Morgunblaðið - 22.10.1992, Síða 9

Morgunblaðið - 22.10.1992, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992 C 9 Viðskiptabann Bandarísk yfirvöldhindra sölu Boeing til Iran BANDARÍSKI flugvélaframleiðandinn Boeing Co. hefur gert samn- ing við Iran Air um sölu 20 farþegaþotna fyrir um 1 milljarð Banda- ríkjadala. Sala flugvélanna stangast aftur á móti við stefnu bandarískra stjómvalda um viðskipti við lönd sem tengjast hryðjuverkastarfsemi. í yfirlýsingu frá Boeing-verksmiðj- unum er lýst áhyggjum þess efnis að stefna stjómvalda skaði sam- keppnishæfni fyrirtækisins. Iran Air og Boeing-verksmiðj- umar vinnu nú sameiginlega að því að fá stefnu stjómvalda breytt. Ólíklegt þykir þó að afstöðu yfir- valda verði haggað, enda em aðeins tveir mánuðir síðan viðskiptaráðu- neytið kvað upp þann úrskurð að bannað væri að selja Iran Air vörur eða þekkingu, eða kaupa þjónustu þeirra við flutning á bandarískum afurðum. IMoregur Bankar fækka starfsfölki NORSKIR bankar verða að draga úr kostnaði um 10% á hverju ári héreftir. Það þýðir að fækka þarf starfsmönnum um 5.000. Þessi skilaboð koma frá hinum áhrifamikla formanna norska banka- eftirlitsins, Tormod Hermansen. Hann segir einnig að nauðsynlegt sé að bæta eiginfjárstöðu bankanna um 20 til 30 milljarða ísl. króna til að uppfylla kröfuna um eiginfjárhlut- fall. Hermansen útilokar ekki að nauð- synlegt verði að sameina stórbank- ana tvo, Christiana og Fokus Bank, sem ríkisvaldið varð að bjarga frá gjaldþroti á síðasta ári. Hann telur þó æskilegra að bankarnir ákveði sjálfir að ganga til slíkra samninga fremur en að yfirvöld verði til að ákveða slíkt. Yfirlýsingu Hermansen var ekki tekið af mikilli hrifningu af Sam- bandi bankamanna í Noregi. For- maður sambandsins, Fritz P. Johans- en, telur ekki hyggilegt að fækka bankastarfsmönnum meira en orðið er. Á síðustu fjórum árum hefur norskum bankamönnum fækkað úr 32.600 niður í 26.300. í árslok 1995 er búist við að fjöldi þeirra verði komin niður í um það bil 21.000. LANIER Telefaxtæki fyrir venjulegan pappír ÁRVÍK ÁRMÚLI 1 — REYKJAVlK-SÍMI 687222 -TELEFAX 667295 Margir mánuðir eru síðan Boeing og Iran Air luku samningum um söluna. Málið kom aftur upp á yfir- borðið nú þegar Iran Air gat ekki fengið keypta varahluti í eldri Boeing-vélar sínar í kjölfar banns viðskiptaráðuneytisins frá því í ág- úst. í yfirlýsingu Boeing-verksmiðj- anna er bent á að bannið á sölu flugvéla til íran frá árinu 1979 væri farið að missa marks, þar sem á síðustu árum hefði nokkur fjöldi véla frá Airbus og öðrum evrópsk- um samkeppnisaðilum verið seldur til íran. 1. 2. 3. 4. Utbob ríkisbréfa (RBR. 6. fl.1992) Fjármálaráðherra, f.h. ríkissjóðs, hefur ákveðiö að bjóða út ríkisbréf í samræmi við heimildarákvæði lánsfjárlaga fyrir árið 1992 og með hliösjón af á- kvæöum laga nr. 79/1983 svo og laga nr. 43/1990, 1. gr., um Lánasýslu ríkisins. Tilboðsdagur er 28. október 1992. I boði verða ríkisbréf 6. fl. 1992 með útgáfudegi 30. október 1992 og gjalddaga 30. apríl 1993. Lág- marksfjárhæð útboðsins er 200 milljónir króna. Heildarfjárhæð útboðsins er áætluð um 500 milljónir króna samkvæmt nánari ákvörðun fjármálaráðherra um töku tilboða. Rikisbréfin verða gefin út i þremur verðgildum; 2.000.000, 10.000.000 og 50.000.000 krónur að nafnvirði og verða þau innleyst hjá Lánasýslu ríkis- ins eða Seðlabanka íslands á gjalddaga. Ríkisbréf eru án nafnvaxta og verðtryggingar. Öllum er heimilt að gera bindandi tilboð í ríkisbréf samkvæmt eftirfarandi reglum: a) Löggiltum verðbréfafyrirtækjum, löggiltum verð- bréfamiðlurum, bönkum og sparisjóðum er einum heimilt að gera bindandi tilboð í ríkisbréf samkvæmt tilteknu tilboðsverði. b) Öllum öðrum er heimilt að gera bindandi tilboð í vegið meðalverð samþykktra tilboða (meðalávöxtun vegin með fjárhæð). Tilboð samkvæmt þessum lið eru háð því að samþykkt tilboð samkvæmt a-lið þessarar greinar verði að minnsta kosti samtals 200 milljónir króna. 5. Gera skal bindandi tilboð í nafnverð rikisbréfa, sbr. Ii.fi 3, eða heilt margfeldi verðgilda. 6. Tilboð má senda á sérstökum eyöublöðum sem fást hjá Lánasýslu ríkisins. Tilboöin skulu berast Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir kl. 14.00 miðvikudaginn 28. október 1992 og séu þau í lokuðum umslögum. 7. Heimilt er að símsenda tilboð í staðfestu símskeyti, og skulu þau berast fyrir sama tíma og getið er í 6. lið hér að framan. I undantekningartilfellum má þó má senda tilboð með myndsendi í númer 91- 626068 milli kl. 13 og 14 á tilboðsdegi ef það er staöfest fyrirfram með símtali við forstjóra Lánasýslu ríkisins eða fulltrúa hans. 8. Ríkissjóður áskilur sér rétt til þess að taka eða hafna tilboðum í heild eða að hluta. Breyting eða afturköllun tilboðs skal hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14.00 á tilboðsdegi. 9. Tilboðsgjöfum verða kynntar niöurstöður útboðsins meö símtali eða simsendu bréfi eins fljótt og hægt er eftir að þær liggja fyrir, þó ekki síðar en daginn eftir aö tilboðsfrestur rennur út. 10. Niðurstöður útboðsins verða kynntar tölulega eins fljótt og hægt er, án vísunar til nafna tilboðsgjafa, með fréttatilkynningu til fjölmiðla. 11. Greiðsla fyrir ríkisbréf, skv. tilboðum sem tekin verða, þarf að berast Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 16.00 á útgáfudegi, og verða bréfin afhent eöa póstsend fyrir kl. 17.00 sama dag nema þess sé óskað sérstaklega aö Lánasýsla ríkisins geymi rík- isbréfin. Berist greiðsla ekki á réttum tíma áskilur ríkissjóður sér rétt til að krefja tilboðsgjafa um hæstu lögleyfðu dráttarvexti fyrir þann tíma sem greiðsla dregst. 12. Ríkisbréf þessi eru stimpilfrjáls. Um skattskyldu eða skattfrelsi ríkisbréfa, svo og forvexti af þeim, fer eftir ákvæðum laga um tekju- og eignarskatt eins og þau eru á hverjum tíma, sbr. nú 8. gr„ 1. tl. B-liðar 30. gr„ 74. og 78. gr. laga nr. 75/1981, með síðari breytingum, sbr. og lög nr. 7/1974 og lög nr. 79/1983. Ríkisbréf eru framtalsskyld. 13. Flokkur þessi verður skráður á Verðbréfaþingi íslands og verður Seðlabanki íslands viðskiptavaki flokksins. 14. Útboðsskilmálar og tilboðseyðublöð liggja frammi hjá Lánasýslu rikisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík. Reykjavík 21. október 1992 LANASYSLA RIKISINS Hverfisgötu 6, 2. hæfi, 150 Reykjavík, sími 91-626040

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.