Morgunblaðið - 16.07.1992, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATYINNULÍF FIMMTUDAGUR 16. JÚLÍ 1992
B 5
Pimiu.n.Miii
Markaður fyrir íslenskar set-
laugar í Bandaríkjunum
SETLAUGAR — Fólk frá hinum Norðurlöndunum sem var í vinabæjarheimsókn í Garðabæ, þar sem fyrirtækið Norm-X er til húsa, skoðar hér sérstakar setlaugar (heita potta) sem fyrirtækið fram- leiðir. Þessa dagana er verið að kanna möguleika á útflutningi setiaug- anna til Bandaríkjanna.
eftir Helga Rúnar Óskarsson
Á SAMA tíma og útflutnings-
tekjur okkar Islendinga af
þorskveiðum dragast saman
höfum við tækifæri á að auka
tekjur í öðrum iðngreinum. Þó
að þau mættu vera fleiri eru
til íslensk framleiðslufyrirtæki
sem standa erlendum sam-
keppnisaðilum á sporði. Normi
hf. í Garðabæ er eitt þeirra en
það hefur um áratuga skeið
framleitt vélar og búnað til fisk-
vinnslu. Hin síðari ár hefur fyr-
irtækið fært út kvíarnar og
framleitt margs konar vörur
eins og ruslagrindur fyrir
Kópavogsbæ, rafskaut og ker
fyrir ÍSAL, snigla bæði fyrir
Sementsverksmiðjuna og Járn-
blendiverksmiðjuna, hálfgáma
fyrir Eimskip og ýmsar vörur
sem seldar híifa verið á erlend-
um mörkuðum. Árið 1981 var
dótturfyrirtæki Norma hf.
stofnað undir nafninu Norm-x
og hóf það framleiðslu á fisk-
kerjum og fleiru.
Þegar fram í sótti jukust um-
svif Norm-x og framleiðir það nú,
auk fiskkerjanna, setlaugar (heita
potta) sem hafa notið mikilla vin-
sælda hér á landi síðastliðin ár.
Frá því fyrsta setlaugin kom á
markað fyrir um 10 árum hefur
fyrirtækið unnið markvisst að þró-
un og hönnun nýrra lauga. Nú er
svo komið að Norm-x hefur þróað
framleiðsluaðferð á setlaugum
sem er alls óþekkt erlendis og álíta
talsmenn fyrirtækisins að hún sé
hagkvæmari og skili betri gæðum
en þær aðferðir sem notast er við
erlendis.
í kjölfar þess árangurs sem
Norm-x hefur náð á íslenska set-
laugamarkaðnum hefur fyrirtækið
kannað möguleika á útflutningi
lauganna. Fyrir þremur árum
ákvað Sævar Geir Svavarsson for-
stjóri Norm hf. að gera tilraun og
senda 15 setlaugar til Kaliforníu
í Bandaríkjunum, en þar eru allir
stærstu framleiðendur setlauga í
heiminum og markaðurinn stór.
Markmið tilraunarinnar var að fá
úr skorið hvort laugamar frá
Norm-x, framleiddar úr Plyethy-
len, stæðust kröfur Bandaríkja-
manna ásamt því að kanna hver
áhrif sterks sólarljóss væru á efn-
ið. Einnig, hvaða áhrif miklar dag-
hitasveiflur hafa, en í Kalifomíu
getur bilið milli dags og nætur
verið á milli 30 og 40 gráður.
Til að kanna aðstæður í Kali-
fomíu fékk Sævar til liðs við sig
Jens Ingólfsson rekstrarhagfræð-
ing, fyrrverandi starfsmann Út-
flutningsráðs og núverandi fram-
kvæmdastjóra Kolaportsins. Jens
þekkir vel til á þessum slóðum en
hann stundaði nám um tíma í San
Diego. „Ég fór og kannaði mark-
aðsaðstæður og kynnti setlaug-
arnar fyrir ótal aðilum sem tengj-
ast þessum iðnaði. Þeir vom undr-
andi því þeir höfðu aldrei heyrt
um þessa framleiðsluaðferð og
ennþá síður að þetta efni væri
notað í setlaugar, en þar em set-
laugar úr akrýl allsráðandi. Þessar
15 setlaugar fóm í margskonar
prófanir. Þær vom settar niður
við heimahús við mismunandi að-
stæður. Á þessum þremur ámm
hefur fengist reynsla sem við telj-
um vera marktæka og em menn
mjög ánægðir með útkomuna,"
segir Jens. Ennfremur segir hann
að ekki hafi orðið vart við vanda-
mál í Norm-x pottunum sem gjam-
an skjóta upp kollinum í akrýl-
pottum, en þeir eiga það til að
springa við hitabreytingar og
hnjask.
Guðmundur Guðmundsson
verkfræðingur og tæknilegur
framkvæmdastjóri hjá Norm-x
segir mjög erfitt og oft á tíðum
útilokað að gera við skemmda
akrýl-potta. Hins vegar sé tiltölu-
lega auðvelt að gera við Norm-x-
laugarnar, þ.e. polythylene hefur
allt aðra eiginleika en akrýl. Sem
dæmi þá er lítið mál að gera við
rispur í Norm-x-pottunum. Guð-
mundur segir ennfremur einn
kostinn við íslensku Norm-x-laug-
arnar vera að hægt sé að endur-
vinna efni þeirra einfaldlega með
því að bræða það og nota upp á
nýtt. Þetta getur haft mikið að
segja í framtíðinni, sérstaklega á
mörkuðum eins og í Kaliforníu þar
sem umhverfisvemd er í hávegum
höfð.
En hvert er næsta skref hjá
Norm-x varðandi setlaugamar?
Því er ekki auðsvarað. Fyrirtækið
hefur eytt kröftum sínum í þróun
og hönnun og hefur því verið lítið
fé afgangs til annarra verkefna.
Sem dæmi þá leiddi för Jens til
Kalifomíu það í ljós að Bandaríkja-
menn vilja hafa laugamar ferkant-
aðar og oft og tíðum með legu-
bekk, en íslendingar eru spenntari
fyrir áttköntuðum laugum og not-
ast mikið við vindsængur. Þetta
varð til þess að Norm-x-menn sett-
ust að teikniborðinu og hönnuðu
laug með kröfum Bandaríkja-
manna í huga.
Þegar Sævar Geir fostjóri var
spurður hvað stæði í vegi fyrir að
Norm-x hæfi útflutning á setlaug-
um til Bandaríkjanna svaraði hann
að það væri í raun ekkert sem
hindraði útflutning en tók fram
að verulegt markaðsátak þyrfti að
eiga sér stað til að kynna laugam-
ar og koma þeim á markað. „Til
þess þarf mikið íjármagn sem við
höfum átt erfítt með að afla þ.s.
allt umframfjármagn hefur verið
notað í þróun og rannsóknir", seg-
ir Sævar. Hann segist vera
óánægður með frammistöðu þeirra
sjóða sem eiga að styðja við bakið
á íslenskum framleiðslufyrirtækj-
um og segir að skortur sé á skiln-
ingi hjá stjómmálamönnum og
ráðamönnum sjóðanna gagnvart
nýsköpun. Hann bætir því við að
hér á landi skorti lánsfé til lengri
tíma, menn séu of skammsýnir og
ekki nægilega þolinmóðir þegar
fjárfestingar em annars vegar.
Hvort Bandaríkjamenn eigi eftir
að lauga sig í stómm stíl í íslensk-
um setlaugum verður tíminn að
leiða í ljós en það er ljóst að fyrir-
tæki eins og Norm-x em á réttri
leið. Fyrirtækið hefur sýnt í gegn-
um tíðina með útflutningi á físk-
keijum úr polyethylene-efni, að
vörur þess era fullkomlega sam-
keppnishæfar á erlendum mörkuð-
um. Það vekur einnig athygli að
Normi hf. hannar og smíðar stóran
hluta þess búnaðar sem notaður
er við framleiðslu fyrirtækisins og
hafa íslenskir aðilar verið fengir
til að hanna og skrifa tölvuhug-
búnað sem stjómar stómm hluta
framleiðslunnar.
Þó svo að setlaugar einar og
sér eigi kannski ekki eftir að bæta
okkur upp þann tekjumissi sem
við horfumst í augu við vegna
minnkandi þorskafla þá gætu þær
orðið til að minnka vandann ef af
útflutningi þeirra verður.
Höfundur stundar háskólanám í
Bandaríkjunum.
N6 eru D^OrD^CLÐ -bílarnir
á mjög hagstæöu veröi.
ISUZU-NKR, 5.5 tonna heildarþyngd, kr 1.910.000.-
ISUZU-NPR, 7 tonna heildar^yngd, kr. 2.265.000,-
ISUZU-FSR, 9 tonna heildarþyngd, kr. 3.200.000.-
Ryðvörn, skráning og virðisaukaskattur eru innifalin í verði.
Árleg ókeypis þjónustuskoðun frá framleiðendum í Japan
fylgir öllum ISUZU bílum.
ISUZU verksmiðjurnar eru stærstu útflytjendur vörubíla í
heiminum, enda eru ISUZU bílarnir viðhaldslágir,
sparneytnir vinnuþjarkar.
EIGUM BÍLA TIL AFGREIÐSLU STRAX
Mlésútðfuj
HÖFÐABAKKA 8. 112 REYKJAVÍK, SlMI 634000 - 634050.
BUNAÐAR
BANKINN
-Trtuulur bonki
æ
SmRISJÓÐURINN
BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS OG
SPARISJÓÐIRNIR
ERU EIGENDUR
KAUPÞINGS.
VELDU
ÖRYGGI
í FJÁRMÁLUM.
KAUPÞING HF
IJiggi/t verdbréfafyrirtœki
Krinf'/uiinf 5, sfmi 689080
f rigtt litiuftdfii éwHktt ísftturfs og spftris/éðttum