Morgunblaðið - 11.10.1992, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. OKTÓBER 1992
i.j..í.sa:. j ýV.
jK
1
Laxveiðin
Allt að 20 prósenta lækk-
un veiðileyfa í Norðurá
LANDEIGENDUR við Norðurá hafa leigt Stangaveiðifélagi Reykjavík-
ur veiðiréttindin í ánni á komandi sumri, en viðræður hafa staðið
yfir síðan í septemberbyijun. Heildarieigan lækkar um 15 prósent
milli ára og að sögn Jóns G. Baldvinssonar formanns SYFR mun það
skila sér sem allt að 20 prósent verðlækkun á veiðileyfum sumarið
1993. Hefur nú á skömmum tíma verið samið um verulega verðlækkun
í tveimur af þekktustu laxveiðiám landsins, Norðurá og Laxá í Kjós.
Jón G. Baldvinsson segir í „Veiði-
fréttum", nýútkomnu fréttabréfí
SVFR, að félagið hefði viljað ná
meiri lækkun, en þetta hefði orðið
niðurstaðan. „Við byijuðum að und-
irbúa okkar viðsemjendur' strax í
sumar og létum þá fylgjast með
hversu erfíðlega gekk að selja veiði-
leyfín, jafnvel þótt mikil véiði væri
í Norðurá. Við hófum svo viðræður
strax og veiðitíma lauk með fyrr-
greindum árangri. Við vitum ekki
enn um lokatölur, en ljóst er að tap-
ið á Norðurá nam milljónum króna.
Endanlegar tölur verða lagðar fram
á aðalfundi félagsins 20. nóvember
næstkomandi," segir Jón og bætir
við að endurmat og endurskipulagn-
Tréristur
í Hafn-
arborg
í GÆR, laugardag, var opnuð
í Hafnarborg sýning Ásrúnar
Tryggvadóttur á tréristum.
Sýningin ber yfirskriftina
„Bergstál." Hún verður opin
fram til 25. október.
Ásrún stundaði nám við
Myndlistarskólann í Reykjavík
og síðar nam hún myndlistar-
kennslu við Minot State Uni-
versity í N-Dakóta í Bandaríkj-
unum. Fyrsta einkasýning henn-
ar var haldin í Minot 1979 en
hér heima hefur hún haldið eina
sýningu á teikningum. Hún hef-
ur einnig tekið þátt í fjölda sam-
sýninga hér á íslandi, á Norður-
löndunum, í Englandi og Banda-
ríkjunum.
Listakonunni segist sjálfri svo
frá í sýningarskrá að hún hafí
undanfarið verið gagntekin af
áferð gijótsins, sem setji svo
sterkan svip á íslenzka náttúru:
„Ég hef unnið verk eftir jarð-
sögulegum fyrirmyndum og
gætt þau nýjum litatónum. I
návígi sýna grafíkmyndir mínar
smágerð afstrakt mynztur nátt-
úrunnar. í fjarlægð fá þessi
mynztur nýja vídd og vægi,
skorur og gljúfur opnast og
gijóthnullungar virðast í þann
veginn að hrynja út af myndflet-
mum.
ing á öllum veiðisvæðum félagsins
sé í vinnslu og þar sé markmiðið
einkum eitt, að lækka verð hvar sem
kostur er.
Heildamýting veiðileyfa í Norðurá
í sumar var um 70 prósent sam-
kvæmt upplýsingum Jóns og var það
einkum dýrasti tíminn, í júlí, sem
seldist illa. Til samanburðar var nýt-
ing veiðileyfa í ánni í fýrra um 90
prósent. Jón segir í umræddu frétta-
bréfí að hann vonist til þess að sú
verðlækkun sem nú hafi samist um
verði til þess að eftirspurn eftir veiði-
leyfum aukist og raunar sé strax
farið að merkja aukins áhuga er-
lendra veiðimanna á veiðidögum í
júlímánuði enda hafí veiðst meira í
Norðurá í sumar en um árabil.
Morgunblaðið/Þorkell
Kirkjuvika í Reykjavíkurprófastsdæmum
í dag, sunnudag, hefst í Reykjavíkurprófastsdæmum kirkjuvika, sem
ætluð er til að vekja athygli á innra starfi kirkjunnar. Kirkjur prófasts-
dæmanna munu bjóða almenningi upp á margvíslega dagskrá. Mynd-
in var tekin í móttöku Reykjavíkurprófastsdæmis vestra í Bústaða-
kirkju á föstudag, þar sem kirkjuvikan var kynnt. Sr. Pálmi Matthías-
son prestur í Bústaðasókn og Magnús Öm Antonsson borgarstjóri
ræða saman, en á milli þeirra sést Bjöm Bjamason alþingismaður.
Sjónvarpið
Steríó út-
sendingar
undirbúnar
NÆSTU vikur fara fram tilraunir
á steríó hljóðútsendingum með
NICAM-aðferð á vegum Ríkisút-
varpsins Sjónvarps. Sendingarnar
eru eingöngu bundnar við Reykja-
víkursvæðið til að byrja með.
í frétt frá tæknideild Sjónvarpsins
segir að ljós kvikni á þeim tækjum
sem geta tekið á móti sendingum
NICAM, en önnur tæki en þau sem
sérstaklega eru til þess gerð ná ekki
sendingunum. Til að byija með verði
fáar ef nokkrar sendingar raunveru-
lega í steríó. Steríósendingar munu
fara hægt af stað og mun nokkur
tími líða, mánuðir ef ekki ár, þar til
umtalsverður hluti dagskrárinnar
verður í steríó, segir í fréttinni.
Ódýr og spennandi
lúxusferð til Tælands
fyrir aðeins 99.900 kr.
Nú er tækifærið til að
hverfa á vit framandi menn-
ingar og ævintýra í Tælandi.
Royal Cliff hótelið er dval-
arstaður sem er þekktur fyrir
þægindi og glæsileika.
Fjögur ár í röð hefur hótelið
verið kosið besti hótelstaður-
inn í allri suð-austur Asíu.
Hvergi er auðveldara að lifa
í veilystingum en einmitt
þarna. Á hótelsvæðinu er t.d.
að finna sundlaugar, fjóra 18
holu golfvelli, glæsilegar versl-
anir, spennandi námskeið i
tælenskri matargerð auk bestu Tekið er á móti farþegum á
þjónustu og aðbúnaðar sem
hægt er að hugsa sér. Stutt er
í iðandi mannlífið á Pattaya
ströndinni og aðeins tveggja
tíma akstur til Bangkok.
SAS býður ferð og lúxus- —
dvöl á Royal Cliff hótelinu í
tvær vikur á aðeins 99.900 kr.
flugvellinum í Bangkok við
komu ef óskað er og ekið aftur
við brottför.
Láttu draumaferðina til
Tælands verða að veruleika -
það er mögulegt með SAS!
Hafðu samband við SAS eða
ferðaskrifstofuna þína.
M/S4S
Laugavegi 172 Sími 62 22 11
SAS á íslandi - valhrelsi í flugi!
Verö miöast viö einstakling í tveggja manna herbergi. 1250 kr. flugvallarskattur er ekki innifalinn í veröi.