Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 5
$ |5
VmSKIPTt/flTtgMntfcfewN^ 33i(«KtáBÍ»iftM2
mikilvægt að fram komi að núver-
andi ástand hjá Fjárfestingafélag-
inu Skandia hefur ekkert að gera
með vátryggingastarfsemi Skandia
ísland, þar er um algerlega aðskilda
starfsemi að ræða. Sú starfsemi
sem hefur snúið að tryggingunum
hefur verið mjög fagmannleg, við
styðjum fyllilega við bakið á stjórn-
endum vátryggingafélagsins og
munum gera það áfram. Ég tel
einnig að þær ákvarðanir sem tekn-
ar hafa verið af stjórn Fjárfestinga-
félagsins Skandia hafi verið gerðar
mjög fagmannlega og því styðjum
við það einnig.“
—Þú telur þá ekki að betra hefði
verið að lækka gengi hlutdeildar-
skírteina Fjárfestingafélagins
Skandia strax í stað þess að loka
fyrir viðskiptin?
„Þú verður alltaf að treysta sér-
fræðingum og sérfræðingar á þessu
sviði ráðlögðu þessa lausn.“
Gísli Öm Lárusson forstjóri tekur
undir orð Victorin og telur ómak-
legt að vátryggingafélagið sem
Skandia ísland reki missi traust
almennings vegna þessara aðgerða
sem séu í einu og öllu gerðar til
að tryggja hagsmuni eigenda hlut-
deildarskírteinanna. „Fjárfestinga-
félagið Skandia er að öllu leyti í
eigu Skandia Norden og forráða-
menn fyrirtækisins sem hafa verið
að kynna sér íslenska markaðinn
koma nú tvíefldir inn á vátrygg-
ingamarkaðinn hér. Með skipulags-
breytingu Skandia sem tekur gildi
þann 1. janúar 1993 lítur Skandia
Norden ekki lengur einungis á Is-
land sem hluta af sínum heima-
markaði heldur eru Norðurlöndin
einn markaður og Skandia ísland
verður hluti af stjóm- og verkskipu-
legri heild samsteypunnar. Skandia
gerir sér þó grein fyrir því að ímynd
fyrirtækisins getur hafa skaðast hér
á landi en fyrirtækið er jafnframt
reiðubúið til að leggja enn meira á
sig í þágu viðskiptavinanna til að
bæta þá ímynd.
Sú staða sem komin er upp núna
hefur ekkert með það að gera að
Skandia skuli vera umsýsluaðili
sjóðanna. Sjóðirnar hafa rýrnað og
hefðu seljendur verið í okkar spor-
um hefðu þeir þurft að grípa til
sömu ráðstafana.“
Ekki víst að sjóðirnir opni
aftur
—í viðskiptablaðinu fyrr í þessum
mánuði kom fram að uppi væm
efasemdir um að Verðbréfamarkaði
Skandia reyndist kleift að opna
sjóðina aftur og lækka um leið
skráð gengi þeirra. Jafnframt var
sagt að ef Skandia treysti sér ekki
til að opna sjóðina á ný þá væri
m.a. sá möguleiki fyrir hendi að
sjóðirnir yrðu leystir upp og skila-
nefnd greiði eignirnar eftir því sem
tækist að innheimta þær. Auk þess
var bent á að hugsanlega yrði öðr-
um aðila falin umsýsla sjóðanna.
Victorin var spurður að því hvort
sá möguleiki væri fyrir hendi að
ekki verði opnað fyrir viðskipin í
sjóðunum aftur?
„Það geta hugsanlega orðið aðrar
lausnir en að sjóðirnir verði aftur
opnaðir fyrir viðskiptum. Við vitum
hins vegar ekki enn hver lausnin
verður. Enn legg ég megináhersl-
una á að við leitum bestu hugs-
anlegra lausna fyrir hluthafana. Ef
í ljós kemur að hagsmunum þeirra
er betur borgið með annarri leið en
að Skandia reki sjóðina þá veljum
við þá leið.“
Hann segir að ef og þegar Skan-
dia opnar sjóðina aftur þá verði
fyrirtækið að vera öruggt um að
það geti mætt þeim skyldum sem
fyrirtækið telur að gerðar séu á
þessum markaði.
Sjóðír eru allt annað en banki
Leif Victorin telur mikilvægt að
hluthafar í sjóðunum hjá Fjárfest-
ingafélaginu Skandia og aðrir fjár-
festar í sambærilegum sjóðum á
íslandi, geri sér grein fyrir því að
slík fjárfesting er ekki eins og að
leggja fé í banka. Ekki sé einungis
hægt að búast við arði líkt og af
bankareikningi. Stundum megi bú-
ast við meiri arði en af bankareikn-
ingi en stundum megi búast við
minni arði. Áhættan við fjárfest-
ingu í sjóðum sé meiri og því eigi
það ekki að koma mönnum á óvart
að gengið getur lækkað.
ÁHB
----------77—
VERSLAR ÞU MEB VÖRUR
FRÁ MEGINLANDI
_ T 9
Skipaafgreiðsla Jes Zimsen hf. býður upp á
nýja og hagkvæma flutningaþjónustu.
Vörum frá öllum helstu verslunarborgum
Evrópu er safnað saman í Lúxemborg og
sendar flugleiðis til íslands á einu bretti.
skipaafgreiðsla
jes zimsen hf
ALHLIÐA FLUTNINGAÞJÓNUSTA
Sími: (91) 13025, 14025. Fax: (91) 622973
m inrgmwð
” Meira en þú geturímyndað þér! co
nm
•Ncaiastiá laíar fram aaí tesfaooo
t~(pr//tá/.öÁ /tjxUuíá/a, /jrýjíe^u^ur ma/w>r orj no/a/etf
? éj) /jamf/< /ó'tt/ií/ í /et//a,nt/i um^öv/.
(SumotnaMa/fMt
:/n 20-U0 -maivna Ac/ia
____
-t/a&u* mtí W
« Borðapantanaslmi 1 77 59 *
V.V
1
SAS fraktflug frá Island'
Þegar þú sendir vörur þínar með fraktflugi SAS
er tryggt að vörurnar berast heimshorna á milli
með skjótum hætti. Daglega er hægt að velja
um 700 brottfarir SAS flugvéla um allan heim.
Frá íslandi eru brottfarir á mánudags-,
miðvikudags- og laugardagsmorgnum.
Tryggðu fraktinni þinni pláss með SAS
og fyrr en varir er hún komin á áfangastað.
Hafðu samband við fraktdeild SAS, þar færðu
allar nánari upplýsingar í síma 623266.
misas
CARQO
Laugavegi 172 Simi 623266
, al,*4
Vegna hagstæðra
samningagetumvið
núboðiðtakmarkað
magn Macintosh
Quadraásérlega
hagstæðuverði,frá
281.125,!
Leitíð tilboða í stærri kaup!
/
Apple-umboðið
Skipholti 21, Rvk.
S: (91)624800