Morgunblaðið - 16.07.1992, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 16.07.1992, Qupperneq 4
4 B MQRGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1992 1*4 Framleiðsla Goði hf. mætir harðnandi samkeppni í búvörusölu Útflutningsbætur lagðar af í haust og erlendir keppinautar bíða hinum megin við homið, svo að Þorgeir B. Hlöðversson, stjómarformaður Goða hf., segir stefnubreytingu nauðsynlega til að bregðast við breyttu rekstrarumhverfi. HORFUR eru á harðnandi samkeppni í sölu landbúnaðarafurða hér á landi á næstu mánuðum. Með haustinu verða útflutningsbæt- ur á landbúnaðarafurðir lagðar af og í kjölfar samninga um Evr- ópskt efnahagssvæði og GATT bíða erlendir keppinautar hinum megin við hornið eftir tollalækkunum og að viðskipti með landbún- aðarvörur verði gefin frjáls. Gert er ráð fyrir verulegum niður- skurði á ríkisaðstoð og líkur eru á að takmarkaður innflutningur ýmissa landbúnaðarafurða verði leyfður þegar í upphafi næsta árs. Goði hf., sem er markaðs- og sölufyrirtæki í eigu sláturleyfis- hafa víðsvegar um landið, er að ganga í gegnum viðamikla endur- skipulagningu vegna þessa breytta rekstrarumhverfis. Morgunblaðið/Emilia STEFNUBREYTIIMG — „Við höfum náð verulegum ár- angri í kostnaðaraðhaldi," segir Þorgeir B. Hlöðversson, stjórnarform- aður Goða hf. Útfiutningsbætur á landbúnað- arafurðir, þar sem ríkissjóður legg- Ur fram §ármagn til að greiða framleiðendum og afurðastöðvum mismuninn á fullu verði og því raunverulega verði sem fæst fyrir hið umsamda búvörumagn við sölu á innlendum og erlendum mörkuð- um, námu alls 2.078 milljónum króna á sl. ári. Þar af var lögbund- ið framlag ríkissjóðs skv. búvöru- samningi 1.465 milljónir, en skv. lögum skal það vera að jafnvirði allt að 9% af heildarverðmæti land- búnaðarafurða á hveiju ári. í síð- asta búvörusamningi ábyrgðist rík- issjóður þannig að bændur fengju fullt verð fyrir 104,5 milljónir lítra mjólkur og 10.050 tonn kindakjöts á verðlagsárinu 1991/1992. Á síð- asta ári kom einnig til greiðslu 277 milljóna afborgun af láni sem sem gá * Island og Evrópska efnahags- svæðið í tölum HAGSTOFA Evrópusam- bandsins og Fríverslunarsam- tök Evrópu, EFTA, hafa í sam- einingu gefið út talnakver um Evrópska efnahagssvæðið, EES. Talnakverin eru gefin út á öllum tungumálum EFTA- ríkjanna en eru að öðru Ieyti eins að efni og útliti. íslenska útgáfan nefnist EES í tölum - Tölulegar upplýsingar um ís- land og Evrópska efnahags- svæðið. EES í tölum er 32 bls. og hefur að geyma margs konar fróðleik um mannfólkið og umhverfið, efnahagslífíð og daglegt líf í aðild- arríkjum EB og EFTA eftir því sem segir í fréttatilkynningu frá Hagstofu íslands. Hagstofa EB og skrifstofa hagskýrsluráðgjafa EFTA ritstýrðu kverinu en Hag- stofa íslands aflaði upplýsinga hér á landi. Hagstofa íslands og viðskipta- skrifstofa utanríkisráðuneytisins annast dreifingu kversins. Hag- stofan mun dreifa því til áskrif- enda sinna, en auk þess er kverið fáanlegt í afgreiðslu Hagstofunnar að Skuggasundi 3 og í viðskipta- skrifstofu utanríkisráðuneytisins að Hverfisgötu 115 í Reykjavík. Framleiðsluráð landbúnaðarins tók 1988 til greiðslu útflutningsbóta ásamt því sem heimilaður var út- flutningur á 550 tonnum af kinda- kjöti umfram forsendur fjárlaga gegn því að greiðsla uppbóta úr ríkissjóði kæmi á næsta fjárlaga- ári. Búvörusamningurinn sem gerð- ur var í mars 1991 felur í sér aðlög- un sauðfjár- og mjólkurframleiðslu að innanlandsmarkaði á árinu 1992, en frá þeim tíma taka bænd- ur og afurðastöðvar á sig alla ábyrgð á búvöruframleiðslunni. Þannig verður horfið frá greiðslum útflutningsbóta á sauðfjár- og mjólkurafurðir og munu afskipti ríkisins af þessum framleiðslu- greinum minnka verulega eftir því sem segir í stefnu og starfsáætlun núverandi ríkisstjórnar. Goði hf. bregst við samdrætti í landbúnaði og afnámi útflutningsbóta Goði hf. tók til starfa 1. janúar 1991 með yfirtöku rekstrar og efnahags Búvörudeildar Sambands íslenskra samvinnufélaga, en Sam- bandið á 49% í Goða. Fyrirtækið, sem er í meirihlutaeigu kaupfélaga og sláturleyfishafa um land allt, annast sölu, dreifíngu og vinnslu búfjárafurða, einkum þó umboðs- sölu fyrir sláturleyfíshafa. Verulegar sparnaðaraðgerðir hafa verið í gangi hjá Goða undan- farna mánuði. A síðasta aðalfundi félagsins, sem jafnframt var sá fyrsti eftir að Goði yfirtók rekstur Búvörudeildar Sambandsins, kom fram að heildartekjur félagsins á sl. ári námu 3.316 milljónum króna og höfðu minnkað um 465 milljón- ir eða um 12% frá veltu Búvöru- Auk þess að vera með Johnson utanborðsmótora hefur fyrirtækið meðal annars tekið við umboðum fyrir Ryds plastbáta, Avon gúmmí- báta, Nitro sjóskíðabúnað og björgunarvesti, Optinaut auka- hluti fyrir báta og bátahreinsiefni, SysteMatched aukahluti fyrir ut- anborðsmótora og OMC Cobra bátavélar með hældrifí. íslenska umboðssalan sér um alla varahluti og þjónustu fyrir þessar vörur. deildarinnar árið áður. Þá varð rúmlega 46 miiljóna tap á rekstri Goða í fyrra samanborið við 7 milljón króna hagnað árið áður. Hlutfall útflutnings af heildarveltu var um 32,5% í fyrra samanborið við 29,8% árið 1990. Þriðjungs samdráttur í kjölfar afnáms útflutningsbóta „Við horfum fram á miklar breytingar á rekstrarumhverfí okk- ar á næstunni. Til að bregðast við í tíma og tryggja rekstur Goða til framtíðar hófst strax á síðasta ári vinna við stefnumótun fyrirtækis- ins. Meginþungi þeirrar vinnu var á fyrrihiuta þessa árs og sú endur- skipulagning rekstrar sem hófst í maí sl. byggist á þeirri stefnumót- unarvinnu," sagði Þorgeir B. Hlöð- versson, stjórnarformaður Goða, í viðtali við Morgunblaðið. „Útflutn- í fréttatilkynningu kemur fram að Johnson bjóði upp á mikið úr- val þar sem finna megi allt frá litlum rafmótorum upp í 300 hest- afla V8 mótora. Þá sé hægt að fá sérstaka vinnumótora fyrir at- vinnumenn. Ennfremur segir að Avon hafi sett á markað fjöl- breytta línu af sportbátum, allt frá tveggja manna smábátum til sex til átta manna 5 metra harðbotna gúmmíbáta. ingur á kindakjöti og skyldum af- urðum hefur nær eingöngu verið á hendi Goða og undanfarin ár hefur hann numið um 30% af umsvifum fyrirtækisins. Afnám útflutnings- bóta í haust og samdráttur í land- búnaði í kjölfar þess, mun því koma sérstaklega illa við okkur og því er mikilvægt að bregðast rétt við,“ sagði Þorgeir. Meðal sparnaðarráðstafana sem gripið hefur verið til hjá Goða er sameining allrar starfseminnar undir einu þaki í húseign félagsins á Kirkjusandi, m.a. skrifstofuhaldið sem áður var að hluta í Sambands- húsinu. „Afraksturinn er aukin virkni auk sparnaðar," sagði Þor- geir. Þá hefur starfsfólki verið fækkað, en í vor voru tilkynntar uppsagnir 20 starfsmanna hjá fyr- irtækinu. „Með þessum aðgerðum er verið að einfalda rekstur fyrir- tækisins verulega og gera alla stjórnun markvissari. Auk fyrr- nefndra aðgerða var hert á virku kostnaðaraðhaldi í öllum þáttum rekstrarins." Þorgeir sagði enn- fremur að viðamiklar breytingar á rekstri fyrirtækisins hefði eðlilega í för með sér breytingu á starfi framkvæmdastjóra. Fram að þessu hefði stór hluti starfsins falist í hagsmunagæslu gagnvart hinu op- inbera, en nú stefndi í að fyrst og fremst yrði um að ræða baráttu á markaði. Eins og fram hefur komið sagði Árni S. Jóhannsson starfi sínu lausu sem framkvæmdastjóri Goða eftir að stefnubreytingar í rekstri félagsins voru kynntar, en nýr framkvæmdastjóri hefur ekki enn verið ráðinn. Áhersla á innanlandsmarkað en áfram unnið að útflutningi „Afnám útflutningsbótanna leiðir til þess að aðalmarkmið okkar verð- ur að halda stöðunni á innanlands- markaði," sagði Þorgeir. „Við höf- um þegar breytt sölustarfi okkar verulega í þessa þágu og munum áfram vinna markvisst að markaðs- Verslun * Islenska umboðs- salan með sýningu ÍSLENSKA umboðssalan hf. hefur tekið við umboði fyrir John- son utanborðsmótora auk fjölda annarra umboða fyrir vatn- og sjóíþróttavörur. í sumar verður úrval af vörunum til sýnis á Seljavegi 2 í sýningarsal íslensku umboðssölunnar. og framleiðslumálum í fyrirtækinu til að auka sveigjanleika þess og þjónustu við kaupmenn og neytend- ur. Mikið starf er óunnið, en það sem þegar hefur verið gert virðist skila árangri því Goði hefur aukið söluna á innanlandsmarkaði það sem af er þessu ári miðað við sama tíma í fyrra.“ Þrátt fyrir að aðaláherslan verði lögð á að styrkja stöðuna á innan- landsmarkaði er ekki á stefnu- skránni að leggja útflutning land- búnaðarafurða af hjá Goða. „Það er Ijóst að það verður áfram til umframkjöt sem þarf að flytja út og það verður bara selt á því verði sem fyrir það fæst á hveijum mark- aði.“ Að sögn Þorgeirs þarf það verð sem fengist hefur fyrir íslenskt dilkakjöt á erlendum mörkuðum að hækka talsvert til að dæmið geti gengið upp hjá framleiðendum án útflutningsbóta. „Jafnvel í Færeyj- um sem hefur verið besti markaður okkar undanfarið þurfum við að fá hærra verð.“ Viðbrögð við afnámi innflutningshafta Innflutningstakmarkanir sem verið hafa á landbúnaðarvörum hér á landi hafa eðlilega styrkt stöðu íslensks landbúnaðar til muna. Nú má hins vegar vænta breytinga þar á og íslenskir framleiðendur þurfa að búa sig undir samkeppni við innfluttar landbúnaðarvörur. „Slát- urleyfishafar þurfa að standa mun meira á eigin fótum þegar sú vernd sem verið hefur í landbúnaði hverf- ur eins og allar líkur eru á. Það er nokkuð ljóst að í kjölfarið mun harðna verulega á dalnum hjá mörgum þeirra," sagði Þorgeir. Hluti af stefnumótunarvinnu Goða hefur falist í að undirbúa fyrirtækið sem best undir væntan- legt afnám innflutningshafta um næstu áramót. „Framleiðsla okkar stenst fyllilega samanburð við inn- fluttar landbúnaðarvörur hvað gæði varðar. Verðsamkeppnisstaða okkar er hins vegar slæm og í því sambandi er mikilvægt að menn geri sér grein fyrir því hvað liggur að baki verðlagningar á íslenskum landbúnaðarafurðum samanborið við aðstæður í öðrum löndum. Sam- hliða niðurskurðaraðgerðum þarf hið opinbera að hlú að þessari at- vinnugrein hvað almennar rekstr- araðstæður varðar. Jafnframt er sláturleyfishöfum og bændum það nú fyllilega ljóst að nauðsynlegt er að lækka verð á framleiðslunni með hagræðingu í rekstri og kostn- aðaraðhaldi. Kostnaður við sölu og dreifingu fyrir sláturleyfishafa hef- ur verið of hár og hjá Goða stefnum við eindregið að því að lækka hann sem allra mest.“ Reksturínn nokkru undir áætlun fyrstu fimm mánuði ársins Rekstrartekjur Goða á síðasta ári námu rúmlega 3,3 milljörðum króna eins og fram kemur hér að ofan og árið var gert upp með 46,7 milljóna tapi. Áætlun fyrir 1992 gerir ráð fyrir rekstrartekjum upp á rúmlega 3,4 milljarða og 27,6 milljóna króna hagnaði af starfseminni. Fyrstu fimm mánuðir þessa árs sýndu hagnað upp á rúm- lega 30 milljónir, en áætlun sama tímabils gerði ráð fyrir rúmlega 37 milljóna króna hagnaði. „Það er rétt að áætlunin stóðst ekki alveg fyrstu fimm mánuðina, enda má segja að markmiðin hafi verið nokkuð háleit. Þó kom í ljós að við höfum náð verulegum árangri í kostnaðaraðhaldi. Nú er bara að halda áfram á þeirri braut. Seinni hluta ársins fer að skila sér árang- ur af þeim hagræðingaraðgerðum sem verið hafa í gangi undanfarið og ég hef því fulla ástæðu til að ætla að okkur miði fram á veg að því marki að styrkja rekstur Goða til framtíðar," sagði Þorgeir að lok- um. HKF

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.