Morgunblaðið - 01.11.1992, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 01.11.1992, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1992 B 11 I BIO Það er kannski full- srtemmt að fara að tala um jólamyndir kvik- myndahúsanna en þær hafa reyndar flestar verið ákveðnar nú þegar að öllu óbreyttu. í Regnboganum er áætlað að frumsýna myndina Chaplin, sem áður hét Chariie, og flallar um Charlie Chaplin en það er Sir Richard Attenborough sem leikstýrir. Myndin verður frumsýnd í Bret- landi þann 16. desember og hyggst Regnboginn reyna að frumsýna strax eftir það. Einnig sýnir bfó- ið teiknimyndina Tomma og Jenna með íslensku tali. Stóra jólamynd Sambíó- anna verður Aleinn heima 2: Týndur í New York, framhald hinnar geysivin- sælu gamanmyndar Aleinn heima, en hún verður ein af jólamyndunum vestra. Einnig verður teiknimynd- in Snót og ófreskjan eða „The Beauty and the Be- ast" sýnd í Sambíóunum. Ein ísiensk bíómynd verður frumsýnd um jólin en það er gamanmyndin Kariakórinn Hekla eftir Guðnýju Halldórsdóttur, sem sýnd verður f Háskóla- bíói. Er áætlað að frum- sýna hana þann 19. deseni' ber. Fara margir þjóð þekktir leikarar með hlut- verk í myndinni sem segir frá kórferðalagi. Laugarásbíó hyggst frumsýna gamanmyndina „Death Becomes Her“ með Meryl Streep, Bruce Willis og Goldie Hawn undir leik- stjóm Robert Zemeckis. Hér er á ferðinni tækni- brellugrín mikið enda Zemeckis ekki óvanur slíku. Einnig hyggst bíóið láta talsetja japönsku teiknimyndina Nemo litla og sýna um jólin. Og loks verður spenn utryllirinn Meðleigjandi óskast eða „Single White Female" að öllum líkindum jólamynd Stjömubíós með Jennifer Jason Leigh og Bridget Fonda í aðalhlut- verkum undir leikstjóm Barbet Schroeders. KVIKMYNDIRv^ Hvaö er í bobi? Sjaldséðu myndimar NÝI kvikmyndaklúbburinn, Hreyfimyndafélagið, byrj- ar starfsemi sína af fullum krafti með athyglisverðri kvikmyndahátið sem hófst í Háskólabíói sl. föstudag. Þar er boðið upp á myndir nokkurra af þeim sem kallaðir eru „óháðir“ kvikmyndagerðarmenn i Banda- ríkjunum sem gera ódýrar (,,low-budget“) myndir er gefa forvitnilega innsýn í það sem fram fer utan stóru kvikmyndaveranna. Einnig er boðið upp á myndir frá Finnlandi, Frakk- landi, Póllandi og Tékkóslóvakíu, sem gerðar eru fyrir svipaðan pening og Islendingar gera sínar myndir. NóttáJörAinni; úr nýjustu mynd Jims Jarmusch, „Night on Earth“. Þetta eru gimilegar myndir og er kvik- myndahátíðin hin forvitni- legasta. Þekktustu mynd- irnar eru án efa Nótt á jörð eftir Jim Jarmusch, fremsta leikstjóra Banda- ríkjanna sem starf- ar utan Holly- woodke- rfísins, og eftir fremsta Finna, Aki Kaurismaki en benda má sérstaklega á að þarna er líka að finna tékknesku myndina Grunnskólann eftir Jan Svérák, sem keppti við Friðrik Þór Frið- riksson um Óskarinn í vor, og mynd Pólveijans Maciej Dejczer, 3.000 mílur til himna. Það er sannsöguleg mynd um flótta tveggja drengja frá Póllandi til Danmerkur undir vöru- flutningabíl. Myndir sem þessar eru sjaldséðar hér á landi og ætti fólk að reyna eftir Arnald Indriðoson Bóhemalíf leikstjóra að grípa þær meðan þær gef- ast. Jarmusch er sannarlega einn af fmmlegustu og skemmtileg- ustu leikstjórum vestra eftir myndir eins og „Down By Law“ og „Mystery Tra- in“, sem báðar hafa verið hér á kvikmyndahátíð. Nýja myndin hans er með Vinona Ryder og Gena Rowlands í aðal- hlutverkum og gerist í fímm leigubílum á fímm ólíkum stöðum á jörðinni á sama tímanum. „Ég geri aðeins myndir sem mig mundi langa til að sjá,“ segir Jarmusch og víst er að marga langar til að sjá það sama og hann. Myndir Kaurismaki- bræðra, Mika og Aki, þekkjum við vel í gegnum kvikmyndahátíðir en sú nýjasta eftir Aki, Bóhema- Elskhugar og löggumorðlngjar; úr nýjustu mynd Greggs Arakis, „The . Living End“. líf, hefur hvarvetna vakið athygli. Hann er sérlega leikinn í því að staðsetja glataðar persónur í niður- níddu umhverfi og krydda það með óborganlegum, lágstemmdum en kald- hæðnislegum svörtum hú- mor. Flestar myndirnar á vik- unni eru eftir lítt þekktan Bandaríkjamann að nafni Gregg Araki, en sýndar verða þijár myndir eftir hann, „The Living End“, sem er sú nýjasta, „The Long Weekend" og „Three Bewildered People in the Night“. Araki fjallar um samband samkynhneigðra í myndum sínum og hefur „The Living End“ vakið talsverða athygli vestra en hún er um ástarsamband tveggja karlmanna; annar er flækingur en hinn bíófíkill og báðir eru með HlV-veiruna. Annar þeirra drepur löggu og þeir leggja á flótta. Eins og Jarmusch og Kaurismaki gerir Araki myndir „nákvæmlega eins og mig langar til að gera þær“, eins og hann segir. Þekktasta mynd franska leikstjórans Claire Denis er sennilega „Chocolat". Sú mynd og Enginn ótti, enginn dauði („S’en fourt la mort“) verða sýndar ásamt einni stuttmynd. Þá verður sýnd myndin í súp- unni eða „In the Soup“ eftir annan óháðan banda- rískan leikstjóra, Alexand- er Rockwell. Hann er mik- ill vinur Jims Jarmusch, sem reyndar leikur í mynd- inni, en hún fjallar um kvikmyndaleikstjóra er auglýsir eftir fjármagni í sína fyrstu kvikmynd og kemst í samband við vafa- sama náunga. ■ Bandaríski rithöfundur- inn John Grisham er eftir- sóttur þessa dagana í Holly- wood en hann er höfundur sakamálasögunnar „The Firm“, sem fíallar um ungan lögfræðing er tekur að vinna hjá lögfræðifyrirtæki í eigu mafíunnar. Framleiðandinn Scott Rudin keypti kvik- myndaréttinn en eitthvað gengur erfíðlega að gera kvikmyndahandrit eftir sög- unni. Handritshöfundurinn Robert Towne („Chin- atown“) hefur verið orðaður við það en líklegur leikstjóri er Sidney Pollack og Tom Cruise gæti farið með hlut- verk lögfræðingsins fyrir zil- ljón dollara. { millitíðinni var kvikmyndarétturinn á ann- arri bók Grishams, „The Pelican Brief“, seldur fyrir helmingi hærri upphæð en Alan J. Pakula mun leik- stýra henni með Julia Ro- berts í aðalhlutverki. ■ Kvikmyndaframleiðand- inn Jeremy Thomas (Síð- asti keisarinn) mun taka við af Sir Richard Attenboro- ugh sem forseti Bresku kvik- myndastofnunarinnar um næstu áramót. ■ Bresku leikararnir Anth- ony Hopkins og Emma Thompson, sem leika saman í myndinni „Howards End“ eftir Ismail Merchant og James Ivory, leika saman á ný í nýrri mynd Merchants og Ivorys. Hún heitir „Rema- ins of the Day“ og er gerð eftir sögu Kazuo Ishiguro. Mike Nichols ætlaði að gera þessa mynd með Jeremy Irons eftir handriti Harold Pinters en aldrei varð úr því. Ruth Prawer Jhabvala, einkahandritshöfundur Merchants og Ivorys, skrifaði nýtt handrit og Emma Thompson hrifsaði hlutverk- ið frá Anjelica Huston, sem sýnt hafði því áhuga. ■ Ástraiska stórstjaman Mel Gibson hefur lagt út á leikstjómarbrautina en tökur standa nú yfir á fyrstu mynd- inni sem hann leikstýrir. Hún heitir Andlitslausi maður- inn og fer Gibson líka með aðalhlutverkið í henni. DRAKULA COPPOLAS Ihryllingsmyndinni „Bram Stoker’s Dracula" eftir Francis Coppola, sem er ein af jólamyndunum í Bandaríkjunum í ár, leikur Bretinn Gary Oldman hinn blóðþyrsta Drakúla greifa sem ferðast frá kastala sínum í Transylvaníu til London að fínna ástina sína og blóðgjafa. Upprunalega átti Drakúla aðeins að vera kapalmynd en leikkonan Vinona Ryder kom Coppola inn í málið. Hún vildi leika í mynd eftir Coppola eftir að hún datt út úr þriðju Guðföðurmyndinni vegna veikinda. Coppola ákvað að ráðast í 40 milljón dollara bíómynd eftir hinni frægu sögu, réði Ryder í aðalkvenhlutverkið og Oldman fékk hlutverk sem margir í Holly- wood börðust um, þ. á m. Gabriel Byrne og Antonio Banderas. Anthony Hopkins leikur vampýruveiðara í myndinni. Drakúla tekur á sig ýmsar myndir með hjálp nýjustu tækni og vísinda. Hann breytist m.a. í leðurblöku, úlf, rottur (í fleirtölu), gamlan mann og ungan og græna þoku. Oldman þoldi ekki vel farð- ann sem tók sex tíma að setja á hann á hveijum degi og þjáðist af slæmu of- næmi. „Ég meina það er ekkert eðlilegt að maka sig út í lími og gúmmíi. Andlitið er ekki gert fyrir slíka hluti,“ segir hann. Umbreytingin; Gary Oldman sem Drakúla í mynd Coppolas. Coppola virðist hafa fengið nóg af hroll- vekjum og hafnaði nýlega boði um að leik- stýra nýrri mynd um Frankenstein. Hann mælir með Roman Polanski í leikstjóra- stólinn og Willem Dafoe í hlutverk vísinda- mannsins. 40.000 HAFA SED BÖRN NÁTTÚRUNNAR Alls hafa nú um 40.000 manns séð Böm náttúmnnar hér á landi að sögn Friðriks Þórs Friðrikssonar, leik- stjóra myndarinnar, sem sýnd hefur verið í Stjörnubíói í rúmt ár en nýtt sýningareintak hef- ur nú verið tekið í notkun. Þá hafa um 15.000 manns séð hasarmyndina Ofursveitina í Stjörnubíói að sögn Karls O. Schiöths bíóstjóra. Hann sagði að um 6.000 manns hefðu séð fjölskyldumyndina Bingo og að nýög góð aðsókn hefði verið að nýjustu mynd Romans Polanskis, Bitrum mána, fyrstu sýningarhelgina. Á næstunni mun bióið sýna myndina „A League of Their Own“ með Tom Hanks og Geena Davis og m.a. Madonnu, sem allt er að æra þessa dag- Q6A aðsókn; úr Bömum náttúrunnar. ana með Kynlífí sínu. Aðrar myndir bíósins eru „Thunderheart“, eða Þrumuþjarta, og „Single Wliite Female", eða Með- leigjandi óskast, sem gæti orðið jólamynd, og réttardramað „Á Few Good Men“. Á næsta ári koma svo myndimar Hetja, eða „Hero“, með Dustin Hoffman, „Bram Sto- ker’s Dracula" eftir Francis Coppola og Eig- inmenn og eiginkonur eftir Woody Allen, en tvær þær síðastnefndu gætu verið sýndar í febr- úar eða mars.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.