Morgunblaðið - 22.10.1992, Side 8

Morgunblaðið - 22.10.1992, Side 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKlPTI/flTVINNPLÍF FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992 Flug Aukið tap hjá Air France FRANSKA ríkisflugfélagið Air France var rekið með tapi á fyrri hluta ársins, og er tapið nokkru meira en á fyrri hluta síðasta árs. Forsvars- menn félagsins hyggjast bregðast við tapinu með niðurskurði kostnaðar. Tap félagsins reyndist vera 1,5 milljarðar franka, en á fyrri hluta síðasta árs var tapið 1,2 milljarðar franka. Það tap var að verulegu leiti rakið til Persaflóadeilunnar, sem þá olli mikilli kreppu í alþjóðleg- um flugrekstri. Nú eru ástæður taprekstrarins raktar til of mikillar flutningsgetu greinarinnar í heild. Air France bendir á að flugfélög heimsins töp- uðu alls 33 milljörðum franka á árunum 1990 og 1991, og minna á að meginkeppinauturinn, þýska fé- LOT og Delta ísamstarf Varsjá, Reuter Pólska ríkisflugfélagið LOT og bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hafa skrifað undir viljayf- irlýsingu um náið samstarf. Samkomulagið felur í sér að flug- félögin tvö munu samræma áætlan- ir sínar til að stytta viðkomu far- þega í flugi milli Póllands og Banda- ríkjanna. Farþegar Delta komast þá tafarlítið í tengiflug LOT frá Varsjá til annarra staða innan og utan Póllands, meðal annars Lithá- ens og Úkraínu. lagið Lufthansa, er einnig rekið með umtalsverðu tapi um þessar mundir. Forsvarmenn Air France viður- kenna þó þörfína fyrir að draga úr kostnaði, sem vaxið hefur ótæpilega á síðustu árum. Á síðasta ári hóf félagið aðgerðir í því skyni. Nú er ætlunin að ganga enn lengra. í fyrsta lagi verður áætlunum um fækkun starfsfólks flýtt. Ætlunin er að fyrir árslok 1993 hafi starfs- mönnum fækkað um 5.000. Enn- fremur er nú stefnt á að draga úr kostnaði við mannahald um 10% án þess að fækka starfsmönnum frek- ar. Auk þessa sér félagið sig knúið til þess að draga úr fjárfestingar- áformum sínum. Upphaflega var gert ráð fyrir að fjárfesta fyrir um 39 milljarða franka á árunum 1992 og 1993. í fyrra var sú upphæð lækkuð um 2,4 milljarða og nú hef- ur hún lækkað um 1,8 milljarða til viðbótar. Flugfélagið áformar einnig að draga úr langtímafjárfestingum sínum um 6 milljarða franka, eða um 17%. Samdrátturinn í fjárfestingum mun að öllum líkindum einkum verða með þeim hætti að dregið verður úr kaupum á stórum flugvél- um til notkunar á lengri áætlunar- leiðum, en aukin áhersla lögð á að mæta endurnýjunarþörf á þeim flugleiðum með smærri vélum. Mánaðarlaun fjögurra starfsstétta í nokkrum löndum VERKAMAÐUR SKRIFSTOFUMAÐUR YFIRMAÐUR ÞÝSKALAND FORSTJÓRI 167.000 kr. KANADA 158.000 kr. JAPAN 158.000 kr. ItalIa 142.000 kr. FRAKKLAND 133.000 kr. BANDARlKIN 125.000 kr. BRETLAND 117.000 kr. BRETLAND ItalIa BANDARlKIN I 342.000 kr. 1,1 millj. kr. 3,3 millj. kr. | FRAKKLAND FRAKKLAND FRAKKLAND 283.000 kr. 875.000 kr. 2,2 millj. kr. ÞÝSKALAND JAPAN ItalIa 275.000 kr. 850.000 kr. 2,1 millj. kr. ítalIa BRETLAND BRETLAND 267.000 kr. 742.000 kr. 2,0 millj. kr. BANDARlKIN BANDARlKIN KANADA 267.000 kr. 733.000 kr. 1,9 millj. kr. KANADA ÞÝSKALAND ÞÝSKALAND 217.000 kr. 667.000 kr. 1,8 millj. kr. JAPAN KANADA JAPAN 192.000 kr. 608.000 kr. 1,8 millj. kr. Svíþjóð Dýpkandi efnahagslægð * Wall Street Journal. Á komandi ári kreppir enn frekar að sænsku hagkerfí, segir í haustspá Svenska Enskilda Bank- en. Einkaneysla minnkar, fram- leiðsla dregst saman, atvinnuleysi eykst og fjárlagagatið stækkar. í kjölfar 1,2% samdráttar á þessu ári mun verg landsframleiðsla drag- ast saman um 1,4% árið 1993. í spánni er gert ráð fyrir að nýlegt samkomulag stjómar og stjómar- andstöðu leiði til verulegrar vaxta- lækkunar. Nýtt fjárlagafmmvarp fyrir árið 1993, sem ætlað var að auka trú manna á hagkerfinu og koma í veg fyrir fall sænsku krónunnar, felur i sér að einkaneysla minnkar um 2% og verg fjárfesting um 4,9%. Á móti kemur að verðbólga fer varla yfir 2,5%. Launamál Hvar eru hæstu launin? NÝLEGUR samanburður á launa- kjörum stétta milli landa hefur einkum leitt í ljós hversu erfítt er að framkvæma slíkan saman- burð. Vandinn eykst stöðugt eftir því sem ofar dregur í virðingar- og Iaunastiganum. Þar bætist einnig við sá vandi að í mörgum fjölþjóðlegum fyrirtækjum eru yfirmenn oft frá heimalandi fyrirtækisins. Þannig eru til dæmis margir Japanir yfirmenn fyrirtækja í Bandaríkjunum og svo framvegis. í könnuninni var tekið tillit til launa, aukagreiðslna, fríðinda, frammistöðutengingar launa til lengri tíma, sem og ýmiss konar greiðslu í lífeyrissjóði, sjúkrasamlög og tryggingar. Utilokað er þó að taka tillit til alls. Til dæmis er erfitt að flokka þá hefð japanskra forstjóra og framkvæmdastjóra að gefa hver öðrum gjafír á kostnað fyrirtækisins um áramót og mitt ár. í ljós kom að bandarísk fyrirtæki borga æðstu yfirmönnum sínum áberandi best. Megin munurinn felst í háum aukagreiðslum og frammi- stöðutengingu, svo sem hlutafjár- kaupum á hagstæðu verði. Til dæm- is fékk Roberto Goizueta hjá Coca- Cola Co. nýlega gefins hlutabréf að verðmæti 40 milljónir dollara frá fyrirtækinu. Á síðustu árum hafa þær raddir orðið háværari sem telja að laun bandarískra forstjóra séu orðin allt of há og séu í engum tengslum við frammistöðu þeirra. Þessu eru þeir sjálfír að sjálfsögðu ekki sammála og telja að starfsbræður sínir í öðrum löndum hafi þegar allt kemur til alls svipuð launakjör og þeir, þau séu bara í meira mæli í formi fríðinda og annars sem erfítt er að taka tillit til í könnunum sem þessari. JyfiaejHlamoj bókhaldskerfi fyrir Macintosh-tölvur MacHansa er öflugt bókhaldskerfí. sem er notað af meira en 4.000 notendum víða um heim, svo sem í Svípjóð, Danmörku, Finnlandi, Eistlandi, Englandi, Simbabwe, Ungverjalandi, Rússlandi og Póllandi. Mac Hansa, sem er einstaklega þœgilegt í notkun, f é SkrA Sýtl Spjald SpJaldtkrA VmUlegt -1 samanstendur af Fylgltkjol: Skoflo T Lino Númer |7 | Fœrsludogs. 11.1.1992 | Undlrkerfl j lufsun |LJÓsr1tunorvél Lykfll Efnl TeHtl Oebet Kredlt l 4240 Smhéhöld 68273,00 2 2173 Smftöhöld 16727,00| 3 1110 ív. 002 65000,00 4 Leiðréttlng 6 fylgiskjoll|3 Kerfíð er hannað sérstaklega fyrir Macintosh og nýt- ir alla eiginleika hins vingjamlega umhverfís, svo sem: Útgáfu og áskrift, prentun á leysiprentara og möguleika á tengingu við töflureikni og ritvinnslu. MacHansa þarfnast ekki mikils diskrýmis og vinnur á öllum Macintosh- Jófnufcr o í þremur útg. fjárhags- bókhalds, sölu- og viðskiptamannabók- haldi. - Fylgiskjnl: Skoöo Bf»ra^^.>ÉM.;w«*ffr»ParJi3 Númer [" ] Fersludogs. | 1.1.1 w2 ~| Undirkeríl Tllufsun |LjÓ8rttunorvél " Llno Lyklll Efnl TeHtl Debet Kredlt i 4240 ISméhhöld 68273,00 - 2 2173 ISmöihöld 16727,00 3 1 110 ÍÁv 002 85000,ÖÖpj 4 Lelflrótt i fylgiskjoll 7 Skróöj 29.4. 992" J t T r — -■[ - ~ --Jg Mlsmunur 0,001 Somtols | 85000,00 85000,00|j^ tölvum sem em með harðdisk,þ.e. alltfrá Macintosh Plus upp í hina geysiöfíugu Macintosh Quadra. Komið og fáið kynningardiska! Númer Tiluisun | Spjold Spjoldskrá Vmlslegl___________ Stofno] [Tuifoldo] m Rfturkallo WZ Klippo Rfrito Lfmo Hrelnso WH jlglskjol: Stofno I %C . 11.1.1992 1 Undirkeríi Q 1 3100 >l.: : i.... 46586,00 2 2171 Dókholdslyklll Dogsetning Drelflng óœtlunor Í 1414,00 3 1 110 Tól k Gluggor k 0,00 4 5 b Efnlsflokkur ** Útreiknoflor fœrslur 7 ■ 8 y 10 Mismunur 0,00 Somtols 50000,00 50000.00 IB Apple-umboðið Skipholti 21, sími (91) 624 800 Ath. Eigendur eldri Apple-bókhalds- forrita fá 20% afslátt afMacHansa!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.