Morgunblaðið - 22.10.1992, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 22.10.1992, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ V1ÐSK1PTI/ATV1WWW.ÍF FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992 C 13 Sjónarhorn Áhríf lífsskoðunar: fram- farahyggja og vinnuni eniiing Forsendur framfara í íslensku atvinnulífi - 2. grein Taflal Telurðu að hægt sé að auka af- köst á vinnustað þínum án þess að starfsmönnum sé fjölgað? Þeir sem taka afstöðu (4,3% tóku ekki afstöðu) Já Nei Alls % Alls (allir svarendur) 50 50 100 Viðhorf starfsstétta: Verka- og afgreiðslufólk 42 58 100 Sérfræðingarog atvinnurekendur 66 34 100 eftir Stefán Ólafsson í hagsögunni er vel þekkt hvernig viðhorfsbreytingar hafa getið af sér framfarir eða hnignun. Besta dæmið um framfarir sem rekja má til við- horfsbreytingar er ef til vill sú um- sköpun í atvinnu- og þjóðlífi sem fylgdi í kjölfar upplýsingastefnunnar í Evrópu. Upplýsingastefnumenn lögðu mikla áherslu á verklegar framkvæmdir, verkmenntun og ný- sköpun. Hér gætti áhrifa af þess<tri viðhorfsbylgju á 18. öldinni (Innrétt- ingarnar og stofnun framfarafé- laga), sem og í þjóðmálahreyfingum 19. aldarinnar. Þjóðmálafrömuðir 19. aldarinnar og leiðtogar í sjálfstæðis- baráttunni settu fram þá skýringu, að framfaraleysi og eymd miðald- anna á íslandi mætti rekja til þess, að doði hafi færst yfir landsmenn vegna erlendrar kúgunar og harðbýl- is. Þeir litu á það sem hlutverk sitt að vekja þjóðina á ný til dáða og framfara, með framfaraboðskap sín- um og sjálfstæðiskröfum. Sá boð- skapur var viðloðandi hér vel fram á 20. öldina, og reyndar svo áhrifa- mikill í andlegu lífi þjóðarinnar um aldamótin 1900 að hann var eitt helst yrkisefni þjóðskáldanna (sbr. til dæmis kveðskap Hannesar Haf- stein og Einars Benediktssonar). Þegar jákvæð framfarahyggja er fyrir hendi í þjóðfélagi, má líkja áhrifum hennar við meðal sem veitir frískandi hvatningu, áeggjan til framtaks og áræðis og herðir menn í framsókninni. Framfarahyggju fylgir jákvætt viðhorf til nýjunga, tækni og þekkingar og vilji til þess að rffa sig upp úr gömlu fari. Rík ástæða er til að ætla, að framfara- hyggja 19. aldarinnar hafi verið þýð- ingarmikill hvati þeirra breytinga sem á skrið komust undir lok aldar- innar. Almennt held ég að segja megi að íslendingar hafi þokkalega framf- arahyggju í umhverfi sínu nú á dög- um. Þeir eru jákvæðir gagnvart nýj- ungnm, opnir fyrir nýjum tíðaranda og tæknibólum, en hins vegar togar hefðartryggðin einnig alltaf í þá. Hún kemur fram í menningarlegri íhalds- semi og ofurumhyggju fyrir fram- leiðsluháttum og búsetumynstrum fortíðarinnar. Þó hefur sú hugsun þokað nokkuð á allra síðustu árum, svo sem sjá má t.d. á stefnubreyt- ingu í landbúnaðarmálum. Miklu er þó enn kostað til að vernda byggðar- lög gegn breytingum. Helsta nei- kvæða afleiðing hefðartryggðarinnar hér á landi er einmitt sóun fjármuna í vonlaust verndarstarf. Lífsskoðun þjóðarinnar er þó almennt séð framfarasinnuð, rekin áfram af mik- illi efnahyggju og ásókn í nútímaleg gæði. Til að þjóðir eigi að ná langt í hagvaxtarkapphlaupinu er ekki nóg að hafa áhuga á framförum og efna- legum gæðum og yrkja um slíkt held- ur þurfa þær einnig að vera reiðu- búnar að leggja á sig þá vinnu sem til þarf. Þar kemur vinnumenningin inn í myndina. Almennt má segja að Islendingar búi yfir þróttmikilli vinnumenningu. Þetta kemur fram i því að mjög stór hluti þjóðarinnar stundar launuð störf af einhveijum toga og að vinnu- tími við launuð störf er langur, sam- anborið við aðrar þjóðir. Samkvæmt þessu má því segja, að íslendingar séu vinnufús þjóð. Vinnuvilji almenn- ings er einmitt eitt af því þýðingar- meira sem bent er á þegar fjallað er um rætur framfaranna hjá Japön- um og iðnvæddu smáríkjunum í Suð- austur-Asíu, sem og hjá Bandaríkja- mönnum og Svisslendingum. Þrátt fyrir vaxandi vélvæðingu og tækni skiptir vinnudagurinn enn miklu máli, því vinnusöm þjóð er að öðru jöfnu sterkari í samkeppninni. En vinnuvilji skilar sér ekki sjálf- krafa í meiri verðmætasköpun. Ef óskynsamlega er staðið að skipulagi vinnu og vinnutíma getur framleiðni samt verið lítil. Japanir bæði vinna mikið og afkasta miklu á vinnu- Sjónarhorn Kveinstafir eftir Þorkel Sigurlaugsson Dr. ívar Jónsson, félagshagfræð- ingur, ber sig illa vegna umfjöllunar minnar um rit hans og Fannars Jóns- sonar í langri grein í Morgunblaðinu 13. október sl. Hann velur orðum sínum yfirskriftina „Kolkrabbinn kveinkar sér“. Orðaval vísinda- mannsins, „rógur, fijótfærni, óheið- arleiki og kaldastríðskreddur", ber vott um nokkurn hugaræsing og þykir mér miður að hafa sært tilfínn- ingar hans. Það var ekki vilji minn. Þegar menn senda frá sér ritsmíð- . ar eða önnur hugverk, eru þau orðin almenningseign og höfundar þurfa að sæta því að þau séu túlkuð eins og þau birtast þeim sem fær þau í hendur. Umfjöllun mín um rit þeirra bræðra Ivars og Fannars, „Innri hringurinn og íslensk fyrirtæki" birt- ist í Morgunblaðinu 1. október sl. fyrir þá sem hafa áhuga á að bera hana saman við skrif félagshagfræð- ingsins. Við umfjöllun mína hef ég engu að bæta. Umfjöllun ívars um Aflvaka Reykjavíkur, efnahagsmál og atvinnustefnu stjórnvalda koma mér á óvart. Ég var ekki að fjalla um þá þætti í bókakynningu eða gagnrýna skoðanir höfunda eða at- hugasemdir í því efni, enda voru þeir ekki með neinar heilsteyptar til- lögur á þeim vettvangi í riti sínu. \ Áhugasamir lesendur ættu hvorki að láta mig eða höfundinn skammta sér skoðanir, heldur verða sér út um ritið og lesa sjálfir. Ég vil hvetja þá til þess. Bæklingurinn kostar kr. 2.900 og líklegt er að ef hann selst vel að þá geti þessi útgáfa og önnur rit þeirra bræðra staðið undir sér fjárhagslega án opinberra styrkja. Það verður að telja eðlilegt markmið að þeir sem hafa áhuga á visindaleg- um verkefnum og rannsóknum taki þátt í kostnaði við gerð þeirra. Auk min hafa Morgunblaðið, DV og Heimsmynd vakið mikla athygli á þessu ritverki. ívar minnir á sérþekkingu sína og er að eigin sögn „sérfræðingur í nýsköpun, rannsóknum, þróunar- starfi og atvinnustfefnu og sá eini sem hefur hlotið menntun á þessu svið sé vitað sé“. Ég sem áhugamaður og virkur þátttakandi, ásamt mörg- um öðrum, á nýsköpunar- og þróun- arstarfi hér á landi tel áhugavert að fjallað verði nánar um ýmislegt sem að þessum málum snýr. Þeir sem hafa þekkingu og menntun á þessum málum ættu að standa saman að faglegri og traustri umfjöllun um mál sem vissulega snertir velgengni okkar atvinnulífs og lífskjör þjóðar- innar. Höfundur skrifar um bækurfyrir viðskiptablað og er framkvæmda- stjóri Þróunardeildar Eimskips. stund. Einstakt orð fer af vinnu- menningu þjóðanna í nýiðnvæddu löndunum í Suðaustur-Asíu, og er þar sérstaklega til þess tekið hversu vel menn þar helga sig vinnu sinni, hversu 'jákvæðir þeir eru til mark- miða fyrirtækjanna og hversu hart þeir leggja að sér í daglegum störf- um. Agi og hollusta almennra starfs- manna eru einmitt taldar vera með stærru uppsprettum framfaranna í þessum löndum. Vinnumenning sem er lifandi og þróttmikil skilar sér í jákvæðara og framsæknara and- rúmslofti á vinnustöðum, í sífelldri gæðasókn og nýsköpun sem og í virkri þátttöku almennra starfs- manna í ákvarðanatöku. Hún færir vinnumanninum meiri tilgang og stolt, sem er mun virkari hvatar en hörð hendi húsbóndavaldsins. Mörg- um sem fjallað hafa um þessar aust- rænu þjóðir hefur þó þótt nóg um vinnuhörkuna, og líkt henni við arðr- án. Launakjör í þessum löndum eru hins vegar oft tengd afköstum, þenn- ig að hinn almenni starfsmaður nýt- ur sjálfur afraksturs góðs árangurs á vinnustaðnum, líkt og gildir um sjómenn á íslenska veiðiskipaflotan- um. Margt bendir til að íslendingar eigi ómæld tækifæri til hagvaxtar með því einfaldlega að breyta skipu- lagi vinnu og vinnutíma. Lítil fram- leiðni íslenska atvinnulífsins saman- borið við aðrar þjóðir bendir að minnsta kosti til þess. í eftirfarandi töflum má sjá vísbendingu um léléga nýtingu vinnutíma meðal vinnandi fólks, þar sem spurt var hvort hægt væri að auka framleiðni á vinnustað viðkomandi, án þess að fjölga starfs- liði. Réttur helmingur vinnandi mann segist telja hægt að auka afköst á vinnustað sínum, án þess að fjölga starfsmönnum. Hver og einn svarar fyrir sinn vinnustað, og er því full ástæða til að taka mat þetta alvar- lega2. Eins og einn svarar fyrir sinn vinnustað og eru sérfræðingar og atvinnurekendur (stjómendur) frek- ar á þessu en aðrir starfsmenn (um 66%). Almennt verkafólk jánkar þessum möguleikum síður, en þó eru það um 42% þeirra sem telja fram- leiðniaukningu mögulega á sínum vinnustað. Óhætt er að segja að möguleikam- ir til bættrar nýtingar og hagvaxtar em almennt miklir, ef menn vilja taka til hendinni á vinnustöðum sín- um. í töflu 2 má sjá vísbendingar um leiðirnar sem færar em að þessu marki, að bæta nýtingu vinnutímans. Þeir sem töldu framleiðniaukningu mögulega á sínum vinnustað vom spurðir áfram, hvað þeir teldu að myndi skila mestri framleiðniaukn- ingu: breyttir starfshættir og skipu- lag, breyttar stjórnunaraðferðir, breytt samskipti starfsmanna eða breytt tækjanotkun. Rúmlega tveir af hverjum þremur (69%) nefndu það sem kalla má „mannlegu þættina", þ.e. að breyta starfsháttum, skipulagi og stjómun- araðferðum á vinnustaðnum. Aðeins um 17% nefndu breytta tækninotk- un, en 15% nefndu fleiri en eitt af tilgreindum atriðum. Tafla 2 Hvað af eftirtöldu telur þú að myndi skila mestri framleiðniaukningu á þínunr vinnustað? Þeir sem te(ja framleiðniaukningu mögulega Hlutf. þeirra sem tóku Fjöldi afstoðu % Breyttir starfsh. og skipul. 126 37 Breyttar stjórnunaraðf. 90 26 Breytt samskipti starfsm. 20 6 — Mannl. þátturinn samt.: 236 69 Breytt tækjanotkun 67 17 Nefna fleira en eitt af ofant. 50 15 Veit ekki/neitar 68 — Alls: 411 100 Höfundur er prófessor ogfor- stöðumaður Félagsvísindastofn- unarHáskóla ísiands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.