Morgunblaðið - 20.10.1992, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.10.1992, Blaðsíða 8
SGei >Í38ÖT>JQ .OS H’JOAGUI.GIÍ-M GIGAJaWJDHOM fttffrgntiMaftifc KNATTSPYRNA / ÞÝSKALAND Eyjólfúr hetja Stuttgart - skoraði tvö mörk og fiskaði vrtaspymu í 4:0 sigri gegn Dynamo Dresden EYJÓLFUR Sverrisson var heidur betur í sviðsljósinu er Stuttgart sigraði Dynamo Dresden 4:0 á Neckar-leikvanginum í Stuttgart á laugardag. Hann skoraði tvö mörk og fiskaði vítaspyrnu. „Það er ekki hægt annað en vera ánægður með þennan leik,“ sagði Eyjólfur Sverr- isson í samtali við Morgunblaðið. Eólfur byijaði á að fiska vítaspyrnu á 15. mínútu. Hann átti skot á markið sem vamarmaður varði með hendi á marklínu. Fritz Walter skoraði úr vítaspymunni, 1:0, og þannig var staðan í hálfleik. Knup bætti öðru mark- inu við á 71. mínútu og síðan var komið að þætti Eyjólfs. Hann skoraði fyrra mark sitt með skalla á 77. mínútu og þremur mínútum síðar bætti hann öðru við eftir gegnumbrot. „Ég átti ekki að spila nema í sextíu mínútur vegna þeirra meiðsla sem hafa hijáð mig frá því í Evrópuleiknum á móti Leeds í Barcelona. En leikurinn var alls ekki erfiður því þeir voru inní eigin vítateig lengst af og við höfðum leikinn í höndum okkar og aðeins spuming um að skora. Mér gekk vel í leiknum og fann ekki til og því var ekki ástæða til að taka mig útaf,“ sagði Eyjólfur, sem lék í stöðu vamartengiliðs eins og undan- farið. - Nú hefur Daum þjálfari verið gagn- rýndur að undanförnu fyrir mistökin sem hann gerði í Evrópuleiknum í Leeds þar sem hann notaði of marga erlenda leik- menn. Var þessi sigur ekki mikilvægur til að lægja þær gagnrýnisraddir? Jú, þessi sigur var mjög mikilvægur fyrir liðið í heild og ekki síst fyrir Daum þjálfara. Ég er ekki á því að Daum hafi verið valtur í sessi. Hann jer sá' maður sem kom okkur í þá stöðu sem við eram í og við vitum að hann er góður þjálfari og verður ekki látinn fara. Hann hefur stuðning allra leikmanna að minnsta kosti." Stuttgart er nú í 5. sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Bayem Miinchen sem á einn leik til góða. Stuttgart leikur um næstu helgi við Köln á útivelli og síðan gegn Bayem Munchen á heima- velli. „Þannig að þetta era hörkuleikir sem eru framundan og það verður spenn- andi að glíma við Bayem,“ sagði Eyjólf- ur. Þess má geta að Eyjólfur hefur einu sinni skorað fleiri mörk í leik fyrir Stuttg- art. Það var þegar hann gerði þrennu gegn Dortmund í 7:2-sigri fyrir tveimur árum. Eyjólfur Sverrlsson átti mjög góðan leik með Stuttgart - skoraði tvö mörk og fiskaði vítaspymu. FOLK ■ BERND Schtister skrifaði um helgina undir samning til eins árs til viðbótar hjá Atletico Madrid á Spáni. Hann lék sinn 300. leik í spænsku deildinni um helgina. ■ SIMANIC frá Júgóslaviu, en hann leikur með Stuttgart er ef til vill þekktastur fyrir að vera fjórði útlendingurinn sem kom inná í leikn- um gegn Leeds. Þetta sama kvöld lést eldri bróðir hans úr krabbameini í Júgóslavíu, en sagan sagði í upp- hafi að hann hefði látist í átökunum þar. ■ STANLEY Menzo, markvörður Ajax og hollenska landsliðsins, meiddist í leik með Ajax gegn Cambuur í hollensku deildarkeppn- inni um helgina. Hann þurfti að yfir- gefa völlinn í leikhléi. Ajax vann leikinn 3:1. ■ PORTO sigraði Espinho 4:1 í portúgölsku knattspymunni um helgina og er í efsta sæti, tveimur sigum á undan Belenense. Jorge Couto, Búlarinn Emile Kostad- inov, Antonio Andre og Jose Semedo gerðu mörk Porto en Bras- ilíumaðurinn Joel Diziario minnk- aði muninn fyrir Espinho. Bobby Robson, fyrram landsliðsþjálfari Englands, stýrði liði sínu Sporting til sigur gegn Benfica 2:0 og er komið í þriðja sæti. ■ ALLY McCoist hélt uppteknum hætti er hann skoraði eina mark Glasgow Rangers gegn Hibemian um helgina. Þetta var 23. mark hans á tímabilinu. ■ JAN Mölby, danski leikmaður- , inn í liði Liverpool, meiddist í lok leiksins gegn Manchester United á sunnudag. I fyrstu var talið að hann hefði fótbrotnað, en svo kom í ljós að hann hafði meiðst á ökkla. ■ IVAN Lendl, sem keppir nú fyr- ir Bandaríkin, sigraði Svíann Hen- rik Holm í úrslitum í einliðaleik karla, 7:6 og 6:4, á Seiko-mótinu innanhúss sem lauk í Tókýó á sunnudag. Þetta var 92. sigur Lendls á ferlinum en fyrsti sigurinn eftir að hann gerðist bandarískur ríkisborgari í júlí sl. Hann fékk 7,5 milljónir ÍSK í verðlaun. ■ MARTINA Navratilova hélt upp á 36 ára afmælið sitt á sunnu- daginn með því að vinna Gabrielu Sabatini frá Argentínu í úrslitum á sterku móti í Filderstat í Þýska- landi. Eftir spennandi leik í fyrsta setti 7:6 sýndi Navratilvoa yfirburði sína og vann sannfærandi 6:3. Navr- atilova vann Arantxu Sanchez- Vicario frá Spáni í undanúrslitum 6:1 og 6:1. Sabatini vann banda- rísku stúlkuna Mary Joe Fernandez 7:5 og 6:2. ■ ATLANTA Braves sigraði Tor- onto Blue Jays 3:1 í fyrsta leik lið- anna í úrslitum í bandaríska hafna- boltanum í Atlanta á laugardaginn. En Blue Jays sigraði á sunnudag 5:4 og er staðan því jöfn 1:1. Þrír mæstu tveir leikir fara fram í Tor- onto. Það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki verður meistari. Sonur Beckenbauers stöðvaði Bayern Miinchen Stefan Beckenbauer, sonur Franz Beckenbauers varaforseta Bayem Miinchen, lék vel með Saar- brucken er liðið gerði 1:1 jafntefli á heimavelli sínum. Stefan lék í vöm- inni og hélt sóknarmanninum Bruno Labbadia alveg niðri. Thomas Kristl náði forystunni fyrir Saarbriicken með skalla eftir fyrirgjöf frá banda- ríska leikmanninum Eric Wynalda, sem var svo nálægt því að gera sigur- markið á síðustu mfnútum leiksins. Oliver Kreuzer jafnaði fyrir Bayem á 51. mínútu eftir homspymu Lothar Mattáus. Erich Ribbeck, þjálfari Bayem, sagði að Saarbriicken hafi verðskuld- að annað stigið. „Við náðum ekki að nýta okkur þau færi sem við feng- um í fyrri hálfieik. í síðari hálfleik stjómuðum við leiknum en við hefð- um alveg eins getað tapað í lokin. Við erum ánægðir með annað stig- ið,“ sagði þjálfarinn. Bayem hefur ekki tapað níu fyrstu leikjum sínum í deildinni en jafntefl- ið minnkaði forystu liðsins á toppnum niður í eitt stig eftir að næst efsta liðið, Eintracht Frankfurt, vann Numberg 2:1. Leverkusen, sem vann Kaiserslautem 2:0 á heimavelli, er í þriðja sæti með jafnmörg stig og Frankfurt. HANDKNATTLEIKUR Héðinn með fimm mörfc Héðinn Gilsson gerði fimm mörk fyrir Dusseldorf þegar liðið sigr- aði Lemgo 20:18 um helgina. Héðinn og félagar vora 10:8 undir í leikhléi og það var ekki fyrr en rétt undir lokin sem Dusseld- orf komst yfir og það var Héðinn sem gerði marið, 19:18, þegar skammt var til leiksloka. Sigurður Bjamason og félagar í Grosswaldstadt sigruðu Magde- burg 22:20 og gerði Sigurður eitt mark í leiknum. Magdeburg hafði 10:8 yfir f leikhléi en tókst ekki að fylgja þvf eftir. Dormager sigraði Kiel 21:18, Niederwiirzbach sigraði Milbertsho- fen 18:15, Fredenbeck tapaði heima fyrir Hameln 22:23 og Schutt- erwald varð að sætta sig við að tapa fyrir Massenheim á heima- velli 21:24. GETRAUNIR: X11 X11 1 X X 121X LOTTO: 4 5 11 14 15 / 37

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.