Morgunblaðið - 10.09.1992, Page 4

Morgunblaðið - 10.09.1992, Page 4
4 C B ViÐSKU^fl/AtVINMORGUNBLAÐiÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF fmmtudagur io. september 1992 Iðnaður Hvað er til ráða íhús- gogna- og innréttíngogerð? Fyrirtæki auka hagræðingu með sameiningu og beina sjónum sínum á erlenda markaði. Aðaláherslan er þó lögð á aukna jákvæða kynningu innanlands Markaðshlutdeild innlendrar húsgagna- og innréttingasmíði 1977-1989 1977 '78 79 '80 ’81 '82 '83 '84 '85 ’86 '87 '88 ’89 1977 78 79 ’80 '81 ’82 ’83 ’84 ’85 ’86 ’87 '88 ’89 eftir Hönnu Katrínu Friðriksen HÚSGAGNA- og innréttinga- iðnaður hefur staðið frammi fyrir ótakmarkaðri samkeppni frá innflutningi frá því að að- iöguninni vegna inngöngu fs- lands í EFTA lauk árið 1980. f kjölfarið hefur markaðshlut- deild innlendra húsgagna- og innréttingaframleiðenda farið minnkandi hér á landi. Þannig nam markaðshlutdeild inn- lendra húsgagna um 30% árið 1990 samanborið við 73% árið 1977 skv. upplýsingum frá Landssambandi iðnaðarmanna. Markaðshlutdeild innlendra innréttinga fór á þessu tímabili úr 90% í 60%. Velta íslenskrar húsgagna- og innréttingafram- leiðslu nam um 5j7 milljörðum króna árið 1990. I greinargerð starfshóps um húsgagnaiðnað sem út kom árið 1991 kemur fram að veltufjárhlutfall fyrir greinina í heild lækkaði úr 1,08 árið 1980 í 0,79 árið 1988. Þessi þróun bendir til að greiðslugetu fyrirtækja hafi hrakað og sé nú verulega ábótavant. Eigið fé fyrirtækja í greininni hefur einnig minnkað verulega á þessu tímabili og þar með geta fyrirtækjanna til að mæta fjár- hagslegum áföllum. Eiginfjár- hlutfallið var 0,09 árið 1990 samanborið við 0;51 árið 1980. Ársverkum í húsgagna- og inn- réttingaiðnaði á íslandi fækkað jafnt og þétt á undanförnum árum. Árið 1990 voru þannig unnin 1.049 ársverk samanborið við 1.737 árið 1981. Árið 1990 voru starfandi 234 fyrirtæki í hús- gagna- og innréttingaiðnaði á ís- landi samanborið við 405 árið 1977. Þá voru 189 fyrirtæki þar sem unnin voru fleiri en tvö árs- verk, en árið 1990 voru þau fyrir- tæki 105. Miðað við aðrar iðn- greinar á íslandi er hlutfallslega mikið af smáfyrirtækjum í hús- gagna- og innréttingaiðnað. Þar er einnig hlutfallslega minnst af mannmörgum fyrirtækjum og bendir sú staðreynd til þess að í greininni sé mikið af mjög litlum fyrirtækjum sem sinna viðgerðum og annarri þjónustu frekar en eig- inlegri framleiðslu. Þróun í átt til sameiningar Smæð fyrirtækja í húsgagna- og innréttingaiðnaði ásamt erfíðri fjárhagslegri stöðu þeirra flestra gerir það erfitt fyrir iðnaðinn í heild að snúa vörn í sókn og auka markaðshlutdeildina á kostnað innflutnings. Síðustu ár hefur viss þróun verið í átt til sameiningar fyrirtækja í þessari atvinnugrein og er þess skemmst að minnast þegar 6 af stærstu fyrirtækjunum í íslenskum húsgagniðnaði sam- einuðust í þrjú seinni hluta árs 1989. Fjögur þeirra, þ.e. Bíró hf. og Stálhúsgagnagerð Steinars, sem sameinuðust með því að fyrr- nefnda fyrirtækið keypti hitt, og Gamla kompaníið og Kristján Sig- geirsson hf., sem sameinuðust undir nafninu GKS hf., runnu síð- an saman í eitt fyrirtæki, GKS- Bíró hf. um síðustu mánaðarmót. Að sögn Rafns Ben. Rafnsson- ar, framkvæmdastjóra GKS-Bíró hf., mun félagið með sameining- unni hafa alla burði til að bjóða upp á samstæðar heildarlausnir m.a. fyrir skrifstofur, fundarher- bergi, samkomusali og skóla. „Við teljum að það muni styrkja fyrir- tækið til muna hér á innanlands- markaði,” sagði Rafn. Möguleikar á útflutningi kannaðir Þá er verið að athuga möguleika á útflutningi hjá GKS-Bíró og er nú m.a. verið að vinna að gerð tilboðs í framleiðslu skrifstofuhús- gagna fyrir skrifstofur EFTA í Brussei eins og fram kemur ann- ars staðar í blaðinu. „Takmarkið er að með sameiningunni náum við rekstrareiningu sem er það hagkvæm að við getum í alvöru farið að líta á útflutning sem raun- hæfan möguleika,” sagði Rafn. GKS-Bíró verður með áætlaða markaðshlutdeild upp á 50-60% í skrifstofu- og stofnanageiranum þar sem sérsvið fyrirtækisins ligg- ur. Eins og áður hefur komið fram er áætluð sala næsta árs tæpar 500 milljónir króna, en samanlögð sala gömlu félaganna tveggja á þessu ári er áætiuð um 440 millj- ónir. Að sögn Jóns Steingrímsson- ar, fyrrum stjómarformanns GKS og'núverandi formanns stjórnar hins nýja félags, sýndu bæði Bíró- Steinar og GKS hagnað skv. milli- uppgjöri fyrir fyrstu sex mánuði ársins. Hvert er hagræðið af sameiningunni? Kaup Bírós á Stálhúsgagnagerð Steinars seinni hluta árs 1989 skilaði hagræðingu strax á fyrsta ári að sögn Rafns. Fyrst og fremst var þar um að ræða hagræðingu í húsakosti auk þess sem margvís- legur sparnaður náðist í starfs- mannahaldi og innkaupum. Jón Steingrímsson gekk inn í stjórn GKS sl. vor fyrir milligöngu Þróunarfélagsins og Hjalta Geirs Iðnaður COCA-Cola setti á markað í sumar nýja tveggja lítra plast- flösku í Bretlandi sem fram- Ieidd er úr endurunnum efnum. Það var samstarf Coca-Cola og Hoecht efnaiðnaðarfyrirtækis- ins sem skilaði þessum árangri en fyrirtækin hafa um árabil leitast við að þróa nýja tækni til endurvinnslu PET-plast- flaskna, að því er segir í frétt frá Vífilfelli hf. PET-plastflöskur undan gos- drykkjum hafa um skeið verið Kristjánssonar, aðaleiganda Krist- jáns Siggeirssonar hf. sem er stærsti hluthafi félagsins. „Hjá GKS höfðu verið ýmis vandamál sem flest tengdust því að sá sparn- aður sem átti að nást í húsnæðis- málum með sameiningu Kristjáns Siggeirssonar og Gamla kompan- ísins í árslok 1989 náðist fyrst á þessu ári. Of langan tíma tók að koma starfseminni undir eitt þak,“ sagði Jón. Almenningshlutafélag í árslok 1994? Við stofnun GKS hf. var stofnað rekstrarfélag um fasteignir Gamla kompanísins á Bíldshöfða og Kristjáns Siggeirssonar hf. á Hest- hálsi. GKS leigði síðan báðar eign- imar fram á mitt síðasta ár. Þá rann út leigusamningur um hús- eignina á Bíldshöfða og um næstu áramót mun renna út leigusamn- ingur fyrir húseignina á Hest- hálsi. „Áðstæðurnar gerðu því að verkum að við vorum með fijálsar hendur til að fara út í nokkuð róttækar breytingar á rekstrar- forminu. í vor fórum við svo að skoða ýmsa möguleika og eitt af því fyrsta sem kom upp voru við- ræður við forráðamenn hjá Bíró- Steinari um möguleika á einhvers konar samstarfi,” sagði Jón. Þær viðræður enduðu síðan með sam- einingu þar sem hvor aðili á 50% í hinu nýstofnaða félagi. „Við eigum von á því að samein- ingin skili sér fyrst og fremst í betri nýtingu á skrifstofuhúsnæði ásamt aðhaldi í föstum kostnaði í endurunnar, einkum til framleiðslu á annarskonar vörum t.d. teppum og vatti í fóður yfirhafna. Sam- starf Iloecht og Coca-Cola leiðir til þess að í fyrsta sinn tekst að endurvinna PET-flöskur í sömu vöru og áður. Almennt er talið að þetta skref muni ýta undir frekari endurvinnslu á plastflöskum og þannig vera veigamikið skref í umhverfísvernd. Víða um Evrópu fer móttöku- stöðum fyrir PET-plastflöskur fjölgandi og er almennt reiknað kringum stjórnun og skrifstofu- hald,“ sagði Jón. í GKS-BÍró eru nú 10 hluthaf- ar. „Stefnan er að færa reksturinn úr þessu þrönga fjölskylduformi í dreifðara eignarhald með þeim breytingum sem því fylgir, þ.e. faglegri stjórnun og minni beinum tengslum eigenda við daglegan rekstur,” sagði Jón. „Við erum að gera okkur vonir um að þarna séum við komnir með sterkt félag með það mikil rekstrarumsvif að raunhæft sé að fara út á hluta- bréfamarkaðinn. Við höfum ákveðið að gefa okkur tvö ár til að slípa reksturinn og munum skoða málið nánar í árslok 1994.“ Brýnt að breyta viðhorfi til innlendrar framleiðslu Rafn er formaður Félags hús- gagna- og innréttingaframleið- anda. Hann telur eitt brýnasta verkefni félagsins vera að kynna greinina og samkeppnishæfni hennar til að auka á jákvætt við- horf markaðsins til þessarar grein- ar í íslenskum iðnaði. „Hjá Félagi íslenskra iðnrekenda hafa menn reiknað út að um 5.600 ársverk eru flutt inn til íslands í iðnvarn- ingi sem einnig er framleiddur hér á landi. Þegar svo er litið til þess að hvert starf í iðnaði er með tím- anum talið gefa af sér önnur fjög- ur í þjónustugreinum má vera ljóst að það munar um minna, ekki síst á tímum vaxandi atvinnuleysis. Þessi rök sýnist mér vera að fá betri hljómgrunn nú en áður,“ sagði Rafn. Samkeppnishæf miðað við gæði Nokkuð er síðan að Iðntækni- stofnun íslands hóf, að frumkvæði Félags húsgagna- og innréttinga- framleiðenda, gæðaprófun hús- gagna og innréttinga. í greinar- gerð starfshóps um húsgagnaiðn- að kemur fram að niðurstöður þeirra fjölmörgu prófana sem átt hafa sér stað sýna að innlend framleiðsla uppfyllir undantekn- ingalítið hæstu gæðakröfur. Að sögn Rafns eru um 80-90% þeirra húsgagna sem hér eru fram- leidd gæðaprófuð hjá Iðntækni- stofnun. „Við höfum oft átt undir högg að sækja í verðsamanburði við innfluttar vörur. Okkar svar er að við séum fyllilega samkeppn- ishæfir miðað við gæði framleiðsl- unnar. Gæðavottun getur haft mikil áhrif á samkeppnisstöðu inn- lendra framleiðenda gagnvart inn- flutningi ef menn taka tillit til hennar. Við höfum verið að beij- ast fyrir því að aðilar eins og inn- kaupastofnanir, sveitarfélög og arkitektar nýti sér þau gæðavott- orð sem við getum lagt fram og fari um leið fram á samsvarandi upplýsingar frá erlendum innflytj- endum.“ Við erum þess fullvissir að við það myndi hagur okkar vænkast og markaðshlutdeildin fara aftur að síga upp á við á inn- anlandsmarkaði,“ sagði Rafn. með að skilaprósenta muni vaxa stórlega á næstunni, ekki síst vegna þess árangurs sem nú hefur náðst. Við endurvinnslu á flöskun- um er plastið brotið niður í fru- meindir sínar, hreinsað og fram- leitt úr því nýtt efni sem síðan er notað til framleiðslu á plastflösk- um að nýju. Endurunna plastið vegur um 25% af heildarefninu sem notað er í nýjar flöskur og er vonast til þess að á næstu árum takist að hækka þessa prósentu til muna. Coke komið á plastflöskur úr endurunnu efni

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.