Morgunblaðið - 01.11.1992, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 01.11.1992, Qupperneq 9
£í MÖRGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGWi 1. NÓVEMBEH 1992 a bh 9 stóð upp af verksmiðjusvæðinu. Þar voru andspymumenn að verki og höfðu þeir komið sprengiefni fyrir í flutningabíl sem vanalega flutti vist- ir til Þjóðveija. Andspyrnumenn vom líka með Titan-verksmiðjuna í sigtinu vegna þess að þar vom framleidd fjar- skiptatæki til kafbáta og í flugvélar Þjóðveija og var sprengt nokkm sinnum á verksmiðjusvæðinu. Þegar ég var úti í Kaupmanna- höfn árið 1939 ákváðum við þrír íslenskir félagar að keyra niður til Ítalíu. Við keyptum gamlan Ford T árgerð 1920, ilja ryðgaðan með ónot- hæfri blæju. Ég þekkti hveija ein- ustu skrúfu í bílnum því að við höfð- um átt Ford T-bíla í Vatnskoti. Ég veðjaði við félaga mína hjá Titan-verksmiðjunum að ég gæti komist suður til Feneyja á fjómm sólarhringum en þeir vom ekki bein- línis trúaðir á það. Eftir að við höfðum keypt bílinn keyrði ég strákana í vinnuna á morgn- ana en einn daginn kom hljóð í drif bflsins. Strákamir héldu að ekkert yrði úr ferðinni fyrst svo var komið. Ég fann út hvað var að, keypti varahluti og ók síðan bflnum upp á frístandandi tunnur þar sem ég skipti einn um drif. Það var mikið bað okkur að pakka sem fyrst. Síðar í ferðinni bilaði vélin svo illa að helmingur hennar varð óvirk- ur. Rifum við þá vélina í sundur þar sem bíllinn stóð á árbökkum í Pisa, söfnuðum vélarhlutunum saman í léreftspoka og örkuðum af stað í leit að verkstæði. Vélsmiðimir sem þar vom töldu að vonlaust væri að gera nokkuð við hlutina. Við vörpuð- um þá fram okkar hugmyndum til úrbóta og ekki höfðu þeir mikla trú á þeim aðferðum. En svo sögðu þeir allt í einu: „Fyrst þið vitið hvemig á að gera þetta og treystið ykkur til þess þá skuluð þið gera það sjálf- ir. Gjöriði svo vel.“ Þeir lánuðu okk- ur verkstæðið með öllum tækjum og tókst okkur að ljúka viðgerðinni á nokkrum klukkustundum. Þegar við ætluðum að greiða sögðu þeir að við hefðum gert við hlutina sjálfír og eina sem þeir vildu fá sem endurgjald væri að sjá farartækið og að við keyptum bensín hjá þeim. Á leið okkar til baka fómm við í gegnum Sviss og þegar við vorum á ferð í Ölpunum fréttum við af dansleik í þorpi þar. Við lögðum bíln- um skammt frá þorpinu og gengum af stað en það fór svo að á leiðinni missti einn okkar út úr sér tennum- ar í svartamyrkri. Við komumst aldr- Pétur á seinni flugvélasleðanum, Fjallhauki, sem byggður var úr áli 1947. Fjallhaukur náði rúmlega 200 kílómetra hraða á klukku- stund. Fyrri flugvélasleðinn sem smíðaður var árið 1936 og náði 180 kíló- metra hraða á klukkustund. mál að bjástra við þetta einn því að hásingin og drifskaftið var sam- byggt. Ég lét strákana ekkert vita um viðgerðina og næsta dag þegar við höfðum ekið nokkum spöl undmð- umst þeir að hljóðið væri horfið. Ég sagði þeim ekkert frá viðgerðinni heldur naut ég þess að hlusta á ótrú- legar útskýringar þeirra á dularfullu hvarfí hljóðsins. Á leiðinni suður eftir gekk á ýmsu en við náðum til Feneyja á áætluðum tíma. Það var niðamyrkur þegar við komum til borgarinnar og áttum við því erfítt með að finna tjaldstæði þannig að við lögðum bílnum ein- hvers staðar á milli tijáa og tjölduð- um þar. Við sváfum ágætlega um nóttina en þegar við vöknuðum næsta morgun og litum út um tjaldg- ættina sáum við fólk spássera allt í kringum okkur. Stuttu síðar kom lögregluþjónn gapandi hissa á þessu uppátæki okk- ar að leggja á sjálfu bláa torginu sem stendur í miðri borginni. Hann tók nú ekki strangt á þessu heldur ei á ballið því við leituðum að tönnun- um fram eftir allri nóttu og það var kúnstugt hvemig við notuðumst við ljósin sem stöfuðu frá bílum sem óku hjá. Sem betur fer fundust tennurn- ar að endingu. Hvemig þótti þér að koma heim til íslands eftir dvölina í Danmörku? Mér þótti öfgafullt að koma hing- að. Hér keyrðu menn um á dollara- grínum og gátu fengið eins mikið bensín og þeir vildu. Uppgangurinn var mikill. Ég hef heyrt að þú sért skíðagarp- ur og ekki nóg með það heldur skíð- ir þú með einstökum og persónuleg- um_ stíl. Er eitthvað hæft í þessu? Ég hef lengi haft gaman af því að vera á skíðum og til að mynda þegar ég var í Danmörku þá stund- aði ég skíðastökk á Öreholm þar sem var 35 metra pallur. Einhveijir segja að ég hafi sérstakan stíl og hann komi til af því að ég byijaði sem strákur á tunnustöfum og hélt síðan beint í skíðastökkið. Höfundur er rithöfundur. ... bíllinn sem ber af 4 dyra stallbakur • 114 hestafla vél • löventla • Tölvustýrð fjölinnspýting • 5 gíra beinskipting eða 4 þrepa tölvustýrð sjálfskipting • Rafdrifnar rúður og samlæsing á hurðum • Hvarfakútur Verð frá 1.059.000.- kr. • Aukabúnaður (t.d.) : Topplúga: 42.000,- kr. og álfelgur: 39.000,- kr. fri Metsölublað á hverjum degi! t

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.