Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 14
14 C
MORGUNBLAÐIÐ
VlÐSKIPTI/JtTVINNULÍF fimmtudagur 22. október
1992
FRÆÐSLA —— Frá stofnfundi fræðslustjóranna þar sem þeir mynduðu samtök són.
Fræðslumál
Samtök fræðslu-
sijora stofnuð
SAMTOK fræðslustjóra hafa verið stofnuð en þeim er ætlað að
vera vettvangur fyrir fólk sem annast fræðslumál og endlurmennt-
un starfsmanna innan fyrirtækja og stofnana eða meðlima félaga-
samtaka.
Markmið félagsins er að fræða
og upplýsa félaga sína, styrkja þá
í starfi og koma á kynnum á meðal
þeirra. Fyrirhugað er að halda eina
námsstefnu og tvo fræðslufundi á
ári auk vinnufunda smærri hópa.
í stjórn samtakanna eru Ingi-
björg Jónasdóttir fræðslustjóri Bún-
ERTU
FLÆKTUR
í IUETMIU?
Tölvunetið í fyrirtæki þínu er eflaust langt
frá því að vera fullkomið. Ýmis vandamál
koma upp nær daglega og setja allt í
flækju. Ástæðan er kannski sú að tölvu-
netið þarf góðan stjórnanda.
Lausnin er AS/400 tölvan frá IBM því með
henni fær tölvunetið stjórnanda sem sam-
hæfir'alla vinnslu, einfaldar hana og gerir
hana hraðari með ódýrum, innbyggðum
hugbúnaði.
Auk þess er AS/400 opnari en aðrar tölvur.
Samskipti við aðrar tölvur ganga mun
betur, samtenging við önnur tölvukerfi er
barnaleikur, það er einfaldara að nálgast
allar upplýsingar innan sem utan fyrir-
tækisins og svo hefur AS/400 fjölmörg
innbyggð forrit sem auðvelda alla
tölvuvinnslu.
Ekki bíða eftir að næsta vandamál komi
upp. Fáðu strax nánari upplýsingar um
AS/400 hjá sérfræðingum og samstarfs-
aðilum Nýherja. Ein tölva og þú ert ofan á.
Samstarfsaðilar Nýherja:
Almenna kerfisfræðistofan hf.
Ferli hf.
Forritun sf.
Kerfi hf.
Miðverk hf.
RT-tölvutækni hf.
-.£*** j
j
NÝHERJI
SKAFTAHLlÐ 24 • SlMI 69 77 00
Alltaf skrefi á undan
aðarbanka íslands formaður, Mar-
grét Björnsdóttir endurmenntunar-
stjóri gjaldkeri og Kristín Jónsdótt-
ir fræðslustjóri Eimskips er rit-
ari.
Næsti fundur samtakanna verður
fimmtudaginn 29. október kl.8.00
f.h. í húsi Endurmenntunar Háskóla
íslands í Tæknigarði. Jón Torfi
Jónsson dósent við Háskóla ísland
og Randver C. Fleckenstein
fræðslustjóri íslandsbandki munu á
fundinum ræða um efnið „Greining
fræðsluþarfa: Kostir og gallar.“
Auk þess munu tveir félagsmenn
kynna starf sitt.
Iðnaðarráðuneytið
Upplýs-
ingabækl-
ingurum
nýsköpun
Iðnaðarráðuneytið hefur látið
taka saman bækling með upplýs-
ingum um liðsinni við frum-
kvöðla í atvinnulífinu. Á blaða-
mannafundi í tilefni útgáfunnar
kom fram að lagður hefði verið
grundvöllur að auknu rannsókn-
ar-, þróunar- og markaðsstarfi í
þágu atvinnulífsins að undan-
förnu. Stórauknum fjármunum
verði varið til þessara þarfa á
m.a. með því að veija til þess
fimmtungi þess fjár sem aflaðist
með sölu ríkisins á atvinnufyrir-
tækjum.
Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra,
sagði að hugmyndina að bæklingn-
um mætti rekja til þess að mikið
væri spurst fyrir um upplýsingar
varðandi nýsköpun í ráðuneytinu.
Þannig hefði verið ákveðið að safna
saman á einn stað hagnýtum upp-
lýsingum og hefði bæklingurinn
vaxið upp úr því. Ennfremur sagði
hann að með tilliti til þess hversu
margir aðilar hefðu með nýsköpun
að gera og fé til hennar dreifðist
þar af leiðandi á margar hendur
hefði verið ákveðið að setja á stofn
nefnd til að fjalla um nýtingu fjárst-
uðnings. Gert er ráð fyrir að bækl-
ingurinn verði endurskoðaður og
gefin út endurbætt útgáfa á næst-
unni.
Guðmundur Einarsson, aðstoð-
armaður ráðherra, sagði að bækl-
ingurinn hefði legið frammi í ráðu-
neytinu í um það bil 2 vikur og
margir, sem þangað hefði leitað,
hefðu tekið honum fegins hendi.
Hann lagði áherslu á að bæklingur-
inn væri fyrir alla sem hefðu í huga
nýsköpun. Nefndi hann dæmi um
einyrkja í bflskúmum heima hjá
sér, starfsmenn fyrirtækja og rann-
sóknarstofa, og sagði að ekki væri
gert upp á milli þessara aðila. Guð-
mundur minntist á að á grundvelli
bæklingsins væri hugsanlega hægt
að varða leið fyrir þá sem ætluðu
út í nýsköpun þ.e. veita þeim upp-
lýsingar hvað leyfa þyrfti að afla
o.s.frv.
Bæklinginn verður hægt að fá
hjá þeim sem koma við sögu í hon-
um, t.d. rannsóknarstofnunum at-
vinnuveganna, Byggðastofnun, at-
vinnuþróunarfélögum og atvinnur-
áðgjöfum, menntastofnunum, sjóð-
um, ýmsum samtökum og félögum.
Ennfremur verður hægt að fá hann
í iðnaðarráðuneytinu.