Morgunblaðið - 10.09.1992, Side 3
C 3
MORGUNBLAÐIÐ VlÐSKIPTI/ATVIHÍNIlLÍf FIMMTU^AGUR 10. SEPTEMBER 1992
Ráðstefna
Vandamál banka
á Norðurlöndum til
umfjöllunar
UM þessar mundir stendur yfír ráðstefna bankastarfsmanna á
Norðurlöndum þar sem meðal annars er fjallað um stöðu þeirra
sem starfa í bönkum og launakjör þeirra. Anna G. ívarsdóttir frá
Sambandi íslenskra bankamanna opnaði ráðstefnuna í gær en Jón
Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra og Jóhannes Nordal
seðlabankasljóri fluttu inngangserindi þar sem þeir fjölluðu báðir
m.a. um vandamál bankakerfísins á Noðurlöndum.
í inngangserindi sínu sagði Jón
Sigurðsson að miklar breytingar
hefðu átt sér stað á fjármagns-
mörkuðum á Norðurlöndum á
undanförnum árum. Breytingam-
ar hefðu ekki gengið áfallalaust
og síðustu dagana hefðu verið
miklar hræringar á gjaldeyris-
mörkuðum á Norðurlöndum.
Breytingarnar á undanförnum
árum hefðu þó ekki eingöngu haft
í för með sér vandamál heldur
einnig möguleika, t.d. til aukinnar
skilvirkni og hagræðingar. Þannig
hefði bönkum hérlendis t.d. fækk-
að úr 7 í 3.
Jóhannes Nordal kom einnig inn
á hræringarnar í gengismálum og
sagði að þær myndu væntanlega
varpa nokkrum skugga á ráðstefn-
una, þar sem bankastofnanir á
Norðurlöndum stæðu frammi fyrir
meiri vandamálum en þær hafa
gert í áratugi. Þau vandamál væru
hins vegar enn ekki jafn mikil á
Islandi og á hinum Noðurlöndun-
um.
BANKAMENN — Ráðstefna
myndinni sést yfír hluta fundargesta.
norrænna bankamanna hófst í gær og lýkur nk. laugardag. Á
Tölvur
Ekki verður af sýningu
hjá tölvunarfræðinemum
TÖLVUSÝNINGU tölvunarfræðinema við Háskóla íslands, sem
haldin hefur verið annað hvert ár undanfarið hefur verið aflýst,
en fyrirhugað var að halda hana í Laugardalshöll 23.-27. septem-
ber nk. Stærstu tölvufyrirtæki landsins ákváðu að taka ekki þátt
í sýningunni og þar með var grundvellinum kippt undan henni
að sögn Jörundar Matthíassonar í félagi tölvunarfræðinema.
Olgeir Kristjónsson hjá Einari
J. Skúlasyni hf. sagði í samtali við
Morgunblaðið að ákveðið hefði
verið að taka ekki þátt í sýningu
tölvunarfræðinema að þessu sinni
og halda frekar eigin kynningu í
október nk. „Við höfum velt því
fyrir okkur áður hvort það væri
ekki skilvirkari aðferð til að ná til
markaðsins og ákváðum að prófa
það í ár,“ sagði Olgeir.
í kjölfar afsvars EJS hf. dró
Tæknival sig til baka, en fyrirtæk-
ið hafði áður ákveðið að taka þátt
í sýningunni. Þá má segja að spila-
borgin hafí hrunið því í kjölfarið
duttu út Örtölvutækni, ACO,
Heimilistæki, Microtölvan, Radíó-
búðin og síðast Nýheiji. „Það kost-
ar okkur 4-6 millj. kr. að taka
þátt í svona sýningu og því skipt-
ir verulegu máli að allir þeir
stserstu séu með,“ sagði Rúnar
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Tæknivals, í samtali við Morg-
unblaðið. „Þetta er það þröngur
markaður að sýningin nær ekki
takmarki sínu nema allir séu með
og öðruvísi er ekki er veijandi að
leggja út í þann kostnað sem henni
fylgir.“
Rúnar sagði það líka hafa haft
áhrif á þá ákvörðun tölvufyrir-
tækjanna að vera ekki með í sýn-
ingu tölvunarfræðinema að hún
var áætluð full snemma. „Laugar-
dalshöll var ekki laus á öðrum
tíma, en þá er mikið um tölvusýn-
ingar erlendis þar sem ýmsar nýj-
ungar eru kynntar. Við hefðum
ekki náð þeim á þessa sýningu hér
þar sem þær koma alltaf aðeins
seinna til okkar.“
Hlutabréf
Þriðjungur
seldur í
Jarðborunum
HLUTABRÉF í Jarðborunum
höfðu selst fyrir rúmlega 80 millj-
ónir króna í gær og er það um
þriðjungur af söluverðmæti bréf-
anna sem áformað er að selja.
Guðmundur Hauksson forstjóri
Kaupþings. segir söluna ganga
samkvæmt áætlun en enn eiga
ýmsir stórir fjárfestar, sem hafa
tekið ákvörðun um að kaupa hluta-
bréf, eftir að ganga frá kaupunum.
Guðmundur segir mikinn áhuga
einstaklinga hafa komið mest á óvart
og alls hafa 74 aðilar keypt bréf. En
Kaupþing hafí haft af því nokkrar
áhyggjur að erfítt yrði að ná til ein-
staklinga þar sem staðan á markaðn-
um í heild hefur verið nokkuð þung
undanfarna mánuði.
„Ljóst er að þetta er að breytast.
Almennt er vaxandi áhugi einstakl-
inga á hlutabréfum og hlutabréfa-
markaðurinn er að taka við sér. Sala
á hlutabréfum í ágústmánuði hefur
verið meiri en aðra mánuði á árinu.
Fleiri tilboð eru í gangi á Verðbréfa-
þingi og á tilboðsmarkaði. Ég tel að
menn séu að átta sig á því að sú
gífurlega lægð sem var í viðskiptum
með hlutabréf um mitt árið var mjög
óraunhæf og I kjölfar hennar lækk-
aði verð á bréfum mjög mikið. Sem
betur fer eru margir að átta sig á
því að hlutabréf eru mjög æskilegur
íjárfestingakostur ef verðið á þeim er
rétt.“
Hlutabréf
Viðskipti vikunnar 6 millj.
VIÐSKIPTI hlutabréfa á Verð-
bréfaþingi íslands og Opna til-
boðsmarkaðnum námu rétt
tæplega sex milljónum króna
vikuna 2.-9. september. Þar
munaði mest um viðskipti með
hlutabréf Sæplasts að fjárhæð
3.350.000 á genginu 3,35 sem
er hækkun um 0,35 frá síðasta
skráða gengi. I viðskiptum vik-
unnar hækkaði gengi bréfa
þeirra félaga sem hlut áttu að
máli nema Eimskips.
í skráðum viðskiptum vikunn-
ar seldust hlutabréf í Eimskip
fyrir alls 878.000. Skráð gengi
viðskiptanna lækkaði úr 4,50 í
4,30 í vikunni. Þá urðu viðskipti
með bréf Útgerðarfélags Akur-
eyrar að fjárhæð 250.000 á geng-
inu 3,70 sem er hækkun um 0,5
frá síðustu skráðu viðskiptum.
191 7-1992
75
VERSLUNARRÁÐ
ÍSLANDS
VERSLUNARRÁÐIÐ MINNIR FÉLAGSMENN Á
AFMÆLISHÁTÍÐ
FÖSTUDAGINN 18. SEPTEMBER 1992
í SÚLNASAL, HÓTEL SÖGU
Verslunarráðið á 75 ára afmæli
17. september næstkomandi.
Afmælishátíð verður haldin daginn eftir,
föstudaginn 18. september,
í Súlnasal, Hótel Sögu.
Sérstök kynning hefur verið send bréflega
til allra einstaklinga, fyrirtækja og samtaka
sem eru aðilar að Verslunarráðinu.
Bókun þátttöku, sala aðgöngumiða
og ráðstöfun borða er hafin
á skrifstofu Verslunarráðsins
í Húsi verslunarinnar, 7. hæð.
Opið kl. 08-16,
sími 676666
~\ T
IÐNLANASJOÐUR
fyrir íslenskt atvinnulíf
ÁRMÚLA13A 155 REYKJAVÍK SÍMI 680400 TELEX 3084 ILFUND TELEFAX 680950
_____________________!___'_______________________________________