Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992 Lettar I starfsþjálfun hjá Islandsbanka ÞRÍR starfsmenn lettneska bank- ans Latvijas KrajBanka eru hér á landi í kynnisferð í boði íslands- banka. Tveir þeirra 'munu verða í starfsþjálfun til mánaðarmóta þar sem aðaláherslan verður lögð á alþjóðaviðskipti. Heimsókn Lettanna kemur í kjöl- far ráðstefnu um samskipti banka á Vesturlöndum og banka í fyrrum Sovétrikjunum, sem haldin var í Finnlandi fyrr á árinu. Halldór S. Magnússon, forstöðumaður Alþjóða- deildar íslandsbanka, sótti ráðstefn- una og hitti þar m.a. fulltrúa lett- neska bankans. Latvijas KrajBanka er stærsti banki Lettlands á sviði einstaklingsþjónutu og rekur 700 afgreiðslustaði um allt landið. Að sögn Halldórs er bankakerfið í Eystrasaltslöndunum, Rússlandi og Úkraínu enn skammt á veg komið. Tæknivæðing er lítil og þekking starfsmanna takmörkuð, einkum á sviði alþjóðaviðskipta. Tungumála- kunnátta er einnig í lágmarki og bókhaldskerfi þeirra er mjög ólíkt því sem viðgengst hjá vestrænum bönkum. Halldór segir að með því að bjóða starfsmönnum lettneska bankans til íslands vilji íslandsbanki reyna að leggja sitt af mörkum við þróun bankakerfísins í Eystrasalts- löndunum. Ivars Linde, forstöðumaður al- þjóðadeildar lettneska bankans, verður hér á landi í tvo daga og mun starfsfólk íslandsbanka kynna fyrir honum helstu þætti í starfsemi bank- ans. Inguna Sladze og Sandra Tetere starfsmenn bankans, munu einnig taka þátt í kynningunni, en þær fá síðan starfsþjálfun í alþjóðaviðskip- um. Sérsök áhersla verður lögð á innheimtur, ábyrgðir og greiðslu- skipti og fer starfsþjálfunin fram hjá Alþjóðadeild íslandsbanka og útibú- inu við Lækjargötu. STARFSÞJALFUIM — Á myndinni eru í fremri röð Inguna Sladze, Ivars Linde og Sandra Tetere. í aftari röð eru Randver Flecken- stein, Kristinn T. Gunnarsson og Halldór S. Magnússon. Borland kynnir EINSTAKT TILBOÐ á töflureiknum! Sameinaðu kostina Núna getur þú gert mjög góð kaup á töflureiknum frá Borland. Þú getur fengið frábæran töflureikni fyrir DOS og Windows á verði annars þeirra. Þetta einstaka tilboð kallar Borland WinDOS™ Nýjung: Quattro Pro fyrir Windows með minnis- blokkum í Quattro Pro fyrir Windows er hægt að gera fjölmargt sem er ómögulegt með öðrum töflureikni. Frumlegar minnis- blokkir (Notebooks) með flipum sem gefa má nöfn gera þér auðveldara en nokkru sinni að skipujeggja töflumar þínar og halda þeim við. Hlutaskyggnir (Object Inspector) opnar valseðla sem veita með nýjum hætti aðgang að við- eigandi möguleikum. Og í Quattro Pro er rómuð grafík sem jafnast á við sjálf- stæð grafíkforrit. Auðvelt er að sækja gögn í gagnagrunna og nota ný og öflug verkfæri við að greina samhengi hlut- anna. Auk þess er allt sem þarf til að búa til sérsmíðuð notendaforrit. Allt þetta og margt fleira gerir Quattro Pro fyrir Windows öflugra og aðgengilegra en áður hefur þekkst. I----------------------------------------------------1 Quattro Pro fyrir Windows og DOS Meðfylgjandi er „Quattro Pro 4.0... hinn fullkomni DOS töflureiknir" InfoWorld, apríl 1992 Enginn annar töflureiknir hefur unnið til jafn margra viðurkenninga og Quattro Pro fyrir DOS. Milljónir notenda hafa þegar valið Quattro Pro því í honum sameinast á einstæðan hátt öflugir þrýstihnappar og gröf sem laga sig eftir breytingum gagnanna. Fróbær samhæfni við Lotus og Excel Tvöfaldur pakki á einföldu verði Það er ekki nóg að Quattro Pro lesi og visti skrár með Lotus og Excel sniði auk margra annarra heldur getur forritið líka notað fjölva og umbrot úr öðmm forritum. Tímabundið tilboð, gríptu tœkifœrið! I____________________________________I Af hverju WinDOS? Hafðu samband, þú færð hvergi eflugri töflureikni! Með WinDOS tilboðinu er mun auð- veldara en áður að flytja sig milli DOS og Windows. Hægt er að nota bæði DOS og Windows ef það hentar t.d. Windows í vinnunni og DOS á fartölv- unni eða heima. Þú hefur alveg einstakt tækifæri til að fá þér Quattro Pro WinDOS núna. Gríptu tækifærið strax í dag og fáðu þér fullkominn töflureikni fyrir DOS og Windows á tilboðsverði. = ÖRTÖLVUTÆKNI = Tölvukaup hf • Skeifunni 17 • Sími 687220 • Fax 687260 Tillaga Breytingu á aðstöðu- gjaldi fagnað FRAMKVÆMDASTJÓRN ís- lenskrar verslunar fagnar fram- komnum tillögum um breytingar á aðstöðugjaldi sem eru í samræmi við stefnumið ríkisstj órnarinnar um umbætur í skattamálum og miða m.a. að því að eyða mismun- um milli framleiðsluþátta og at- vinnugreina. í fréttatilkynningu frá íslenskri verslun segir: „Þótt best væri að fella aðstöðugjald alfarið niður eða breyta því í afkomuháða tekjuöflun eins og t. d. tekjuskatt getur Islensk verslun sæst á framkomnar tillögur sem áfanga á réttri leið. Auk þess að draga úr mismunum gagnvart verslun sem meta má á u. þ.b. l'/2 milljarð, draga framkomn- ar tillögur einnig verulega úr upp- söfnunar áhrifum núgildandi að- stöðugjaldakerfis sem komið hefur einna þyngst niður á verslun vegna margra sölustiga í þeirri grein. Helstu kostir tillögunar felast þó einkum í því að samkeppnisstaða dreifbýlisverslunar stórbatnar og að almennt vöruverð í verslun til neyt- enda getur lækkað sem nemur fram- angreindri upphæð." (Fréttatilkynning) STALSKÁPAR FYRIR VINNUSTAÐI 0.FL. Stálskápar með 1 -2-3-4 og 5 hólfum með læsingu Staðlaðar stærðir á einingu: hæð: 170sm, dýpt: 55sm breiddir: 25-30 og 40sm. Að auki smíðum við aðrar stærðir eftir pöntun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.