtudaguh 16, JULI 1992 B 3 Tryggingar * Hagnaður Islenskrar end- urtryggingar 44 milljónir HAGNAÐUR íslenskrar endurtryggingar nam alls um 44 milljón- um króna á sl. ári samanborið við um 28,5 milljónir árið áður. Stjórn félagsins ákvað að greiða áhættufjármagnseigendum 12% arð af áhættufé og þegar tekið hefur verið tillit til arðgreiðslunn- ar nam raunarðsemi eigin fjár félagsins um 9% á sl. ári. Ríkissjóð- ur og Tryggingastofnun ríkisins eiga tæplega 40% af áhættufé íslenskrar endurtryggingar en áformað er að ríkið selji sinn hlut í félaginu. Mun Verðbréfamarkaði íslandsbanka líklega verða fal- ið að annast söluna á næstunni. Áhættufé sem svarar til hlutafjár í hlutafélögum nam alls 113 milljónum í árslok eftir að það var aukið um 25% með útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Iðgjöld ársins hjá félaginu námu alls um 1.023 milljónum en tjón ársins 995 milljónum á árinu 1991. Eigin iðgjöld ársins þ.e. iðgjöld ársins að frádregnum iðgjöldum til endurtryggjenda félagsins námu 300 milljónum og höfðu aukist um 17% frá árinu áður. Þá námu fjármunatekjur 163 milljón- um en voru 123 milljónir árið áður. Stærstu áhættufjármagnseig- endur félagsins eru Ríkissjóður með 37,2%, Sjóvá-Almennar tryggingar hf. 14,7%, Trygging- amiðstöðin 10,3%, Burðarás hf. 5,5%, Samvinnutryggingar g.t. 5,1%, Brunabótafélag íslands 3,9% og Tryggingastofnun ríkisins 2,7%. Stjórn félagsins skipa nú þeir Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri, formaður, Stefán Guðmundsson, alþingismaður, varaformaður, Einar Sveinsson, framkvæmda- stjóri, Gísli Ólafsson, f.v. forstjóri og Óttarr Möller, f.v. forstjóri. Framkvæmdastjóri félagsins er Bjarni Þórðarson, tryggingastærð- fræðingur. Islensk endurtrygging var upphaf- lega stofnað haustið 1939 og hét þá Stríðstryggingafélag íslenskra skipshafna. Hlutverk þess var að tryggja áhafnir íslenskra skipa gegn ófriðaráhættu. Nafni félags- ins var síðar breytt og hlutverk þess víkkað út. Er starfsemin nú eingöngu bundin við endurtrygg- ingar fyrir íslensk vátiyggingarfé- lög en félagið tók um tíma nokk- urn þátt í alþjóðlegri vátrygging- arstarfsemi. Fjármál Hagnaður Fiskveiða- sjóðs röskar 122 m.kr. LÁNVEITINGAR Fiskveiðasjóðs íslands á árinu 1991 námu alls l. 475,2 m.kr. og höfðu lækkað talsvert frá árinu 1990 þegar þær námu 2.605,2 m.kr. Lán til fiskiskipa námu í fyrra alls 1.165,6 m. kr. á móti 2.337,7 árið á undan. Lánveitingar í formi fasteigna- veðlána námu alls 309,6 m.kr. á árinu 1991 samanborið við 234,5 m.kr. árið áður, að því er fram kemur í ársskýrslu sjóðsins. Fiskiskipalánin skiptust þannig að veitt voru lán til innfluttra fiski- skipa á árinu fyrir alls 286,2 m.kr. Til innlendra skipasmíða var varið 220,5 m.kr. á móti 96,7 m.kr. árið áður. Lán til endurbóta á skipum og tækja á árinu 1991 námu 637,2 m.kr. en 891,4 m.kr. árið á und- Iðnaður Ómega farma setur sýklalyfá markað 25% ódýrara en samsvarandi erlent lyf ÓMEGA farma hf. hefur sett sitt fyrsta lyf á markað en þar er um að ræða breiðvirkt sýklalyf, Cíflox, sem inniheldur efnið cípró- floxacín sem talið er eitt af mikilvirkari sýklalyfjum til inntöku. Lyfið er 25% ódýrara en samsvarandi erlent lyf og sagði Friðrik Kristjánsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins að Ómega farma muni kappkosta að bjóða lyf sem talin eru með þeim bestu á hag- kvæmu verði. Samsvarandi lyfinu sem Ómega farma setti á markað nú í byijun júlí er erlenda sérlyfið Ciproxin sem að sögn Friðriks var fyrir rúmu ári söluhæsta sýklalyf á ís- landi en eftir að sjúklingum var gert að greiða sýklalyf að fullu dró mjög úr notkun þess. Fyrr á árinu setti Ómega farma Biomega vítamín á markað og eru þau nú seld í öllum apótekum landsins. Ómega farma stefnir að því að framleiða lyf sem hingað til hafa ekki verið framleidd hér á landi og er fyrirtækið meðal ann- ars í samvinnu við erlent lyfjafyrir- tæki sem sérhæfir sig í þróun lang- virkra lyfjaforma sem leyfa færri inntökur á dag. Ómega farma hefur fengið framleiðsluleyfi frá þessu fyrirtæki og er fyrirhugað að setja slík lyf á markað á næstu mánuðum. Þá er fyrirtækið um- boðsaðili fyrir nokkur lyfjafyrir- tæki í Evrópu. Ómega farma hf. er íslenskt almenningshlutafélag um lyfja- framleiðslu sem stofnað var 1990. Hjá fyrirtækinu starfa þrír lyfja- fræðingar auk Friðriks, Birkir Ámason deildarstjóri framleiðslu, Sigríður Björnsdóttir deildarstjóri gæðaeftirlits og Trausti Pétursson deildarstjóri vöruþróunar. Hlut- hafar eru um 70 og hlutafé 40 milljónir. an. Hagræðingarlán til fiskiskipa námu alls 21,7 m.kr. á árinu. Útistandi lán Fiskveiðasjóðs námu í árslok 1991 alls tæpum 21 milljarði króna og höfðu lækk- að um 464,7 milljónir frá fyrra ári eða um 2,2%. Af þessari fjár- hæð liggja um 16,7 milljarðar í fiskiskipum en um 3,9 í fasteigna- lánum. Fjármunatekjur sjóðsins á síðasta ári vom alls röskir 2,6 milljarðar en fjármagnsgjöld vom um 2.050 m.kr. Framlag á afskriftareikning á sl. ári var alls um 268,5 milljónir og voru á afskriftareikningi í árs- lok alls um 577 miljónir króna sem er um 2,75% af útlánum. Á síð- asta ári vom færðar út um 6,8 milljónir vegna afskrifta skv. skýr- ingum við ársreikninginn. Hagn- aður ársins var alls 122,3 milljón- ir á móti 149 milljónum árið áður. Heildareignir Fiskveiðasjóðs í árslok 1991 vom um 23,6 milljarð- ar og eigið fé röskir 4 milljarðar. Ábyrgðarskuldbindingar sjóðsins em í fyrsta lagi um 32,2 milljónir í veittar ábyrgðir vegna fiskeldis- stöðva og lífeyrisskuldbindingar sjóðsins er áætlaðar um 154,3 milljónir skv. mati tryggingar- stærðfræðings, en fram kemur að ekki hefur verið myndaður sér- stakur eftirlaunasjóður til að mæta þessum skuldbindingum enn sem komið er. Forstjóri Fiskveiðasjóðs er Már Elísson en stjómarformaður Björgvin Vilmundarson. VfiRUSnPIH :-A. VBÚnÖND 1fl§ r Verðmæti vöruút- og innflutnin; jan. til maí 1991 og ’92 199 (fob virði í milljónum króna) jan.- maí 1992 % jan.- mai breyting Útflutningur alls (fob) 37.670,4 36.783,7 -2,4 Sjávarafurðir 30.715,1 29.805,3 -3,0 Ál 3.483,4 3.371,3 -3,2 Kísiljárn 500,8 720,4 43,8 Skip og flugvélar 0,8 99,3 Annað 2.970,3 2.787,4 -6,2 Innflutningur alls (fob) 37.503,2 33.901,8 -9,6 Sérstakar fjárfestingarvörur 2.667,0 2.084,8 -21,8 Skip 422,0 502,0 19,0 Flugvélar 1.941,0 1.561,0 -19,6 Landsvirkjun 304,0 21,8 -92,8 Tilstóriðju 2.317,9 2.298,1 -0,9 íslenska álfélagið 2.095,0 2.124,9 1,4 íslenska járnblendifélagið 222,9 173,2 -22,3 Almennur innflutningur 32.518,3 29.518,9 -9,2 Olía 2.572,8 2.266,7 -11,9 í Almennur innflutningur án olíu 29.945,5 27.252,2 -9,0 I Vöruskiptajöfnuður 167,2 2.881,9 88 Án viðskipta íslenska álfélagsins Án viðskipta íslenska álfélagsins, -1.221,2 1.635,5 ! 7 islenska jámblendifélagsins ' ' -,?«■-> '-■3T og sérstakrar fjárfestingarvöru 1.167,1 3.073,8 Miðað er við meöalgengi á viðskiptavog; á þann mælikvarða er verð ertends gjaldeyns taSð vera óbreytt I maí 1992 frá þvi sem það var á sama tíma árið áður. Viðskipti Vöruskiptajöfnuður hag- stæður um 2,9milljarða VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR fyrstu fimm mánuði ársins var hag- stæður um 2,9 milljarða króna. Á þessum tíma voru fluttar út vörur fyrir 36,8 milljarða króna, en verðmæti vöruinnflutnings nam 33,9 mil|jörðum skv. upplýsingum frá Hagstofu íslands. Fyrstu fimm mánuðina í fyrra var vöruskiptajöfnuðurinn liagstæður um 0,2 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuður í maí var hagstæður um 2,7 milljarða þar sem fluttar voru út vörur fyrir 9,7 milljarða og inn fyrir 7 milljarða króna. í maí í fyrra var vöruskipta- jöfnuðurinn hagstæður um 1,3 milljarða á föstu gengi. Verðmæti vöruútflutnings fyrstu fimm mánuði þessa árs var 2% minna á föstu gengi en á sama tíma í fyrra eins og sjá má af kortinu hér að ofan. Sjávarafurðir námu um 81% alls útflutningsins, en voru um 3% minni en á sama tíma í fyrra. Útflutningur á áli var einnig 3% minni en í fyrra, en útflutningur kísiljárns jókst hins vegar um 44% á milli ára. Fyrstu fimm mánuðina var verðmæti vöruútflutnings 10% minna en á sama tíma í fyrra. Innflutningur sérstakrar fjárfest- ingarvöru, þ.e. skipa, flugvéla og vöru til Landsvirkjunar, varð 22% minni en í fyrra. Þá var verðmæti innflutnings til stóriðju 1% minná en í fyrra og verðmæti olíuinn- flutnings 12% minna reiknað á föstu gengi. GfflAFUSARÁGÓÐlTERBl m Stórhöfða 17, við GuUinbrú, sími 67 48 44 9.6% Arsávrixtim umliam verribrilgu s.l. I’> mán. SJOÐSBREF5 Mjög öruggur sjóður sem eingöngu fjárfestir í ríkistryggðum skuldabréfum. VlB VERÐBRÉFAMABKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Simi 68 15 30. Meö Fellowes P-50 pappírstætara viö skrifborðið veröa gögnin áfram trúnaðarmál. Verö með fötu 15.565 kr. stgr. ÁRVÍKHF ARMULI I • REVKJAVIK • SlMI 687 222 TELEFAX 687 295

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.