Morgunblaðið - 20.10.1992, Blaðsíða 2
2 B
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
SVIÞJOÐ
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 1992
Morgunblaðið/Bjarni
Valsmennlrnlr Ólafur Stefánsson, ti vinstri, og Dagur Sigurðsson eftir fyrsta leikinn gegn Egyptum í Laugardalshöll á laugardag — en það var einmitt fyrsti
landsleikur beggja með A-liði íslands. Ólafur gerði tvö mörk í fyrsta leiknum, eitt á sunnudaginn og fjögur í gærkvöldi, er hann var besti maður liðsins.
Kærkomin æfing
- sagði ÞorbergurAðalsteinsson landsliðsþjálfari um leikina við Egypta
Stefán
Stefánsson
skrífar
Við lékum vömina mjög framar-
lega, allavega framar en við
höfum gert að undanfömu. Varnar-
leikurinn gekk vel og
markvarslan var
góð,“ sagði Þorberg-
ur Aðalsteinsson,
eftir fyrsta leikinn
við Egypta á laugardaginn, sem ís-
land vann örugglega 27:18. „Við
vomm kannske heldur miklir klaufar
að ná ekki boltanum oftar í byijun
og nýta okkur hraðaupphlaupin, en
það kom síðar og við gerðum níu
mörk úr hraðaupphlaupum. Eftir að
staðan var orðinn ömgg fengu flest-
ir yngri leikmennimir að spreyta sig.
Egyptamir reyndu að komast framar
á völlinn og við áttum ágæt svör við
því en það er alltaf erfitt að leika
gegn þjóðum frá löndum eins og
Egyptalandi, Suður-Kóreu og Alsír.
Þetta var kærkomin æfíng. Nýliðam-
ir komu vel út en það var að vísu
lítill undirbúningur, en þeir klára
þetta alveg ágætlega," sagði Þor-
bergur Aðalsteinsson.
íslendingar bám sigurorð af
Egyptum í öðmm leik liðanna á
sunnudagskvöldið í Laugardalshöll-
inni, 25:21. Það var aðeins frábærri
markvörslu Bergsveins Bergsveins-
sonar að þakka að sigur vannst, en
hann lokaði nánast markinu síðustu
tíu mínúturnar. Leikurinn bar öll ein-
kenni vináttu- og æfíngaleiks; nýir
leikmenn reyndir og kerfi æfð en
samt stefnt á sigur.
Þorbergur setti reynt lið inná í
byijun og allt gekk upp hjá íslending-
um í sókninni á meðan vömin lak
svolítið. Eftir um tuttugu mínútur
komu Dagur Sigurðsson og Ólafur
Stefánsson inná fyrir Gunnar Gunn-
arsson og Magnús Sigurðsson, en
þeim tókst ekki að halda taktinum
og Egyptar náðu naumu forskoti
rétt fyrir leikhlé.
í síðari hálfleik beittu Egyptar
sterkri pressuvöm mjög utarlega
sem sló íslendinga útaf laginu og
gestimir juku forskotið sem sýndi
að þegar bmgðið var útaf hefðbundn-
um íslenskum handknattleik var fátt
um svör. Liðið lék þá meira eins og
hver fyrir sig en ekki sem lið. Um
miðjan hálfleik leit út fyrir ósigur
en þá tók Bergsveinn sig til í mark-
inu og varði sem berserkur svo
Egyptar náðu aðeins að gera eitt
mark á móti átta mörkum íslendinga
svo staðan breyttist úr 17:20 í 25:21.
„Leikurinn fór mjög hægt af stað
og við áttum í vandræðum með þá
vamarlega séð, við náðum ekki í þá
og vomm ekki að framkvæma það
sem við höfðum ákveðið fyrir leik
því við ætluðum að stoppa þá með
því að brjóta en lentum alltaf skrefí
á eftir," sagði Þorbergur Aðalsteins-
son. „Síðan lagast þetta í seinni hluta
seinni hálfleiks, þá náðum við í þá
og náðum að bijóta. Það vantaði
marga fastaleikmenn því við vorum
að prófa nýja leikmenn. Kerfín gengu
mjög vel upp í fyrri hálfleik og þau
opnuðu gífurlega en í seinni komu
Egypar meira út og náðu að stoppa
okkur. Það skar sig enginn úr nema
kannski Bergsveinn í lokin og af
nýliðum kom Ólafur Stefá'nsson best
„Ekkert til að hrópa
húrra fyrir“
„Þetta var ekki erfítt líkamlega,
frekar andlega og var kannski ekk-
ert til hrópa húrra fyrir. Egyptar
spila náttúmlega öðmvísi handbolta
en Svíar og þessar þjóðir,“ sagði
nýliðinn Ólafur Stefánsson.
„Erum að prófa leikmenn"
„Þetta var í lagi sem undirbún-
ingsleikur, við emm einnig að prófa
leikmenn og laga kerfin en ég held
að við höfum lært eitthvað af þessum
leik, Asem El Sadany, þjálfari
Egypta. „íslendinga þekkjum við vel
- þeir era með sterkt lið og em nú
að prófa nýja leikmenn eins og við.
Þeir eru að undirbúa sig og eiga
eftir að lagfæra marga hluti fyrir
heimsmeistarakeppnina en ég tel ís-
lenska landsliðið eitt það besta í
heiminum.. í íslenska liðinu fannst
mér bestir númer 10 [Magnús Sig-
urðssonj og númer 6 [Gunnar Gunn-
arsson] sera stjómaði mjög vel, þeir
vora okkur hættulegastir. Það er
mjög gott að’ leika gegn sterku liði
eins og íslandi á undirbúningstíman-
um og vonandi eigum ■ við eftir að
lærá mikið áf þessum leikjum.“
Ystad tapadi
Drott og Skövde em efst og jöfn með 10 stig eft-
ir sex umferðir í sænsku úrvalsdeildinni í hand-
knattleik. Drott malaði Váxjö 27:17 á útivelli og
Skövde vann Kristjanstad 33:21.
Ystad, sem leikur gegn FH í Evrópu-
Svemn keppninni, tapaði á útivelli fyrir Irsta
skrifarfrán 29:32‘ SMtan Toni Hedin gerði 8
Svíþjóó mörk fyrir Ystad og Per Carlen skor-
aði 5 af línunni.
Carlen
» . . •
Elverun á sigurbraut
Elvemn, sem Þórir Hergeirsson þjálfar,■ sigraiðj Fjellhamar 27:1 l.í
norsku 1. deildinni í handknattleik um helgina. Elveran hefur kom-
ið mjög á óvart og ef nú í_öðru sæti eftir firam umferðir með 8 stig.
_______ Stavanger, sem Valur sló út í Evrópukeppnihni, ,vann.
Runar um hetgina 21:2,0 og er efst. með tíú stig og er
FráErlingi eina liðið sem ekki hefur tapað leik. *
íNrTenT^' Jakob Jónsson var márkahæstur með 8 mörk er Vik-
ing tapaði fyrir Urædd, 22:21. Viking hefur 5 stig eftir
fimm leiki.
Siguiiás og
LeifurGeir
í Stjömuna
Sigurlás Þorleifsson var um
helgina ráðinn þjálfari 2.
deildarliðs Stjömunnar frá
Garðabæ í knattspymu fyrir
næsta keppnistímabil. Sigurlás
þjálfaði lið ÍBV síðustu ár, en
hætti um mitt sl. sumar.
Þá var gengið frá því að fram-
heijinn Leifur Geir Hafsteinsson
leiki einnig með Stjömunni næsta
sumar, en hann hefur verið einn
aðal markaskorari ÍBV undanfar-
ið og hlaut t.d. bronsskó Adidas
í fyrra, er hann varð þriðji marka-
hæsti maður 1. deildar með 12
mörk.
NOREGUR
KNATTSPYRNA
Örebro
áfram í
deildinni
AIK með aðra
höndina á meistara-
bikarinn
Hlynur Stefánsson og félagar í
Örebro tryggðu sér um helg-
ina sæti i sænsku úrvalsdeildinni
„Alsvenskan" að ári
Sveinn með 1:0 siKri á
Agnarsson ' Halmstad á heima-
skrifar frá velli. Bæði liðin hafa
Svíþjóð 25 stig og leika því
f úrvalsdeildinni á næsta keppnis-
tímabili en baráttan um hin sætin
tvö, sem gefa sjálfkrafa rétt til þátt-
töku í Alsvenskan er afar hörð.
Brage er í þriðja sæti með 23 stig
eftir 1:1 jafntefli við Djurgárden.
Hácken er í 4. sæti með 22 stig og
Djúrgárden hefur 21 stig. Þá gæti
GAIS einnig blandað sér í baráttuna
því liðið hefur 17 stig og á inni leik.
í meistarakeppninni stendur slag-
urinn sem fyrr á milli þriggja liða;
AIK, Norrköping og Öster. Þegar
ein umferð er eftir er AIK efst með
31 stig og hin með 29 stig. AIK og
Norrköping mættust áJaugardag í
skemmtilegum leik. AIK fór á kost-
um fyrstu 50 mín. leiksins og gerði
þá tvö mörk, en gestimir jöfnuðu
2:2_ áður en yfír lauk.
Á sunnudag léku Trellborg og
Öster og með sigri gat Öster skotist
á toppinn. Fyrirfram var veðjað á
sigur gestanna enda möluðu þeir
Trelleborg 6:1 fyrri í sumar. En nú
var annað upp á teningnum. Trelle-
borg gerði tvö mörk rétt fyrir hálf-
leik. Oster byijaði síðari hálfleik af
miklum krafti og minnkaði strax
muninn og gerði rétt á eftir mark
sem var dæmt af vegna rangstöðu
sem þótti harður dómur. Litlu síðar
komst Trelleborg í sókn, markvörð-
ur Öster, Pál Lundin, þaut út úr
markinu og hugðist hreinsa frá en
skaut beint í framheija Trelleborg
sem lék á Lundin og skoraði. Við
markið féllust gestunum hendur og
Trelleborg lék á alls oddi og gerði
fjögur mörk á næsta stundaríjórð-
ungi og lokatölur 7:2 og næst
stærsti ósigur Öster í úrvalsdeildinni
varð staðreynd.
í þriðja leik meistarakeppninnar
sigraði Gautaborg lið Malmö 2:0.
Gautaborg er nú aftur farið að leika
eins og meistumm sæmir og Iiðið
þykir nú sigurstranlegt gegn Lech
Posnan i Evrópukeppninni á morg-
un. í síðustu umferðinni leikur AIK
við Malmö á útivelli, Öster við
Gautaborg og Norrköping tekur á
móti Trelleborg. AIK nægir jafn-
tefli til að vinna sinn fyrsta meist-
aratitil í 55 ár vegna þess hve
markamunur liðsins er mikið betri
en hinna.