Morgunblaðið - 20.08.1992, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.08.1992, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1992 6 B Tölvur Marinó G. Njálsson Maðurínn bak við Microsoft-veldið Hin óopinbera saga Bills Gates Hard Drive: Bill Gates and the Making of the Microsoft Empire eftir James Wallace og Jim Erickson, John Wiley & Sons, 1992. 426 bls. Fæst í Bóksölu stúdenta. Nýlega er komin út í Bandaríkj- unum bók um William H. Gates III, annan af stofnendum Microsoft hugbúnaðarfyrirtækisins. Aðeins 36 ára er Bill Gates orðinn áhrifa mesti maðurinn innan tölvuiðnaðar- ins og sá, sem flestir óttast, jafn- framt því að vera einn ríkasti mað- ur Bandaríkjanna. Tekjur Microsoft voru 1,9 milljarður dala 1991, þar af hagnaður um 350 milljónir dala. Fyrir fjárhagsárið, sem endaði 30. júní sl. reyndist veltan 2,8 milljarð- ar dala og hagnaður 708 miiljónir dala. DOS stýrikerfíð og Windows notendaviðmótið eru orðin að staðli og hugbúnaður frá fyrirtækinu er með stóran skerf af markaðnum. Sjálfur hefur Bill Gates hagnast um 7 milljarða dala (385 milljarðar krónur) á Microsoft-ævintýrinu. Það fer ekkert á milli mála að Bill Gates er snillingur á sínu sviði, hann hefur ljósmyndaminni, óvenju- lega hæfileika til að spá fyrir um framtíðina og óþijótandi kraft til að vera í hlutverki frumkvöðuls. En Bill Gates er mjög umdeildur maður og hataður af mörgum í tölvuiðnaðinum. í bókinni, Hard Drive, er lýst snilli hans, en ekki síður fjallað um einstaklinginn, sem beitir vitsmunalegum kúgunum, er tilfínningalega vanþroskaður, skortir snyrtimennsku og krefst þess að aðrir vinni allan sólarhring- inn eins og hann. Einnig er lýst keppnishörku hans, þar sem annað sæti er sama og að tapa, sem leitt hefur til rannsókna á viðskiptahátt- um fyrirtækisins á vegum banda- rískra yfírvalda. Fyrstu árin William Henry Gates III fæddist' 28. október 1955. Móðir hans var af ríku fólki komin og bar uppeldi Trey (eins og Bill Gates var kallað- ur af foreldrum sínum) merki þess. Árið 1967 var Trey, þá 11 ára gam- all, kominn langt fram úr jafnöld- rum sínum í stærðfræði og raun- greinum. í staðinn fyrir að láta hann halda áfram í almennings- skóla, ákváðu foreldrar hans að senda hann í Lakesideskólann í Seattle, sem talinn var bestur allra einkaskóla á svæðinu. Þar var grunnurinn lagður að lífí tölvusnill- ingsins Bill Gates. Undir iok fyrsta árs Bills hjá Lakesideskólanum, ákváðu skólayf- irvöld að koma tölvutækninni inn í kennsluna. En á þeim tíma kostaði tölva milljónir dollara og ekki á færi lítilla einkaskóla. Sú leið var vaiin að kaupa litla fjarvinnsluvél (teletype machine) og fá aðgang að PDP-10 millitölvu sem General Electric átti. Það var einmitt í tölvu- herbergi Lakesideskólans, sem Bill Gates hitti Paul Allen, strák sem var tveimur árum á undan honum í námi. Sjö árum seinna stofnuðu þeir saman Microsoft. Bill Gates varð snemma að mikl- um tölvugrúskara (eða hakkara). Hann og Paul Allen eyddu á stutt- um tíma þeim 3.000 USD, sem Lakesideskólinn hafði í tölvukostn- að. Ekki bara það, heldur voru þeir félagar mjög duglegir við að skjóta tölvuna niður. Því voru þeir fengnir í vinnu af Computer Center Corpor- ation við að fínna villur í stýrikerfi PDP-10 tölvu fyrirtækisins. í stað- inn gátu þeir unnið eins mikið og þeir vildu á tölvunni, þó utan al- menns vinnutíma. Þar með var bolt- inn byijaður að rúlla. Fyrsta launaða verk Bill Gates og Paul Allen var fyrir TRW, sem hefur unnið mörg stór verkefni fyr- ir bandaríska vamarmálaráðuneyt- ið. Paul Allen hætti í Washington State University í Pullman og Bill Gates fékk leyfí til að sleppa einni önn í Lakesideskóla til að vinna fyrir TRW. Það var þama, sem TÖLVUMEISTARAR stofnendur Microsoft Gates byijaði að forrita fyrir alvöru og þá reynslu átti hann eftir að nota seinna meir hjá Microsoft. Microsoft verður til Fyrsta fyrirtækið, sem þeir félag- ar Gates og Allen komu á fót hét Traf-O-Data. Traf-O-Data bjó til búnað til að túlka gögn um umferð- arþunga yfír í auðskiljanlegt tölu- legt form. Fyrirtækið þénaði um USD 20.000 á líftíma sínum, en varð aldrei neitt sérstakt. Um haustið 1973 fór Gates í Harvard. Allen hélt áfram að vinna að verkefnum fyrir Traf-O-Data, en lítið gekk. Einn kaldan desember dag 1974 var Paul Alien að fara að heimsækja Bill Gates. Á leiðinni kom hann við í sjoppu og rakst þar á nýjasta tölublað Popular Electr- onics. Á forsíðu blaðsins var mynd af Altair 8080, fyrstu örtölvunni! Allen keypti blaðið og sýndi Gates það með þeim orðum að nú gætu þeir loksins gert eitthvað með BASIC. Þeir höfðu strax samband við Ed Roberts, eiganda MITS fyrir- tækisins, sem framleiddi Altair til að kynna honum hugmynd þeirra um BASIC fyrir Altair og fengu þau skilaboð, að 50 aðrir hefðu haft samband og að sá, sem kæmi fyrstur með nothæfa útgáfu af BASIC fyrir Altair hreppti hnossið. Þeir félagar lögðu nú nótt við dag að búa til BASIC fyrir Altair. Þegar Allen fór að hitta Roberts, kom í ljós að MITS var lítið meira en bílskúrsfyrirtæki, en það átti eftir að breytast. Hjá MITS mataði Allen Altair tölvuna (þá fyrstu og einu sem hann hafði unnið á (!)) með BASIC kótanum og prófaði. Og viti menn, það virkaði fullkom- lega, öllum á óvart og Paul Allen ■— Bill Gates og Paul Allen me_st. í framhaldi af þessu varð Micro- soft til. Microsoft (stytting- á „microcomputer software") var stofnað sumarið 1975, þrátt fyrir mótmæli frá móður Gates, sem vildi umfram allt koma í veg fyrir að hann hætti í Harvard. Upphaflega átti Gates 60% hlutafjár en Allen 40%. Fyrirtækið var stofnað án yfir- byggingar og bruðls. Allt miðaðist við að það kæmist af með sem minnstu fjármagni í upphafi. Microsoft í dag Microsoft 1992 líkist á margan hátt fyrirtækinu, sem var í Albuqu- erque 1977. Það speglar nú eins og þá anda hins unga stjómanda þess. Þó svo að fyrirtækið hafí stækkað all mikið, er andinn hinn sami: vinnuvenjur, ákafinn, álagið, hugmyndaauðgin og óformlegheitin voru ofín inn í fyrirtækið í upphafi og eru þar enn. Fólk klæðir sig eins og það vill, ákveður eigin vinnutíma og sinnir utanaðkomandi áhuga- málum. En það er hluti af liði, fyöl- skyldu. Það á sameiginleg markmið og tilgang: leggja hart að sér, búa til betri hugbúnað og vera best. Bókin Hard Drive er saga Micro- soft og Bill Gates, en ekki sögð eins og hann vildi. Það er ekki allt- af farið mjúkum höndum um hann og búast má við að eitthvað sé ýkt, en flest mun vera satt. Erfítt er að gera bókinni full skil í stuttri grein sem þessari, en ég hvet alla þá, sem áhuga hafa á sögu manns- ins, sem skapaði Microsoft, að lesa bókina. Hún kom mér virkilega á óvart. Höfundur er töivunarfræðingur. ERU 0KKAR RESTA AUGLÝSING Fijárhagsbókhald. Vióskipta- og söiukerfi. M a rk a ðsk e rfi. Birgóahókhald. / n n ka u pa ke rfi. Verk og vinnuseðlabókhald. Verkbeiðnibókhald. Pantana og tilboðskerfi. Fétaga og áskriftarkerfi. áœtlana og lánadrottnakerfi HEIMSÓTTU 0KKUR í ÁRMÚLA 38, VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTIÞÉR HUGKORN I r m ú I a J <V , s i m i V / - 6 <V 0 H 2 6 ý stórglæsileg útgáfa af forritinu er komin á Bókhald sem spararfé og fyrirhöfn Vaskhugi hf. Grensásvegi 13, sími 682680. Þú ert velkominn til okkar á Grensásveg 13 eöa hringdu og við sendum bækling um hæl. Sjón er sögu ríkari. hefðbundins bókhalds Sér forritiö um að prenta út reikninga, gíróseöla og yfirlit, reikna út dráttar- vexti, skrá stööu ávísana- heftis og margt fleira. Fyrirtæki Nýir eigendur taka við Rosenthal-versluninni EIGENDASKIFn urðu nýlega á verslunni Rosenthal Studio Line i Ármúla 23. Hinir nyju eigendur eru hjónin Ársæll Ar- sælsson og Guðrún Kjartans- dóttir en þau hafa stundað versl- unarrekstur um árabil. Rosent- halverksmiðjurnar eru einkum þekktar fyrir handunnið gler og postulin en ekki síður fyrir sam- starf sitt við ýmsa af þekktustu hönnuðum heims. Þar á meðal eru Daninn Björn Wiinblð, Finnarnir Timo Sarpaneva og Tapio Virkala, ítalinn Mario Bellini og Flash Dorothy Hafner frá Bandaríkjunum. Síðustu vikur hefur verið unnið . að breytingum á húsnæði og inn- réttingum verslunarinnar í Ármúla og hefur Pétur Birgisson, innan- húsarkitekt haft umsjón með þeim. í frétt frá Rosenthal versluninni segir ennfremur að lögð verði áhersla á að hafa til sölu nýjar vörur frá verksmiðjunum hveiju sinni. Jafnframt sé unnt að panta hluti í matar- og kaffístell ásamt því úrvali af hlutum sem er á boð- stólum. Verslunin hefur einnig á boðstólum vörur undir heitinu Thomas sem er ódýrari vara frá Rosenthal. Hún er opin daglega frá kl. 9-18 nema á föstudögum þegar opið er til kl. 19. Þá er jafn- framt gert ráð fyrir að verslunin verði opin hluta úr degi á laugar- dögum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.