Morgunblaðið - 29.08.1992, Blaðsíða 1
1
Itlorgmifttatiíti
MENNING
LISTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 29: ÁGÚST 1992 BLAÐn
Ono Hakushi
(1925-). Blóma-
vasi með gulln-
um glerungi.
Imaizuimi Imaeon tólfti (1897-1975). Rammað-
ur diskur úr lituðu postulíni með áttstrendu
calico-mynstri.
Sýning á
hefðbundinni
japanskri
leirkeragerð
20. aldarí
Norræna húsinu
Listgripir þeir úr leir sem
sýndir eru í Norræna hús-
inu eiga það m.a. sameig-
inlegt að vera allir unnir á
þessari öld og eru gerðir
samkvæmt hefðbundnum
aðferðum japönskum í leirkera-
gerð; hefðirnar ná aldir aftur í
tímann og munirnir vitna á hljóðl-
átan hátt um langa menningar-
sögu. Samt er yfírbragðið ferskt
og sýningargripirnir bera með sér
einkennilegan blæ nýsköpunar
ásamt eldfornu andrúmslofti jap-
anskrar menningar. Skyndilega
öðlast orðaleppurinn „nútímalist
byggð á fornum hefðum" beina
og áþreifanlega merkingu.
Kristín ísleifsdóttir hefur fyrir
hönd Japansk-íslenska félagsins
SJÁ BLS. 2
HUGMYNDIR okkar vest-
rænna manna um hvað sé
list og hvað ekki hafa
sjaldnast tekið mið af nota-
gildi listaverks eða list-
munar. í þeim efnum telj-
um við hina hreinu fagur-
fræði skera úr um listrænt
gildi þó að oft ráði smekk-
ur og tíðarandi jafnmiklu
og frumleiki eða óvenjuleg
sýn listamannsins. Sýning
sú sem nú stendur yfir í
Norræna húsinu á jap-
önskum leirmunum færir
okkur heim sanninn um
að ólíkir menningarheim-
ar leggja ólíkt mat á list-
rænt gildi hlutanna. Hve-
nær myndi okkur t.d. detta
í hug að setja nýlega
skreyttan matardisk á
listasafn og segja þjóðar-
dýrgrip? Hann þyrfti þá
að hafa unnið sér það til
ágætis, diskurinn sá, að
hafa legið í jörð a.m.k.
fimm hundruð ár áður en
slíkur heiður væri honum
gerður. Og er þá ekki ver-
ið að heiðra hann fyrir
aldurs sakir fremur en list-
ræna fegurð? Þjóðminjar
fremur en listaverk.
TESTOFA
OG JAPÖNSK LEIRKER