Morgunblaðið - 29.08.1992, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. AGUST 1992
MYNDLIST ER
EKKI FLÓKIN
Háfsteinn Austmann opnar
í dag sýningu í Listasal Ný-
hafnar við Hafnarstræti. Haf-
steinn er vel þekktur unnend-
um myndlistar á íslandi. Hann
fæddist á Ljótsstöðum í
Vopnafirði 1934. Árið 1951
innritaðist hann í Mynd- og
handíðaskóla íslands og dvaldi
við nám í París 1954-55 í því
fræga listamannahverfí þar,
Montpamasse. Hann hefur
haldið íjölda sýninga hér heima
og erlendis. Þegar ég hitti
listamanninn í vinnustofu hans
við Hörpugötu í Skeijafírði
sagðist hann ekki vera hrifinn
af löngum viðtölum. En ég
byijaði á því að spyija Haf-
stein hvaða verk yrðu á sýning-
unni í Nýhöfn.
„Það verða verk sem ég hef
unnið á undanfömum 2-3
ámm, 11 vatnslitamyndir og
10-15 olíumyndir. Ég er alltaf
að glíma við abstraktmálverk-
ið. Það var nú þannig að þegar
maður var ungur nýkominn úr
námi málaði maður ekki með
það í huga að myndir manns
myndu seljast. Það hvarflaði
ekki að manni að maður gæti
lifað af þessu. Þegar menn em
famir að selja era menn oft
hræddir við breytingar af ótta
við að salan dvíni. En myndlist-
in og vinnan í kringum hana
er sífelld leit. Þegar ég byija
að vinna mynd byijar þetta
með fíkti með penslana og lit-
ina. Maður er að sulla með
óljósar hugmyndir og svo fínn-
ur maður ákveðinn punkt og
vinnur út frá honum. Ég er
mislengi með hveija mynd en
eftir því sem ég eldist því lengri )
er ég með hveija mynd. I
vatnslitamyndunum hef ég
verið að prófa nýja hluti. I
vetur verð ég á samnorrænni
sýningu í Finnlandi, Svíþjóð,
Danmörku og svo í Norræna
húsinu. Þær myndir eru ekki
í hefðbundnum stíl heldur tek
ég efnið öðmm tökum. Ég hef
verið að vinna þessar vatnslita-
myndir undanfarið ár.“ Þegar
tal okkar Hafsteins berst að
skilgreiningu myndlistarinnar
sjálfrar segir hann: „Ég er
þeirrar skoðunar að myndlistin
sé það sem fyrir augu ber og
einstaklingurinn upplifí hveija
mynd fyrir sig. Enginn sér
sömu myndina eins. Myndlistin
er ekki eins flókin eins og
margir halda. Sama má segja
um tónlistina. Ég þekki ekki
nótur en ég nýt klassískrar
tónlistar. Tónlistin er bara það
sem þú heyrir. Það skemmti-
legasta sem ég hef upplifað
þegar fólk hefur séð myndir
eftir mig em neikvæð viðbrögð
sem síðar breytast í hrifningu.
Svavar Guðnason sagði ein-
hvern tímann að orð skýrðu
ekki myndir. Myndin á skýra
sig sjálf. Þetta eru orð að
sönnu,“ sagði Hafsteinn Aust-
mann að lokum.
Ari Gísli
UÓÐATÓNLEIKAR í SIGURJÓNSSAFNI
Fjögur tónskáld frá fjórum löndum
„Við ætlum að flytja létta
og fjölbreytta efnisskrá frá
fjórum löndum eftir fjögur
tónskáld, sem eiga það sam-
eiginlegt að hafa öll verið
uppi á fyrri hluta þessarar
aldar. Þó er tónlist þeirra
mjög ólík og sprottin úr ólík-
um jarðvegi."
að er Þóra Fríða Sæmunds-
dóttir píanóleikari sem hef-
ur orð fýrir þeim Angelu
Spor sópransöngkonu, en
þær halda ljóðatónleika í Lista-
safni Siguijóns Ólafssonar næst-
komandi þriðjudagskvöld.
Söngkonan Angela Spor er
þýsk að þjóðerni og hefur starfað
þar undanfarin ár og aðallega
fengist við ljóða- og óratoríusöng
ásamt því að kenna söng við tón-
listarháskólann í Freiburg,
„Við Angela kynntumst einmitt
við Tónlistarháskólann í Freiburg
en við vomm þar báðar við nám
á sama tíma,“ segir Þóra Fríða.
Námsár hennar við skólann í Frei-
burg spönnuðu 1978-1981 og
Angela hóf sitt nám á sama tíma
og lauk burtfararprófi tveimur
ámm síðar. Þóra Fríða stundaði
síðan frekara nám við tónlistarhá-
skólann í Stuttgart 1981-84 og
lagði þar sérstaka áherslu á ljóð-
aundirleik. Frá þeim tíma hefur
hún starfað hér heima og auk
þess að kenna píanóleik hefur hún
komið fram á fjölmörgum tónleik-
um sem meðleikari söngvara og
f kammertónlist.
Þær Angela Spor og Þóra Fríða
segjast lengi hafa gengið með
þessa hugmynd að halda tónleika
hér á íslandi en tækifærið hafí
ekki gefíst fyrr en nú. „Angela
kon til íslands í fyrrasumar og
þá var þetta ákveðið og síðan
höfum við æft efnisskrána sitt í
hvom lagi í vetur en undanfarna
tíu daga höfum við unnið stíft að
því að stilla okkur saman fyrir
tónleikana," segir Þóra Fríða.
Þóra Fríða
Sæmundsdótt-
ir píanóleikari
og Angela
Spor sópran-
söngkona
halda ljóðatón-
leika í Sigur-
jónssafni næst-
komandi
þriðjudags-
kvöld.
Mbl/Kristinn
Eins og áður sagði er efnisskrá-
in samsett af verkum eftir fjögur
tónskáld; Tékkann Leos Janacek
(1854-1928), Þjóðveijann Arnold
Schönberg (1874-1951), Bretann
Benjamin Britten (1913-1976) og
Spánverjann Enrique Granados
(1867-1916). Eftir Janacek flytja
þær þjóðlagaflokk sem byggður
er á textum og laglínum úr sveita-
hémðum Tékkóslóvakíu. Eftir
Schönberg flytja þær fjögur lög
óp. 2 sem þær segja fyrstu verkin
sem Schönberg skrifaði fyrir
söngrödd og samin vom áður en
Schönberg snéri sér að þeirri tón-
sköpun sem hann er þekktastur
fyrir og hefur markað honum sess
sem merkasta tónskáldi þessarar
aldar. Þar næst fylgja nokkur
sönglaga Brittens við ljóðaflokk
W.H. Audens On this Island og
loks flytja þær 4 lög úr ljóðaflokk-
inum Tonadillos eftir Granados.
Angela segist hafa flutt þessi
verk oft áður á tónleikum í Þýska-
landi og Sviss en Þóra Fríða seg-
ir verkin hafa verið ný fyrir sér
og því spennandi að kljást við
þau. „Þetta era ekki verk sem
heyrast hér á hveijum degi og þó
það sé ekki sérstakt metnaðarmál
að flytja verk sem aldrei hafa
heyrst áður, er kostur að þau séu
ekki af því taginu sem til em á
tugum upptaka með fremstu
söngvumm heimsins. Það má
kannski segja að flytjendur hafi
meira svigrúm til persónulegrar
túlkunar þegar verkin eru ekki
alþekkt,“ segir Þóra Fríða að lok-
um.
Tónleikarnir eru á þriðjudags-
kvöld og hefjast kl. 20.30.
HS